Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988. 11 Utlönd Pólverjar sendir heim Sumarliði ísleifeson, DV, Arósum; Þeir sem hafa átt leið fram hjá aösetri danska þingsins í sumar hafa mætt óvenjulegri sjón. Heldur óhrjá- legar tjaldbúðir hafa verið á torginu þar fyrir framan allt sumarið. Tveir pólskir flóttamenn fengu leyfi í vor til þess að koma sér þar fyrir í því skyni að vekja athygli á málstað sínum. Máttu þeir setja upp eitt tjald. Er leið á sumarið fjölgaði bæði flóttamönnunum og tjöldunum smám saman þar til upp var komin heil tjaldbúð. Nú þegar flóttamennirnir hafa fengið endanlegt afsvar við óskum sínum um hæli hefur hinn róttæki borgarstjóri vinstri sósíalista í Kaup- mannahöfn, Gunna Starck, krafist þess að flóttamennimir hætti að- gerðum sínum. Segir hún að aldrei hafi staðið til að þær yrðu svona umfangsmiklar. Nú stendur til að Pólveijarnir verði sendir heim von bráðar þrátt fyrir að þeir segist óttast um afdrif sín. Segja flóttamennimir aö fulltrúar pólska sendiráðsins hafi ljósmyndað mótmælendur og fylgst náið með aðgerðum þeirra. Hefur meðal ann- ars verið fjallað um mál þeirra í pólskum blöðum. Ákvörðunin um brottvísun Pól- verjanna hefur víðtækar afleiöingar. Búist er við að mörgum öðrum Pól- verjum, sem svipað er ástatt um, verði vísað úr landi í kjölfarið. Brani á brana- vamasafni Sumarliði ísleifeson, DV, Árósum í Árósum er stærsta brunavarna- safn í heimi. Hefur þar veriö safnað saman tækjum, verkfæmm og öðr- um minjum um þessa mikilvægu starfsemi. í fyrrinótt brann önnur aðalbygg- ing safnsins að miklu leyti. Er það í þriðja skipti á fáum árum sem slíkt gerist. Árin 1984 og 1986 kviknaði einnig í safninu, þó ekki væru það eins alvarlegir brunar og nú. í bæði skiptin vom eldsupptök af manna- völdum. Ekki er enn vitað um orsök að þessu sinni. Állmiklu tókst að bjarga af munum í eigu safnsins en einnig fór margt forgörðum. Þar á meðal eyðilögðust fjórir gamlir brunabílar algerlega. Er talið að það tjón sé óbætanlegt. Nú þegar hefur verið ákveðið að hús safnsins verði ekki endurbyggð enda voru þau orðin gömul og höföu áður veriö notuö sem sporvagns- skýli. Óvíst er því að sinni uni fram- tíð þessa safns en þegar er hafin leit að nýju húsnæði. Umsjón Ólafur Arnarson og Ingibjörg Bára Sveinsdóttir SOLUSYNING I IÐ N V E R K NÚ KYNNUM VIÐ TRÉ-X VÖRURNAR Á SÉRSTAKRISÝNINGU í IÐNVERKI, HÁTÚNI6A. ÞAR VEITUM VIÐ RÁÐGJÖF, GERUM VERÐTILBOÐ OG KYNNUM NÝJA LÍNU í HURÐUM, LOFTKLÆÐNINGUM OG PARKETI. INNIHURÐIR, 15 TEGUNDIR LOFTKLÆÐNINGAR ný lína SPÓNPARKET, MILLIVEGGIR, SÓLBEKKIR OG MARGT FLEIRA. GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR IÐAVÖLLUM 6, KKH.AVÍK, SÍMI: 92-14700. IBNVF.RK, HÁTÚNI 6A, SÍMAR: 25945 og 25930.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.