Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988.
19
Einn með bíladellu
Kenneth Behring, sem eitt sinn
seldi notaöa bíla, hafði alla tíð átt sér
draum. í staö þess aö selja bOa vildi
hann eiga sérstaka bíla. Nú hefur
hann látið draum sinn rætast. Behr-
ing, sem er sextugur, er í dag marg-
faldur milljónamæringur og bíla-
safnið hans er shkt að sérhver olíu-
fursti þætti fullsæmdur af. Auðæfi
sín hefur hann öðlast með fasteigna-
viðskiptum.
í dag opnar hann fyrir almenning
Behring feafnið, skammt utan við San
Fransisco. í safninu, sem er höll úr
gleri og graníti og kostaði litlar fimm
hundruð og fimmtíu milljónir króna
í byggingu, ætlar hann að hafa úrval-
ið af tvö hundruð og fimmtíu bíla
flota sínum til sýnis. Sjálfur áætlar
Behring að bílar hans séu að virði
samtals tæplega fimm milljarðar
króna.
Sumir þeirra eru reyndar svo verö-
mætir að hann geymir þá inni á
stofugólfi í húsinu sínu sem er að
sjálfsögðu búið fullkomnu þjófavam-
arkerfi.
í safninu verða margir eðalvagn-
amir til sýnis og liggur mikil saga á
bak við suma þeirra. Einn þeirra,
1926 árgerð af Isotta Fraschini, var í
eigu Rudolph Valentinos. Dekkin
undir honum eru algerlega úr hvítu
gúmmíi. Annar var í eigu Ðorothy
di Frasso greifynju. Það er Rolls Ro-
yce Phantom II, árgerð 1933.
Greifynjan, sem dó í svefni árið
1954, með skargripi fyrir um tíu
milljónir króna um hálsinn, lét sér-
smíða bílinn fyrir sig. Var það til að
slá út helsta keppinaut hennar í
Hollywood á þeim tíma, Constance
Bennett. Bíllinn var hannaður með
kvenlegum línum og sérstaklega til
þess gerður að hægt væri aö bera
Kenneth Behring, sem eitt sinn seldi notaða bíla en lét sig alltaf dreyma
um að eiga glæsilega bíla, strýkur hér hendinni yfir Hispano-Suiza bíl sinn
sem kostar um það bil tvö hundruð milljónir.
barðastóra hatta í honum. finnst mest til koma er annar af
Einn af þeim bílum sem Behring tveimur Hispano-Suiza bílum, sem
smíðaðir voru fyrir bresku Rotschild
bankafjölskylduna. Hann á einimgis
þann sem var hannaöur fyrir karl-
inn, en hinn var fyrir konuna. Behr-
ing segist hafa þurft að kaupa 150
bíla frá safnara í Suður-Kaliforníu til
aö fá þennan bíl og tvo eða þrjá aðra
sem honum leist vel á. Afganginn
seldi hann strax aftur.
í safni hans er grár og svartur
Mercedes Benz frá árinu 1939. Þessi
bíll er merkilegur fyrir þær sakir að
hann var í eigu Adolfs Hitler. Bíllinn
er skotheldur og rúðurnar í honum
eru fimm sentímetrar að þykkt. Bíll-
inn er ekki á besta stað í safninu og
segir Behring ástæðu þess vera þá
að sér finnist hann ljótur, ekki nógu
listrænn, en honum finnst bílarnir
sínir vera list sem eigi eftir að stand-
ast tímans tönn.
Behring, sem á svæðið sem safnið
stendur á, hefur nýverið byggt sér
hús rétt viö safnið. Stofan í húsinu
er byggð sérstaklega utan um sjö bíla
sem hann heldur sérstaklega mikið
upp á.
Þar er Duesenberg blæjubíll frá
árinu 1935 með 265 hestafla vél sem
Clark Gable átti og var á þegar hann
heillaði Carole Lombard upp úr
skónum. Nokkur skref í burtu er
Bugatti frá árinu 1939, sem franska
ríkisstjómin gaf íranskeisara í brúð-
argjöf.
Behring segist ætla að verja því
sem eftir er af lífinu til að bæta við
bílasafn sitt, og segist ætla að verða
sér úti um sem flestar perlur úr sögu
bílanna.
Fyrsti bíllinn, sem Behring eignaö-
ist, var tvennra dyra Pontiac, árgerð
1928, sem kostaði þrjú þúsund og
fimm hundruð krónur.
Fjendur
friðmælast
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
hefur ekki alltaf átt þægileg éða
skemmtileg samskipti við frétta-
mennina sem starfa við það að afla
frétta úr Hvíta húsinu. Mörgum
finnst hann gera allt of lítið að því
aö tala viö blaðamenn og halda
blaðamannafundi.
Á síðari tímum eru þaö tveir
bandarískir forsetar sem minnst
samskipti hafa átt við fjölmiðlafólk.
Reagan forseti vökvar nýgróður-
setta rauðviðarplöntu á búgarði sin-
um, Rancho del Cielo, i Kalifornfu
sfðastliðinn laugardag. Nancy Re-
agan fylgist áhugasöm með.
