Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988.
Fréttir
Breyttur grunnur lánskjaravísitölu:
Getur hækkað húsnæðislán
eina milljón á fjörutíu áram
- frá 1970 hefði nýi grunnurinn hækkað lán um 16,8 prósent umfram gamla grunninn
Rikisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar stefnir aö því aö launavisitala
vegi helming til móts viö framfærslu-
og byggingarvísitölu í grunni láns-
kjaravísitölu. Ef þetta fyrirkomulag
heföi gilt síöan 1970 hefðu lán frá
þeim tíma hækkaö 16,8 prósent meira
en þau heföu gert ef miðað heföi ver-
iö viö óbreytta lánskjaravísitölu.
Ástæðan er sú aö laun hafa á undan-
fórnum áratugum hækkað að jafnaði
meira en framfærslukostnaður.
Til þess að sýna hvaöa áhrif breytt-
ur grunnur lánskjar'avisitölu getur
haft skal tekið dæmi af húsnæöisláni.
Hámarkslán Húsnæöisstofnunar
var í sumar rúmar 3,2 milljónir
króna. Samkvæmt lögum hækka
þessi lán miöað við lánskjaravísitölu.
Greiöslubyröi þeirra sem taka þau
er einnig bundin lánskjaravísitölu
þar sem greiðslum höfuðstóls og
vaxta er jafnaö út allan lánstímann.
Ef þetta húsnæðiskerfi hefði verið
sett á 1970 væri sá sem tók lán þá aö
greiða sömu greiðslur af hámarks-
láni til stofnunarinnar og sá sem tók
lán áriö 1975 eöa 1985. Ársfjórðungs-
greiðsla í dag er um 40.650 krónur
eöa 162.600 á ári. Þetta væru þær fjár-
hæðir sem lántakendur Húsnæöis-
stofnunar væru að greiöa ef þetta
kerfi hefði verið sett á árið 1970 og
allar ríkisstjórnir síðan þá hefðu
hvorki hækkað né lækkað há-
markslánið.
Ef grunni lánskjaravísitölunnar
hefði hins vegar veriö breytt árið
1970 á sama hátt og ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar stefnir nú að
væru þessir sömu lántakendur að
greiðá 47.475 krónur ársfjórðungs-
80
60
40
20
Gamla og nvja ljánskjaravísitalan
| Etdrf vísitala [] Nýrri visitala
# Punktarnir sýna hvenær nýja vísitalan
er hærri á umliðnum árum
i
• •
n
I
21 Z2 22 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 86'87
Súluritið sýnir útreikninga gömlu og nýju lánskjaravísitölunnar á árabilinu
1971 til 1987.
lega. Það er 6.825 krónum meira á
mánuði. Ársgreiðslan á láninu yrði
því 189.900 í stað 162.600 eða 27.300
krónum hærri.
Það er eitt gleðiefni varðandi nýjan
grunn á lánskjaravísitölu og hús-
næðislánin. Ef allar ríkisstjómin síð-
an 1970 hefðu haldið sig við það að
láta hámarkslán Húsnæðisstofnunar
hækka í takt við lánskjaravísitölu
þá væru þau í dag um hálfri milljón
hærri. Greiðslubyrði þeirra sem
tækju þessi lán yrðu að sama skapi
þyngri í framtíðinni ef gert er ráð
fyrir að laun vaxi svipað umfram
verðlag á næstu áratugum og þau
hafa gert að undanfómu.
Ef menn gera ráð fyrir því má ætla
að þeir sem tóku lán árið 1970 í dæm-
inu hér að ofan þurfl sífellt að greiða
hærri og hærri afborganir á næstu
árum en ef miðað væri við núgild-
andi vísitölu. Ef laun og verðlag þró-
ast með sama hætti til ársins 2010
og þau hafa gert síðan 1970 þyrftu
þessir menn að greiða um 1 til 1,2
milljónum meira aftur til húsnæðis-
stofnunar en þeir hefðu þurft að gera
ef miöað hefði verið'við þá vísitölu
sem nú gildir.
Á meðfylgjandi súluriti sést hækk-
un lánskjaravísitölu á áranum 1970
til 1987. Til viðmiðunar er hækkun
lánskjaravísitölu ef grunnurinn væri
sá sem ríkisstjómin stefnir að. í hon-
um er l^unavisitala reiknuð til helm-
inga á móti byggingarvísitölu og
framfærsluvísitölu. Eins og sést á
súluritinu hefði nýi gmnnurinn ell-
efu sinnum leitt til meiri hækkunar
lána, einu sinni koma þeir eins út
og fimm sinnum hefði nýi gmnnur-
inn leitt til minni hækkunar lána.
