Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988. Fréttir Skoðanakönnun DV: Ríkisstjómín áfram í dúndrandi minnihluta Ríkisstjórnin er áfram í dúndrandi og vaxandi minnihluta meðal þjóðar- innar. Þetta sýnir skoðanakönnun DV sem gerð var um helgina. Úrtakið í könnuninni var 600 manns. Jafnt var skipt milli kynja og jafnt milli Stór-Reykjavíkursvæð- isins og landsbyggðarinnar. Spurt var: Ertu fylgjandi eða andvígur rík- isstjóminni? Af heildinni í úrtakinu sögðust 33,8 prósent vera fylgjandi stjóminni. Það er 0,5 prósentustigum meira en var í DV-könnun í júní. 50,7 prósent kváðust andvíg sfjóminni. Það er 8 prósentu- stigum meira en í júní. Óákveðnir em nú 13,8 prósent, eða 7,7 prósentustigum færri en í júní. Þeir sem ekki svara eru 1,7 prósent, 0,8 prósentustigum færri en í júníkönnun. ■ Fylgjandi § Andvígir Sept. Nóv. Jan. Mars Júní Nú Fylgi við ríkisstjórnina í könnunum DV Súluritið sýnir hlutföllin milli fylgismanna og andstæðinga ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu. Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar. Til samburðar eru niðurstöður fyrri DV-kannana: sept. nóv. jan. mars júní nú Fylgjandi stjórninni 45,5% 46,7% 35,3% 33,7% 33,3% 33,8% Andvígirstjórninni 27,2% 30,0% 46,7% 43,3% 42,7% 50,7% Óákveðnir 22,0% 21,0% 13,7% 22,0% 21,5% 13,8% Svara ekki 5,3% 2,3% 4,3% 1,0% 2,5% 1,7% Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar þessar: sept. nóv. jan. júni Fylgjandi stjórninni 62,6% 60,9% 43,1% 43, 7% 43,9% Andvigirstjórninni 37,4% 39,1% 56,9% 56, 3% 56,1% Ríkisstjórnin er í stöðugum minnihluta. Þetta þýðir að af þeim sem taka afstöðu eru 40 prósent fylgjandi stjórninni eða 3,9 prósentustigum minna en í júní. Andvígir stjórninni em 60 prósent sem er 3,9 prósentu- sti'gum meira en í júní. Fylgi stjóm- arinnar hefur aldrei áður verið jafn- litið hjá þeim sem tóku afstöðu. Ríkisstjórnin hefur verið í minni- hluta samkvæmt skoðanakönnunum DV síðan í janúar. -HH. Ummæ li fólks i Konn uninni • „Ef miða á við árangur hlýt ég að vera á móti,“ sagði karl á Norð- „Þetta er vandræðastjór fylgi henni samt með •n en ég hálfum urlandi „Það er betra aö hafa þessa, þó hún sé hálfduglaus, held- huga,“ sagði karl á höfi svæðinu. „Þeir þurfa aö iðborgar- losna við ur en að fara kjósa nuna, sagði kona á Suðurlandi. „Ég er hlynnt niðurfærsluleiðinni og mundi Fiftftisokn, s<dgöi kail 1R „Þeir haga sér eins og t þá sérstaklega Jón Baldvi eykjavík. jánar og n,“ sagði er hundrað prósent á móti ríkis- gott séö koma frá þessar stjórn," stjórninni," sagöi kona í Reykjavík. sagði karl á Austurlanch . „Það á og hefur ekkert náð að spOa úr sig út kjörtímabiiiösag ði kona í ^uOdui iiiu Scui vai, sagoi Kan ai landsbyggöinni. „Mér Qimst aö rík- KeyivjaviK. „ng iyigi riKiss um leið og hún gerir t tjoí mnm itthvað,*' Tm A ó er samt fylgjandi henni,“ sagði kona á Vesturlandi. „Þessir þrír aö grafa hana í hvelli,“ s á höfuðborgarsvæðinu. agöi karl ,Eg fylgi flokkar geta ekki stjórnað saman. Ég vil fá Framsókn og Kvenna- henni ef hún kemur sér jörðina," sagði kona