Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1988.
Söludeild, Borgartúni 1
Höfum fengið margar gerðir borða og stóla ásamt
miklu magni skrifborða.
Einnig tölvuborð og tölvuskjái
Nánari uppl. í síma 18000-339
RAKARASTOFAN KLAPPARSTÍG
SÍMI 12725
OPNUNARTÍMAR:
MÁNUDAGA-FIMMTUDAGA 9-17.55.
FÖSTUDAGA 9-18.30.
LAUGARDAGA 10-14.
HARGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTIG
SÍMI 13010.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja
ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboöum í sorphreinsun á Suðurnesj-
um.
Útboðsgögn fást á skrifstofu S.S.S. að Vesturbraut
10 A Keflavík gegn 5000 kr. skilatryggingu.
...Tilboðum þarf að skila á skrifstofu S.S.S. þriðjudag-
inn 29. nóvember kl. 10. f.h.
Stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
BLAÐ
BURÐARFÓLK
i- /westsjjis ■■
Stórholt
Stangarholt, strax
Skipholt 2-30
Háaleitisbr. 11-52,
strax
ÞVERHOLTI 11
Frá fjárveitinganefnd
Alþingis
VIÐTALSTÍMAR
NEFNDARINNAR
Fjárveitinganefnd Alþingis veitir nú eins og undanfar-
in ár viðtöku erindum frá félögum, samtökum og ein-
staklingum er varða fjárlög ársins 1989.
Fjárveitinganefnd gefur þeim aðilum, sem vilja fylgja
erindum sínum eftir með viðræðum við nefndina,
kost á að eiga fundi með nefndinni á tímabilinu 7.
til og með 11. nóvember nk.
Þeir sem óska eftir að ganga á fund nefndarinnar
skulu hafa samband við starfsmann hennar, Sigurð
Rúnar Sigurjónsson, í síma 91-11560 (Alþingi), eigi
síðar en mánudaginn 7. þ.m.
Því miður gefst ekki tími til þess að sinna viðtals-
beiðnum sem fram kunna að koma síðar eða að
veita viðtöl utan þess tíma sem að framan greinir.
Utiönd
Byltingartilraun
a Maldiveyjum
Ókunnir menn, dökkir á hörund,
réðust á forsetabústaðinn og aðrar
stjórnarbyggingar í Male, höfuöborg
Maldíveyja á Indlandshafi, snemma
í morgun. Að sögn sendiherra
Maldíveyja á Sri Lanka tókst stjórn-
völdum aö hrinda árásinni. Talið er
aö allt að tvö hundruð manns hafi
fallið í átökunum.
Maldíveyjar eru tæplega tólf hundr-
uð talsins en aðeins er búið á um
tvö hundruð þeirra. íbúarnir eru um
eitt hundrað og níutiu þúsund, flest-
ir í höfuðborginni Male.
Innrásarmennirnir eru taldir hafa
komið með skipi sem lagði af stað frá
Sri Lanka fyrir nokkrum dögum.
Talsmenn stjórnarinnar segja að þeir
séu málaliðar á mála hjá kaupsýslu-
manni frá Maldíveyjum sem ekki er
ánægður með stjórn Maumoon Ab-
dul Gayoom forseta sem verið hefur
við völd í tíu ár.
Maldíveyjar eru um sex hundruð
og fimmtíu kílómetra suðaustur af
Sri Lanka. Þær eru um tólf hundruö
talsins en aðeins er búið á um þaö
bil tvö hundruð þeirra. Á síðustu
árum hefur verið byggður upp ferða-
mannaiðnaður á eyjunum. íbúarnir
eru um eitt hundrað og níutíu þús-
und og þar af um fjörutíu og sex
þúsund í höfuðborginni Male.
Maldíveyjar fengu sjálfstæði frá
Bretum árið 1965 og urðu lýðveldi
árið 1968. Árið 1982 gengu þær í
breska samveldið og 1985 var fjár-
málaráðherrafundur samveldisins
haldinn þar.
Gayoom forseti komst til valda árið
1978. Hann er kjörinn til fímm ára í
senn og í sumar var hann einn í kjöri
og hlaut rúmlega 96% atkvæða. Á
fyrsta kjörtímabili hans var tvisvar
reynt að steypa honum af stóli. I
annað skiptið gæti hafa verið um að
ræða sömu aðila og gerðu tilraunina
í morgun.