Nýir rekstraraðilar á Hótel Ork:
„Nýttfyrirtæki með nýfu nafni
uii
„Við áttum og rákum veitinga-
staðinn Skarfinn i Geilo í Noregi í
átta ár. Við höfum meðal annars
annast einkaveislu fyrir Ólaf Nor-
egskonung og opinbera veislu fyrir
Harald og Sonju. Flest af starfs-
fólkinu, sem starfaöi hjá okkur í
Noregi, kemur með okkur hingað,“
sagði Siguröur L. Hall.
Siguröur, sem er matreiöslu-
meistari, hefur ásarat eiginkonu
sinni tekiö alla aðstöðu til veitinga-
rekstrar á Hótel Örk til leigu í flmm
ár. Þau hafa mikla reynslu af
rekstri veitingastaða. Veitingastaö-
urinn Skarfurinn, sem þau ráku í
Geilo í Noregi, naut raikilla vin-
sælda. Geilo er eitt mest sótta
ferðamannasvæðiö á Norðurlönd-
um og sérstaklega vinsæit hjá þeim
sem stunda vetrariþróttir. Geilo er
nokkura veginn mitt á milli Oslóar
og Bergen.
- En hveraig stendur á því að
Svala og Siguröur era komin tii
íslands og em að hefja veitinga-
rekstur á Hótel Örk?
„Viö tókum upp á því á gamals
aldri að eignast bara. Dóttir okkar
er nú tveggja ára gömul Við höfum
ekki átt frí um jól, páska eða aðrar
hátíðir í mörg ár. Okkur þótti þvf
tilvalið að koma heim nú. Dóttir
okkar fær þá að alast upp í nám-
unda við afa og ömmur. Við emm
að leita okkur að húsnæði hér $
Hverageröi. Þaö er ekki hægt aö
reka þetta nema búa á staönum,“
sagði Svaia.
- Erað þiö ekkert bangin við þetta,
bæði hvað varðar skuldastöðu hót-
elsins og eins vegna þeirrar hörðu
samkeppni sem er raeðal veitinga-
húsa?
„Þetta veröur nýtt fyrirtæki með
nýju nafni Okkur er ijóst að þaö
verður mikiö verk að fá hingaö
góöa aðsókn. Þegar er búið aö
panta fyrir hópa í vetur. Það er
fyrír árshátíðir, ættarmót og eins
vegna fleiri tilefna. Þetta hótei er
eitt þaö fallegasta á landinu. Viö
ætlum aö auka flöibreytni í mat
Viö höfum á fyrstu hæðinni a la
carte-veitingasal. í blómasalnum á
annarri hæð verður veitingastaður
meö léttari mat. Þaö eiga allir aö
geta komiö hingað og fengiö eitt-
hvað viö sitt hæfi.
Leigusamningur okkar viö Helga
Þór Jónsson er þinglýstur og viö
teijum víst að hann haldi. Auk þess
keypti Hótel Örk hf. eignina á upp-
boöinu í gær. Viö höfum átt
ánægjuleg viðskipti viö Helga Þór
Jónsson og viö eigum ekki von á
að þaö breytist,“ sagöi Sigurður L.
Hall.
„Þetta er tækifæri sem býöst ekki
nema einu sinni á ævinni. Viö er-
um full bjartsýni og sannfærö um
að hér megi gera góða hluti. Það
hafa margir haidiö að Helgi Þór
hafi viljað að leigusamningurinn
væri gerður fáum dögum fyrir upp-
boðiö. Þaö er ekki rétt Viö vildum
fá þetta á hreint sem fyrst. Það eitt
að vera að koma til landsins eftir
þrettán ára dvöl í Danmörku og
Noregi gerir þaö aö við viljum ekki
vera x óvissu. Búslóðin okkar er
enn á hafnarbakkanum. Við erum
því óskaplega fegin aö þetta skuli
vera komiö á fast,“ sagði Svala Ól-
afsdóttir.
Þau hjónin em 35 og 36 ára göm-
ul og hafa lengst af starfað viö veit-
ingarekstur. Þaö var Helgi Þór
Jónsson sem haföi samband við
þau aö fyrra bragði og bauð þeim
veitingaaöstöönna til leigu. Þau
sögðust vera ánægð með leigu-
samninginn. -srae
Lögreglustöðin eyðilagðist í eldi:
Fangi kveikti eld í rámdýnu
Lögreglustööin í Vestmannaeyjum
gjöreyöilagöist í bruna í gær. Upptök
brunans munu hafa veriö í fanga-
klefa skömmu fyrir klukkan ellefu í
gærmorgun. Fangi, sem var í klefan-
um, er grunaður um að hafa kveikt
eld í rúmdýnu. Eldurinn náöi í veggi
hússins. Mikill vindur var í Vest-
mannaeyjum í gær og magnaöi hann
eldinn mikið. Lögreglustööin, sem
var í forsköluðu timburhúsi, er ónýt.