á Suö niður á urlandi. lista,“ sagöi kona á Noröurlandi. -gse Olvaður ók undir tengivagn Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Miðað við hvemig bíllinn var útleikinn var ekki hægt að hugsa sér annað en að þama hefði orðið stórslys,“ sagði varðstjóri hjá Akureyrarlögreglunni um árekstur er varð í bænum á fóstu- dagskvöld. Ókumaður, sem grunaður er um ölvunarakstur, ók þá undir tengivagn sem lagt hafði verið við umferðarmiðstöðina. Segja má að þak bílsins hafi rifnað af er bíll- inn ók undir vagninn og þykir furðulegt að ökumaðurinn hafi sloppið ómeiddur en bílhnn er gjörónýtur. Annar „stútur“ var á ferðinni kvöldið eftir og lenti þá í árekstri á Kaupangstræti. Að öðru leyti var helgin tíðindalítil hjá lög- reglu á Akureyri. Bílvelta: Granur um ölvun Bílvelta varð snemma á sunnu- dagsmorgun á Langatanga í Mos- fellsbæ. Tveir ungir menn voru þar í ökuferð. Þeir eru grunaðir um ölvun við akstur. Mennimir sluppu án teljandi meiðsla. -sme Vertíðin léleg Júlia Imsknd, DV, Homafirði: Humarveiðum Hornaíjarðar- báta lauk um síðastliðin mánaða- mót. Vertíðin er ein sú lélegasta í mörg ár. í fiskiðju KASK var tekið á móti 137 tonnum af slitnum humri en 42,7 tonnum af heilum humri, en í fyrra var shtinn hum- ar 236,9 tonn en nær ekkert af heilum. í sumar voru 16 bátar frá Höfn á humarveiðum og er það sami fjöldi og í fyrra. Nú að loknum humarveiðum munu flestir bátarnir fara á fiskitroll og eru sumir farnir til veiða. I dag mælir Dagfari Helgarpósturinn er búinn að leggja upp laupana eftir heijuiegt dauða- stríð, þar sem hluthafar og starfs- menn rifu augun hver úr öðrum. Síðustu tölublöðin voru frásagnir hinna stríðandi fylkinga og mátti ekki á milli sjá hvor hafði betur, starfsmennimir við að eyðileggja blaðiö eða sljómin við að grafa undan starfsmönnunum. Þrátt fyr- ir mjög heiðarlega thraun til að upplýsa öll innanhússhneykslis- málin hjá þeim óþjóðalýð sem stóð að útgáfunni tókst ekki aö rétta sölu Helgarpóstsins við og blaðið fór á hausinn. Mun það vera eitt hressilegasta gjaldþrot seinni tíma og kalla þeir þó ekki allt ömmu sína í þeim efnum, mennimir sem höfðu skrifað hvað ákafast um gjald- þrotamál annarra. Það sem helst hann varast vann, varð svo að koma yfir hann. Helgarpóstumn hætti að seljast, af því enginn nennti að lesa hann. En ekki hafði Helgarpósturinn fyrr geispað golunni heldur en nýir hugsjónamenn í blaðaútgáfu ruku upp til handa og fóta og sáu sér leik á borði. Þjóðviljinn hóf útgáfu á nýju helgarblaði og stældi Hel- garpóstinn sem mest hann gat, í samræmi við þann hugsunarhátt Gula pressan að best sé að græöa á ófórum ann- arra. Þetta nýja helgarblaö Þjóð- viljamanna kemur út á fimmtudög- um og ber það með sér að helgin byijar snemma á Þjóðviljanum, enda um að gera að vera á undan öðrum með hneykslin og kjaftasög- urnar og frásagnirnar af annarra manna hrakforum. Fljótlega kom þó í ljós aö Þjóövilj- inn fær ekki að sitja einn að þess- um gómsæta blaöamat. Þeir á Al- þýðublaðinu láta ekki deigan síga, þegar dauðvona blaöaútgáfa er annars vegar, enda