Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Side 29
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988.
29
DV
Yiðey verður vinsæl
- enda margt að skoða
Viðeyjarstofa hefur fengið andlits-
lyftingu og þjóðin fylgst spennt með
framkvæmdum síðustu árin. Stofan
var síðan opnuð formlega á afmæli
móður sinnar, Reykjavíkurborgar,
18. ágúst síðastliðinn, við mikla við-
höfn.
Og viti menn, allt í einu er þessi
friðsama eyja með gamla látlausa
húsinu og' litlu kirkjunni orðin einn
vinsælasti staðurinn að heimsækja
um helgar. Þessa dagana er enginn
maðiir með mönnum ef hann fer
ekki út í Viðey. Ef ekki til að fara í
brúðkaup eða á ráðst.efnu þá til að
borða ljúffengan mat á gamaldags
veitingastað eða fara í kaffihlaðborð
með afa og ömmu. Nú eða þá bara
til aö fara í hressandi göngutúr og
skoða þess fallegu eyju í nálægð.
-----------------------------------
Stærri en margan grunar
Það er reyndar ótrúlegur fjöldi
borgarbúa sem aldrei hefur komið
út í Viðey þótt hún blasi við augum
upp á hvern dag. Marga hefur langað
og þeir hafa alltaf verið á leiðinni.
En einhvem veginn hefur því ekki
verið komið í verk. Kannski hafa
þeir þurft að eiga erindi þarna út.
Viðey, sem er stærsta eyjan á
Kollafirði, er mun stærri en margir
gera sér grein fyrir. Hún er um 2,6
km að lengd og breiðust er hún rúm-
ir 700 m. Eyjan er grösug, með hólum
og hæðum. Hæst er hún á Heljar-
kinn, um 32 m yfir sjávarmáli. Þarna
er því hægt að fara í heilmikinn
göngutúr.
Ýmslegt skemmtilegt er hægt að
skoða í eyjunni. Gróðurfar og fugla-
líf er fjölbreytt. Hafa fundist hreiður
26 fuglategunda þar og er svart-
bakurinn algengastur. Töluvert
æðarvarp er um alla eyna, á Vestur-
eynni er sílamáfur og á Heimaey er
nokkuð um kríu og stelk.
Stóð til að
stofna konungsgarð
Um sögu Viðeyjar er það helst aö
segja að í fyrra leiddu fornleifarann-
sóknir í ljós að búið hefur verið þar
þegar á 10. öld. Kirkja virðist hafa
verið komin þar strax á 12. öld og
árið 1226 var vígt munkaklaustur
reglu heilags Ágústínusar kirkjufóð-
ur í eyjunni. Stóð klaustur þetta í
rúmar þrjár aldir eða til ársins 1539.
Þá voru munkarnir reknir burt og
eyjan lýst eign konungs.
Fljótlega eftir það var tekinn upp
lútherskur siður hér á landi og öll
klaustur lögð niður. Um tima stóð til
að stofna skóla í Viðey og síðar kon-
ungsgarð en hvort tveggja fórst fyrir.
Fyrsta steinhúsið
Viðeyjarstofa er elsta hús landsins
sem enn stendur í upprunalegri
mynd. Var hún byggð sem embættis-
bústaður handa Skúla Magnússyni,
Eins og sjá má á þessari gömlu mynd veitti kirkjunni og stofunni ekki
lagfæringu.
Tíðarandi
Fyrir þá sem vilja sjá það helsta á eynni er ágætt að ganga til hægri frá sjávargötunni austur með Heljarkinn,
beygja siðan upp með skurði sem þar er, upp á veginn sem liggur austur á Sundabakka. Hægt er að beygja út
af veginum á leiðinni og fara niður að Kvennagönguhólum. Þar má meðal annars skoða rétt og litinn helli sem
kallast Paradís. Þaðan er siðan haldið austur á Sundabakka og jafnvel út í Þórsnes. Eftir að gengið hefur verið til
baka eftir veginum er ágætt að fara um Gönguskarð síðasta spölinn að Viðeyjarstofu. Þá er gengið framhjá Danad-
ys og minnismerki Skúla. Frá stofunni er ágætt að ganga vestur eftir eyjunni og fylgja þar gömlum vegarslóða.
