Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Page 25
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1988.
25
Fréttir
Lagaírumvarp um helgidagafrið:
Ekki ávinningur fyrir
kirkjuna að stjórna fólki
með boðum og bönnum
- segir séra Þórhallur Höskuldsson
„Vandinn er aö þegar eitthvaö er
bannað á helgidögum er kirkjunni
umsvifalaust kennt um og talað um
helgislepjuna í kirkjunni. Við viljum
vinna að málum með öðrum leiðum
en boðum og bönnum og því vildi
laganefnd kirkjunnar fella út 4.-7.
grein í frumvarpi til laga um helgi-
dagafrið," sagði séra Þórhallur
Höskuldsson, prestur á Akureyri, við
DV um frumvarp til laga um helgi-
dagafrið sem kynnt hefur verið í
þingflokkunum.
Þar segir meðal annars í 4. grein
aö meðan helgidagafriður ríki sé op-
inbert skemmtanahald og sýningar
bannaðar, þar á meðal dansskemmt-
anir, leiksýningar, kvikmyndasýn-
ingar, vörusýningar, verslunarstarf-
semi og viöskipti. Eru ýmsar undan-
þágur frá þessu banni tíundaðar og
lögreglustjóra eða sýslumanni heim-
ilt að veita þær undanþágur.
Frumvarpið var undirbúið 1984 og
þýðir verulegar breytingar frá lögun-
um frá 1926 um sama efni þar sem
öll ákvæði um helgidagafrið eru
skýrari. Frumvarpið var afgreitt frá
kirkjuþingi 1986 þar sem greinar 4-7
höfðu verið felldar úr frumvarpinu.
Eftir að frumvarpið hafði verið tekið
fyrir af kirkjulaganefnd voru þessar
greinar komnar í frumvarpið á ný.
Þessari gerö frumvarpsins, sem er til
umræðu á kirkjuþingi í dag, fylgir
athugasemd þar sem segir að frum-
varpið hafi sætt rækilegri athugun
af hálfu ráðuneytisins. Varði þau
ákvæði í frumvarpinu, sem kirkju-
þing felldi niður, ekki síst löggæslu
og lagaframkvæmd og því sé réttara
aö hafa þau áfram í því í stað þess
að tíunda þessi boð og bönn í reglu-
gerð. Sé auk þess mun aðgengilegra
fyrir almenning aö kynna sér efni
laga en reglugerða.
„Kirkjuþing vildi aöeins fjalla um
það í lögunum hverjir væru helgi-
dagar þjóðkirkjunnar og hafa þar
ákvæði um að vemda guðsþjónustur
helgidagsins. Yrði ákvæðum um boð
og bönn síðan skipað með reglugerð.
Ráðneytið telur hins vegar að vegna
löggæslunnar sé nausynlegt að hafa
skýlaus lagafyrirmæh fremur en
reglugerðir. Svo kemur manni
spánskt fyrir sjónir að lögreglustjóri
eöa sýslumaður eigi að leggja mat á
hvaða samkomur eða atburðir hafi
listrænt gildi eða samrýmist í eðli
sínu helgidagafriði.Við töldum að
það væri ekki ávinningur fyrir kirkj-
una að stjóma lífi fólks með lagaboð-
um.“
-hlh
Grunnskóli fyrir 400 nem-
endur vígður í Hveragerði
Sigríður Guruiaisdóttir, DV, Hveragerði;
Glæsilegt skólahús Grunnskólans
í Hverageröi var vígt sl. laugardag
aö viðstöddu flölmenni. Hér er um
mikla byggingu að ræða, 1575 fer-
metrar að stærð, og rúmar nú 400
nemendur og er fullnýtt. Viðbygging-
in hefur verið í byggingu frá 20.júní
1983 en þá tók Hjörtur heitinn Jóns-
son kennari fyrstu skóflustunguna
að þessum áfanga. Skólinn var fok-
heldur í vor og meginhluti bygging-
arinnar hefur verið reistur í ár eða
60%. Fyrirhugaðir em á næstu árum
Guðjón Sigurðsson skólastjóri setur
vígsluhátíðina á laugardag. DV-
mynd Sigriður
Fjölmenni var við vígsluna. DV-mynd Sigrfður
þrír áfangar til viðbótar, um 1000 fer-
metrar, og fidlbyggður mun skólinn
rúma 500 nemendur.
