Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Blaðsíða 26
42
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988.
Jarðarfarir
Valdimar Jóhannsson, fyrrum
bóndi, Grundargötu 6, Grundarflröi,
veröur jarösunginn frá Grundar-
fjarðarkirkju laugardaginn 8. októb-
er kl. 15.
Kjartan Eiðsson, Höföahiíð 13, Akur-
eyri, verður jarösunginn frá Akur-
eyrarkirkju í dag, föstudaginn 7. okt-
óber, kl. 16.
Útfor Ágústu Magnúsdóttur, Hátúni
9, Keflavik, verður gerö frá Innri-
Njarövíkurkirkju laugardaginn 8.
október kl. 14.
Hrefna Hjartardóttir, Grundargötu
18, Grundarfiröi, veröur jarðsungin
frá Grundarfjarðarkirkju laugardag-
inn 8. október kl. 13.
Jóhann Pétur Runóifsson bifreiða-
stjóri, Álftamýri 46, lést á Landspítal-
anum 26. september sl. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey að psk
hins látna.
Ingibjörg Vilborg Benjamínsdóttir
verður jarðsungin frá Laugarnes-
kirkju fostudaginn 7. október kl. 15.
Útfór Ágústs Þórarinssonar, Höfða-
götu 11, Stykkishólmi, fer fram í
Stykkishólmskirkju laugardaginn 8.
október kl. 14.
Hálfdán Ágúst Jóhannesson, Stóra-
teigi 11, Mosfellsbæ, verður jarðsett-
ur frá Lágafellskirkju laugardaginn
8. október kl. 13.30.
Andlát
Þórir Ingvarsson, Lambastaðabraut
1, Seltjarnarnesi, lést í Landakots-
spítala 5. október.
Þórður Þorgrímsson lést mánudag-
inn 3. október.
Þórhallur Ragnar Stefánsson, Akur-
gerði 48, Reykjavík, lést í Landspítal-
anum þriðjudaginn 4. október.
Sigríður Guðmundsdóttir, Öldugötu
14, Hafnarfirði, lést í Landspítalan-
um 4. október.
Jón Þorsteinsson, Mýrarkoti, lést í
Landspítalanum aðfaranótt 5. októb-
er.
Fundir
Bústaðasókn
Kvenfélag Bústaðakirkju heldur fund
mánudag 10. okt. kl. 20.30 í safnaðar-
heimili Bústaðakirkju. Bræðrafélag Bú-
staðakirkju heldur fund mánudag 10.
okt. kl. 20.30 í safnaðarheimili Bústaða-
kirkju.
TUkyimingar
Sendiráð Sambandslýð-
veldisins Þýskalands
leyfir sér að tilkynna öllum íslenskum
og þýskum vinum þjóðar okkar að for-
sætisráðherra Bayem, Franz Josef
Strauss, lést þann 3. okt. 1988 í Regens-
burg. Útfórin fer fram í dag, 7. okt. 1988,
í Miinchen. í dag mih kl. 9 og 17 mun
samúðarkveðjubók liggja frammi í sendi-
ráði Sambandslýðveldisins Þýskalands,
Túngötu 18, þar sem fólki gefst kostur á
að skrá nöfn sín til þess að votta hinum
látna virðingu sína.
Alþýðubandalagið
I Kópavogi
Félagsvistin hefst í Þinghól, Hamraborg
11, mánudaginn 10. október nk. kl. 20.30.
Spilað verður annan hvem mánudag,
alls fimm kvöld. Veitt verða kvöldverð-
laun og ein heildarverðlaun. Allir vel-
komnir.