Þrjár skemmtilegar tjarnir eru þafna og fagurt umhverfi. Til baka getur verið gaman að ganga með ströndinni
að Viðeyjarnausti, Virkinu og aftur heim að Stofu.
LífsstQl
Maríusúð, nýja Viðeyjarferjan, er i stöðugum farþegaflutningum út i eyjuna
þessa dagana. Eins og sjá má er ekki langt út i Viðey.
fyrsta íslenska landfógetanum. Við-
eyjarstofa var fyrsta steinhúsið á ís-
landi og fullgerð árið 1755.
Gagngerar endurbætur hafa einnig
veriö geröar í Viðeyjarkirkju, næst-
elstu kirkju landsins. Nýtt pípuorgel
er í kirkjunni og þar hefur verið tek-
ið upp reglulegt helgihald, messur
yfir sumartímann. Nú er kirkjan að
auki lánuð til annarra athafna svo
sem hjónavígslna og skíma. Þeir sem
óska slíkra athafna biðja um þær hjá
staðarhaldara í síma 680573.
Margir mætir menn hafa búið í
Viðey í gegnum aldirnar. Er þar
fyrstan að nefna Skúla Magnússon
landfógeta en iðnstofnanir hans
mynduöu fyrsta þéttbýhskjarnann í
Reykjavík. Ólafur Stephensen stift-
amtmaður settist að í Viðey á efri
árum og síöan tók Magnús sonur
hans við og flutti meðal annars einu
prentsmiðju landsins þangað. Var
eyjan þá mikil menningarmiðstöð
því Magnús var forystumaður
fræðslu- og upplýsingastefnunnar
hér á landi.
Félagsheimili í vatnsgeymi
Eirikur Briem prestaskólakennari
keypti Viðey árið 1903 og hóf Eggert
sonur hans búskap þar. Milljónafé-
lagið svokallaða tók síðan austur-
hluta eyjarinnar á leigu og var með
mikil umsvif þar.
Var þá rekin útgerð á Sundabakka.
Fleiri héldu áfram útgerð í Viðey allt
til ársins 1943. Fór þorpið þá í eyöi.
Er skóhnn nú eina húsið sem eftir
stendur en einnig er þar gamall
vatnsgeymir frá dögum Milljónafé-
lagsins. Er hann nú félagsheimili'"
brottfluttra Viðeyinga.
Síöasti einkaeigandi eyjunnar var
Stephan Stephensen, kaupmaöur í
Verðandi, og átti hann hana í 44 ár
eða þangað til Reykjavík keypti meg-
inhlutann árið 1983. ÍSlenska ríkið
hafði áður eignast Viðeyjarstofu og
þjóðkirkjan fengið Viðeyjarkirkju að
gjöf frá Stephani og Ingibjörgu konu
hans. Voru bæði húsin og land það
sem þeim fylgdi færð Reykjavíkur-
borg að gjöf á 200 ára afmæh hennar
fyrir tveim árum.
Fyrir þá sem áhuga hafa á aö dvelj-
ast í Viðey má geta þess að leyft hef-
ur verið að tjalda við skála Hafsteins
Sveinssonar í Áttæringsvör. Þar er
útigrill sem hægt er að fá afnot af .
og yfir sumartímann hefur salemis-
aöstaða þar verið opin.
-gh
Heimild: Videy, bæklingur Reykjavikur-
borgar, 2. útg. 1988.
Bjartir tímar framundan
- hjá Hafsteini ViðeYjarfeijiimaniii í 18 ár
Einn er sá maöur í Reykjavik er
haldið hefur meiri tryggö við Viðey
en Qestir aörir í gegnum árin. Haf-
steinn Sveinsson hefur nú í sam-
fellt 18 sumur verið með bátsferðir
út í eyjuna.