Það eru þeir Ronald Reagan og Ric-
hard Nixon. Það er því athyglisvert
að það eru einmitt þessir tveir forset-
ar sem náð hafa mestum vinsældum
meðal bandarísku þjóðarinnar og
unnið stærstu kosningasigrana. Ef
til vill er þetta umhugsunarefni fyrir
bandaríska stjórnmálamenn, og
reyndar stjórnmálamenn alls staðar.
Hætta að tala við blaðamenn og vin-
sældirnar eru tryggðar.
Fjölmiðlar hafa reynt allt hvað af-
tekur að ráðast á Reagan og gera
hann tortryggilegan í augum banda-
rísku þjóðarinnar en hann hlær að
öllu saman og passar sig á að láta
fréttamenn aldrei ná tali af sér nema
þá helst undir hávaða af þyrluspöð-
um og má með sanni segja að kalt
stríð hafi ríkt á milli forsetans og fjöl-
miöla þótt eldheitt ástarævintýri hafl
á sama tíma staðið yfir á milli forset-
ans og þjóðarinnar.
En fjendur friðmælast á hátiðar-
stundum og nú líður aö því að Reag-
an láti af embætti og flytji aftur heim
til Kaliforníu. í tilefni þessara tíma-
móta ákvað Hvíta húss pressan aö
gefa íjandvini sínum gjöf og fyrir
valinu varö rauöviöartré sem að
sjálfsögðu var gróðursett á búgarði
forsetans í Kaliforníu, Rancho del
Cielo. Sennilega hefur gleöi frétta-
mannanna verið slík að hugsa til
þess aö þeir losna senn viö Reagan
og fá fómarlamb sem þeir eiga í fullu
tré við.
Þessir öryggisveróir þurfa nú ekki aö gera upptækt áfengi hjá ólympiuþátt-
takendum. Nú mega iþróttamennirnir teyga allt það áfengi sem þeir geta i
sig látlð.
Grænt ljós á sukk
Mikil gleöi braust út meöal þeirra
íþróttamanna, sem þegar eru komnir
til Seoul til aö taka þátt í ólympíu-
leikunum, þegar yfirvöld í ólympiu-
þorpinu ákváöu aö nema úr gildi
áfengisbann sem þar hafði gilt. Nú
munu íþróttamennirnir geta skálaö
fyrir unnum sigrum og einnig drekkt
sorgum sínum ef svo ber undir.
Forráöamenn erlendra hópa kvört-
uðu eftir aö öryggisverðir höföu gert
upptækt brennivín sem bandarískir
og hollenskir íþróttamenn reyndu að
smygla inn í þorpiö. Banninu var
aflétt nokkrum klukkustundum síð-
ar.
Þessi ákvöröun vakti sérstaka
ánægju hjá Frökkum. Þeir hafa þeg-
ar gert ráðstafanir til að fá þrjá bfl-
farma af víni senda til ólympíuliðs
síns.
Og svo héldu sumir að áfengi heföi
slæm áhrif á getu íþróttafólks!
Sviðsljós
Ólyginn
sagði. . .
Bruce
Willis
og Demi Moore kona hans eiga
von á stúlkubarni síöar í þessum
mánuði. Reyndar átti það að vera
leyndarmál hvert kyn barnsins
væri, en Bruce, sem viröist eiga
dálítiö erfitt með að halda nokkru
leyndu, glopraði kyninu út úr sér
alveg óvart. Hann sagði að sér
þætti það vera sérlega spennandi
að verða faðir, og að hann vildi
gjarnan kenna væntanlegu barni
að hlæja, og bætti svo við að það
fyrsta sem hann myndi gera væri
að kenna henni að hlæja. Það er
svona að klikka á smáatriðunum.
Joan
Kennedy
fyrrum eiginkona Edwards
Kennedy og móðir barnanna
hans, lenti heldur betur í því um
daginn. Hún var langt komin meö
að skrifa bók, þar sem hún lýsir
baráttu sinni og sigri gegn áfeng-
inu, er hún var tekin fyrir að aka
ofurölvi. Vesalings konan er enn-
þá alveg miður sín eftir að yngri
sonur hennar, Patrick, þurfti að
gangast undir skuröaögerö vegna
æxlis. Það er eðlilegt að þetta
valdi ótta hjá Joan, því að hér
áður fyrr missti eldri sonur henn-
ar annan fótinn af völdum
krabbameins.
Eddie
Murphy
var víst ekki til sóma á dögunum
þegar verið var að kvikmynda
síðustu mynd hans og lá viö oftar
en einu sinni að hann myndi
lenda í slagsmálum viö John
Landis sem var leikstjóri þeirrar
myndar. Einnig var hann alltaf
seinn og dónalegur viö leikbún-
ingastjórann, sem reyndar var
eiginkona Landis. Myndin er tal-
in verða góð, en Murphy hefur
neitaö aö vinna nokkurn tímann
aftur með Landis.