Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988.
Frjálst.óháÖ dagblaö
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórat: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr.
Verð I lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr.
Seinkun Alþingis
Fram hafa komið hugmyndir um að fresta Alþingi.
Þá er um það að ræða að setja þingið á mánudaginn,
eins og stjórnarskráin mælir fyrir um, en fresta síðan
þinghaldinu fram að næstu mánaðamótum meðan nýrri
ríkisstjórn gefst tími til að ganga frá fjárlagafrumvarpi
og leggja þannig drög að efnahagsstefnu sinni.
Nú skiptir það ekki almenning miklu máli hvort þing-
menn hefji málskraf sitt deginum fyrr eða seinna. Um-
ræður á Alþingi eru oftast í stíl við málfundaæfingar í
framhaldsskóla og breyta htlu um gang landsmála í
sjálfu sér. Hitt er annað að stjómskipun er í öllum veiga-
meiri atriðum í fostum skorðum. Á því veltur mikið að
hefðir, stjórnskrárákvæði og grundvaUarreglur ís-
lenskrar stjórnskipunar séu virtar. Þrátt fyrir aUt er
Alþingi íslendinga hornsteinn lýðræðisins og sú stofn-
un, sem er þungamiðjan í okkar þjóðskipulagi.
Á síðari árum hefur vegur Alþingis farið minnkandi.
Ríkisstjórnir hverju sinni hafa notað Alþingi sem af-
greiðslustofnun, völd hafa færst yfir á hendur fram-
kvæmdavaldsins og áhrifa Alþingis gætir mun minna
heldur en stjórnarráða eða voldugra ríkisstofnana. Ein-
sta'kir alþingismenn eiga stöðugt erfiðara með að hafa
yfirsýn yfir þjóðfélagsmáhn í heUd sinni og það er borin
von að þeir nái nokkurn tímann tökum á því, meðan
þinghaldið stendur aðeins háht árið eða svo. ,
Ef nú á að fara að vUja ríkisstjórnar og fresta þing-
haldinu, meðan stjórnin mótar stefnu sína, er enn verið
að gefa eftir gagnvart framkvæmdavaldinu. Enn er ver-
ið að ýta Alþingi til hhðar að geðþótta ráðherra í stjórn-
arráðinu. Það er enn verið að stimpla Alþingi sem af-
greiðslustofnun.
Alþingi og þingflokkar eiga ekki að samþykkja frest-
unina. Þeir eiga ekki að brjóta þá hefð að Alþingi komi
saman tíunda október og hefíi sín störf. Ef gefið verður
eftir nú, vegna meintra anna ríkisstjórnar og seinkunar
á h árlagafrumvarpi, hvað kemur þá næst? Fordæmið
væri fengið til að fresta þingfundum um ennþá lengri
tíma og af aUt öðrum ástæðum.
AUir hafa væntanlega skilning á því að ríkisstjórn,
sem ekki hefur starfað nema í hálfan mánuð, geti ekki
lagt fram fuUbúið fjárlagafrumvarp í upphafi þings.
EðUIegt er að flármálaráðherra fái sinn tíma til þess.
En með því þarf ekki að fresta öUu þinginu. Alþingi er
ekki handbendi ríkisstjórnar. Þingmenn þurfa að leggja
fram sín eigin mál án tilhts til stjórnarstefnu, þingmenn
þurfa að kveða sér hljóðs um ýmis mál, sem snerta al-
menning. Þingmenn geta skipt með sér verkum og skip-
að nefndir.
Aðalatriðið er þó að Alþingi verður að halda sjálf-
stæði sínu gagnvart framkvæmdavaldinu og halda sínu
striki, hvað sem öUum stjórnarkreppum eða stjórnar-
myndunum Uður. Þeir menn sem nú sitja á þingbekk
hafa reynslu af því að fljótt skipast veður í lofti. Sá sem
var í stjórnarandstöðu í gær er orðinn ráðherra í dag.
Þingmenn koma og fara, póhtíkin er veðrasöm og sam-
starf er brigðult. Þess heldur eiga alþingismenn að halda
í heiðri grundvaUarreglur þingsins og stjómskipunar-
innar vegna þess að sá sem brýtur þær reglur gagn-
vart öðmm á þa,ð á hættu næst að verða fómardýr
hinna. Það er jafnmikið hagsmunamál þeirra þingflokka
sem nú skipa stjórnarmeirihlutann sem stjómarand-
stöðunnar að eldri sé hvikað frá þeirri löngu hefð, að
Alþingi íslendinga komi saman á réttum tíma og hefji
störf eins og lög og venjur gera ráð fyrir.
