Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Síða 36
36
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988.
Jarðaríarir
Kristján Kristjánsson skipstjóri lést
25. ágúst sl. Hann var fæddur á Efra-
Vaði á Barðaströnd 8. apríl 1898.
Ungur fluttist hann með foreldrum
sínum vestur í Arnarfjörð og ólst þar
upp. Hann fékk snemma skipstjóra-
réttindi og varði allri sinni starfsævi
á sjónum. Hann var meðal annars
skipstjóri á Skaftfellingi. Eftirlifandi
eiginkona hans er Margrét Iflgvars-
dóttir. Þeim hjónum varð fimm
barna auðið. Útfór Kristjáns verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl.
13.30.
Ingibjörg Benediktsdóttir lést 29.
ágúst. Hún var fædd í Breiðuvík á
Tjörnesi 3. desember árið 1900. For-
eldrar hennar voru Benedikt Bene-
diktsson og Þorbjörg Jónsdóttir.
Ingibjörg lærði klæðasaum og bætti
síðan við sig námi í hatta- og skerma-
saumi. Hún giftist Jóni Halli Einars-
syni en hann lést áriö 1963. Þau hjón-
in eignuðust þrjú börn. Útfór Ingi-
bjargar verður gerð frá nýju kapell-
unni í Fossvogi í dag kl. 15.
María Sigurðardóttir, Nóatúni 24,
Reykjavík, lést í Borgarspítalanum
20. ágúst 1988. Útfor hennar hefur
þegar farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Útfor Bríetar ísleifsdóttur, sem lést
31. ágúst sl., fer fram frá Akureyrar-
kirkju miðvikudaginn 7. september
kl. 13.30.
Andlát
Guðjón Þórarinsson, Langeyri, lést á
Hrafnistu, Hafnarfirði, 3. september.
Gréta María Jósefsdóttir, Bhkahól-
um 8, Reykjavík, lést á Landspítalan-
um 3. september.
Gunnar Danielsson, HMðargerði 18,
lést í Borgarspítalanum 2. septemb-
er.
Unnur Jóna Kristjánsdóttir lést að-
faranótt sunnudags að Reykjalundi.
Ingibjörg Georgsdóttir, Austurbergi
30, lést á Landspítalanum aðfaranótt
mánudagsins 5. september.
Hulda S. Þorsteinsdóttir frá Eyjólfs-
stöðum, til heimihs í Stóragerði 32,
Reykjavík, andaðist á Landspítalan-
um 2. september.
Leiðrétdng
Þau mistök urðu í spumingu dags-
ins, fóstudaginn 2. september, að
spurt var hvemig fólki fyndust nýju
auglýsingamar frá Umferðarráði.
Þær auglýsingar, sem átt var við, eru
ekki frá Umferðarráði, heldur em
auglýsingamar frá hópi áhugafólks
um bætta umferðarmenningu. DV
biðst velvirðingar á þessum mistök-
um.
Sýningar
Orest Vereisky
sýnir í Reykjavík
Félagsstarf MÍR, Menningartengsla ís-
lands og Ráðstjómarríkjanna, hefst að
nýju að loknu sumarhléi með opnim sýn-
ingar hins kunna sovéska myndlistar-
manns og íslandsvinar, Orests Vereisky,
í sýningarsal félagsins, Vatnsstíg 10, nk.
fimmtudag, 8. sept., kl. 18. Listamaðurinn
og eiginkona hans koma til íslands í boði
MÍR í tilefni sýningarinnar, dveljast hér
á landi í viku og verða við opnun sýning-
arinnar og einnig á rabbfundi yfir kaffi-
bolla við Vatnsstíg 10, laugardaginn 10.
sept. kl. 17. Sýningin verður opin á
funmtudag kl. 18-22, fóstudag kl. 17-22
og laugardag og sunnudag kl. 14-22. Að-
gangur að sýrúngunni er ókeypis og öli-
um heimill. Á sýningunni verða, auk
teikninga og vatnslitamynda Vereiskys,
allmargar ljósmyndir er tengjast löngu
ög miklu starfi Ustamannsins í stjóm
Sovétríkin-Ísland. Einnig sýnishom af
bókum sem Vereisky hefur skrifað og
myndskreytt, svo og sýnisbækur um sov-
éska myndUst með umsögnum um Usta-
manninn. Námskeið í rússnesku hefjast
um eða upp úr miðjum sept. og hefst inn-
ritun í þau að Vatnsstíg 10 fóstudaginn
9. sept. kl. 18.
