Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1988, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1988, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1988. 9 Michael Dukakis breytir um stefhu Steinunn Böðvarsdóttir, DV, Washingtaa- Michael Dukakis, forsetaframbjöö- andi demókrata í Bandaríkjunum, stendur hölium feti í kosningabar- áttunni gegn George Bush, frambjóö- anda repúblikana. Samkvæmt nýj- ustu skoðanakönnunum leiðir Bush með 13 prósent forskot. New York Times dagblaðið birti í morgun niö- urstöður könnunar sem gefa Bush 54 prósent fylgi á móti 41 prósent til handa Dukakis. Skoðanakannanir í Kalifomíufylki, sem Dukakis hefur ekki efni á að tapa, gefa Bush 11 pró- sent forskot. Að auki lítur út fyrir að Bush hafi þegar tryggt sér megnið af þeim 270 atkvæðum kjörmanna sem þarf til sigurs þann 8. nóvember næstkomandi. Dukakis hefur unnið að því síðustu daga að snúa þessari þróun við. Stuðningsmenn hans hafa hafið nýja auglýsingaherferö til aö vinna gegn harðorðum ásökunum og áhrifa- miklum auglýsingum Bush. Hin nýja herferð byggir á sömu grundvallar- atriðum og auglýsingar Bush, per- sónulegar árásir annars vegar og skírskotun til tilfinninga kjósenda hins vegar. Dukakis hefur einnig notað hvert tækifæri til að koma fram í sjónvarpi og ræða við fréttamenn. Báðir fram- bjóðendur hafa hingað til haldið fréttamönnum í fjarlægð en nú kem- ur Dukakis fram í hverjum viðræðu- þættinum á fætur öðnnn. Bush held- m- hins vegar sínu striki og hafnar öllum óskum um viötöl. í sjónvarpsviðtah í gærkvöldi lagði Dukakis mikla áherslu á stefnu sína í utanríkis- og varnarmálum. Aug- lýsingaherbúðir Bush hafa ranglega staðhæft að Dukakis sé andvígur nær öllum háþróuðum vopnakerfum Bandaríkjanna, þar á meðal Stealth- sprengjuflugvélunum. Dukakis hef- ur í auglýsingum og sjónvarpsvið- tölum reynt að sýna kjósendum að Bush rangfæri staðreyndir um feril hans og hefur ásakað andstæðing sinn um lygar. Auk þess hefur Dukakis harðlega gagnrýnt auglýsingar Bush sem staðhæfa að Dukakis sé óhæfur til að berjast gegn aukinni glæpatíðni í Bandaríkjunum. Ásakanir um kyn- þáttahatur á hendur herbúða Bush hafa einnig heyrst. Bush hefur svar- að fyrir sig með því að segja að Duk- akis höfði tii stéttaskiptingar í bar- áttu sinni. Margir fréttaskýrendur telja að Dukakis hafi ef til vili beðið of lengi til að snúa vöm í sókn og að tíminn sé að renna honum úr greipum. í gærkvöldi lýsti Dukakis aftur á móti yfir bjartsýni. Hann kvaðst mundu halda baráttunni ótrauður áfram þrátt fyrir forskot Bush í skoðana- könnunum. En kjósendur eru orðnir lang- þreyttir á þeirri lágkúru sem ein- kennir þessa kosningabaráttu. Meira en helmingur þeirra telur kosninga- baráttuna nú neikvæðari en verið hefur fyrir fyrri kosningar, sam- kvæmt niðurstöðum skoðanakönn- unar Newsweek. Nær því þrír íjóröu kjósenda telja frambjóðendurna segja það sem almenningur vill heyra í stað þess að ræða af hrein- skilni um málefnin. En innan tveggja vikna verða þeir að gera það upp við sig hvort Dukakis eða Bush taki við stjómartaumunum af Ronald Reag- an forseta. Leikkonan Sally Field var meðal þeirra sem fögnuðu Dukakis er hann kom til Denver í gær á kosningaferðalagi sínu. Símamynd Reuter Vondaufir um viðræður Leiðtogar Kommúnistaflokksins í Póllandi hafa boðiö Samstöðu, hin- um ólöglegu verkalýðssamtökum, að taka þátt í hringborðsumræðum á fóstudaginn. Talsmaður stjómarinnar, Jerzy Urban, stakk upp á því í gær að Lech Walesa, leiötogi Samstöðu, og Kiszc- zak hittust í dag til þess að leysa ágreiningsmál fyrir aðaiviðræðum- ar sem hefur verið frestað frá 17. október. Walesa kvað málin útrædd og enga þörf vera á viðræðum í dag. Þar með minnka horfumar á að af fundi verði á fóstudaginn. Urban sagði við fréttamenn í gær að úr því að ekkert yrði af þvi aö Walesa og