Það náðist að bjarga skýrslum og
fleiri nauðsynlegum gögnum.
Fanginn, sem gmnaður er um að
hafa kveikt eldinn, var fluttur til
Reykjavíkur. Ekki er fariö aö yfir-
heyra hann.
Lögreglan hefur fengið inni í
stjórnsýsluhúsinu í Vestmannaeyj-
um. Engir fangaklefar era tiltækir í
Vestmannaeyjum. -sme
Núgildandi
lánakjör
Ný lánakjör
Ársgreiðslur af láni Húsnæðisstofn-
unar á verðlagi sept. 1988
Miðað er við að lán hafi verið tekið 1970 og greitt
af því samkvæmt núgildandi reglum Húsnæðisstofn-
unar.
Samanburður greiðslubyrði húsnæðislána miðað við núgildandi lánakjör
og ný lánakjör með breyttri vísitölusamsetningu.
Af þessu, og reyndar einnig áhti
launþegasamtaka og Seðlabanka, má
sjá að breyttur grunnur lánskjara-
vísitölu er engin gleðitíðindi fyrir
skuldara. Hins vegar geta sparifjár-
eigendur fagnað honum. -gse
Hótel Örk h/f keypti Hótel Örk:
Kaupyerðið nægir hvevgi
fýrir áhvflandi skuldum
kapphlaup viö tímann, áfiýjun hugsanleg?
Þó svo Hótel Örk hafi verið selt á
230 milljónir króna á nauðungarsölu
í gáer, sitja margir kröfuhafar eftir
með sárt enniö. Lauslega er áætlað
að á eigninni hvili skuldir sem séu
100 milljónum hærri en það sem
fékkst fyrir eignina á uppboðinu. Þá
eru ótaldar skuldir sem ekki hafa
lögveö. Þær nema tugum milljóna.
Hótel Örk h/f átti hæsta boð í eign-
ina, 230 milljómr króna. Næsthæsta
boð var frá Framkvæmdasjóði ís-
lands, 200 milljónir. Þrátt fyrir að
eignin hafi verið slegin Hótel Örk h/f
fer fjarri aö þetta fræga uppboðsmál
sé á enda. Uppboðshaldari fer nú yfir
tilboð og greiðslugetu tilboðsgjafa,
Hótel Arkar h/f.
Tíminn er mesti óvinur Helga Þórs
Jónssonar. Hann hefur undir hönd-
um tilboð í 49 prósent hlutaflár frá
hollensku fyrirtæki. Það getur tekið
lengri tíma fyrir Helga Þór að semja .
endanlega viö Hollendingana en upp-
boðshaldari tekur í að meta tilboð
Hótel Arkar h/f. Þá er sá möguleiki,
og menn óttast að hann verði ofan
á, að Helgi Þór áfrýi uppboðinu til
Hæstaréttar. Ef sú leið verður farin
geta hðið einhver misseri þar til end-
anleg lausn finnst á þessu máli.
Framkvæmdasjóður íslands á
næsthæsta boð, eins og fyrr sagði,
eða 200 milljónir króna. Það boð
stendur í ákveðinn tíma og því getur
hugsanl^ga farið svo að Fram-
kvæmdasjóður eignist Hótel Örk.
Hróbjartur Jónatansson, lögmaöur
sjóðsins, segir að erfitt sé að meta
hvemig hagsmimum sjóðsins sé best
Helgi Þór Jónsson og Pétur Þór Sig-
urðsson lögmaður bera saman
bækur sínar fyrir uppboðið. Pétur
Þór bauð, fyrir hönd Hótel Arkar
h/f, hæst allra, eöa 230 milljónir.
borgið. Hann segir að óvissa sé um
markaðsverð byggingarinnar þar
sem Hótel Örk h/f á álla innanstokks-
mum og eins vegna leigusamning-
anna. Leigusamningarnir hefta alla
hugsanlega kaupendur nema Hótel
Ork h/f.
Hvemig sem allt þróast er ljóst að
margir af þeim sem eiga kröfur á
Helga Þór Jónssön hafa hvergi fengið
lausn sinna mála. Annað er að veð-
röð er ekki ljós. Deilt er um hvar hin
ýmsu veð eiga aö vera. Sú óvissa er
tilkomin vegna alls kyns veðheim-
ilda og krafna á áhvílandi skulda-
bréfum. Uppboðshaldari sker úr um
endanlega röð veðskulda.
-sme