Reuter
Svo virðist sem Mauoom Abdul
Gayoom, forseti Maldíveyja, hafi
staðið af sér enn eina byltingartil-
raun. Talið er að allt að tvö hundruð
manns hafi beðið bana í tilrauninni
i morgun. Simamynd Reuter
\ ' \
38
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, ásamt Yitzhak Peretz, leiðtoga heittrúarflokksins Shas, í gær. Leið-
togarnir tveir hittust til að ræða hugsanlegt stjórnarsamstarf. Simamynd Reuter
Óvissa um nýja stjórn
Miklar samningaumleitanir um
hylh fjögurra lítilla trúarflokka eru
nú í gangi í ísrael eftir aö hvorki
Likud bandalaginu né Verkamanna-
flokknum tókst að fá afgerandi
meirihluta í þingkosningunum á
þriðjudag.
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
og leiðtogi Likud, og Shimon Peres,
utanríkisráðherra og leiðtogi Verka-
mannaflokksins, reyndu í gær aö
vinna á sitt band flokkana fjóra sem
eru í lykilaðstöðu á þingi með átján
þingmenn samtals.
Leiötogar Likud bandalagsins hittu
einnig aö máh leiðtoga öfgasinnaðs
þjóðemisflokks og sögðu talsmenn
Shamirs að líkumar á að hægt væri
aö mynda samsteypustjórn væru
talsvert góðar.
Bandaríkin, sem em nánasta
bandalagsríki ísraels, hafa lýst því
yfir að þau muni áfram eiga náin
tengsl við ísrael án tillits til þess
hver haldi þar um stjórnartaumana.
Arafat, leiðtogi PLO, reyndi í gær
að gera lítið úr niðurstöðum kosn-
inganna og sagði að uppreisnin á
herteknu svæðunum, sem hófst fyrir
tíu mánuðum, myndi halda áfram.
Likud bandalagið ásamt öfgaflokk-
um til hægri og trúarflokkum sem
hneigjast til hægri hafa samtals sex-
tíu og fjögur sæti af eitt hundrað og
tuttugu þingsætum. Engin trúar-
flokkanna er búinn að skuldbinda sig
th að fara í stjórn með Shamir.
Yitzhak Peretz rabbíni, leiðtogi
eins heittrúarflokksins, sagði að
Shamir forsætisráðherra hetði beðið
flokkinn um aðstoð við .stjórnar-
myndun. Sagði rabbíninn að því
hefði verið svarað á þann veg að af-
staða flokksins færi eftir því hvaö
aðrir værp tilbúnir til að ganga langt
til móts við hann.
Sagðist Peretz telja líklegt að Likud
yröi í forsæti næstu ríkisstjórnar en
aö ekki væri óhugsandi aö Verka-
mannaflokkurinn leiddi næstu
stjórn sem yrði mynduð með aðstoð
trúarflokkanna.
Ýmsir telja kröfur trúarflokkanna
út í hött og algerlega óaðgengilegar.
Hafa frjálslyndir menn í ísrael líkt
stefnu heittrúarflokkanna við gyð-
inglega útfærslu á ofstækisstefnu
Khomeinis erkiklerks í íran.
Talið er að það verði einnig erfitt
fyrir hið hægri sinnaða Likud banda-
lag að sætta sig viö ofstækisfullar
kröfur heittrúarmanna og að þess
vegna muni fara fram viðræður milli
Likud og Verkamannaflokksins um
áframhaldandi stjórnarsamstarf.
Til þess að stjórnarsamstarf þess-
ara flokka geti haldið áfram er taliö
víst að Peres, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, þurfi að láta Shamir eftir
forsætisráðuneytið. Einnig telja
margir af ráögjöfum Peresar að hann
verði að draga í land með kröfur sín-
ar um alþjóðlega friðarráðstefnu,
sem var eitt helsta kosningamál
hans. í staðinn myndi Verkamanna-
flokkurinn fá áhrifamikil ráðuneyti
á borð viö utanríkis-, vamarmála-
og tj ármálaráðuneyti. Reuter