EUert B. Schram
„Augljóst aö mannrán og gislatökur Irana og þeirra trosbera hafa skilað stórfelldum árangri," segir m.a. í
greininni. - Jólakortum dreift til bandarískra gísla í Teheran í byrjun áratugarins.
Mannrán boiga sig
Það hefur komið í ljós á síðustu
árum, hvemig sem menn reyna að
þræta fyrir þaö, að mannrán og
gíslatökur eru með áhrifaríkustu
aðferðum óprúttinna manna tíl
þess annaðhvort að vekja athygh
eða þvinga aðra undir vilja sinn.
Gíslatökur eru ekki alls staðar sá
fyrirhtlegi glæpur sem menn á
Vesturlöndum vilja vera láta, þær
eru ævaforn baráttuaðferð, og þar
sem fom hugsunarháttur ríkir, svo
sem í íran, er ekkert athugavert
við þær. Gíslar hafa verið teknir í
einni eða annarri mynd frá upp-
hafi vega, Caesar friðaði Gahíu
með gíslatökum og jafnvel á íslandi
í fornöld sendu menn ættingja sína
í gíslingu tíl fjandmanna sinna tíl
að sýna að þeir hefðu ekkert hlt í
hyggju og tryggja sig gegn árásum.
Aö fomu vom sendimenn erlendra
þjóðhöfðingja eins konar gíslar á
valdi gestgjafanna. En skipulegar
gíslatökur í póhtískum thgangi
hafa samt ekki verið stundaðar svo
eftir væri tekiö fyrr en um 1970, að
Palestínumenn endurvöktu þessa
baráttuaðferð th aö vekja athygli á
málstað sínum, eftir að Hussein
Jórdaníukonungur hafði hrakið
herhð PLO úr landi th Líbanons í
stríðinu sem kennt er við svarta
september. Þangað tíl vissi um-
heimurinn htíð um Palestínumenn
og PLO og vandamál flóttafólksins
sem hafði hrakist undan ísraels-
mönnum. Eftír að PLO misstí
bækistöövar sínar í Jórdaníu rak
neyðin samtökin til róttækra að-
geröa th að vekja athygli á málstað
sínum og aðferðin var flugrán. Á
þeim tíma, og reyndar enn, bjuggu
hundmð þúsunda manna í ömur-
legum flóttamannabúðum sem
Sameinuöu þjóöimar ráku, að
mestu faldir og gleymdir umheim-
inum. Á þeim tíma áttí ísrael aha
samúö umheimsins.
Leila Khaled
Fyrsta flugránið í þessari herferð
var framið undir stjóm ungrar,
fahegrar stúlku, Lehu Khaled, sem
varð síðar fyrirmynd og hetja ann-
arra flugræningja. Hún rændi
breskri flugvél á leiö frá Hollandi
og sneri henni th London, þar sem
hún fékk ýmsar kröfur PLO birtar
í öllum fjölmiðlum, og setti fram
málstað PLO gegn ísrael. Þetta
vaktí gífurlega athygh og heldur
jákvæða. Leha varö blaöaefni um
ahan heim og hún og félagar henn-
ar fengu að fara heim th Líbanons
eftír að þau gáfust upp í London.
Efitír þetta vora framin ótal flugrán
í nafni PLO og nýjabrumið fór fljótt
af og athyghn varð ekki lengur já-
kvæð. Á sama tíma fóra ótíndir
glæpamenn einnig að ræna flugvél-
um fyrir lausnargjald í peningum,
gtipið var th harkalegra ráöstafana
gegn flugræningjum svo að þau
hættu að borga sig sem auglýsing.
Nú orðið afneita PLO samtökin
sem shk flugránum sem baráttuað-
ferð, þótt einstaklingar fremji þau
enn í þeirra nafni. En flugránin á
þessum tíma þjónuðu sínum th-
Kjallaiinn
Gunnar Eyþórsson
fréttamaður
gangi, þau öfluðu PLO meiri at-
hygli en nokkuð annað og tryggðu
stuðning við samtökin úr ótal átt-
um. Þessi baráttuaöferð á dijúgan
þátt í að Palestínumenn eru nú sér-
stök þjóö í vitund almennings.
