Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1988, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 26. OKT0BER 1988.
5
DV
Grænftiðimgar:
Alþjóðleg
herferð gegn
íslendingum
Áageir Eggertason, DV, Miinchen:
„Við voniun að ákvörðun fyrir-
tekisins Tengelmann komi ís-
lenskum stjórnvöldum í skilning
um að svokaUaöar hvalveiðar í
vísindaskyni séu nákvæmlega
jafnóæskilegar og venjulegar
hvalveiðar,“ ^agöi Peter Puesc-
hel, talsmaður grænfriðunga í
Haraborg, þegar DV innti hans
álits á ákvörðun Tengelmanns
um að hætta innflutningi á ís-
lenskum sjávarafurðum.
Pueschel sagði að herferð
grænfriöunga í Vestur-Þýska-
landi væri hluti af alþjóðlegum
áróðri sem rekixm væri gegn ís-
lenskum afurðum. Grænfriðung-
ar hafa staðið í sambandi við
nokkur innflutningsfyrirtæki og
er Tengelmann fyrsta fyrirtækið
sem sfyður áróðurinn. Hafa fyrir-
tækin verið heimsótt og hefur
þeim verið látið í té umfangsmik-
ið efni um hvalveiðar íslendinga.
Pueschel sagði aö fyrirtækiö
Nordsee hefði þegar tekið þá
ákvörðun að minnka fiskinnkaup
sín frá íslandi. Einnig hefði fyrir-
tækið Igloo-Langnese ákveðið aö
merkja sérstaklega fiskafurðir
frá tslandi þannig að neytendur
gætu sjálfir tekið þá ákvörðun
hvort þeir vildu kaupa vaming-
inn.
Þess má geta aö fyrirtækið
Tengelmann er mjög vel meðvit-
að um umhverfisvemd. Þar er
hægt að fá pappírsvörur úr endu-
runnum pappír og fyrirtækið tók
þá ákvöröun fyrir fimm árum að
ekki yrði boðið lengur upp á fro-
skalappir og skjaldbökusúpu.
Pueschel kvaðst vonast til að
íslenska ríkisstjórnin léti sér
bráölega segjast svo ekki kæmi
til atvinnuleysis á þeim stöðum
þar sem framleitt er fyrir Þýska-
landsmarkaðinn.
„Ef iitið er á hvalveiöisteíhu
íslensku ríkisstjórnarinnar síð-
asfliðin tuttugu ár sést aö tíminn
er hreinlega ekki nægur til að
setja saman og ræða eitthvað sem
ákvörðun verður tekin um eftir
fimm ár. Ég vona bara aö veið-
amar verði bannaöar bráðlega
svo skaðinn fyrir fiskiðnaðinn
veröi sem minnstur," sagði
Pueschel við blaðamann DV.
Að lokum kvaöst hann harma
að fyrirtækíð Aldi tæki ekki þátt
í þessu innflutningsbanni en ver-
iö gæti að það breytti um skoöún.
Umræðu frestað:
Halldór var á
kirkjuþingi
„Það er auðvitað ótækt að sjáv-
arútvegsráðherra sé að taka ein-
hver þing úti i bæ fram yfir áríð-
andi þingfundi um mikilsverð
mál,“ sagði Hreggviður Jónsson,
þingmaður Borgaraflokksins. I
gær varð að fresta fundi í efri
deild Alþingis um tillögu Hregg-
viðar og Aðalheiðar Bjarnfreðs-
dóttur um að hætta hvalveiöum.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra gat ekki setið þing-
fundi vegna Kirkjuþings sem
hann situr sem dóms- og kirkju-
málaráðherra. Sagði Hreggviður
að svo væri komið að neðri deOd
væri óstarfhæf vegna fiarveru
ráöherra.
Þar meö var eina þingmáli
deildarmnar frestað en ætlunin
er aö reyna aö koma því að á þing-
fundi í dag.
-SMJ
Fréttir
Hvalveiðimálin:
Tel ekki pólitska
stöðu mína í hættu
- segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
„Við höfum endurskoöað hvala-
rannsóknaráætlun okkar á hverju
ári og ég minni á að við tókum
ákvöröun um breytingar í vor,
skömmu áður en veiðarnar hófust.
Við höfum enn engar ákvarðanir tek-
ið um áætlunina fyrir næsta ár og
munum halda því máli opnu fram
að veiðitímabili næsta árs,“ sagði
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra í samtali við DV.