TjJkyimingar
Leikfélag Reykjavíkur
sala áskriftarkorta
Sala áskriftarkorta fyrir þetta leikár er
hafm og stendur yfir daglega kl. 14-19 í
Iðnó. Hægt er að panta kort í síma 16620.
Einnig er mögulegt að greiða kort með
Visa og Eurocard gegnum síma. Áskrift-
arkort fyrir þetta leikár gilda á eftirtaldar
sýningar: 1. Sveitasinfónia, 2. Sjang-Eng,
3. Þrjár systur, 4. Maraþondans. Verð
áskriftarkorta er 4.250. Þá er einnig hafin
sala gjafakorta. Gjafakort gildir fyrir tvo
leikárið l988-’89 á eina sýningu í Iðnó.
Starfsmannafélög, fyrirtæki, klúbbar og
allir aðrir hópar (fleiri en 20) fá afslátt á
almennu miðaverði. Hópar geta pantað
með löngum fyrirvara í s. 13191. Aldraðir
og skólafólk fá einnig afslátt af miða-
verði. Hópsala til aldraðra og skóia í s.
13191. ÖU einstaklingssala í s. 16620.
Nýr opnunartími í Kringlunni
og fleiri bílastæöi
1. september sl. breyttist afgreiðslutími
verslana í Kringlunni. AUar verslanir og
þjónustufyrirtæki í húsinu hafa opið á
laugardögum tii kl. 16, en aðra virka daga
tíl kl. 19. Eina undantekningin frá þess-
um opnunartíma er pósthúsið, áfengis-
verslunin og bankaútibúið. Kaffihúsið í
Kringlunni er opið lengur á fóstudögum
og laugardögum og matsölustaðir hafa
opið alla daga vikunnar tU kl. 21 og veit-
ingahúsið Hard Rock Café tíl kl. 23.30.
Flest fyrirtækjanna opna kl. 10 á morgn-
ana. í þessum mánuði verða tekin í notk-
un 400 ný bUastæði. Þá verður rúm fyrir
alls 1600 bUa í Kringlunni og næsta ná-
grenni hennar. Viðskiptavinir þurfa ekki
að greiða bUastæðisgjald eða í stöðu-
mæla.
Vetraráætlun SVR -
aukin tíðni ferða
5. september tók vetraráætlun SVR gUdi.
Þá eykst tiðni ferða á 9 leiðum. Vagnar
á leiðum 2-7 og 10-12 aka á 15 mín. fresti
kl. 07-19, mánudaga tU fostudaga. Akstur
á kvöldin og um helgar á áðurtöldum
leiðum er óbreyttur. Vagnar á leiðum 8-9
og 13-14 aka á 30 mín. fresti aUa daga,
einnig á kvöldin. Leiðabók SVR birtir
nánari upplýsingar um ferðir vagnanna.
Tíunda starfsár
Jarðhitaskólans
Eitt helsta einkenni starfsemi Jarðhita-
skólans er hversu náið nemendur starfa
með leiðbeinendum sínum við úrlausn
sérhæfðra verkefna. Þessi vinna fer fram
á rannsóknastofum Orkustofnunar, Há-
skóla íslands og hjá fyrirtækjum sem
nýta jarðhita. Þessa dagana eru nemend-
ur að vinna að verkefnum sínum tU að
klára þau fyrir skólasUt í október. Sum
verkefnin fjaUa um íslenskar aðstæður,
önnur um aðstæður í heimalandi nem-
enda.
Hjónaband
23. júfi sl. voru gefin saman í hjónaband,
Sigrún Jóna Andradóttir og Ásmund-
ur Karl Ólafsson. Heimili þeirra er
að Kópavogsbraut 45, Kópavogi.
Meruiing
Torf og grjót í
Kjarvalsstaðakoti
- Um sýningu Rögnu Róbertsdóttur
Það hefur ekki verið hátt risið á
Kjarvalsstaðabændum síðustu
mánuðina. Að undanskiMnni sýn-
ingu á verkum ítalskra skólabama
sl. vor og höggmyndum Svíans
Claes Hake í sumar hefur undirrit-
uðum reynst erfitt að greina ein-
hvern persónulegan drifkraft í sýn-
ingum stofnunarinnar. Aragrúi
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
krúttlegra tómstundamynda hefur
verið negldur þarna upp á veggi
án neins sýnMegs tilgangs annars
en þess að svala hégóma „lista-
mannsins”. Þetta er sýnu pínlegra
þegar téð stofnun er titluð „borgar-
Mstasafn” og ætlað að vera leiðandi
í hérlendri myndlistargrósku. Pín-
legast er þó þegar þekktum erlend-
um myndMstarmönnum er boðið
hingað tM sýningahalds og ætlast
tM að þeir „reddi sér bara sjálfir"
strax og á hólminn er komið. Slíkt
er. að sjálfsögðu ekkert annað en
argasta ókurteisi og miður góð
landkynning ef um það spyrst.
