Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Page 22
22 FIMMTUDÁGUR 3. NÓVEMBER 1988: Islandsmót í handknattleik Spurningin Hverjir verða íslandsmeistarar í handknattleik? Elias Pálsson: Ég held að Fram vinni mótíð að þessu sinni. Hálfdán Kristinsson: Ég er ekki í nokkrum vafa um að Valur vinn- ur. „Ég spái því að FH-ingar verði íslandsmeistarar í ár“ - segir gamla KA-kempan, Þorleifur Ananíasson Gylfi Kriajánsson, DV, Akureyri: „Ég held aö KA-liðið sé eitt af þessum stóru spumingarmerkjum svona í upphafi mótsins og viö höf- um ekki spilað það mikiö af æfinga- leikjum að þaö sé gott að segja hvar við stöndum í dag,“ segir Þorleifur Ananíasson KA-maður og leik- reyndasti handboltamaður okkar í dag. Þorleifur, sem er 39 ára gam- all, haföi lagt skóna á hilluna eftír að hafa leikið yfir 500 meistara- flokksleiki, en það er erfitt að slíta sig frá þessu og i vetur er hann með á fullri ferð. Miklar breytingar hafa orðið á KA-liðinu. Brypjar Kvaran og homamaðurinn Axel Björnsson fóra tii Stjömunnar og hornamað- ur liðsins, Eggert Tryggvason, og Hafþór Heimisson fóra báðir til náms í Danmörku. En KA hefur einnig fengið liðs- auka. Axel Stefánsson markvöröur og homamaðurinn Sigurpáll Aðal- steinsson komu frá Þór, Haraldur Haraldsson homamaður frá Húsa- vík og einnig Ármenningurinn Bragi Sigurðsson og Þórsarinn Ól- afur Hilraarsson. „Við erum með mun stærri hóp núna en áöur hefur verið hjá félag- inu og hópurinn er jafnari. Þaö má heldur ekki gleyma þvf aö Jakob Jónsson lék sama sem ekkert með okkur í fyrra vegna meiösla en er nú með á fullri ferð,“ sagði Þorleif- ur. En hvemig metur hann barátt- una sem framundan er? Það spá allir Val sigri og KR- ingum góðu gengi vegna þess aö þessi félög hafa fengiö liðsauka. Það kæmi mér hins vegar ekkert á óvart þótt FH yrði fyrir ofan þessi lið og ég spái því að svo verði. Við KA-menn stefnum svo á 4. sætið. Annað get ég ekki sagt um málið á þessu stígi. Ég hef ekki séð nema fjögur liðanna í deildinni, Breiða- blik, Stjörnuna, Víking og KR og þessi lið, nema e.t.v. KR, veröa á svipuðu róli og við í vetur. Ég þori ekkert að segja tíl um hvaöa liö falla og nýliðarnir Grótta og ÍBV eru lið sem maður veit ansi lítiö um f dag." 1. umferð. Þessi hð léku æfingaleik KA leikur í vetur undir stjóm f Reykjavík á dögunum og þá vann júgóslavans Djurovich og sagði KA. „Þeir sýndu ekkert sem Þorleifur að menn nyröra væru hræddi okkur en þeir eru jú með ánægðir með störf hans til þessa. mjög góða hornamenn," sagði Þor- KA mætír Vfkingi á heimavelli í leifúr. Auðunn Pálsson: Víkingur verð- ur íslandsmeistari, Grótta og ÍBV falla. Björn Sigurðsson:Það er ekki spuming að FH vinnur deUdina. Valdimar Svavarsson: Mfnir menn, FH-ingar, vinna mótíð. Ólafur Kristjánsson: Valsmenn vinna mótíð en þeir eiga nyög góöu hði á að skipa um þessar mundir. Jón Pétur Jónsson fyrrum leikmaður Vals og landsliðsins: Það er hætt við að það rigni upp í nefið á Valsmönnum „Ég á von á því að 1. deildar- keppnin verði tvískipt í vetur. Ann- ars vegar berjist Valur, FH og KR uin meistaratitihnn en hins vegar verði hin sjö hðin í þæfingi frá miðri deild og niður á botn,“ sagði Jón Pétur Jónsson, fyrram lands- hösmaður og leikmaður og síðan þjálfari hjá Val, þegar DV ræddi viö hann um íslandsmótið í vetur. Hef mesta trú á FH „Af þeim þremur fyrmefndu hef ég einna mesta trú á