Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Page 2
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1988.
Fréttir____________________________________________________
Suðumesjamenn vilja halda Keflavikurtogurunum:
Þetta er spurning
um líff eða dauða
- atvinnulifs á Suðumesjum, segir Jón Norðfiörð hjá Eldey sf.
Eldey sf. sem er félag til eflingar
útgerð á Suðurnesjum, hefur sótt um
100 milljón króna lán hjá Byggðasjóði
til að kaupa Keflavíkurtogarana Að-
alvík GK og Bergvík GK og koma
þannig í veg fyrir að þeir verði seldir
frá Suðurnesjum til Sauðárkróks.
Útgerðarfélag Skagfirðinga hefur
einnig sótt um lán til Byggðasjóðs til
að kaupa togarana. Þessar lánsum-
sóknir verða teknar fyrir á stjórnar-
fundi Byggðasjóðs í dag.
„Þetta er spuming um líf eða dauða
atvinnulífsins á Suðumesjum. Verði
þessir togarar seldir burt verður at-
vinnulífiö hér hreinlega lagt í rúst
og í veg fyrir það viljum viö koma,“
sagði Jón Norðfjörö, stjórnarformað-
ur Eldeyjar sf„ í samtali við DV.
Hann benti á að á síðustu 4 árum
hefðu skip með kvóta upp á 12 þús-
und lestir af þorski og 6 þúsund lest-
ir af karfa verið seld frá Suðurnesj-
um. Þessi afli væri að verðmæti um
einn milljarður króna. Að undan-
fórnu hefðu 6 fiskiskip verið seld frá
Grindavík og allar líkur á að tvö til
viðbótar fari næstu daga.
„Við einfaldlega þolum ekki meira.
Hér verður sviðin jörð í atvinnulegu
tilliti ef þessir tveir togarar frá Kefla-
vík fara líka. Þess vegna sóttum við
um þetta lán til Byggðasjóðs. Við
höfum rætt við þingmenn kjördæm-
isins um stuðning og höfum loforð
um að okkur verði liðsinnt," sagöi
Jón Norðíjörð.
Eldey sf. hefur einnig stuðning
bæjarstjómar Keflavíkur sem álykt-
aði á fundi sínum í fyrrakvöld að
leitaö yrði allra leiða til að halda tog-
urunum í heimabyggð. Skorað var á
stjórn Hraðfrystihúss Keflavíkur að
hefja viðræður við forráðamenn Eld-
eyjar sf. og aðra sem vilja vinna að
því að svo verði. Allir bæjarstjórnar-
menn nema einn greiddu þessu at-
kvæði. Þessi eini var Ingólfur Fals-
son, en hann er nýráðinn fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Kefla-
víkur.
Matthías Bjamason, formaður
stjómar Byggðasjóðs, sagöi að þetta
mál yrði tekið fyrir á fundi í dag.
Hann sagðist ekki kannast við að
búið væri aö afgreiða málið bak við
fjöldin, Skagfirðingum í vil, eins og
heimildir DV herma. Þaö má vera
að afskipti þingmanna Reykjaness
muni geta breytt þar einhverju, en
stutt er síöan þeir hófu afskipti af
málinu. Undirbúningur þess að
Skagfirðingar keyptu togarana af
Hraðfrystihúsi Keflavíkur hafði aft-
ur á móti staðið í langan tíma en far-
ið hljótt.
-S.dór
Réttarhöldin í togaramálinu
á Eskifirði komin í hnút
- útgerðin hafiiaði dómsátt. Togarinn var ekki með of litla möskva í poka
Errúl Thorarensen, DV, Eskifirði:
Réttarhöldum vegna meintra ólög-
legra veiða skuttogarans Kambarast-
ar SH 200 frá Stöðvarfirði var fram
haldið hjá bæjarfógetaembættinu á
Eskifirði í gær. Hófust þau kl. 13 og
stóðu skýrslutökur til kl. 14. Að því
loknu voru starfsmenn netaverk-
stæðis Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf.
fengnir til að mæla möskva í poka
trollsins en kæran er fyrst og fremst
byggð á þeirri forsendu af hálfu
Landhelgisgæslunnar.
Niöurstaða þessarar mælingar
leiddi í ljós að möskvastærðin væri
rétt og í samræmi við afgreiðslu frá
Hampiðjunni og gildandi reglugerðir
en pokinn var keyptur frá Hampiðj-
unni. Hins vegar er ljóst að bil mihi
belgbanda var ekki rétt þar sem of
langt bil var á einum staö en of stutt
á öðrum.