Carter og Khómeini
Póhtísk mannrán era fleira en
flugrán, eins og Bandaríkjamenn
fengu aö reyna í íran. Forsagan var
byltíng Khómeinis sem varð th
þess aö Reza Pahlavi keisari hrakt-
ist úr landi í ársbyrjun 1979. Hann
fékk um síðir að koma th Banda-
ríkjanna th að leita sér lækninga
við þeim sjúkdómi sem síðar dró
hann th dauða árið 1980. Þegar
keisarinn kom th Bandaríkjanna
hertóku hundruö námsmanna í
Teheran bandaríska sendiráöið þar
og tóku aht starfshðið í gíslingu th
að krefjast þess að keisarinn yrði
framseldur og Bandaríkjamenn
sæju um að öhum auðæfum, sem
hann hefði komið úr landi, yrði
skilaö.
Khómeini studdi þessar kröfur á
þeim grandvehi að sendiráðsmenn
væru ekki annað en gíslar sam-
kvæmt hefð og því heimht að halda
þeim. Viðbrögð Bandaríkjamanna
vora viðskiptabann, stjórnmála-
sht, brottrekstur íranskra borgara
frá Bandaríkjunum, frysting ahra
sjóða írana í Bandaríkjunum og
annars staðar þar sem Bandaríkja-
menn réðu og aö lokum hemaðar-
leiöangur sem endaöi meö ósköp-
um vorið 1980. Aögerðir Banda-
ríkjamanna og bandamanna þeirra
höfðu engin áhrif, og jafnvel andlát
keisarans breyttí engu um kröfur
mannræningjanna. Svo fór um síö-
ir að Bandaríkjamenn uröu að
samþykkja nær allar kröfumar th
að fá gíslana lausa. Þeim var sleppt
sama daginn og Ronald Reagan tók
viö af Jimmy Carter, eftir 444 daga
vist í Teheran, en á þeim tíma sner-
ist reiði almennings í Bandaríkjun-
um vegna þessa máls upp í andúð
og fyrirhtningu á Carter, og ekkert
átti meiri þátt í ósigri hans fyrir
Reagan en gíslamáhð í Teheran.
Khómeini hrósaði sigri en fjand-
skapur Bandaríkjanna kom sér síö-
an hla í stríðinu við írak.
Beirút og Nicaragua
Fylgismenn Khómeinis í Líbanon
lærðu af meistaranum og höfðu
árangur sem erfiði. Fyrir þeirra
milhgöngu fengu íranir á laun
bandarísk hergögn fyrir gísla í
Beirút en söluhagnaður átti aö
renna ólöglega th contraskæruhða
í Nicaragua, sem frægt er aö
endemum. Nú er svo komið að
bandarískur almenningur hatast
ekki við annaö erlent ríki meira en
íran, jafnvel Sovétríkin eru vin-
veitt samanboriö við íran. Nú
standa enn fyrir dyrum forseta-
kosningar í Bandaríkjunum, og
enn er ekki útséð um að klerkar í
íran, eöa öllu heldur lærisveinar
þeirra í Beirút, getí haft áhrif á
úrshtin. Það væri mikill sigur fyrir
Bush ef honum tækist að fá þá sjö
bandaríska gísla, sem enn eru í
Beirút, látna lausa fyrir kosningar
og ekki síöur yrði almenningur
hrifmn ef Dukakis tækist það.
Klerkar í íran gætu haft áhrif á
kosningaúrshtin Iranir léku þenn-
an leik tíl að hafa áhrif í kosningun-
um 1984 og aftur 1986, en þá gerðist
ekkert þeim í hag. Nú hafa þeir
sleppt einum gísl í Beirút, hvað sem
þaö táknar. í vor, þegar kosninga-
haráttan í Frakklandi stóö sem
hæst, samdi Chirac, annar fram-
bjóðenda, um að taka upp á ný
stjómmálasamband við íran og
veita þangaö átta mhljarða dollara
efnahagsaðstoð í skiptum fyrir tvo
franska gísla í Beirút, en það dugði
ekki th að sigra Mitterrand. Vest-
ur-Þjóðveijar ráðgera að selja írön-
um flugvélar fyrir á annan milljarö
dohara í skiptum fyrir sína gisla í
Beirút. Það er því augljóst að
mannrán og gíslatökur írana og
þeirra trosbera hafa skhað stór-
fehdum árangri, en að vísu hafa
íranir goldið sigra sína dýru verði
með fjandskap umheimsins. Þessi
dæmi sýna að gíslatökur og mann-
rán geta borgað sig og því er varla
við öðra að búast en framhald verði
á þeim.
Gunnar Eyþórsson
„Það væri mikill sigur fyrir Bush ef
honum tækist að fá þá sjö bandaríska
gísla, sem enn eru í Beirút, látna lausa
fyrir kosningar og ekki síður yrði al-
menningur hrifinn ef Dukakis tækist
það.“