Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Page 7
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1988.
7
Þorlákshööi:
ÚHendingum í
fiskvinnu
hefur fækkað
„Útlendingum þeim sem hafa veriö
hér í fiskvinnu hefur fækkað mjög.
Þeir eru flestir farnir til Vestmanna-
eyja, aö ég held,“ sagöi Þóröur Ólafs-
son, formaður verkalýðsfélagsins
Boöans í Þorlákshöfn.
Um mánaðamótiö misstu sem
kunnugt er 80-90 manns vinnu sína
er fiskvinnslustöð Meitilsins var lok-
að. „Þaö eru satt aö segja engin úr-
ræöi fyrir þetta fólk,“ sagði Þóröur.
„Það er alrangt sem fram kom í
Morgunblaðinu að hér væri næga
atvinnu að hafa og að útlendingar
fylltu fleiri pláss í fiskvinnslunni.
Hið sanna er að hér vinna um það
bil 8 útlendingar. Fjórir af þeim eru
búsettir hér svo tæpast væri hægt
að amast við þeim þótt einhver vildi.
Hinir eru með atvinnuleyfi fram að
áramótum. Það er alls ekki hægt að
tala um aö þeir taki atvinnuna frá
heimamönnum eins og hefur
heyrst."
-JSS
Landsfundur
Kvennalistans
Kvennalistinn heldur landsfund
sinn um næstu helgi að Lýsuhóli á
Snæfellsnesi. Fundurinn verður sett-
ur á laugardag og hefst á hefbundn-
um aðalfundarstörfum, skýrslum
anga, þingflokks og framkvæmda-
ráðs. Eftir hádegi á laugardag mun
umræðan snúast um hugmynda-
fræði Kvennalistans í framkvæmd.
Hátiðarkvöldverður verður um
kvöldið.
Á sunnudag verður fundi fram-
haldið kl. 9 og verður fjallaö um efna-
hagsmál. í lokin munu þingkonur
sitja fyrir svörum um starf þing-
flokksins nú í upphafi þings. Lands-
fundi verður shtið kl. 15.
Kvennalistinn skipuleggur ferðir
til og frá Lýsuhóli. Lagt verður af
stað með rútu frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 18 á fostudag.
-SMJ
Akureyri:
Á sjúkrahús
eftir árekstur
Gylfi Kristjánssan, DV, Akuxeyri:
Mjög harður árekstur varð á Þing-
vallastræti á Akureyri í fyrradag við
innkeyrsluna að Hrísalundi.
Tveir bílar skullu þar saman og var
ökumaður annars þeirra fluttur á
sjúkrahús. Hann kvartaði undan
meiðslum á höfði og fæti en ekki var
nánar vitað um meiðsli hans í gær.
Bílarnir skemmdust mikið og varð
að flytja þá burtu með kranabifreið.
Akureyri:
Allir vilja
til Glasgow
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ekki komast nærri allir með sem
vilja í Glasgowferö Ferðaskrifstofu
Akúreyrar 19. nóvember.
Hér er um dagsferð að ræöa og var
upphaflega fengin flugvél til ferðar-
innar sem tekur 126 farþega. Uppselt
var í ferðina á tveimur dögum og
langur biðlisti myndaðist. Var þá
brugðið á það ráð að fá 164 sæta flug-
vél til ferðarinnar en það dugði ekki
til. Munu um 60 manns vera á bið-
hsta þannig að Tjóst er að margir
munu verða að sitja eftir heima.
Flogið verður beint frá Akureyri
til Glasgow snemma morguns og
komið aftur til Akureyrar um mið-
nætti.
Fréttir
Fer fram á skaðabætur
fyrir merartríppi
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kristín Thorberg, Litladal í Saur-
bæjarhreppi í Eyjafirði, hefur farið
fram á skaðabætur frá Akur-
eyrarbæ vegna „varanlegra
meiðsla" sem trippið varð fýrir ,4
vörslu Akureyrarbæjar“.
Að sögn Hreins Pálssonar, bæjar-
lögmanns á Akureyri, nemur
skaðabótakrafan 150 þúsund krón-
um og byggist á því að trippið verði
ekki samt og áður vegna meiðsl-
anna.