Halldór var spurður í ljósi nýrra
viðhorfa ýmissa viðskiptavina er-
lendis til hvalveiða okkar hvort hann
legði ekki pólitíska stöðu sína að veði
með því að gefa hvergi eftir í þessu
máh.
„Ég ht nú ekki svo á. Ég er einu
sinni þannig gerður að ég vil hlusta
á rök og tel mig hafa gert það í þessu
máh. Aftur á móti hlýt ég að fara
fram á það að umræðan um hvala-
málið sé byggð á rökum en ekki til-
finningum hér innanlands. Ég vil
ekki trúa því að tilfinningar eða ótti
ráði ríkjum þegar alþingismenn fara
að ræða máhð. Til þess tel ég of mik-
ið af skynsömu fólki þar,“ sagði
Halldór.
Hann sagðist ekkert geta sagt um
það hvort gerðar verði breytingar á
áætluninni á næsta ári. Hann benti
á að íslendingar hefðu alltaf lagt
áherslu á að starfað væri í máhnu á
vísindalegum grundvelh. Einnig tók
hann fram að tekið hefði verið tillit
til skoöana annarra, bæði Alþjóöa
h'valveiðiráðsins og Bandaríkja-
manna.
Andvígt hvalveiðum
um alla framtíð
Halldór var þá spurður hvort hann
óttaðist ekki að sá áróður, sem rek-
inn hefur verið gegn okkur og marg-
ir óttast að sé að bera árangur, neyði
okkur ekki til að taka tillit til hans.
„Þegar menn tala um að áróðurinn
sé að skaða okkur verðum við að
hugsa um það bæði til skemmri og
lengri tíma. Ef við tökum tillit til
þess sem menn telja að skaði okkur
til skemmri tíma getur það aftur á
móti skaðað okkur þegar til lengri
tíma er litið, þótt enginn geti fullyrt
um það. Ég tel því að það sé grund-
vallaratriði að við getum lokið okkar
rannsóknaráætlun og tekið skyn-
samlegar ákvarðanir eftir það. Hins
vegar er ljóst aö þetta fólk sem berst
gegn okkur er andvígt því að við
fáum nauðsyniegar upplýsingar, það
er andvígt hvalveiðum um alla fram-
tíð.“
- Hvers virði eru þessar rannsókn-
arveiöar og að hverju er stefnt með
þeim?
„Við erum að leita að mikilvægi
hvalanna í lífkerfi hafsins. Við erum
aö leita að því hversu mikinn fiölda
hvala lífkeðjan þolir með tilliti til
þess að við getum nýtt fiskistofnana
til lengri tíma htið. Ef ekki er jafn-
vægi þarna getur það skaðað fisk-
veiðar okkar í framtíðinni.“
- Niðurstöður rannsóknanna geta
þá leitt til þess að viö teljum nauð-
synlegt aö veiða hvah áfram?
„Þær gætu leitt til þess að nauðsyn-
legt yrði að halda hvalastofnunum í
skefium. Ef við höldum fiölguninni
ekki í skefium þá hlýtur þaö að hafa
áhrif á samkeppnina um fæðuna í
hafinu. En ég vil taka það skýrt fram
að auðvitað verðum við að vernda
hvalastofnana og ég tel okkur betur
treystandi til þess en þessum þjóðum
sem þykjast allt vita um þetta, sagði
Halldór Ásgrímsson.
-S.dór
Hvalveiðar okkar í vísindaskyni eru á leiðinni með að verða hið mesta
hitamal á Alþingi.
Hvalveiðimálið:
Þingmenn verða með
óbundnar hendur
Ljóst er að þegar frumvarp
þeirra Hreggviðar Jónssonar og
Aðalheiöar Bjarnfreðsdóttur, þing-
manna Borgaraflokksins, um hann
viö hvalveiðum kemur til umræðu
á Alþingi verða þingmenn sfiórnar-
andstöðuflokkanna með óbundnar
hendur. Líkur eru á að sfióraar-
flokkamir standi saman og felli
frumvarpið. Aftur á móti verður
annað uppi á teningnum þegar
þingsályktunartillaga Árna Gunn-
arssonar, sem lögð var fram í gær,
verður tekin fyrir. Talið er að
frumvarp Hreggviðar og Aðalheið-
ar verði ekki samþykkt vegna þess
að lagasetning bindur hendur rík-
issfiórnarinnar. Það gerir tillaga
Áma ekki, hún gefur svigrúm.