Til aö byrja með var hann með
htinn hraöbát, Moby Dick. Árið
1973 byrjaöi hann með feijuna
Skúlaskeið sem sigldi í mörg her-
rans ár án nokkurra óhappa. Ný-
lega fékk Hafsteton sér svo nýja
glæsilega feiju, Mariusúð og kem-
ur hún til með aö vera með mestan
hluta farþegaflutninga hér eftir,
enda tekur hún um 70 farþega. En
gamli báturinn verður áfram not-
aður I vöruflutninga og mun víst
ekki veita af því töluverð starfsemi
er nú hafin úti í Viðey.
Aðspurður sagðist Hafsteinn á-
nægður meö að Reykvíkingar væru
loksins búnir að uppgötva þessa
perlu, sem þeir eiga, rétt úti á sund-
inu. „Ég hef ahtaf haldiö mikiö upp
á Viðey. Þetta hefur verið raikil
barátta og oft hef ég haldið sigl-
ingaáætlun út í hana á þijóskunni
einni saman. Bryggjumar, sem ég
smíðaöi iðulega sjálfur þarna úti,
fóru gjaman illa í veðrum og þá
þurfti maður að byggja upp á nýtt
aftur og aftur. En nú er komin ný
traust bryggja í Viðey.
Aöstaöan i landi hefur heldur
ekki verið upp á marga fiska fyrir
feijuna. Maður hefur oft veriö á
hrakhólum og má segja að þetta
hafi bara gengiö fyrir einstakan
velvilja starfsmanna Eimskips í
Sundahöfn," sagði Hafsteinn.
En nú er bylting til hins betra i
gangi i höfninni. Þar er nú veriö
að byggja góöa aðstöðu fýrir ferj-
una með skjólgörðura. „Þetta veröa
geysileg viðbrigði og til þess að ég
mun ekki þurfa að vakna upp um
miðjar nætur til að færa bátinn i
slæmu veðri. Þessi aðstaða í landi
er auðvitaö nauðsynleg þvi ekki er
nóg að leggja bara veg að öðrum
enda brúarinnar,“ sagði Hafsteinn
sem nú sér fram á betri tíma.
Hingað til hefur Viðeyjarfeijan
einungis siglt yfirsumarmánuðina. október, en það getur fariö eftir
En nú er allt útiit fyrir að áætlun- veðri. Og í framtíöinni, þegar hafn-
arferðir verði út i eyjuna fram í araðstaðan veröur fullgerö, sér
i 1 t J . ; i
ViœYJARSTOFÁ
ím zi, nstymo
ViD£YJARK£?KJA
VIDHYJAPiFERJA
„Það er ekki nóg að leggja bara veg aö öðrum enda brúarinnar.“ Haf-
steinn Sveinsson Viðeyjarferjumaður við nýtt skitti f Sundahöfn.
hann fram á að hægt verði að halda
uppi sighngum þangað allan ársins
hring. Enda mun kannski ekki
veita af ef veitingasala veröur
þama áfram ásamt ráðstefnum og
öðrum mannfognuöum.
Að undanfómu hefur Hafsteinn
haft mikið að gera. Sérstaklega þó
um helgar en þá fara margir að
skoða og borða í Viöeyjarstofu.
Eins hafa brúðkaupin aukið far-
þegafjöldann til muna.
Um þessar mundir er hami með
fastar ferðir út í eyjuna mánudaga
til miövikudaga á klukkutíma
fresti, frá 13-18. Fimmtudaga til
sunnudaga fer hann síöan á heila
tímanum allan daginn og fram á
kvöld, kl. 13-23. Fargjaldið er 300
kr. báðar leiðir fyrir fullorðna, 100
kr. fyrir 6-14 ára böm og ókeypis
fyrir yngri. Nánari upplýsingar um
ferðir er liægt að fá í síraa 985-
20099. Siglingin út í Viðey tekur
ekki nema nokkrar raínútur.
-gh