Nefndur Svu.mun t.a.m. hafa lent
í mestu vandræðum með verk sín.
Vera má að þetta séu eftirstöðvar
undirlægjuháttar og þrælslundar
þeirra tíma þegar ísland var
„þriðjaheimsríki" sem lét aMtaf
aðra hafa vit fyrir sér. Það er ekki
við Kjarvalsstaði eina að sakast í
þessu efni, því ýmiss konar dingl-
umdangluppákomur hafa t.a.m.
verið viðloðandi þær Mstahátíðir
sem hér hafa verið haldnar.
Það bendir þó margt tíl þess að
það sé aöeins að rofa tíl í miðalda-
myrkrinu í Kjarvalsstaðakoti. Þar
hefur borgarMstamaður Mðins árs,
Ragna Róbertsdóttir, nú breitt úr
túnþökunum sínum og hlaðiö grá-
grýtismúra - að því er virðist tíl
vegsömunar fyrri tíð og einfaldara
lífi með landinu. MyndMst Rögnu
er bláköld rýmisMst og útMt ver-
kanna mótast að miklu leyti af sýn-
ingarsalnum.
Lýsingin er þannig stórt atriði á
sýningu Rögnu, enda er þar gerð
tMraun tM aö láta ljós og skugga
togast á um verkin. Þar hefði þó
ugglaust mátt ganga lengra og ör-
ugglega myndi hafa bætt úr skák
að veita einhverri dagsbirtu inn um
loftglugga, jafnvel þótt húsbænd-
urnir séu orðnir vanir grútarskím-
unni. Það er vel hugsaður leikur
að takmarka sig við fáa miðla. Torf
og grjót eru, hvernig sem á máMn
er Mtið, niðursneidd náttúra. Það
hefur verið eðM mannsins frá
ómunatíð að sneiða niður og raða
samán. Viðfangsefni Rögnu Ró-
bertsdóttur virðist því öðru fremur
vera frumspeki. Verk sín byggir
hún upp ámóta og tónMstarmaður.
Það er erfitt að gera marktæk tón-
verk úr aðeins tveimur tónum. Því
fylgir áhætta og þar hlýtur óbMandi
kjarkur að búa að baki. Um það
verður ekki efast hér að stef Rögnu
Róbertsdóttur hafi í sér sannleiks-
korn. Þetta eru jú stef sem hafa
fylgt okkur í gegnum aldirnar, jafn-
vel þótt við ættum stundum í erfið-
leikum með að sjá þau. Vandi Msta-
mannsins er hins vegar fólginn í
því að reyta arfann og telja plönt-
unni s'íðan trú um að hún sé sjálf
sólin. Það hefur Ragna Róberts-
dóttir leitast við að gera á Kjarvals-
stöðum, enda ekki vanþörf á.
Ólafur Engilbertsson-
Fréttir I>V
Fyrs Eskifjörður: iti farmurir in af
s fldarhmnu m
■mm:..i
xwr—ii
..iiMmmnHMm
mmmmtwmm mm mmmmr mzlm
"Tk** mar-m
r> t*. «•
ggty r—
Bw
g •*>
Flutningaskipið Hera Borg sem kom með sildartunnur frá Noregi vegna
komandi síldarvertíðar. DV-mynd Emil Thorarensen
Emil Thorar ensen, DV, F.skifirði:
Fyrsta afskipunin á tómum sMdar-
tunnum vegna komandi sMdarvertíð-
ar fór fram á Eskifirði í síðustu viku.
Flutningaskipiö Hera Borg kom með
7.800 plasttunnur frá Jelsa í Noregi.
Skipstjórinn á Heru Borg, Margeir
Sigurðsson, reiknáði með að fara
aðra ferð til Noregs í sömu erinda-
gjörðum.
Enn sem komið er hafa ekki tekist
samningar við Sovétmenn um kaup
á saltsíld, en þeir eru langstærstu
kaupendurnir til þessa og því mikil-
vægt að samnihgar takist við þá eins
og áður. Hins vegar skapar það mik-
M óþægindi fyrir sMdarsaltendur að
þurfa að bíða fram á haust í óviss-
unni um það hvort samningar takist
við þá eða ekki.