Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988. 15 Eflum innlendan spamað AlUf twilar I bíklu Ik>fcl M »wu4»r il tiildluu. 171000 110 3 0' «aooa> 1100.3' 310 3 31 33.333- 1 1330r >133 3- 2V 3 0 3- .3 31 2u030‘ 1333 351339! 13 441 T571 * * * *1,224 ** t 71i224 * * 151224 * * 1 1 12 2 4 ** 1 91.224 ** »71.22 4 ** »342 24 ***2!22 .»****? 24 * * 5 3122 4] »* * 3(1224 *** 3 0.2 244 * * * * 5.2 2 4 ****S.568_ ****1568 I augum aldamótakynslóðarinnar var máltækið „græddur er geymd- ur eyrir“ mikils virði. Það var mikilvægt þessu fólki að eiga sína bók og geta lagt inn á hana. Eiga fyrir óvæntum útgjöld- um og til elliáranna. Skulda engrnn neitt og vera sjálfu sér nógt. Það var stórt og mikið takmark. í verðbólgu síðustu ára brann sparifé þessa fólks að miklu leytí. upp. Nýr hugsunarháttur hélt inn- reið sína. Það var gróðavegur að skulda. Á síðustu árum hófst síðan hið mikla kapphlaup um sparifé lands- manna með alls konar gylhboðum. Lofað er miklum raunvöxtum í formi kaskó-kjara-ábótar-gull- reikninga. Öll þessi gylliboð eru svo flókin að venjulegt fólk, sem kannski get- ur nurlað einhverju saman og lagt á bók til að mæta óvæntum útgjöld- um, áttar sig ekki á máhnu og legg- ur aurana sína bara inn á gömlu bókina. Auramir eru þá vísir ef th þeirra þarf að grípa. Eða er það? Nei, hreint ekki. Löglegt en siðlaust í fjölmiðlum hafa athugasemda- laust birst fréttir þess efnis að verð- bólgan væri búin að éta upp ákveð- inn hluta af höfuðstól þess sparifjár sem lagt hafði verið á venjulegar sparisjóðsbækur. Einhvers staðar var talað um 90 mihjarða. Er þetta ekki einum of frjálslega farið með sparifé? Sagði ekki ein- hver einhvem tímann „löglegt en siðlaust?" Og nú em hæstvirt stjórnvöld farin að ýja að því að nauðsyn beri th að skattleggja spariféð lika. Kjállariim Helgi K. Hjálmsson viðskiptafræðingur Peningastofnanir taka að sér að varðveita ákveðin verðmæti fyrir viðskiþtavini sína og skömmu síð- ar þegar eigandinn ætlar að fá þessi verðmæti til baka þá er búið að skerða þau og rýra. Hann fær ekki th baka sömu verðmæti og hann kom með th vörslu. Ef um einhver önnur verð- mæti hefði verið að ræða heldur en sparifé þá er ekki ósennilegt að einhverjum hefði dottið í hug að kalla þetta þjófnaö. Þó hafði varðveitandinn heimild th að nota þessi verðmæti sér th hagsbóta á meðan hann hafði þau undir höndum. Mér er spurn: Er það ekki lágmarkskrafa að aðili, hvort sem um er að ræöa peninga- stofnun eða aðra, skili til baka sömu verðmætum og hann tók til varðveislu? Var það ekki thgangur Ólafslaga? Bankinn gæti hagsmuna Sparifjáreigandi sem leggur fé á venjulega sparisjóðsbók á skhyrð- islaust heimtingu á að höfuðstóll inneignarinnar sé reglulega færður upp th samræmis við rýmun krón- unnar. Þannig minnkar ekki verðmæti inneignarinnar þó að verðgildi krónunnar minnki og þrátt fyrir að viðkomandi hafi ekki haft sinnu eða þekkingu á að leggja peninga sína á sérstaklega verötryggðan bankareikning eða þ.h. Meginreglan ætti að vera að banki gæti hagsmuna viðskipta- manns þannig að honum séu reikn- aðir bestu vextir á óhreyfðar inn- stæður án tihits th þess á hvers konar reikningi féð liggur. Þetta gera bankar erlendis. Þetta er sam- keppnisatriði mhh banka þar. Sé þetta gert er ég sannfærður um að æ fleiri fari að leggja kapp á að spara, að ég nú tah ekki um ef þeir geta líka átt von á einhverj- um raunvöxtum án þess þó að binda fé sitt einhvern ákveðinn tíma. Verður spariféð líka skattlagt? Fyrir þá sem ekki hafa úr of miklu að spha, en hafa þó mögu- leika á aö leggja eitthvað til hhðar, getur það