Júhus Sólnes, formaöur þing-
flokks Borgaraflokksins, Páll Pét-
ursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins, Halldór
Blöndal, varaformaður þingílokks
Sjálfstæðisflokksins, og Eiður
Guönason, formaður þingflokks
Alþýðuflokksins, sögðu í samtali
viö DV aö hvalveiöimáliö heföi enn
ekki verið tekið til umfiöllunar í
þingflokkum þeirra.
Margrét Frímannsdóttir, formaö-
ur þingflokks Alþýöubandalagsins,
sagði að málið heíöi ekki verið
rætt í þingflokknum, það yrði að
öllum líkindum gert í dag.
Kristín Einarsdóttir, þingkona
Kvennalistans, sagði að hvalamálið
hefði verið rætt í þingflokki
Kvennalistans en ekki afgreitt
Þótt þingílokkamir hafi ekki tek-
ið hvalveiðimálið enn til alvarlegr-
ar umfiöllunar verður það gert
næstu daga og sem fyrr segir verða
þingmenn án efa með óbundnar
hendur, flokksböndin munu ekki
halda.
-S.dór/-SMJ
Þingsályktunartillaga lögö fram í gær:
Ámi Gunnarsson vill
stöðva hvalveiðamar
- gjaldþrot blasir viö niðurlagningarverksmiðjum hætti Tengelmann viö kaup héöan
Árni Gunnarsson alþingismaður
lagði í gær fram á Alþingi svohljóð-
andi þingsályktunartillögu:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn-
inni að hefia þegar í stað endurskoð-
un á hvalveiðistefnu íslendinga með
það fyrir augum að stöðva vísinda-
hvalveiðar um að minnsta kosti
þriggja ára skeið. Sá tími verði notað:
ur til að ljúka nauðsynlegum vís-
indarannsóknum án veiða og tíl auk-
innar kynningar á málstað íslend-
inga. Fulltrúum umhverfisverndar-
samtaka verði gefinn kostur á að
fylgjast með og taka þátt í þessum
rannsóknum."
„Við erum ekki einir í heiminum
og lifum í samfélagi þjóða. Við getum
heldur ekki litið fram hjá því að þetta
hvalveiðimál er farið aö bitna svo
hrikalega á lagmetisiðnaði okkar að
við það verður ekki unað. í fyrra-
kvöld hafði Jón Tryggvason á Dalvík
samband við mig og sagði mér að
hann yrði að loka niðurlagningar-
verksmiðju sinni og segja upp 17
manns vegna þess að Tengelmann-
fyrirtækið hefði hætt við að kaupa
það sem hann hefur verið að fram-
leiða fyrir fyrirtækið.
Helgi Helgason, framkvæmdastjóri
Hiks á Húsavík, hafði samband viö
mig í dag. Ef Tengelmann kaupir
ekki situr hann uppi með birgðir, 155
þúsund dósir, og verður gjaldþrota.
Helgi hefur verið að byggja upp efni-
legt fyrirtæki og verið með niöur-
lagningu á þorsklifur. Fram hjá
þessu er bara ekki hægt að horfa,“
sagði Árni Gunnarsson. Árni sagði
að sjálfsagt myndu flokksbönd ekki
halda þegar þessi tillaga yrði tekin
til umfiöllunar á Alþingi. Það væri
ekki bara að alþingismenn greindi
á; ráöherrana greindi hka á eins og
kom fram í máh Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra á dög-
unum.
„Menn eru að skynja æ betur mik-
ilvægi þessa máls eftir því sem betur
kemur í ljós alvara þess fyrir við-
skiptasambönd okkar. Ég geri mér
auðvitað ljóst aö það eru ekki allir á
sömu skoðun í þessu máh frekar en
öðrum,“ sagði Arni.
Hann sagði að í greinargerð með
fillögunni væri ekki vefengdur réttur
íslendinga til hvalveiða. Viö ættum
rétt á að nýta þá fiskstofna og spen-
dýrastofna sem væru í hafinu um-
hverfis ísland. Það þyrfti hins vegar
að gera í samræmi við alþjóðlegar
ályktanir.
-S.dór