Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1988.
35-
Fólk í fréttum
Lilja María Snorradóttir
Lilja María Snorradóttir vann
gullverölaun og tvenn bronsverð-
laun á ólympíuleikum fatlaðra í
Seoul 15.-24. október. Lilja María er
fædd 5. apríl 1973 í Rvík, fluttist til
Sauðárkróks 1977 og er nú í níunda
bekk Grunnskóla Sauðárkróks.
Hún keppti í hástökki og langstökki
1981-1982 en varð að hætta í frjáls-
um íþróttum vegna veikinda 1983.
Lilja hefur æft sund hjá Ungmenna-
félaginu Tindastóli á Sauðárkróki
frá 1985 og vann fjögur gullverðlaun
á opna hollenska meistaramótinu í
sundi-í Arnheim í Hollandi 20.-21.
ágúst 1988. Hún setti þá íslandsmet
í 200 metra fjórsundi, 100 metra bak-
sundi, 400 metra skriðsundi og vann
einnig 100 metra skriðsund. Lilja
vann gullverðlaun á ólympíuleikun-
um í 200 metra fjórsundi á 3:12,97
mín. og bronsverðlaun í 100 metra
baksundi á 1:28,18 mín. Hún vann
önnur bronsverðlaun í 100 metra
skriðsundi á 1:16,51 mínútum var í
fjórða sæti í 400 metra skriðsundi á
5:50,59 mínútum og var 1:Í00 úr sek-
úndu frá þriðja sæti. Bróðir Lilju
er Sigfús, f. 22. apríl 1968.
Foreldrar Lilju eru Snorri Jó-
hannsson, húsvörður Grunnskól-
ans á Sauðárkróki, og kona hans
Stefanía Sigfúsdóttir, rannsóknar-
maður á sjúkrahúsinu á Sauðár-
króki. Snorri er bróðir Frosta þjóð-
háttafræðings og sonur Jóhanns,
fyrrv. b. á Ljósalandi í Lýtingsstaða-
hreppi og húsvarðar í MH, Hjálm-
arssonar, b. á Grímsstöðum, Jó-
hannessonar. Móðir Hjálmars var
Guðbjörg, systir Indriöa, langafa
Indriða G. Þorsteinssonar rithöf-
undar og Sveins, föður Jóhanns
Péturs, lögfræöings og formanns
Sjálfsbjargar. Guðbjörg var dóttir
Árna, b. í Ölduhrygg, Guðmunds-
sonar, bróður Guðmundar, langafa
Sveins Guðmundssonar, forstjóra
Héðins. Móðir Jóhanns var Guðrún
Jónsdóttir, b. á Hömrum í Lýtings-
staðahreppi, Guðmundssonar, b. á
Hömrum, Hannessonar, bróður
Jórunnar, ömmu Pálma Hannes-
sonar rektors og langömmu Hann-
esar Péturs'sonar skálds. Móðir
Snorra var María Benediktsdóttir,
b. í Skálholtsvík í Hrútafirði, Ingi-
mundarsonar og konu hans Lilju
Magnúsdóttur, systur Guðnýjar,
móður Brands Jónssonar, fyrrv.
skólastjóra Heymleysingjaskólans.
Önnur systir Lilju var Ragnheiður,
amma Þorgeirs Ástvaldssonar.
Stefanía er dóttir Sigfúsar, verk-
stjóra hjá Rafmagnsveitu ríkisins í
Rvík, Sigurðssonar, alþingismanns
á Sauöárkróki, bróður Friðlínar,
ömmu Júlíusar Arnarssonar
íþróttaþjálfara. Sigurður var sonur
Þórðar, söðlasmiðs á Húsavík, Ing-
varssonar, b. í Litladal, Þórðarson-
ar, prests á Mosfelli, Árnasonar,
bróður Jóns þjóðsagnasafnara og
Ingibjargar, langömmu Davíðs Stef-
ánssonar frá Fagraskógi. Móðir Ing-
vars var Vilborg Ingvarsdóttir, syst-
ir Guðrúnar, langömmu Ástu,
ömmu Davíðs Oddssonar. Önnur
systir Vilborgar var Kristín, lang-
amma Maríu, móður Gunnars
Thoroddsens. Móðir Þórðar Ing-
varssonar var Svanborg Grímsdótt-
ir, systir Magnúsar, skálds og þjóö-
sagnasafnara. Móöir Sigurðar var
Ingibjörg, systir Benedikts, föður
Jakobs fyrrv. orðabókaritstjóra.