skipt sköpum í sambandi við spamað þeirra að þurfa ekki aö binda peningana ákveðinn tíma. Það er alltaf erfitt að spá í fram- tíðina. Óvænt útgjöld geta komið upp þegar minnst varir. Þess vegna er fólk hrætt við bindingu. En ef það helst í hendur að hafa peningana ahtaf vísa með sínu verðgildi, auk þess að þeir gefi ein- hveija raunvexti, þá er auðsætt að það hvetur til sparnaðar og spari- fjármyndunar. Strax og almenningur er viss um að höfuðstóh sparifjár verði ekki skertur af völdum verðbólgu og krónurýrnunar mun almenn spari- fjármyndun aukast. Það á að hvetja til sparnaðar í þjóðfélaginu með öhum ráðum. Stjómvöld eiga að veita skattafrá- drátt í tengslum við sparifjármynd- un, í stað hugleiðinga um skatt- lagningu. Eðlileg og hehbrigð sparifiár- myndun styrkir allar máttarstoðir þjóðfélags okkar. Bönkum ber að vera heiðarlegir og bera hag ahra viðskiptamanna sinna jafnt fyrir brjósti og gæta hagsmuna í hví- vetna. Hagur hins minnsta bróður er jafnmikils virði og hins stærsta. Ef þessi háttur, sem er bæði ein- faldur og heiðarlegur, verður upp tekinn án þessara flóknu ávöxtun- arskilyrða sem nú eru viðhöfð get- um við hafið á ný til vegs og virð- ingar málsháttinn góða sem ég man ekki betur en hafi staðiö á spari- bauknum mínum frá Landsbank- anum að: „Græddur er geymdur eyrir“. Helgi K. Hjálmsson „Stjórnvöld eiga að veita skattafrádrátt 1 tengslum við sparifjármyndun, í stað hugleiðinga um skattlagningu.“ Að kosningum loknum: Þetta vill sænska þjóðin? Sænskar kosningar eru með allt öðrum hætti en þeim sem við eig- um að venjast heima á Fróni. Hér er í einu lagi kosið th þings (Riksdag), fylkisþinga (landsþing - 24 í landinu) og í 284 sveitarstjórn- ir. Það er því að mörgu að huga hjá sænskum kjósendum á kosn- ipgadaginn! Urslit kosninganna Nú virðist það vera svo hér í landi, eins og raunar á islandi hka, að ekki fara alltaf saman sveitar- stjórnar- og landsmál. Fólk kýs greinilega oft og einatt tvo flokka og telur flokkinn því mismunandi vel í stakk búinn til þess að stjórna ríki eöa heimabyggð. Þó að það sé erfitt aö greina þama einhverja reglu varöandi nýaf- staðnar kosningar, virðist eins og hægri flokkurinn, sem kallar sig Moderadema-Samlingspartiet, hafi staðið sig mun betur í sveitar- stjómarkosningunum en th þings. Svo virðist og að sósíaldemókratar hafi tapað þar meiru en þeir þó gerðu um allt land. En á það skal hér bent að þeir töpuðu um 1% fylgi og fleiri atkvæðum en fijáls- lyndi flokkurinn - Folkpartiet sem tapaði næstmestu i prósentum eða 2% atkvæða frá kosningunum 1985. Hægriflokkurinn galt mest afhroð með 3% tapi miðað við fyrri kosn- ingu. 349 þingmenn skipa þjóðþing þeirra Svía (Riksdagen) og því þarf 175 atkvæði til þess að ná þar meiri- hluta. Sósíaldemókratar töpuðu 3 þingsætum í kosningunum og hafa því 156 þingmenn. Það dugir þeim engan veginn th að stjóma landinu með meirihlutavaldi. Vinstriflokkurinn, kommúnist- ar, unnu á við þessar kosningar, bættu viö sig 2 mönnum og eiga þar KjaUarinn Brynleifur H. Steingrímsson læknir með 21 mann á þingi. Þeir hafa ávallt veitt sósíaldemókrötum stuðning sinn til þess að stjóma og allir ætla nú að svo verði sem fyrr. Þessir tveir flokkar ná meirihluta á þingi, eða 177 þingsætum, sem ekki getur talist sterkur meirihluti, ef ekki er litíð th þess hvemig máhn æxlast þar í þingsölunum. Staðan á þingi (í Riksdagen) Búist var við því fyrir kosningar að sósíahstar myndu tapa meiri- hluta sínum á þingi, þ.e. kratar og kommar, en græningjar réðu hvort stefnan yrði tekin th hægri eða vinstri, ef svo má að orði komast. Þeim