Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Blaðsíða 28
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988. •':8 Fréttir Drullupytturinn reyndist keppendum erfiður að þessu sinni og tókst engum þeirra að komast rétta leið upp úr honum. Meðal þeirra sem lentu í miklum vandræðum í drullupyttinum var Steinar Sigurðsson sem keppti á AMC Bergþór iðulega frábæran akstur og tókst að ná öllu því besta út úr gamla Willysnum. Mátti ætla að þeir rynnu saman í eitt hrikalegt torfærutæki þegar best lét. Guðbjörn Grímsson veitti Bergþóri hörðustu keppnina en náði þó aldrei að ógna honum verulega. Guðbjörn ók geysilega kraftmiklum Bronco með Túrbó 351 cid vél, og átti hann oft í erfiðleikum með að hemja Broncóinn. í þriðja sæti varð svo Gunnar Guð- mundsson sem ók Willys jeppa með 350 cid Pontiac vél. Jóhann A. Kristjánsson Bergþór Guðjónsson þandi gamla jeppabúrið sitt til hins ítrasta og sýndi snilldarakstur í keppninni. Hann hafði töluverða yfirburði í flokki sérút- búinna jeppa þar sem hann sigraði. Áhorfenum gafst líka kostir að sjá raunverulega uppsveiflu á tímum niður- færslna. Opiö hús hjá RALA: Bragðað á fóðrí og melting vélkýr skoðuð Rúmlega 600 manns sóttu Rann- sóknastofnun landbúnaðarins að Keldum heim um helgina þar sem RALA haföi opið hús í tilefhi nor- ræns tækniárs. Var starfsemi allra deiida kynnt með myndefni, línu- ritum og stikkoröum og voru sér- fræðingar til taks tii að svara spumingura forvitinna gesta. Að sögn Amgríms Thorlacius-var þetta vel heppnuð kynning og var mikiö spurt. Sagði hann aö ef fleiri hefðu koraið heföi myndast troön- ingur. RALA notaði tækifærið og fram- kvæmdi bragðprófanir á kóla- drykiýum og hangikjötsáleggi, auk þess sera fólk bragðaði á mismun- andi tegundum húsdýrafóðurs. Sagöi Amgrímur svona opið hús praktískt þar sem sjaldan næðist í svo stóran hóp til bragðprófana í einu. Vélræn kýr, þar sem líkt er eftir raeltingu á ýmsura fóðurteg- undura og hún skoðuð, vákti óskipta athygli gestanna á kynn- ingunni. Utanhúss vom refir, minkar, ioð- kanínur og laxaseiði í keri til sýnis. -hlh Vélræn kýr, þar sem likt er eftir meHlngu jórturdýra og melting margs konar fóðurs athuguð, vakti ósklpta athygli i opnu húsi hjá RALA um DV-mynd S Jeep CJ 7 með 360 AMC vél. Hann festi jeppann illilega við moldarbinginn við enda gryfjunnar eftir að hafa affelg- að annað framhjólið. Urðu Stakksménn að lokum að fá gröfu til að hífa jeppann upp úr gryfjunni svo að þeir gætu haldið keppninni áfram. Torfærukeppni Stakks í Grindavík: Hörkukeppni mestu torferutrölla landsins Árleg torfæruaksturskeppni björg- unarsveitarinnar Stakks var haldin sl. sunnudag við Grindavík að við- stöddu miklu fjölmenni. Þátttakend- ur í keppninni voru óvenju margir og kepptu þeir í tveimur flokkum. Flokki götubíla og sérútbúinna jeppa. Mikil harka var í keppninni og gáfu keppendur ekkert eftir enda styttist í að úrsht ráðist í íslands- meistarakeppninni þar sem einungis ein keppni, sem gefur stig til íslands- meistaratitils, er eftir á þessu keppn- istímabili. Verður sú keppni haldin síðar í haust. Götubílaflokkur Þaö var íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Gunnar Hafdal, sem sigraði í keppninni í götubíla-flokknum eftir harða og jafna keppni við Þórð Gunnarsson. Þeir félagar beijast um íslandsmeistaratitiUnn i götubíla- flokknum og munu þau úrslit ráðast í Akureyrarkeppninni. i þriðja sæti í götubílaflokknum varö svo Rík- harður Jónsson frá Egilsstöðum. Flokkur sérútbúinna jeppa Gamla kempan, Bergþór Guðjóns- son sem ók gamla Willysnum sínum með Turbó B-20 Volvo vélinni, sigr- aði í flokki sérútbúinna jeppa og sýndi þar töluverða yfirburði. Sýndi Jepparnir fóru iðulega i loftköstum í torfærunum og í fýrstu brautinni sner- ist þessi jeppi í loftinu eftir að hafa brotist upp knappt barð. Fór hann út úr brautinni og munaði minnstu að hann æki yfir kvikmyndatökumann Stöðv- ar 2 sem átti fótum fjör að launa. DV-myndir Jóhann A. Kristjánsson Guðbjörn Grímsson keppti á geysiöfiugum og skemmtilegum Bronco sem hann átti reyndar erfitt með að hemja, þegar hann gaf Broncónum ótæpi- lega inn. I hléinu i keppninni sýndu nokkrir ökuþórar glæfraakstur og hér sést einn þeirra fljúga á gömlu Chryslerbraki yfir nokkra bíla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.