Kiszczak hittust í dag væm litlar vonir til þess aö sam- komulag næðist mn mikilvægari málefni. Aðalfundinum hefur verið frestað vegna ágreinings um þátttöku tveggja andófsmanna, Kurons og Michniks. Stjórnin viii því aðeins Fréttamönnum var í gær sýnt hringborðið sem viðræðurnar við Samstöðu eiga að fara fram við. Simamynd Reuter leyfa þeim þátttöku að þeir lýsi því yfir opinberlega að þeir viðurkenni stjómarskrána sem veitir Kommún- istaflokknum öll völd í landinu. Wal- esa viil hins vegar engar manna- breytingar í sínu hði. Reuter Fimmtíu lifðu af flugslys Fokkervélin sem hrapaði í Andesfjöllum i gær. Simamynd Reuter Tólf manns fómst þegar farþega- flugvél hrapaöi í Andesfjöllum í Perú í gær. Fimmtíu og tveir komust lífs af. Farþegavélin, sem var af gerðinni F-28 Fokker, hrapaöi nokkrum mín- útum eftir flugtak frá flugvellinum við Juliaca um niu hundrað kíló- metra suöaustur af Lima. Juliaca er nálægt Bólívíu um tuttugu kílómetra frá Titicaca stöðuvatninu. Margir eriendir ferðamenn vora um borð í véhnni og fórast fjórir þeirra. Alls særðust fjöratíu og fjórir farþegar og var flogið með þá sem alvarlegast voru særðir til Lima í björgunarflugvélum. Enn er ekki vitað hvað olli flugslys- inu. Útlönd Hundruð drukkna af völdum fellibyts Corazon Aquino, forseti Filippseyja, heimsækir fjölskyldu litils barns sem drukknaði i flóðum sem urðu af völdum fellibylsins Ruby í gær. Óttast er um líf hundraða manna eftir að fellibylurinn Ruby gekk yfir Filippseyjar. Talið er aö hundrað manna hafi farist þegar fetjan Dona Marilyn sökk með á sjötta hundrað manns á tnánudag. Einnig er óttast um líf hundraða manna eftir fióðin sem fylgdu í kjölfar Ruby. í gær höfðu samt fundist eitt hundrað fjörutiu og fjórir á lífi eftir fetju- slysið. Hvalabjörgun er hræsnlf segir Paul Watson Eskimóar sjóst hér við björgunartilraunlr á gráhvölunum tveimur i Al- aska. Sfmamynd Reuter Umhverfisvemdarmenn sökuðu í gær bandarísk og sovésk stjómvöld um hræsni vegna björgunaraðgerða á tveimur gráhvölum sem eru teppt- ir í ís við Alaska. Paul Watson sagði að björgunin hefði byrjað með góðum hug en breyst í peningasóun, hvalimir yröu hvort eð er drepnir af öðrum hvölum eöa hákörlum á leið sinni til Kalifomíu. Sagði Paul Watson að peningana raætti nota til að bjarga hundraðum hvala annars staðar. Talsmenn Greenpeace-samtakanna tóku undir gagnrýni Watsons en töldu þó rétt að halda áfram að reyna að bjarga hvölunum. Thatcher styöur Sihanouk Margrét Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, bauö Sihanouk prins stuðning sinn í gær vegna frumkvæðis hans til aö koma á friöi í Kampútseu. Sihanouk er i þriggja daga heim- sókn i Bretlandi að vinna friðartil- lögiun sinum stuöning og átti tæp- lega klukkustundarlangan fund með Thatcher. Rocard ræðst á hægrimenn Rocard forsætisráöherra, sem óttast nú mjög spádóma um aö margir sitji heima í atkvæöagreiöslu í næstu viku um Nýju-Kaledóníu, réðst í gær harkalega á stjómarandstöðuna í Frakklandi. Rocard sakaöi forvera sinn i embætti, Jacques Chirac, um að hafa tek- ið afstöðu gegn hagsmunum Frakklands og gegn friöi með því aö hvetja fólk til að sitja heima. tsabella Peron talar við Iréttamenn i Buenos Aires i gær. Simamynd Reuter Isabella Peron, fyrrara forseti Argentínu, kom óvænt til Argentínu í gær frá Spáni, i fyrsta skipti í tjögur ár. Hún gaf í skyn aö hún kynni að vera alkomin til Argentínu en vildi ekki gefa upp hvort hún tæki þátt í baráttunni fyrir forsetakosningamar sem verða fljótlega. Vopnahneyksll í Svíþjóð Enn eitt vopnahneyksliö kom upp á yfirborðið i Svíþjóð í gær eftir að lögregian geröi skyndirannsókn i ríkisreknu vopnafyrirtæki og saksókn- arar höföuöu mál gegn starfsmönnum þess fyxir að smygla vopnum til ríkja sem bannaö er aö selja vopn til. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.