Trippið mun hafa verið í hópi
hrossa sem sluppu úr giröingu í
Saurbæjarhreppi og hélt til Akur-
eyrar. Þar komust hrossin inn á
golfvöllinn og voru eftir það tekin
í vörslu Akureyrarbæjar. Hreinn
sagði að hrossin heföu sloppið úr
giröingu sem þau voru þá sett í og
hafi trippið, sem um ræöir, þá ekki
verið meitt. Þá liafl eigendur þess
ekki orðiö við óskum bæjarins um
aö sækja trippiö þegar eflir því var
Ieitað. Bæjaryfirvöld hafa því alfar-
ið hafnaö þessari skaðabótakröfu.
Hægt er á einlaldan hátt að setja
inn á upptöku daginn, mánuðinn,
árið, klukkutimann og minúturnar
(t.d. 21.08.88/19:30:00). Eftir að
einu sinni er búið að stilla inn
dagsetningu og tima er hvenær
sem er hægt að kalla upplýs-
ingarnar fram aftur því klukkan
gengur þótt slökkt sé á vélinni.
Einnig er hægt að setja titil inn á
myhd, t.d. Sigga 5 ára eða Jólin
1988 og geyma tvo titla i minni. Þá
er hægt að vetja um
átta liti í letrið. ,
Útrúlega
litlar spólur
9.4 cm á breidd og
6 cm á hæð.
Fáanlegar 30 min., 60 min., 120,min.
og 180 min.
Sex sinnum Zoom linsa.
Sjálfvirkur og handvirkur tókus.
CCD myndrásir.
Þriggja tima upgtökuspólur.
Innþyggður hljóðnemi.
Tengi fyrir aukahljóðnema.
Ljósnæmi 12 lux.
Heyrnartótstengi.
Sjálfvirk og handvirk hvituviðmiðun.
Statrænt (digital) minni til texta og
V myndinnsetninga.
K Hreinar myndkliþpingar.
■ Hrein myndinnsetning.
Video-8 videomyndavélakerfiö frá
Sony fer nú sigurför um heiminn
og fjölgar þeim stöðugt framleið-
endunum sem veðja á video-8 sem
framtiðarmyndavétakerfiö, enda
slliþlir ekki máli hvaða mynd-
bandstæki eða sjónvarþstæki þú
átt, video-8 passar
SNNBYGGÐUR SKJAR
Atlt sem er tekiö upp sést jafnóðum
i innbyggðum skjá þannig að það
fer aldrei á milli mála hvað er verið
að gera. Þá er skjárinn lika notaður
i afspilun og skiptir þá ekki máli
hvort þú ert uppi á Vatnajökli, i
miðri Sahara eða bara niðri við
Tjörn. Þú getur hvenær sem er
skoðað upptökurnar á staðnum.
Einnig gefur innbyggði skjárinn
upplýsingar um allar gjörðir
vélarinnar ásamt upplýsingum um
þirtu, rakastig, ástand rafhlöðu og
svo framvegis.
JAPIS
BRAUTARHOLT 2 ■ KRINGLAN
■ SÍMI 27133 ■
■ AKUREYRI ■ SKIPAGATA 1 ■
■ SÍMI 96-25611 ■
Er myndin i fókus eða ekki? Á
Sony CCD-F330 þurfum við ekki að
hafa áhyggjur af svoleiðis htutum
eða þá birtu- og hvítustillingu þvi
hægt er að hafa allar stillingar sjálf-
virkar og sér þá vélin um að allt sé
rétt, þú þarft bara að fylgjast -
með þvi sem þú
ert að taka upp. \
Vélin sér um \ \h
afganginn. \
PflSSflR VIÐ ÖLL TflEKI
Þar sem myndavélin er lika
afspilunartæki er hægt aö tengja
hana við öll sjónvprpstæki og sýna
beint af vélinni eða tengja við
heimilismyndbandið og „klippa",,
þ.e.a.s. færa á milli þau atriði sem
þið viljið varðveita af upptökunni
eða búa tii eintök til að senda
vinum og vandamönnum.
■i.