Ingibjörg var dóttir Sigurðar, b. á
Vatnsskarði, Benediktssonar. Móð-
ir Sigurðar var Ingibjörg Björns-
dóttir, syst'r Kristínar, langömmu
Finnboga, föður Vigdisar forseta.
Móðir Ingibjargar var Margrét
Klemensdóttir, b. í Bólstaðarhlíö,
Klemenssonar og konu hans Ingi-
bjargar Þorleifsdóttur. Móðir Þor-
leifs var Ingiríður Jónsdóttir, b. á
Skeggsstöðum Jónssonar, ættföður
Skeggsstaðaættarinnar. Móðir Sigf-
úsar var Ingibjörg, systir Ásrúnar,
móður Sigfúsar Árnasonar, prests á
Hofi í Vopnafirði. Ingibjörg var dótt-
ir Sigfúsar, prests og alþingismanns
á Mælifelli, Jónssonar. Móðir Sig-
fúsar var Ástríður, systir Ingibjarg-
ar, móður Sigurðar Guðmundsson-
ar skólameistara. Ástríöur var dótt-
ir Sigurðar, b. á Reykjum á Reykja-
braut, Sigurðssonar, b. á Brekku,
Jónssonar, bróður Ólafs, langafa
Sigurðar Nordal, Valtýs Stefánsson-
ar ritstjóra og Ólafs, fóður Ólafs
landlæknis.
Lilja Maria Snorradóttir.
Móöir Stefaníu var Svanlaug Pét-
ursdóttir, síldarverkanda á Siglu-
firði, Jóhannessonar, b. á Heiði í
Sléttuhlíð, Finnbogasonar. Móðir
Jóhannesar var Margrét Hafliða-
dóttir, b. á Hofdölum, Jónssonar og
konu hans Herdísar, systir Sigurð-
ar, langafa Gísla Sigurbjörnssonar
í Ási. Herdís var dóttir Gísla, b. á
Ásgeirsbrekku, bróður Guðrúnar,
langömmu Friðriks, afa Friöriks
Sophussonar. Gísli var sonur Ás-
gríms, b. á Ásgeirsbrekku, Þorláks-
sonar, b. á Ásgeirsbrekku, Jónsson-
ar, ættfóður Asgeirsbrekkuættar-
innar.
Afmæli
Jóhann Friðfinnsson
Jóhann Friðfmnsson forstjóri,
Hólum, Kirkjuvegi 101 í Vestmanna-
eyjum, er sextugur í dag.
Jóhann er fæddur og uppalinn
Vestmannaeyingur. Hann lauk
verslunarskólaprófi árið 1947 og
starfaði um hríð hjá Flugfélagi Is-
lands í Reykjavík en fór þá til Eyja
og var við sjómennsku. Jóhann
vann hjá bæjarfógeta og hafnarsjóði
uns hann stofnaði verslunina Dríf-
anda árið 1956 og rak hana fram að
gosi 1973, sat í stjórn Viðlagasjóðs
og starfaði við að koma þaki yfir
Vestmannaeyinga á fastalandinu.
Hann sneri aftur heim 1974 og tók
við starfi forstjóra Bátaábyrgöarfé-
lagsins og er þar enn.
