Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988. 7 Fréttir ^ Tíu dagar eftir af fresti forsætisráðherra: Osammála um flest ann- að en að kanna málin - fleiri ágreiningsmál koma í ljós á hverjum degi Á þeim tæpu tveimur vikum sem eftir eru af þeim fresti sem Þor- steinn Pálsson forsætisráöherra gaf sér og ríkisstjóm sinni til þess aö koma saman ráöstöfunum í efnahagsmálum þarf stjómin að sætta djúpstæöari ágreining en hún hefur áður staðið frammi fyr- ir. Þingflokkar stjómarflokkanna hafa aihr lýst því yfir aö þeir stefni aö hallalausum fjárlögum á næsta ári. Framsóknarflokkur hefur samþykkt sig fylgjandi niður- færsluleiö, Alþýðuflokkurinn vill kanna leiðina til hhtar og Sjálf- stæðisflokkur hefur samþykkt at- hugun hennar ef samráð næst við Alþýðusambandið. En með þessu eru nánast upp talin þau atriði sem flokkamir em sammála um. Flokkamir eru á engan hátt bún- ir að koma sér saman um með hvaða aðferðum skuh ná hahalaus- um fjárlögum á næsta ári. Djúp- stæður ágreiningur er einnig um með hvaöa hætti niðurfærslan skuh tryggð. Þessi ágreiningur er ekki einung- is milli flokkanna. Innan Alþýðu- flokks og Sjálfstæðisflokks er mis- munandi afstaða til niðurfærsl- unnar og annarra aðgerða sem ræddar hafa verið að undanfómu. Framsókn hörð á niðurfærslu Framsóknarflokkurinn virðist hins vegar standa heih að baki for- ystumanna sinna. Framsókn sam- þykkti á þingflokksfundi aö fara niðurfærsluleiðina og hefur þaraf- leiðandi í raun hafnað öðrum lausnum. Þingflokkurinn setti fram harðar kröfur um fram- kvæmd hennar. Framsókn vih lagasetningu um lækkun launa og verðlags. Flokkurinn vih einnig lagasetningu um hámarksvexti og hámarksvaxtamun. Flokkurinn vih setja skatta á fjármagnstekjur. Þá vih flokkminn lagasetningu um skatt á nýframkvæmdir sem stefnt væri gegn þeim sveitarfélögum sem ekki hhta tilmælum ríkis- valdsins um samdrátt í fram- kvæmdum. Jón Baldvin knýr sinn flokk til samþykkis Niðurstaða þingflokks Alþýðu- flokksins var um margt hk sam- þykkt þingflokks Framsóknar. Al- þýöuflokkurinn samþykkti þó ein- ungis að kanna niðurfærsluleiðina - ekki að fara hana. Þá vhdi Al- þýðuflokkurinn fara mhdari hönd- um um vextina. Flokkurinn var hins vegar harðorðari um skatta á fjármagnstekjur en Framsókn. í samþykkt þingflokksins segir að ekki skuh skattleggja fjármagns- tekjur minna en almennar launa- tekjur. Innan þingflokks Alþýðuflokks- ins standa menn ekki heils hugar að baki Jóni Baldvini Hannibáls- syni sem hefur með yfirlýsingum sínum gert sig að helsta talsmanni niðurfærsluleiðarinnar. Jón Sig- urðsson viðskiptaráðherra er th dæmis eflns um nauðsyn þess að fara niöurfærsluleiðina og mun það hafa komið skýrt fram á þing- flokksfundum. Jón Baldvin telur sig hins vegar ráða því sem hann vhl ráða í þingflokknum. Sjálfstæðismenn beggja blands Á þingflokksfundi sjálfstæðis- manna í síðustu viku hafnaði flokkurinn algerlega aukinni skatt- byrði umfram það sem hún er í ár. Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra áréttaði þetta í DV á laugar- daginn. Sjálfstaeðismenn hafa einn- ig hafnað beinni íhlutun um mál- efni sveitarfélaga. Með öðrum orð- um munu þeir aldrei samþykkja aukaskatt á framkvæmdir Reykja- víkurborgar th að knýja fram frest- un á þeim. Sjálfstæöismenn hafa auk þess aldrei lýst sig fylgjandi niður- færsluleiöinni þótt þeir hafi sam- þykkt að kanna hana með því skh- yrði aö samráð takist við Alþýðu- sambandið. Það kom til dæmis ekki í ljós fyrr en á miðnætti, daginn Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson sem miðstjóm Alþýðusambands- ins lýsti sig thbúna til viöræðna við ríkisstjórnina, að sjálfstæðismenn ætluðu að kanna niðurfærsluleið- ina af fullri alvöru. Frá miðjum degi og fram að miðnætti