1
Kyudo - japönsk bogfimi
Undanfarin ár hefur hópur manna hér á
landi lagt stund á japanska bogfimi -
kyudo. Bogfimi hefur frá alda öðli verið
stunduö í Japan og notið mikillar virð-
ingar. íslenska kyudofélagið er aðili að
kyudosambandi Evrópu. Á hverju ári em
haldin alþjóðleg námskeið í einu aðildar-
rikjanna, nú síðast í París. Námskeiðin
em undir stjórn japanska kyudosam-
bandsins og sendir það þangað sínu bestu
kennara. í kyudo em veittar kyu- og dan-
gráður sambæriiegar við það sem tíðkast
í kendo, judo og karate. Þessar gráður
em veittar af japanska kyudosamband-
inu. Á íslandi hafa 5 einstaklingar náð
dan-gráðu, sá sem lengst hefur náð 4.
dan. Kyudo er jafnt fyrir konur sem karla
frá 18 ára aldri. Formaður félagsins er
Elsa Guðmundsdóttir. Fyrirhugað er að
taka inn takmarkaðan fjölda nýrra nc-m-
enda á næstunni og verður það auglýst
síðar.
Námskeid
Klarínettunámskeið í
Norræna húsinu
Mánudaginn 10. okt. nk. hefst námskeið
í Norræna húsinu ætlað klarínettunem-
endum, klarínettuleikumm svo og öðr-
um áhugamönnum og tónlistarunnend-
um. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður
enski klarínettuleikarinn og fræðimað-
urinn Pamela Weston. Námskeiðið stend-
ur yfir alla næstu viku (10.-14. okt.) frá
kl. 13.30-18 í formi opinnar kennslu
(masterklassa). Þátttakendum gefst einn-
ig kostur á að sækja einkatíma. Auk
kennslunar mun Pamela halda þijá fyrir-
lestra: Mánud. 10. okt.: „Weber, Mayerbe-
er, Mendelssohn og klarínettuleikarinn
Heinrich Bármann. Þriðjudag 11. okt:
„Meine Primadonna". Fjallað um klarí-
nettuverk J. Brahms og kveikjuna að
þeim. Miövikud. 12. okt.: „Túlkun klarí-
nettuverka Carl Maria Von Weber, með
tilliti til frumhandrita. Fyrirlestramir
verða á ensku með tóndæmum og ht-
skyggnum og hefjast allir kl. 17. Þátttöku-
gjald fyrir alla vikuna er kr. 2.000, (einka-
tímar undanskildir). Einkatímar kosta
kr.1.500. Dagsþátttaka, einstakir fyrir-
lestrar kr. 500.
Áttavitartámskeið
fyrir ferðamenn
Eins og undanfarin 22 ár gengst Hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík fyrir námskeiði í
meðferð áttavita og landabréfa fyrir
ferðamenn. Á námskeiðinu verða einnig
veittar upplýsingar um ferðafatnað og
ýmsan ferðaútbúnað. Námskeiðið stend-
ur tvö kvöld, þriðjud. 11. okt. og fimmtud.
13. okt. Námskeiðið verður haldið í hús-
næði hjálparsveitarinnar aö Snorrabraut
60, jarðhæð, og hefst kl. 20 bæði kvöldin.
Þátttökugjald er kr. 1.200. Nánari upplýs-
ingar er að fá í Skátabúðinni Snorrabraut
60. Sími 12045 og þar hggur einnig frammi
þátttökuhsti fyrir þá sem ætla að taka
þátt í námskeiðinu. Á þetta námskeið eru
allir velkomnir sem áhuga hafa á að læra
notkun áttavita og landabréfa eða vilja
bæta við kunnáttu sína. Þetta er gott
námskeið fyrir t.d. skíöagöngumenn,
skotveiðimenn, vélsleðamenn og aðra
ferðamenn sem ferðast um fjöll og fim-
indi.
Söngleikar 1988
Söngleikar 1988 verða haldnir dagana 4.
og 5. nóvember nk. á vegum Landssam-
bands blandaðra kóra. A þessu ári eru
50 ár hðin ftá stofnun þess. Stofnkóram-
ir vom fimm, Kantöntukór Akureyrar,
stofnaður 1932, Söngfélag I.O.G.T., stofn-
að 1932, Sunnukórinn á Isafirði, stofnað-
ur 1934, kór Róberts Abrahams á Akur-
eyri, stofhaður 1936, og Vestmannakór-
inn í Vestmannaeyjum, stofnaður 1937.