Jóhann var aðal- og varabæjar-
fulltrúi 1962-1978 og árin 1962-1966
gegndi hann störfum bæjarstjóra í
fjarveru Guðlaugs Gíslasonar. Árin
1958-1984 starfaöi Jóhann í mörgum
nefndum og stjórnum á vegum bæj-
arins, m.a. bamaverndarnefnd,
framfærslunefnd og stjórn sjúkra-
húss og heilsugæslustöðvar. Hann
var í stjórnskipaðri nefnd um at-
vinnumál árið 1980, í stjórn Spari-
sjóös Vestmannaeyja 1962-1966, í
fyrstu stjóm Heijólfs og til 1980, í
stjóm og formaður Félags ungra
sjálfstæðismanna og Sjálfstæðis-
félagsins um árabil, einnig í kjördæ-
misráði og flokksráði, í ritnefnd og
ritsjóri Fylkis, málgagns Sjálfstæð-
isflokksins.
Jóhann var einn af stofnendum
Gídeonsfélagsins í Vestmannaeyj-
um árið 1981. Hann hefur sungið í
kór Landakirkju frá 1950, lengi í
stjóm og formaður, var í fyrstu hér-
aðsnefnd Kjalamesprófastsdæmis
og varamaöur á Kirkjuþingi.
Jóhannkvæntist3.7.1954 Svan-
hildi Sigurjónsdóttur, f. 16.4.1932,
hjúkrunarfræðingi, dóttur Kristín-
ar Guðnadóttur frá Skarði á Landi
og Siguijóns Siguijónssonar, vél-
stjóra í Reykjavík. Jóhann og Svan-
hildur skildu. Börn þeirra eru Ást-
þór, f. 21.6.1955, vélvirki, braut-
skráður úr Myndhsta- og handíða-
skólanum 1984 og auglýsingastjóri
siðan, hann á dóttur með Sigríði
Valdemarsdóttir, er kvæntur Kat-
rínu Ævarsdóttur fatahönnuði og á
með henni eina dóttur; Kristín, f.
11.1.1960, stundar framhaldsnám í
bókmenntum og sögu við háskóla í
V-Berlín; Jóhann Þorkell, f. 11.5.
1961, flugþjónn hjá Flugleiðum, tók
atvinnuflugmannspróf frá Flight
Safety Intemational í Florida, sam-
býhskona hans er Hhdur Halldórs-
dóttir nemi; Davíð, f. 21.6.1965,
stundar framhaldsnám í rekstrar-
hagfræði við háskólann í Worms;
Vigdís, f. 3.10.1969, skiptinemi í
Canberra í Ástralíu. Dóttir Jóhanns
og Ernu Vigfúsdóttur er Hrafnhild-
ur, f. 8.8.1947, á son með Áma Þór-
arinssyni blaðamanni.
Bróðir Jóhanns er Finnbogi,
kaupmaður í Eyjabúð, kvæntur
Kristjönu Þorfmnsdóttur úr
Reykjavík.
Faöir Jóhanns er Friðfinnur
Jóhann Friðfinnsson.
Finnsson, f. 22.12.1901, kafari, kaup-
maður og framkvæmdastjóri. Hann
er fæddur á Stóru-Borg undir Eyja-
fjöllum, þrettánda barn Ólafar Þórð-
ardóttur og Finns Sigurfinnssonar
er drukknaði 16.5.1901 í mesta sjó-
slysi við Eyjar á þessari öld. Átta
konur og 21 karlmaður drukknuðu.
Sigfmnur, bróðir Sigurðar hrepp-
stjóra á Heiði, var sonur Runóifs
skálds í Skagnesi í Mýrdal, Sigurðs-
sonar, prests á Ólafsvöhum, bróöur
Sæmundar, föður Tómasar Fjölnis-
manns, Ögmundssonar prests á
Krossi í Landeyjum, Högnasonar,
prestaföður frá Breiðabólsstað í
Fljótshhö.
Móöir Jóhanns er Ásta Sigurðar-
dóttir, f. 3.11.1906, dóttir Kristbjarg-
ar Gísladóttur frá Borgarholti, síðar
Nýjakastala á Stokkseyri, og Sig-
urðar Sigurðssonar af Bergsætt.
Hann fluttist th Kanada 1908 og
ílentistþar.