lengi búnir að hafa þá sérstöðu að gefa út blöð, sem ekki em lesin. Nú em þeir Alþýðublaðsmenn lagðir af stað með nýtt blað sem heitir Pressan og leit dagsins ljós í síðustu viku. Ekki verður betur séð en Helgar- pósturinn sé þar endurborinn og Pressan hefur að því leyti heppnast betur en helgarblað Þjóðviljans að Pressan skreytir sig með gula litn- um á forsíðu. Blaðið villir ekki á sér heimildir og er það í fyrsta skipti sem gula pressan stendur undir nafni. Hneykslismálin em á sínum stað, kjaftasögumar em á sínum stað og dagbókin hennar Dúllu er á sín- um stað, þannig að þeim á Al- PRESSAN ». ibl. 1. ár*. 2 scpl- 1986. kr. IÖ0. fslendingur œtlar að skipta um kyn HANN VILL þýðublaðinu hefur tekist eftirlík- ingin einstaklega vel. Helgarpóst- urinn var hættur að seljast og þess vegna er um að gera að stæla blað- ið sem mest, svo öryggt sé að Press- an seljist ekki heldur. Þeir á Al- þýðublaðinu eru vanir menn í útg- áfu blaða sem ekki seljast, enda ekki við öðm að búast en að þetta nýja blað fái ríkisstyrk eins og Al- þýðublaðið og öll hin flokksblöðin og þá er auðvitað aukaatriði hvort PRESSAN rædir viö uneia ntínn, ekki ætUr i6 mrfim öpp fyrr tn h3im er oröi3n tona -- þó þvi fylgi viss áhætu, scnt iiann cr fyliilega rneðvitaðar uin. Man harm IA. gcta lifað kynlíR cfiír vkuiðaðgeiðirift ijg þá mcð hvwjum? ÞaA er roaAur mill i mcðal nktar hét i (slandi, vcur á viÁ vwRa*t sagi óvcnjulcet vnmlamii aA vtrfða. Hann (t 4 þrihigsaWri og títur út cirw o? hvcr annar ungur maður, tn ielgín buga er bann — og hcfar alltaí vcrið GEF STJÓRN- INNI 3 VIKUR blöð séu lesin eða ekki. Nýmæli Pressunnar átti að vera það innlegg að fá einhvern stjórn- málamann til að skrifa palladóm um annan stjómmálamann. Guð- rún allabalh Helgadóttir var beðin um grein og hún rubbaði frá sér grein um Jón Baldvin fjármálaráð- herra. En af því að Pressan er gefin út af Alþýðublaðinu og Jón Baldvin er fjármálaráðherra og ræður yfir ríkisstyrkjunum, þá sá þetta nýja og ferska blað ekki ástæðu til að birta greinina eftir Guðrúnu alla- balla um Jón ráðherra. Það má bara tala illa um suma en ekki alla, vegna þess að á nýju og óháðu blaði em allir jafnir en sumir eru jafnari en aðrir. Fyrir vikið birtist grein Guðrúnar í nýja helgarblaði Þjóð- viljans, enda ritskoða þeir ekki greinar um Jón Baldvin á Þjóðvilj- anum. Gula pressan fer sem sagt vel af stað. Hún ungar ekki aðeins út rit- skoðuðum greinum í sínu eigin blaði, heldur skaffar gula pressan líka greinar fyrir önnur blöð og ekki er heldur að efa þegar fram í sækir að ritskoðaðar greinar frá nýja helgarblaði Þjóðviljans eigi eftir að birtast í gulu pressunni. Það fer allt eftir því hvern verið er að skrifa um, enda eru þetta allt blöð, sem eiga líf sitt undir ríkis- styrkjum frá mönnum sem skrifað er um á réttum stöðum. Enginn þarf að hafa áhyggjur af því þótt Helgarpósturinn sé dauður af því hann seldist ekki. Gula press- an er enn í fullu fjöri. Það em allt- af til menn sem vilja gefa út blöð sem ekki seljast. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.