Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Síða 9
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1988. 9 dv Útlönd Brian Mulroney, forsætisráöherra Kanada og leiðtogi ihaldsflokksins. Teikning Lurie. Aukið fylgi frjálsiyndra Niöurstööur skoöanakönnunar, sem birtar voru í gær, sýna aö Fijáls- lyndi flokkurinn í Kanada nýtur nú stuðnings 41 prósents kjósenda en íhaldsflokkurinn 34 prósenta. Þessar niðurstööur eru í samræmi við aðrar skoðanakannanir sem gerðar hafa verið frá því að leiðtogar flokkanna tóku þátt í sjónvarpskapp- ræðum i síðustu yiku. Fyrir kapp- ræðumar naut ihaldsflokkurinn, sem er við stjóm, mests fylgis. Hafa íhaldsmenn misst níu prósent at- kvæða frá því að skoðanakannanir vora gerðar fyrir tveimur vikum. Fijálslyndir, sem berjast hatramm- lega gegn fríverslunarsamningi við Bandaríkin, hafa aukið fylgi sitt um tólf prósent. Leiötoga Frjálslynda flokksins, John Tumer, er þökkuð velgengnin. Nýir demókratar hlutu tuttugu og fjögur prósent fylgi í þessari nýjustu skoðanakönnun. Reuter imelda Marcos á hóteli sínu í New York. Simamynd Reuter Imeida Jaus gegn tryggingu Imelda Marcos, fyrrum forsetafrú Fihppseyja, fór í gær frá New York eftir að hafa verið látin laus gegn fimm milljón dollara tryggingu. Það var auðkýfmgurinn Doris Duke, ein af ríkustu konum heims, sem greiddi tryggingarféð. Bauð hún Imeldu að dveljast hjá sér það sem eftir væri vikunnar. Hún er gömul vinkona Imeldu. Um helgina mun Imelda snúa aftur heim til Hawaii þar sem hún og maöur hennar Ferdinand hafa verið í útlegð. Imelda Marcos var kölluð fyrir rétt í New York vegna ákæru um fjár- drátt og svik. Hún og eiginmaður hennar era sökuð um að hafa keypt fasteignir í New York fyrir fé sem þau tóku með sér ólöglega frá Filippseyjum er þau hrökkluöust frá völdum 1986. Einnig er þau sökuö um að hafa svikið 165 millj. dollara út úr bandarískum bönkum. Marcos gat ekki komið til New York af heilsufarsástæðum. í New York bjó Imelda í hótelsvítu sem kostar álján hundrað dollara á sólarhring. Er það sama svítan og Reagan forseti dvelur í þegar hann kemur til stórborgarinnar. Talið er að Imelda hafi fengið talsveröan af- slátt en ekki vildu starfsmenn hótels- ins tjá fréttamönnum hversu hár hótelreikningurinn varð. Deila um norskt þungavatn Yfirvöld í Noregi og Indlandi deila nú vegna frétta um sölu á norsku þungavatni til Indlands. Vísuðu indversk yfirvöld á bug ásökunum aðstoðarríkissaksókn- ara Noregs, um að þau hefðu keypt með leynd 15 tonn af þungavatni, sem hægt er að nota til framleiðslu kjamavopna, frá Noregi gegnum vestur-þýskt fyrirtæki. Segja Indveijar að þeir flytji að- eins inn lítið magn af þungavatni til framleiðslu plútóníums og sé það flutt inn frá Sovétríkjunum. Káre Willoch, fyrrum forsætis- ráðherra Noregs og nú formaður utanríkismálanefndar stórþings- ins, sagði í gær að grunur léki á að þungavatn frá Noregi hefði verið notað til framleiðslu kjamavopna. Norðmenn krefjast þess að norskt þungavatn sé aðeins notað í frið- samlegum tilgangi. Samkvæmt alþjóðlegum reglum er bannað að selja Indveijum meira en eitt tonn af þungu vatni á ári. Indverjar hafa neitað að skrifa undir samninginn um bann við útbreiðslu kjamorkuvopna. Þeir neita því aö hafa undir höndum kjarnorkusprengjur en árið 1974 sprengdu þeir sína fyrstu kjam- orkusprengju. í KVÖLD KL.22:00 MIÐAVERÐ 1.500 MHDASALA HEFST KL. 20:00 WlRE Sl.FrM988 ■^aö er of heitt. Svalasta hjómsveit heims er a& spila í kjallaraholu í Berlín og þaö ekkí hægt aS hreyfa sig vegna troðnings. En fólkió dansar samt. Defunkt er aftur komin í fullan gang. Dökkir og hættu- legir, óþægilega þéttir og hafa komió öllum ó óvart. Enginn bjóst vió því aó þau væru þetta mikiö betri en þau voru fyrir hólfum óratug. Þaö er ekki rökrétt. En Defunkt hafa aldrei verið rökrétt hjómsveitt..." »L .„jm, # p|§fe'- NMEJÚLÍ 1988 jA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.