Elísabet Einarsdóttir
Ehsabet Einarsdóttir húsmóðir,
Dvalarheimili aldraðra sjómanna,
Hrafnistu í Hafnarfirði, er níræð í
dag.
Elísabet er fædd í Gestshúsum í
Hafnarflrði og ólst upp í bænum.
Hún starfaði í kvenfélagi Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði og í slysavarna-
dehdinni Hraunprýði. Ehsabet bjó
ahan sinn búskap á Linnetstíg 9b í
Hafnarfirði.
Ehsabet giftist Guðmundi Ágústi
Jónssyni bifreiðastjóra, f. 3.1.1896,
d. 27.2.1982, syni Jóns Jónssonar frá
Kaldbak í Hrunamannahreppi og
Guöfinnu Helgadóttur, sem ættuð
var frá Rauðalæk á Rangárvöhum.
Jón og Guðfmna bjuggu lengi að
Litlu-Sandvík í Flóa, síðar í Reykja-
vík og síðustu árin í Hafnarfiröi.
Böm Ehsabetar og Guömundar
eru: Einar, f. 19.4.1924, flugvél-
stjóri, kvæntur Jóhönnu Péturs-
dóttur, húsmóður, eiga fimm böm;
Hrefna, f. 27.5.1925, húsmóðir, gift
Pétri Péturssyni, fyrrv. alþingis-
manni, eiga sex börn; Sigríður, f.
19.6.1926, húsmóðir og rekur hehd-
verslun, gift Ingvari Helgasyni for-
stjóra, eiga átta böm; Jóhannes, f.
1.7.1928, deildarstjóri, kvæntur
Mörtu Ingvarsdóttur, húsmóður,
eiga fjögur böm; Guðjón, f. 17.9.
1932, iönrekandi, kvæntur Ehn-
borgu H. Jóakimsdóttur auglýsinga-
teiknara, eiga þrjú börn; Birgir, f.
29.3.1936, véltæknifræðingur,
kvæntur Helgu Snæbjömsdóttur
húsmóður, eiga fimm böm. Ehsabet
og Guðmundur ólu upp bróðurson
Guömundar, Hermann Sverri Hah-
dórsson símvirkja, f. 30.3.1914, d.
14.7.1957.
Systkini Ehsbetar em öh látin:
Sigurjón skipstjóri, Laufey húsmóð-
ir og Helga sem dó í æsku.
Elisabet Einarsdóttir.
Faöir Ehsabetar var Einar Ólaf s-
son, fæddur og uppahnn á Álfta-
nesi, var lengst af stýrimaður á
skútum, f. 31.12.1869, d. 11.2.1961.
Móðir hennar var Sigríöur Jóns-
dóttir, fædd og uppalin í Lækjarkoti
í Mosfehssveit, f. 18.2.1867, d. 13.7.
1945. Þau bjuggu í Gestshúsum í
Hafnarfirði.
Ehsabet verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Ingveldur Guðmundsdóttir
Ingveldur Guðmundsdóttir hús-
freyja, Reynihvammi 39 í Kópavogi,
með aðsetur á Hrafnistu í Reykja-
vík,er95áraídag.
Ingveldur er fædd á Iðu í Biskups-
tungum og átti heima þar th 5 ára
aldurs en síöan á Eyrarbakka og
Óseyrarnesi. Hún var í nokkra mán-
uði í skóla hjá Pétri Guðmundssyni
á Eyrarbakka. Ingveldur var ung í
vistum í Kaldaðamesi og Reykjavík.
Ingveldur giftist til Bolungarvíkur
og átti þar heima í yfir 50 ár, lengst
af var hún húsfreyja á Geirastöðum.
Ingveldur tók mikinn þátt í starfi
Góðtemplarareglunnar og kvenfé-
laganna.