Nú em í sambandinu 35 kórar víðs vegar
af landinu. Fyrir 10 árum var haldið upp
á 40 ára aftnæli Landssambands bland-
aðra kóra. í Laugardalshöh með Söng-
leilgum '78 sem tókust mjög vel. Nú er
ætlunin aö halda upp á 50 ára afmæhö
með enn meiri glæsibrag. Þar koma
blandaðir kórar fram með eigin dagskrá
og einnig syngja þeir sameiginlega nokk-
ur verk, m.a. nýtt verk eftir Hjálmar H.
Ragnarsson sem hann samdi sérstaklega
af þessu tilefni. Tilgangurinn með söng-
leikunum er margþættur en fyrst og
fremst aö efla samstöðu kóranna og vekja
áhuga almennings á starfsemi blandaðra
kóra í landinu. Þegar hafa 20 kórar skráö
sig til þátttöku, eða um 900 manns.
Menning
Gestaleikur 1 Þjóðleikhúsinu, Litla sviðið:
Spéspegill
hversdagsins
Látbragðsleikur: RALF HERZOG
Tvær sýningar, 5. og 6. okt.
Það er undarlegt hvað það hefur
tekið langan tíma að kenna landan-
um að meta látbragðsleik. Heim-
sóknir góðra látbragðsleikara, með
sjálfan Marcel Marceau í farar-
broddi, breyta litlu um það að fáir
íslenskir listamenn hafa lagt sig að
nokkru marki eftir listinni og þeir
sem það hafa gert flíka því allt of
sjaldan.
Er það kannski svo að orðið, sjálf-
ur textinn, skipti okkur „bók-
menntaþjóðina" svo miklu máli að
við horfum fram hjá því hvað mik-
ið má segja án allra orða.
Sýning Ralfs Herzog er byggð upp
af mörgum stuttum atriðum og
nöfn þeirra geta ef til vill gefið þeim
sem misstu af sýningunum ein-
hverja hugmynd um fjölbreytilegt
val viðfangsefna hans.
Sunnudagsíþróttamaður, í ráð-
húsinu, Góðan daginn, Hljómleik-
amir, Fjölskylduhátíðin, Mann-
gerðir í leikhúsinu, Líf, Skurð-
læknirinn, Á barnaheimilinu og
Skákstórmeistarinn og nemandi
hans voru t.d. nokkur þeirra atriða
sem hann flutti.
Upptalningin sýnir að Herzog
leitar víða fanga en rauði þráður-
inn í efnisvali hans er að sýna
áhorfendum hversdagsleg atvik og
athafnir í spéspegh og að sjálfsögðu
broslegu hliðamar á okkur sjálf-
um.
Væskillinn, sem tekur sig til „á
sunnudögum" og leggur til atlögu
við lóð og gorma, varð alveg bráð-
lifandi í meðforum hans og kostu-
legar aðfarir hans í heilsuræktinni.
Ralf Herzog byggir sýningu sína upp af mörgum stuttum atriðum.
Leiklist
Auður Eydal
Maðurinn getur Uka gert sig alveg
sérstaklega ótótlegan, eins til dæm-
is og í þættinum Góðan daginn, þar
sem hann leikur nývaknaðan og
ósnyrtan borgara.
Herzog beitir ýmsum brögðum til
að koma áhorfendum til aö hlæja
og er oftar en ekki í hlutverki
trúðsins í þáttum sínum.
Eins og aðrir góðir látbragðsleik-
arar kemur hann á framfæri til-
finningum, geðbrigðum og viö-
brögðum persónanna sem hann
leikur, með svipbrigðum og lát-
bragði. Hann leikur ekki með hin-
um fágaða einfaldleik Marceaus
heldur ýkir óspart og verður ærið
stórkarlalegur á stundum.
I sumum atriðunum leikur hann
á móti sjálfum sér, til dæmis í þætt-
inum úr ráðhúsinu, þar sem litli
Jóninn á í höggi við kerfið og
skýrslufarganið. Þar bregður hann
sér í beggja líki, kerfiskaUanna og
viðskiptavinarins, sem auðvitað
hlýtur að verða undir í þeirri
ójöfnu viðureign.