Guöjón Sigurðsson skólastjóri setti
vígsluhátíðina á laugardag eftir aö
lúðrasveit skólans hafði leikið nokk-
ur lög. Fjölmargir tóku til máls en
fulltrúi menntamálaráðherra, Guö-
rún Ágústsdóttir, vígði skólann. Eftir
hátíðardagskrána voru veitingar
sem Kvenfélagiö Bergþóra í Ölfusi
sá um.
Um 400 nemendur verða í skólan-
um í vetur og kennarar eru um 30,
þar af nokkrir stundakennarar.
Byggingin er hönnuð af dr. Magga
Jónssyni og í byijun september hófst
þar kennsla 7.-9. bekkjar, sem áður
hafði verið í leiguhúsnæði en í þess-
inn áfanga er stjómunaraðstaða fyr-
ir kennara og skólastjóra, samkomu-
salur, anddyri, fimm stórar kennslu-
stofur og tvær minni, sameiginlegt
gangarými, salemi, stigar og mötu-
neyti fyrir böm úr Ölfusi. í þeim
þremur áfóngum sem eftir em verð-
ur aðstaöa fyrir náttúrufræði-
kennslu í þeim fyrsta, mynd- og
handmennt í öðrum og í þeim þriðja
mun héraðsbókasafn sameinast
skólabókasafni og þannig nýtast
nemendum til vinnu á ýmsum verk-
efnum.
Flugumferöarstjórar:
Engar tillögur um
breyttan hámarksaldur
- segir Ragnheiöur Hjaltadóttir
„Það hafa engar tiUögur um breyt-
ingar á hámarksaldri flugumferðar-
stjóra borist hingað til ráðuneytis-
ins,“ sagöi Ragnheiður Hjaltadóttir,
skrifstofusljóri í samgönguráðuneyt-
inu.
íslenskir flugumferðarstjórar
starfa lengur en tíðkast í flestum
þeim löndum sem viö berum okkar
saman við. Algengt er aö flugumferð-
arstjórar í öðrum löndum láti af
störfum 55 til 60 ára gamlir. Hér á
landi starfa þeir þar til þeir eru orðn-
ir 67 til 70 ára gamlir. íslenskir at-
vinnuflugmenn verða að láta af störf-
um er þeir eru 63 ára gamlir.
„Þaö er bara þannig að þegar menn
eldast eiga þeir erfiöara með að halda
athygli sinni. Yfirsjón í þessu starfi
getur verið dýrkeypt. Þessu verður
að breyta. Flesta sem til þekkja óar
viö þessari staðreynd," sagði flugum-
ferðarstjóri sem DV ræddi viö fyrir
fáeinum dögum.
-sme
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 47., 48. og 54. tbl. Lögbirtingablaðsins 1988 á fasteign-
inni Miðbraut 2, Búðardal, þingl. eig. Kaupfélag Hvammsfjarðar, fer fram
að kröfu Iðnlánasjóðs og Helga V. Jónssonar hrl. á skrifstofu embættisins
fimmtud. 10. nóv. nk. kl. 14.00.
Sýslumaður Dalasyslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 39., 46. og 49. tbl. Lögbirtingablaðsins 1988 á fasteign-
inni Hóli, Hvammshreppi, þingl. eig. Árni Ingvarsson og Júiíus Baldurs-
son, fer fram að kröfu Búnaðarbanka islands á skrifstofu embættisins
fimmtudaginn 10. nóv. nk. kl. 14.30.