stóðu samstarfsflokkamir aht eins í þeirri meiningu að Sjálfstæðis- flokkurinn ætlaði í kosningar með kaupskerðingaráform samstarfs- flokkanna sem baráttumál. Alþýðusambandiö tvíklofið Þar sem miðstjóm Alþýöusam- bandsins er klofin í afstöðu sinni th niðurfærsluleiðarinnar er sam- þykki Sjálfstæðisflokksins við konnun hennar í raun miög veikt. Ef shtnar upp úr viöræðunum sem hófust í gær er Sjálfstæöisflokkur- inn í raun óbundinn af þessari leið. Líkumar th þess að samráðið fari út um þúfur em töluverðar, ekki hvað síst fyrir það að Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusam- bandsins og formaður viðræðu- nefndarinnar, er yfirlýstur and- stæðingur þess að niöurfærsluleið- in verði farin. Ásmundur hefur að undanfórnu setið á fundum með félögum sínum í Alþýðubandalag- inu þar sem aðgerðir gegn ríkis- stjóminni hafa verið samrænidar, eins og Ólafur Ragnar Grímsson, formaður flokksins, sagði í samtah viö DV. Þorsteinn bindur allt viðÁsmund Innan samstarfsflokka Sjálfstæð- isflokksins hefur komiö fram sú hugmynd að sniðganga Ásmund með því að fá samþykki Verka- mannasambandsins og ýmissa lág- launafélaga fyrir niðuríærsliheið- inni. Guðmundur J. Guðmunds- son, formaður Verkamannasam- bandsins, hefur lýst yfir að niður- færsluleiðin sé betri kostur en gengisfelhng og ýmsir aðrir for- menn verkalýðsfélaga hafa látið frá sér fara svipaðar yfirlýsingar. í samtali við DV hafnaði Þor- steinn Pálsson þessari útgönguleið. Hann sagðist ekki ætla að hlutast th um með hvaða hætti verkalýðs- forystan mætti th fundar. Það væri ekki markmiö stjórnarinnar að sundra verkalýðshreyfingunni. Það heföi verið eðlilegt fyrir ríkis- stjórnina að snúa sér th Alþýðu- sambandsins. Ágreiningur um umfang aðgerðanna Innan Sjálfstæðisflokksins eru margir þeirrar skoðunar að í raun sé ekki ástæða th þess að grípa til jafnharkalegra og víðtækra að- geröa og mðurfærshheiðin er. Frysting launa, niðurskurður í rík- isfjármálum og takmörkun á er- lendum lántökum séu í raun nægj- anlegar aðgerðir th þess að skapa hér stöðugleika. Að því fengnu er ástæða th að leysa það með hvaöa hætti fyrirtækin yrðu aðstoðuð th þess að hagræða og bæta rekstur- inn. Davíð Oddsson borgarstjóri dró th dæmis í efa að ástandið væri jafnsvart og af væri látið í viðtah viö Pressuna. Innan Alþýðuflokks- ins eru einnig menn sömu skoðun- ar. En innan Sjálfstæðisflokksins eru einnig uppi háværar raddir um umfangsmiklar aðgerðir. Með yfir- lýsingum sínum eftir ferðir sínar um landsbyggðina ýtti Þorsteinn Pálsson mjög undir þessar raddir. Þær koma einkum frá landsbyggð- arþingmönnum sjálfstæðismanna. Afstaðan th niðurfærslunnar og th hversu umfangsmikhla aðgerða þurfi að grípa skiptist í tvennt um þau skh sem hafa verið aö skerpast milh landsbyggðar og suðvestur- homsins í Sjálfstæðisflokknum á undanfómum árum. Tillögum Jóns Baldvins hafnað Áhersla Framsóknarflokksins á umfangsmiklar efnahagsaðgerðir jókst enn með yfirlýsingu Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráð- herra í gær. Þar lýsti hann því yfir aö hann myndi leggja til minni þorskveiði á næsta ári. Hann sagði menn yrðu að mæta því með sam- drætti th viðbótar þeim sem 10 til 11 mihjarða viðskiptahahi kallaði á. Þær tillögur um niðurskurð og skattahækkanin til að tryggja hahalaus fjárlög á næsta ári, sem Jón Baldvin Hannibalsson lagði fyrir ríkisstjórnina, féllu í grýttan jarðveg. Sjálfstæðismenn höfnuðu öllum skattahækkunum. Halldór Ásgrímsson nánast skammaöi Jón Baldvin fyrir aö leggja til skatt á veiðikvóta. Niðurskurðarthlögur Jóns Baldvins náðu ekki yfir nema 2,3 milljaröa. Þar sem sjálfstæðis- menn hafa hafnað skattahækkun- um á ríkisstjórnin því eftir að flnna um 1,4 mihjarða th að skera niður. Stjórnarslit