hafði verið spáð miklu fylgi en það virðist hafa smogið þeim úr greipum í lok kosningabaráttunnar og sennilega horfið að einhverju leyti á vit komma. Þeir fengu þó 20 þingsæti og um 5,5% atkvæða. í dag er það spurning þeirra sem um stöðu mála fiaha hér í landi hvort samstarf muni myndast á mihi græningja og komma. Græningjár þurfa á hjálp að halda til þess að ná fuhtrúa inn í nefndir þingsins og hefur verið gefið hálfgildings loforð um það af kommum (VPK). Það getur því orðið býsna snúið fyrir sósíaldemókrata að stjórna með stuðningi þessara flokka. Nú er það svo að ekki er um stjórnarsáttmála að ræða þegar samstarf flokkanna á sér stað held- ur hefur það verið þannig að kratar hafa myndað stjórnina og hún hlot- ið samþykki þingsins og er þar með orðin starfhæf stjórn samkvæmt stjórnlögum. Síöan leggur stjórn mál sín fram á þingi og þarf þá á stuðningi meirihlutans að halda. Vantraust á stjórnina hafa komm- ar varið og munu sennhega verja en þeir eru ekki bundnir varðandi meðferð hinna ýmsu stefnumála stjómarinnar. Allur gangur mun hafa verið á því hvaða stjórnarmál flokkamir styðja og væntir Ingvar Carlsson forsætisráðherra þess að svo muni verða áfram. Fijálslyndi- og hægriflokkurinn hafa þó lýst því yfir aö þeir muni taka upp mun harðari stjórnarand- stöðu nú en áður hefur verið enda telja þeir að stjórnin verði að halla sér mun meira th vinstri en áður. Það er því ljóst að sú stjórn, sem mynduð verður af hálfu sósíal- demókrata, er minnihlutastjóm sem þarf á stuðningi annarra flokka að halda. Mörg stór vandamál bíða úrlausnar Um kosningaúrslitin hér verður vart annað sagt en að þau séu „án framtíðar". Án efa eru tengslin við Evrópu- bandalagið langstærsta verkefni komandi ríkisstjórnar þar sem tveir þriðju hlutar útflutningsins em á Evrópumarkaðinn. Græningjar og kommar skella skoheyrum við þessum vandamál- um enda reikna þeir ekki lífið í krónum eða aurum. Sú hugmynd kom meira að segja fram hjá þeim fyrrnefndu aö vinnudagurinn ætti að verða Qórir tímar en síðan ætti fólk að sinna í sjálfboða- eða þegn- skylduvinnu hinum ýmsu þjón- ustumálum s.s. hjúkrun og fleiru. - (Trúir nú nokkur?) Þeir vhja kjarnorkuverkin burt strax, fiarlægja flutningabílana af vegunum um leið og þeir segja að hagvexti þurfi maður ekki á að halda. Það hlýtur að verða erfitt að stjórna með flokkum sem þannig hta á vandamálin. Ekki verður annað séð en að sós- íaldemókratar verði að styðjast við einhvern hinna þriggja borgara- legu flokka, ef þeir ætla að stjóma Ingvar Carlson forsætisráðherra Sviþjóðar. - Væntir stuðnings sem flestra flokka við stjórnarmálin. landinu af ábyrgð og festu. Forsætisráðherrann sagði raun- ar fyrir kosningar að hann vildi nýjar kosningar fremur en sam- stjórn með græningjum og gerði hann þá ráð fyrir að sósíalistar myndu tapa meirihluta á þingi. Á íslandi ætti stjóm af þessu tagi vart marga lífdaga í vændum. Ábyrgð En það sem skhur að íslensk stjórnmál og sænsk er þó ábyrgðar- tilfmning stjómmálamannanna hér. Ríkisstjórn er th þess að stjórna en ekki th þess aö sýnast stjórna með blaðri og ahs kyns sýndarmennsku, eins og dæmi sanna á Fróni. Það hefur líka komið fram í sam- bandi við þessar kosningar að th þess er ætlast að stjómmálamaður kunni og geti. Hér þarf sfióm- málamaðurinn aö bera skyn á hag- fræði og peningamál og geta gert grein fyrir skoðunum sínum í þess- um efnum. Hitt er th hátíöabrigða. Brynleifur H. Steingrímsson „En þaö sem skilur að íslensk stjórn- mál og sænsk er þó ábyrgðartilfmning stjórnmálamannanna hér.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.