Réttur var aftur settur kl. 16. Út-
gerðinni var nú boðin dómsátt en því
var hafnað þar sem skipstjóri Kamb-
arastarinnar telur sig ekki hafa gerst
brotlegan. Milh 5 og 6 í gær náði ég
tali af Inger L. Jónsdóttur, stjóm-
anda réttarhaldanna, og þá sagði hún
aö málið væri í hinum versta hnút.
í gærkvöldi kom svo Óðinn inn til
Eskifjarðar og mældu varðskips-
menn möskvastærðina sjálfir. Verð-
ur réttarhöldum haldið áfram í dag.
Að sögn Steinars Guðmundssonar,
útgerðarstjóra Kambarastarinnar,
hefur þessi uppákoma valdið hinum
mestu óþægindum. Togarinn hggur
nú bundinn við bryggju á Eskifirði
með 70 tonn af fiski en átti að landa
að öhu óbreyttu á Fáskrúðsfirði í
gærmorgun og í gærkvöldi var svo
fyrirhugað aö togarinn héldi th veiða
og fiskaöi með siglingu í huga. Togar-
inn á söludag í Þýskalandi 21. nóv-
Varðskipið Óðinn og togarinn Kambaröst eftir komuna til Eskifjarðar í gær.
DV-mynd Emil
ember nk. en eins og kunnugt er eru ir þessa mánuðina og þeim úthlutað
söludagar í Þýskalandi afar eftirsótt- með fimm vikna fyrirvara.
Þotan, sem merkt er Club Air á írlandi, biður nú örlaga sinna á Kéflavíkur-
flugvelli. DV-mynd Ægir Már Kárason
írsk farþegaþota á f lótta
undan hamrinum
Farþegaþota frá írlandi hefur stað-
ið óhreyfð á Keflavíkurflugvelh í um
það bU hálfan mánuð. Að sögn Lárus-
ar Atlasonar hjá LoftferðaefdrUtinu
er þotan í eigu fyrirtækis í Vestur-
Indíum. Flugfélagið Club Air á ír-
landi var með hana á leigu, en er nú
gjaldþrota og komið'tU skiptaráð-
anda. Eigendiu- vélarinnar tóku þá
það til bragðs að fljúga henni hingað,
tU að hún yrði ekki bitbein í gjald-
þrotamáU flugfélagsins. Ekki kvaðst
Lárus vita hversu lengi véUn ætti að
standa á Keflavíkurflugvelli.
Pétur Guðmundsson, flugvallar-
stjóri á Keflavíkurflug\'elU, sagði að
þotan hefði verið skráð í írlandi en
verið afskráð eftir komuna hingað.
„Við höfum ekkert upp á véUna að
klaga þótt hún standi þama. Við
fáum okkar lendingar- og stæðisgjöld
greidd því ööruvísi fer hún ekki héð-
an,“ sagði Pétur.
-JSS
„Ég hef ekki gert annað en svara
skeytum erlendis frá síðustu tvo dag-
ana þar sem allir spyija hvort fyrir-
tækið sé komið á hausinn," sagði ÓU.
Hann gerði grein fyrir fjárhags-
stöðu OUs og kvað beinar skuldir við
Landsbankann vera 840 miUjónir,
auk þess sem bankinn væri í ábyrgð-
um fyrir um 400 núlljónir vegna olíu-
kaupa. Þá skuldar Olís erlent lán
vegna hlutar félagsins í olíuskipinu
Kyndli og nemur það 140 miUjónum.
„Birgðir Olís eru núna um 600
milljónir króna,“ bætti Óli við. Hann
kvað eigið fé félagsins vera 755 millj-
ónir. „Eg á í útistandandi skuldum
1.050 mUljónir. Þar af um 600 mUljón-
ir hjá útgerðinni. Vanskilin aö und-
anfórnu í Landsbankanum eru öU
vegna slæmrar stöðu útgerðarinn-
ar.“
Vanskil Olís í Landsbankanum eru
134 mUljónir. „Þessi vanskil eru öll
frá því í október. Þau lækka í 70 nUllj-
ónir í nóvember."
Um gagnrýni Landsbankans á
stjórnun Olís sagði ÓU: „Ég held aö
þessu fyrirtæki sé vel stjórnaö."