Ingveldur giftist Kristjáni Ólafs-
syni, f. 17.6.1887, bónda, hreppstjóra
og oddvita Hólshrepps um langt ára-
bh, d. 14.5.1969. Kristján var sonur
Ólafs Jóhannessonar Kjartanssonar
frá Minnihhö og Margrétar Ólafs-
dóttur Péturssonar sem ættuö var
úr Dýrafirði. Börn Ingveldar og
Kristjáns em Þorbergur, f. 4.4.1925,
prestur Digranessóknar í Kópavogi,
kvæntur Ehnu Þorgilsdóttur, eiga
íjögur böm á lífi; og Helga, f. 20.2.
1928, d. 11.5.1937. Fósturbörn Ing-
veldar og Kristjáns em Ingveldur
Kr. Þórarinsdóttir, frá fæðingu, 7.10.
1920, bóndi á Geirastöðum, giftist
Ólafi Zakaríassyni, látinn, eiga fjog-
ur böm; og Sveinn Jónsson, frá átta
ára aldri, f. 13.4.1931, verslunar-
maöur í Reykjavík, fyrri kona hans
var Liija Kethsdóttir, skhdu, eign-
uðust þijú böm, seinni kona Sveins
er Sólveig Sörensen.
Ingveldur er sjöunda í röðinni af
níu systkinum og er nú ein á lífi.
Elstu systurnar, Sigríður og Guð-
jóna, dóu kornungar úr barnaveiki
en Aldís og Magnús í blóma lífsins.
Ársæll fór til Ameríku og lést þar
um fertugsaldur. Eðlhegan ævidag
átti Kristján, var lengi formaður
Bárunnar á Eyrarbakka. Hildur, bjó
á Eyrabakka og Ágústa, bjó á Eyrar-
bakka.
Faðir Ingveldar var Guðmundur
Guðmundsson, f. 27.11.1849, bóndi
og ferjumaöur frá Austurhlíð í Bisk-
upstungum, d. 5.2.1930. Móðir Ing-
veldar var Jónína Jónsdóttir, f. 1864,
d. 30.6.1941, frá Auðsholti. Guð-
mundur og Jónína bjuggu á Iðu í
yfir 20 ár, síðan á Óseyrarnesi og
eftir það á Eyrarbakka. Þegar þau
tóku sig upp frá Iðu var ætlunin að
fara vestur um haf en Eyrarbakki
varö þeirra Ameríka. Ingveldur tek-
ur á móti gestum í safnaðarheimih
Digranessóknar, Bjamhólastíg 26,
eftir kl. 15 laugardaginn 5. nóvemb-
er.
90 ára 50 ára
Kristbjörg Guftmundsdóttir, Snorrabraut 58, Reylqavík. Sigfús Leví Jónsson, Söndum, Ytri-Torfústaöahreppi. Margrét Þórftardóttir,
75 ára Þverlæk, Holtahreppi. Ingvar Þorvaldsson,
Ari Þorleifsson, Lóurúna 6, Selfossi. Klaru Tómasdóttir, Háaleitisbraut 41, Reykjavík. Efstalandi 12, Reykjavflt. Sigurbjörg Stefánsdóttir, Seiðakvísl 5, Reykjavik. Hólmfriftur Gisladóttir, Miklubraut 58. Reylqavik. _ Hún tekur á móti gestum nk. föstu-
70 ára dagskvöld eftlr kl. 28.30.
Elin Aradóttir, Brún, Reykdælahreppi. Lárus Björnsson, Neftra-Nesi, Skefilsstaftahreppi. 40 ára
Brj nju Pálsdóttir, Klyfiaseli 25, Reykjavík. Einar Páll Vigfússon,
60 ára ~ Gaulvetjabæ, Gaulverjabæjarhreppi. Sigurftur Gunnarsson,
Guftrún Kriatjansdóttir, Skúlagötu 74, Reykjavik. Sigurróa Guftjónsdóttir, Bjarmalandi 3, Reykjavik. Leimlækjarseli 1, ÁlftanesL Anna MÖkaeisdóttir, Holtagerfti 8. Húsavflt. Helga Hilmarsdóttir, Lyngholti 17, Akureyri.