Sýslumaður Dalasýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 47., 48. og 54. tbl. Lögbirtingablaðsins 1988 á fasteign-
inni Vesturbraut 12, Búðardal, þingl. eig. Kaupfélag Hvammsfjarðar, ferfram
að kröfu Iðnlánasjóðs, Magnúsar Norðdahl hdl., Björns Ólafe Hallgrímsson-
ar hdl., Jóhannesar A. Sævarssonar lögfr. og innheimtumanns rikissjóðs á
skrifstofu embættisins fimmtudaginn 10. nóvember nk. kl. 14.30.
Sýslumaður Dalasýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 39., 46. og 49. tbl. Lögbirtingablaðsins 1988 á fasteignun-
um Hnúki 1 og 2, Fellsstrandarhreppi, þingl. eig. Höskuldur Davíðsson, fer
fram að kröfu Byggðastofnunar, Tryggingastofnunar ríkisins, Jóhanns Þórð-
arsonar hdl. og Ævars Guðmundssonar hdl. á skrifstofu embættisins
fimmtud. 10. nóv. nk. kl. 14.30.
______________________Sýslumaður Dalasýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 47., 48. og 54. tbl. Lögbirtingablaðsins 1988 á fasteign-
inni Vesturbraut 8, Búðardal, þingl. eig. Kaupfélag Hvammsfjarðar, fer fram
að kröfu Iðnlánasjóðs, Skúla J. Pálmasonar hrl., innheimtumanns rikis-
sjóðs, Björns Ólafe Hallgrímssonar hdl., Magnúsar Norðdahl hdl. og Jó-
hannesar A. Sævarssonar lögr. á skrifstofu embættisins fimmtudaginn 10.
nóv. nk. kl. 15.00.
__________________________Sýslumaður Dalasýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 39., 46. og 49. tbl. Lögbirtingablaðsins 1988 á fasteign-
inni Svínhóli, Miðdalahreppi, þingl. eig. Óskar Jóhannesson, fer fram að
kröfu Búnaðarbanka íslands á skrifstofu embættisins fimmtud. 10. nóv.
nk. kl. 15.00.
Sýslumaður Dalasýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 39., 46. og 49. tbl. Lögbirtingablaðsins 1988 á fasteign-
inni Hólum, Hvammshreppi, þingl. eig. Kristján E. Jónsson, fer fram að
kröfu Búnaðarbanka Islands á skrifstofu embættisins fimmtud. 10. nóv.
nk. kl. 15.00.
__________________________Sýslumaður Dalasýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 39., 46. og 49. tbl. Lögbirtingablaðsins 1988 á fasteign-
inni Dalbraut 4, Búðardal, þingl. eig. Ágúst Magnússon, fer fram að kröfu
Baldurs Guðlaugssonar hrl., Veðdeildar Landsbanka íslands, Sigríðar
Thorlacius hdl. og Sveins H. Valdimarssonar hrl. á skrifetofu embættisins
fimmtud. 10. nóv. nk. kl. 15.30.
Sýslumaður Dalasýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 39., 46. og 49. tbl. Lögbirtingablaðsins 1988 á fasteign-
inni Sunnubraut 9, Búðardal, þingl. eig. Guðbrandur Hermannsson, fer
fram að kröfu Veðdeildar Landsbanka islands, Tryggingastofnunar rikisins,
Þórunnar Guðmundsdóttur hdl., Verslunarbanka islands hf„ Gísla Baldurs
Garðarssonar hdl., Eggerts B. Ólafssonar hdl„ Sigurðar G. Guðjónssonar
hdl„ Gísla Kjartanssonar hdl. og Hróbjarts Jónatanssonar hdl. á skrifstofu
embættisins fimmtud. 10. nóv. nk. kl. 15.40.
__________________________Sýslumaður Dalasýslu
.
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greióa
með korti.
Þú gefur okkur upp:
Nafn þitt og heimilisfang,
slma, nafnnúmer og
gildistíma og númer
greiöslukorts.
•
Hámark kortaúttektar
I síma kr. 5.000,-
•
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022