Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988. 9 Útiönd Afnema við- skiptabann Suður-Kóreumenn tilkynntu í morgun að þeir hefðu aflétt við- skiptabanni á erkióvininn, Norður- Kóreu, og lýstu þvi yfir að þeir vildu hefja vjðraeður sem miðuðu aö því að sameina efnahag beggja landanna. Aðstoðarforsætisráðherra Suður- Kóreu, Rha Woong-Bae, sagði að við- skipti milli landanna myndu sam- kvæmt þessu verða álitin innan- landsviðskipti og þar með undanþeg- in öllum tollum. Þar til nú hafa suður-kóreskir kaupsýslumenn, sem stunda inn- flutning frá Norður-Kóreu, átt yfir höföi sér ákærur fyrir brot á öryggis- lögum þjóðarinnar sem banna öll viðskipti við Norður-Kóreu aö við- lögðum þungum dómum og jafnvel dauðadómum. Rha, sem einnig er ráðherra efna- hagsáætlanagerðar, sagði að stjórn- völd í Seoul myndu hvetja kaup- sýslumenn frá Kóreulöndunum tveimur til að hittast og gera við- skiptasamninga. „Þaö væri ákjósanlegt að mynda sameiginlega efnahagseiningu á milli Suður- og Norður-Kóreu vegna þess að viö eigum að vaxa og dafna saman sem ein þjóð,“ sagði Rah við blaðamenn í morgun. Hann viöurkenndi að ekki væri von til þess aö viðskipti milli land- anna blómstruðu þegar í stað nema ráðamenn í Pyongyang samþykktu tillögur hans, en sagði að fyrirtæki í suðri myndu kahpa vörur að norðan í gegnum þriðja aðila. Þessi áform Suður-Kóreumanna eru miög í anda ummæla Roh Tae- Woo, forseta landsins, sem hefur lýst miklum áhuga á sameiningu land- anna tveggja á Kóreuskaga. Reuter Það er Roh Tae-Woo, forseti Suður-Kóreu, sem hefur beitt sér fyrir stefnu- breytingu Suður-Kóreumanna i garð nágranna sinna í norðri. Teikning Lurie Heriög í Algeirsborg Bjami Hmriksson, DV, Boideaux; Alsírstjórn hefur sett á herlög í höfuðborg landsins og lýst yfir út- göngubanni. Þetta kemur í kjölfar- ið á tveggja daga uppþotum og eyði- leggingu þar sem ungt fólk hefur sýnt óánægju sína með efnahags- ástandið í landinu. Ríkisstjóm landsins er mikið í mun að koma á friði og lægja ófriðaröldumar áður en gripiö verður til ráðstafana sem koma til móts við þarfir fólksins. Tveir létust í átökum við lögregl- una í gær sem skaut á mótmælend- ur. Það er fyrst og fremst í Algeirs- borg sem uppþotin hafa átt sér stað. Aðfaranótt miðvikudags breyttust friðsamlegar mótmælagöngur í öldu eyðileggingar. Bílum var velt, rúður brotnar, kveikt var í bygg- ingum og verslanir rændar. Þaö vom einkum ríkisstofnanir og fyr- irtæki, bankar og skrifstofur er- lendra fyrirtækja sem uröu fyrir barðinu á uppþotsmönnum. Bein átök við lögreglu hófust þó ekki fyrr en í gær. Þessir atburðir koma þeim sem fylgst hafa með málum í Alsír und- anfarið ekki á óvart þótt fæstum dytti reyndar í hug aö til herlaga yrði gripiö. Þetta er í fyrsta skipti frá því að landið fékk sjálfstæði árið 1962 að slíkt er gert. Ástæðurnar fyrir óánægju al- mennings og þá einkum ungs fólks eru tvíþættar. Annars vegar hræði- legt efnahagsástand sem helst kem- ur til vegna lækkandi olíuverðs en 98 prósent útflutningstekna Alsír koma frá oliuútflutningi. Og hins vegar vonleysi ungmenna varðandi framtíð sína og vinnu. * Útgöngubann er nú í Algeirsborg, höfuðborg Alsír, i kjölfar óeirða þar. í Alsír hefur fólksfjölgun verið gífufleg frá því landið hlaut sjálf- stæði. Verðbólga, skortur á nauð- synjavörum og samdráttur hafa undirbúið jarðveginn fyrir reiði fólksins. Umsjón Ingibjörg Bára Sveinsdóttir og Ólafur Arnarson Fyrirtæki ogfélagasamtök! Leigjum út sal fyrir haustfagn- aði, vörusýningar og samkomur. Næg bílastæði! - Lyftuhús. TIL LEIGU gott verslunarhúsnæði, 90 fermetrar, á besta stað við Laugaveg. Hentar vel fyrir fataverslun, innréttingar fyrir hendi. (Hagstæð leiga.) Þeir sem hafa áhuga leggi nafn og símanúmer inn á auglýsingadeild DV, merkt H-80, fyrir 13. okt. nk. IIÍLASALAN Tír HÖFORTÚní IO /ími: 62 2177 I 91W TIL SÖLU: Nissan Pathfinder, árg. '89, rauður, topplúga, toppgrind, ekinn 1500 km. MMC Galant GL, árg. ’88, hvitur, ekinn 1500 km. Verð 750.000. ‘ Vantar allar gerðir bíla til sölu MMC Lancer GLX, árg. '87, grá- brúnn, ekinn 30.000 km. MMC Colt, árg. '88, rauður, ekinn 5.000 km. Nýr 1988 GMC SIERRA CLASSIC 6,2 dísil Rafmagnshurðalæsingar, rafmagnsrúðu- upphalarar. Sjálfvirkur hraðastillir, stereo útvarp og segul.band, veltistýri, sjálfskiptur m/overdrive. Rally sportfelgur 31" dekk, læst drif 3,73 drifhlutfall. Upplýsingar í síma 92-46641 eða 985-21341. U SJÁLFSTÆI JHT DREGIÐ Á MORGUN. Dl ISMENN OPIÐ TILKL. 22 ■ HAPPDR/ETTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.