FH-ingum. Þeir hljóta að vera hungraðir í meistaratitilinn eftir að hafa verið svona nálægt honum í fyrra. Þeir eru með óbreytt hð og þessir strák- ar era komnir á góðan aldur, hafa vaxið upp úr því að vera 2. flokks- og unghngalandshðsmenn upp í að vera fullgildir meistaraflokks- menn. FH-ingar hafa betri grann en hin hðin og standa best að vígi ef tíl lengri tíma er litið. Þar eru margir jafnir strákar, breiddin er góð og keppnisgleðin alltaf í lagi. Síðan er það kostur fyrir Viggó þjálfara að hafa nánast aht hðið á æfingum ahan veturinn þrátt fyrir imdir- búning landshðsins þar sem hann verður með aðeins 1-2 landshðs- menn.“ Rignir upp í nefið á Vais- mönnum „Lið Vals og KR era bæði brot- hætt. Valsmenn eru meistarar en það er hætt við því að velgengnin 1 fyrra stígi þeim dáhtíð til höfuðs og það rigni upp í nefið á þeim. Þeir geta vissulega afgreitt þetta íslandsmót með stíl - en ég spyr: Hvað gerist ef Einar Þorvarðarson meiðist eða Jón Kristjánsson? Breiddin er líth og hðið er mjög viðkvæmt ef einn hlekkur bregst. En Sigurður Sveinsson mun laða handknattleiksáhugamenn að Hhðarenda í vetur. Hann er óhemju vinsæll og vhl öragglega sýna fram á að það hafi verið vit- leysa að sniðganga hann svona mikið í landshðinu. Ég hef trú á að hann fahi ágætlega inn í liðið og geri góða hluti.“ Meiðsli hrjá KR-inga „Vandamáhð hjá KR er meiðslin sem hrjá þá nú í upphafi móts. Al- freð Gíslason og Páll Ólafsson eru hvorugur heill heilsu og Gísli Felix markvöröur er úr leik mest aha fyrri umferðina. Ég á von á því að KR-ingar byrji mótíð rólega en sæki sig síðan verulega þegar á hö- ur og gætu orðið geyshega öflugir seinni hlutann. Ég á von á því að KA og ÍBV verði um miðja dehdina, ekki síst vegna þess hve erfið þau eru heim að sækja. Toppliðin eiga eftir að tapa stigum á Ákureyri og í Vestmanna- eyjum og það gætu einmitt verið stíg sem skipta sköpum í dehd- inni.“ Víkingar á tímamótum „Víkingar hafa aldrei staðið á eins miklum tímamótum og ein- mitt núna og ég hef htla trú á þeim. Leikir þeirra í haust lofa ekki góðu en þeir era með ágæta leikmenn inn á mihi. Þeir verða í neðri hlut- anum en ég býst við að þeir haldi sér í deildinni. Stjaman, Breiðablik og Fram hafa öll orðið fyrir blóðtökum og eiga erfiðan vetur framundan. Það er helst að Framarar gætu klórað sig út úr vandræðum þar sem þeir eru með reynda leikmenn. Lið Gróttu mun örugglega eiga erfitt uppdráttar, ekki síst þar sem það er án heimavahar, leikur í Digranesi sem er mun stærra hús en þeir eru vanir af Seltjarnarnes- inu. En þetta eru ungir og frískir strákar og Árni Indriðason mjög góður þjálfari. Með baráttu, sem kannski fleytir þeim fram yfir eig- inlega getu, gætu þeir komið á óvart.“ Landsliðsmenn með timbur- menn „Þaö er hætta á að margir lands- liðsmannanna sem hafa æft stíft í marga mánuði séu á niðúrleiö um þessar mundir. Þeir ætla að slappa af með sínum félagshðum og þá er hætta á kæruleysi. Það er eins og timburmenn eftir fylhrí hjá þeim! Þá er þetta fjórða keppnistímabilið í röð sem einkennist af forgangi landsliðsins og mótið er shtið í sundur. Þetta gerir þjálfurum og leikmönnum mjög erfitt fyrir og skemmir mikið,“ sagði Jón Pétur Jónsson. -VS • Jón Pétur Jónsson í leik með Val gegn Fram árið 1979 sem Valur vann 23-18. Til vinstri á myndinni er Atli Hilmarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.