yfirvofandi Þorsteinn Páísson hefur gefið rík- isstjóminni tíma fram í miðjan þennan mánuð th að koma sér sam- an um tæplega 4 mihjarða niður- skurð á ríkisútgjöldum. Á sama tima á ríkisstjómin eftir aö ákveða hvort niðurfærsluleiðin verði far- in. Ef svo veröur þarf hún aö koma sér saman um hvemig staðið verði að framkvæmd hennar. Þá á hún eftir að koma sér saman um hvem- ig dregið verði úr þenslu hjá öðrum en ríkissjóði. Hún verður að koma sér saman um aðgerðir th að bæta greiðslustöðu útflutningsfyrir- tækjanna. Hún verður að taka af- stöðu tíl kröfu framsóknarmanna um afnám lánskjaravísitölu og af- nám vaxtafrelsis. Hún verður að samþykkja með hvaða hætti eig- inflárstaöa fyrirtæKja veröur bætt. Það er því ekki furða þótt stjórn- arliöar haldi þeim möguleika opn- um að síðustu dagar ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar séu mnnir upp. Sjónvarp frá ólympíuleikunum: Sent verður í um 160 stundir Markús örn Antonsson útvarpsstjóri og Ingolfur Hannesson kynna ólympiu- dagskrá sjónvarpsins. Fyrir framan þá er tigrisdýr, tákn leikanna. DV-mynd Brynjar Gauti Ólympíudagskrá Sjónvarps og Út- varps var kynnt á blaðamannafundi í Sjónvarpshúsinu í gær. Þar kom fram að Sjónvarpið mun senda út efni frá ólympíuleikunum í samtals um 160 klukkustundir. Tveir íþrótta- fréttamenn verða í Seoul, en hér heima munu 4-6 íþróttafréttamenn taka á móti og vinna úr efni sem berst um gervihnött. Th saman- burðar má geta þess að danska ríkis- sjónvarpið hefur nú þegar sent 70-80 manns til Kóreu og mun senda í rúm- lega 170 stundir frá leikunum. Ólympíuleikarnir koma viö sögu hinna ýmsu deilda sjónvarpsins, þar á meðal leikmyndadehdar. Vinnur leikmyndadeild að uppsetningu á sérstöku ólympíustúdíói þaðan sem sjónvarpað verður ólympíusyrpum á morgnana og á kvöldin. Beinar útsendingar í Sjónvarpi hefjast um og eftir miðnætti alla daga og standa fram á morgun. Úrval efn- is frá þeim verður síðan endursent í fyrmefndum ólympíusyrpum. í Útvarpinu mun rás 2 verða ólympíurás. Koma sendingar frá leikunum inn í dagskrá beggja rása frá miðnætti og th sjö á morgnana. Ahan daginn verða lengri eða styttri pistlar eftir atvikum. Ólympíu- leikapistill dagsins verður hvem morgun mihi hálfníu og níu. Markús Öm Antonsson sagði á fundinum að Sjónvarpinu hafi oft verið legið á hálsi fyrir að senda ekki nógu lengi á kvöldin, en nú sæi Sjón- varpið um að halda vöku fyrir ahri þjóðinni. Ingólfur Hannesson skýrði frá stöðu mála hvað varðar handbolta- leiki íslands. Eins og DV hefur þegar skýrt frá em leikimir við Sovétmenn og Júgóslava komnir í hús. Leikur- inn við Svía verður sendur með nokkurra klukkutíma seinkun og leikimir við Bandaríkin og Alsír samdægurs. Leikjunum verður lýst beint í Út- varpi sem hér segir: þriðjudag 20. sept kl. 8.00: ísland- Bandaríkin fimmtudag 22. sept kl. 8.00: ísland- Alsír laugardag 24. sept kl. 04.00: ísland- Svíþjóð (sjónvarpað kl. 8.15) sunnudag 25. sept kl. 24.00: ísland- Júgóslavía (sjónvarpað beint) miðvikudag 28. sept kl. 04.00: ísland- Sovétríkin (sjónvarpað beint) Aö sögn sjónvarpsmanna verður aht gert th að sýna beint frá keppni annarra íslendinga en handbolta- mannanna og koma með viðtöl við þá. I tilefni ólympíuleikanna hefur sér- stakur móttökudiskur verið keyptur th landsins og verður hann settur upp viö Skyggni hjá Úlfarsfehi í vik- unni. Þaðan hggja ljósleiðarakaplar niður í Sjónvarp svo senda megi 2 myndir í einu. Verður diskurinn not- aður í framtiðinni th móttöku á íþróttaefni og fréttaefni og binda sjónvarpsmenn miklar vonir við hann í því sambandi. -hlh HAPPDRÆTTI 5 Ford Bronco - 40 Fiat Uno Dregið 12. september. Heildarverómœti vinninga 21,5 milljón. /j/tt/r/mark

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.