-JGH
„Mér hefur verið kennt að standa
ískUum en ekki biðja um lán,“ sagöi
ÓU Kr. Sigurðsson, forstjóri og aðal-
eigandi OUs, á eldflörugum blaða-
mannafundi sem hann hélt í gær í
aðalstöðvum sínum vegna frétta-
flutnings af viðskiptum Olís og
Landsbankans. Á fundinum var af-
hent stuðningsyfirlýsing 180 starfs-
manna Olís við Óla.
Óli í Olís á fundinum sögulega í
gær. „Mér hefur verið kennt að
standa i skilum en ekki biðja um
lán.“ DV-mynd GVA
Mér hefur verið kennt
að standa í skilum
- sagði Óli í Olís á eldfjörugum fundi 1 gær
Sjávarútvegsráöherra:
Wleiri háttar
mistök
Banda-
ríkjamanna
„Ég tel aö þetta mál hafl ekki
verið tekið upp öðruvísi en að það
hafl verið rætt innan bandaríska
stjórnkerfisins áður. En mér
kæmi á óvart ef Bandaríkjamenn
hefðu haft okkur sérstaklega í
huga. Það eru meiri háttar mistök
hjá Bandaríkjamönnum að orða
mál sem þetta, enda sýnist mér
að þeir dragi strax í land aftur,“
sagði Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráöherra vegna afskipta
bandarísks embættismanns af
sölu hvalkjöts til Japans.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra hefur sem kunn-
ugt er fengiö þá skýringu frá
bandarískum yfirvöldum aö
þessar hugmyndir hafi ekki verið
settar fram í þeirra nafni, og að
viðræöur embættismannsins við
Japani hafi á engan hátt tengst
tvíhliöa samkomulagi íslands og
Bandaríkjanna frá í júní sl. Utan-
ríkisráðherra telur þessar skýr-
ingar ófullnægjándi og vill frá
skriflega yfirlýsingu frá Shultz
utanríkisráðherra.
„Sagan á bak við þetta mál er
sú aö Japanir leggja mikla
áherslu á að fá fram strandveiði
í smáum stíl. Þeir hafa fariö þess
á leit við mörg riki að þau styðji
þessa fyrirætlan þeirra. Við höf-
ura talið sjálfsagt að veita þeim
stuöning, m.a. vegna þess að okk-
ar veiöar gætu fallið undir skil-
greininguna um strandveiöar í
framtíðinni.
Bandaríkjamenn liafa sagt að
þeir styðji fyrirætlun Japana,
jafnframt því sem þeir reyna aö
fá þá til að hætta veiðum í ís-
hafinu.
Þá er vakinn upp þessi gamli
draugur, umræðan um verslun
með þessar aíurðir, sem skylda
er að nýta. Þetta er sjálfsagt gert
til að koma í veg fyrir að fleiri
ríki hugsi sér til hreyfings með
veiöar," sagði sjávarútvegsráð-
herra.
-JSS
Steöiuragöan:
Umræðum
sjónvarpað
og útvarpað
í kvöld heldur Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
steíhuræðu sína í Sameinuðu
þingi. Verður henni og umræöum
útvarpað og sjónvarpað. Heflast
útsendingar kl. 8.30.
Steingrimur er fyrsti ræðumað-
urinn. I seinni umferð mun Finn-
ur Ingóifsson tala fyrir Fram-
sóknarflokkinn. Fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn tala Þorsteinn Pálsson
og Halldór Blöndal í fyrri umferð
en Geir H. Haarde í síðari um-
ferð. Jón Baldvin Hannibalsson
og Sighvatur Björgvinsson eru
fyrri ræðumenn Alþýðuflokksins
og Jón Sigurðsson í síöari um-
ferðinni. Fyrir Borgaraflokkinn
tala Guömundur Ágústsson, ÓU
Þ. Guðbjartsson og Ingi Bjöm
Albertsson í fyrri umferð og Júl-
íus Sólnes í þeirri síðari. Svavar
Gestsson og Margrét Frímanns-
dóttir verða talsmenn Alþýöu-
bandalagsins í fyrri umferð og
Steingrímur J. Sigurðsson í síðari
umferö. í fyrri umferð tala Málm-
fríöur Siguröardóttir og Þórhild-
ur Þorleifsdóttir fyrir Kvennalis-
tann og Guðrún Agnarsdóttir í
síðari umferð. Stefán Valgeirsson
fær 15 mínútur til umráöa í lok
fyrri umferðar.
Þingflokkarnir hafa 20 mínútur
í fyrri umferð og 10 mínútur í slö-
ari umferð.
-HK