Og Herzog lætur sig ekki muna
um að leika heila hljómsveit í ein-
um þættinum eða sýna í öðrum
allt lífshlaup mannsins frá vöggu
til grafar. Reyndar brá fyrir aðeins
öðrum tón í síðamefnda atriðinu,
þar var fínlegar farið með efnið og
styttra í alvöruna og var þetta þar
með líka eitt af betri atriðum
kvöldsins.
Vonandi verður heimsókn
Herzogs okkar eigin leikurum
hvatning til aö leggja rækt við lát-
bragðsleik og efna til sýninga.
AE
Fyrstu sinfóníutónleikar vetrar-
ins vom í gærkvöldi. Á stjórnpalli
var Petri Sakari, nýi aðalstjórn-
andinn við Sinfóníuhljómsveit ís-
lands, en hann þekkjum við raunar
af nokkmm tónleikum áður, t.d.
afbragðstónleikum á síðustu lista-
hátíð og svo kynningartónleikun-
um um daginn, sem fóru raunar
hálfpartinn í vaskinn vegna ónógr-
ar kynningarstarfsemi (svo
skringilega sem það nú hljómar).
Á efnisskránni í gærkvöldi voru
þrjú verk, För eftir undirritaðan,
sem af skiljanlegum ástæöum er
ekki hægt að krítisera neitt aö
þessu sinni, þó segja megi frá að
það var „bæði vel flutt og vand-
lega“, Tríókonsertinn eftir Beetho-
ven og fyrsta sinfónia Síbelíusar.
í Tríókonsertinum vom þýskir
einleikarar, Fontainaytríóið frá
Hamborg. Þetta eru afbragðs-
kammermúsíkantar sem skiluðu
sínum hlutverkum með glæstum
sóma. Verður áreiöanlega gaman
að heyra þá leika tríó eftir Beetho-
ven, Dvorák og Rakhmaninoff hjá
Kammermúsíkklúbbnum á sunnu-
daginn. En þaö er nú önnur saga.
Aðalverkið á þessu fyrstu sinfóníu-
tónleikum í ár var auövitað sinfón-
ía Síbelíusar. Það er eiginlega
óskiljanlegt hvað fræöimenn sumir
tala illa um þetta glæsilega verk,
sumir segja það bamalegan Tsjæ-
kofskí, aðrir klaufalegan Brahms.
Auðvitað hafa þeir, eins og alltaf,
kolrangt fyrir sér. Þetta er stór-
brotið verk og hreinræktaöur Sí-
belíus. Petri Sakari sýndi sannar-
lega að hann er stjórnandi sem
töggur er í á þessum tónleikum,
Petri Sakari heilsar áheyrendum við upphaf tónleikanna i gærkvöldi.
DV-mynd KAE
Tónlist
Leifur Þórarinsson
hann er vandvirkur, einlægur og á
köflum „inspíreraður" listamaður,
sem er greinilegt að hefur margt
og merkilegt að færa okkur. Túlk-
un hans á sinfóníunni mun seint
gleymast og mætti ekki biðja um
meira af svo góðu? T.d. 4., 5. og 7.,
að ekki sé minnst á 3. og 6., sem
heyrast alltof sjaldan í heiminum
og hafa aldrei verið fluttar hér á
landi.
í lokin vil ég nöldra svolítið, fyrst
út af prentuðu efnisskránni, sem
var fátækleg og full af prentvillum.
Þó það sé kannski fyndið vill undir-
ritaður alls ekki sitja undir að hann
skrifi „vaðform" í „Rydirkri" tón-
tegund, en þessi fyrirbrigði bjó
prentvillupúkinn óátalið til fyrir
efniskrána og fitnaði enn af fleiru
slíku. En leiðinlegast var þó að
ganga úr bíóinu og vera hálfhrund-
ið til bakdyra af fólki á leið til mið-
nætursýningar. Þetta afglapa Há-
skólabíó, sem í upphafi var ekki
síður byggt fyrir tónlistina en kvik-
myndafárið og hefur lifað margar
krísumar á sinfóníuhúsaleigunni,
virðist rekið af ótrúlega erfiðum
plebbum sem mætti vel setja á
hausinn við tækifæri. En þetta var
samt góður dagur. LÞ
Góður dagur
Petri Sakari stjómar fyrstu smfóníutónleikum vetrarins