Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1988, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1988, Qupperneq 26
/SiaicVaG* 42 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1988. Andlát Menning Eggert Emil Hjartarson, Holtageröi 20, Kópavogi, lést á Landakotsspítala þriöjudaginn 15. nóvember. Guðný Þórhalla Pálsdóttir, Hátúni 12, er látin. Jón Friðriksson frá Hrafnabjörgum, lést aö kvöldi 15. nóvember á Fjórð- ungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Jarðarfarir Magnea S. Guðlaugsdóttir lést 10. nóvember sl. Hún var fædd 16. apríl 1929, dóttir hjónanna Guölaugs Hall- dórssonar og Þóru Ágústu Magnús- dóttur. í tæp 24 ár starfaöi Magnea sem matráöskona á sanddæluskip- um Björgunar hf. Eftirlifandi eigin- maöur hennar er Halldór Jónsson. Magnea eignaðist þrjár dætur. Útfór hennar verður gerö frá Hafnarfjarð- arkirkju í dag kl. 15. Sagnaþulir nútímans Leikbrúöuland sýnir: MJALLHVÍT Leikgerö, leikmynd, bruður: Petr Matá- sek Tónlist: Jónas Þórir Sögumenn: Hallveig Thorlacius, Helga Stetfensen Leikstjóri: Petr Matásek Aðstoð við enduruppfærslu: Þórhallur Sigurðsson Leikbrúöuland á merkisafmæli um þessar mundir og hefur nú náö 20 ára aldri. Þó að róðurinn hafi oft verið erfiöur og stuöningur lít- ill af opinberri hálfu til styrktar þessum merka þætti í leiklistarlífi okkar, a.m.k. hingaö til, hefur að- standendum tekist aö sigrast á öll- um erfiðleikum, og hvergi veriö slegiö af kröfum um vandaðar og listrænar sýningar. Auðvitaö hafa sýningarnar batn- aö meö árunum, líkt og gott vín, sem þroskast og verður göfugra meö aldrinum. Stööugt hefur veriö sótt fram og kunnátta og leikni vaxið. Segja ekki líka japanskir brúöuleikhúsmenn að minnst 12 ára þjálfun þurfí til þess aö teljast vera orðinn fullnuma í brúöu- stjórn? Ein áberandi breyting hefur orðið á áhorfendahópnum sem sækir sýningar Leikbrúðulands. í árdaga sást þar varla fulloröinn karlmaö- ur. Viö mömmurnar mættum einar meö rollingana og brúöuleikhús var álitiö eitthvað, sem aðeins væri fyrir börn, og jafnvel varla nema fyrir þau allra yngstu. En nú er vaxin úr grasi heil kynslóð unn- enda leikhússins sem sjálf er farin að mæta meö sín börn og nú sitja pabbarnir aldeilis ekki eftir heima. Ekki til að tala um. Betra dæmi um jákvæö uppeldis- áhrif góðrar leikstarfsemi er vart hægt aö finna. Mér finnst sýning Leikbrúðu- lands á Mjallhvíti marka timamót, ekki bara vegna afmælisins, heldur líka vegna þess að undir hand- leiðslu Petr Matáseks hefur oröiö til einstaklega heilsteypt og fáguö sýning og leiðsögn hans á áreiöan- Leiklist orönir jafnt sem böm höfðu mikla ánægju af sýningunni. Tónlist Jón- asar Þóris var síðan punkturinn yfir i-iö, áheyrileg og lögin auögrip- in. Flutningur þeirra var líka tíl fyrirmyndar, þama þurfti engan yfirþyrmandi hávaöa til aö breiða yfir innihaldsleysi. Þetta er HVÍT súning. Þær Hall- veig Thorlacius og Helga Steffens- en eru klæddar einföldum hvítum kjólum og eru á sviðinu allan tím- ann. Þær eru hluti sviðsmyndar- innar og gegna í sameiningu hlut- verki sagnaþularins. Þær flytja börnunum söguna, tengja saman atriðin, og eru þannig sjáanlegir stjórnendur sem hafa hönd í bagga meö brúöunum. Þær Bryndís Gunnarsdóttir og Erna Guðmanns- dóttir eru svo baka til og stjóma hljóði og brúöum. Þórhallur Sigurösson kom til liðs viö Leikbrúðuland viö endurupp- færsluna, en upphaflega var verkið sýnt á Listahátíð í júní og þá undir stjórn Petr Matáseks sjálfs. Smá- breytingu mátti merkja í þá veru að gera sýninguna líflegri nú, án þess þó að kröfur um fágun og klár- an stíl væru minnkaðar. Það er óhætt að óska Leikbrúðu- landi til hamingju meö afmæliö og þessa ágætu sýningu. AE Auður Eydal lega eftir að skila sér í þeirra eigin verkum. Tækni viö flutning þessa gamal- kunna ævintýris er blönduö og margar gerðir brúða koma við sögu. Mjallhvít sjálf er undmfalleg og skiptir vel htum eins og viö á. Drottningin stjúpa hennar er stæröar gína, sem flæmist til og frá um sviðið. Börnin fá að fylgjast meö hvemig hún tekur hamskipt- um og veröa þess vegna ekkert hrædd þó aö hún sé illúðleg. Og dvergarnir eru að sjálfsögöu mátu- lega skrýtnir og taka upp á ýmsu skemmtUegu. Leikmyndin er íhvolThvít hálf- kúla, sem býr yfir óvæntum mögu- leikum og ljósum er beitt af hug- kvæmni. Allt skapar þetta hið rétta andrúmsloft ævintýrisins, og full- Leikendur og leikstjórar í Leikbrúðulandi. Jónas G. Jóhannesson lést 12. nóv- ember sl. Hann var fæddur á Akra- nesi 13. júní 1960, sonur Jóhannesar Þorsteinssonar og Kristjönu Kristj- ánsdóttur. Jónas kvæntist Rósu Jon- es og gekk þremur bömum hennar í fóðurstaö. Jónas vann sem leigubíl- stjóri. Útfor hans verður gerö frá Akraneskirkju í dag kl. 14. Pálína Margrét Guðjónsdóttir hús- freyja, Hólakoti, Hrunamanna- hreppi, veröur jarðsungin frá Hrepp- hólakirkju laugardaginn 19. nóvemb- er kl. 14. Pálína Gunnarsdóttir frá Sauðár- króki, sem lést 7. nóv., veröur jörðuð frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 19. nóvember kl. 11 árdegis. Guðríður Oddgeirsdóttir Vestmann, Álfhólsvegi 4, Kópavogi, sem andað- ist laugardaginn 12. nóvember, verö- ur jarðsungin frá Kópavogskirkju fostudaginn 18. nóvember kl. 13.30. Sýningar Myndlistarsýning | Asmundarsal í dag, föstudag, kl. 17 opnar listakonan Kjuregej Alexandra myndlistarsýningu í Ásmundarsal. Sýning þessi er liður í dag- skrá til minningar um Magnús Jónsson kvikmyndaleikstjóra en hann hefði orðið fimmtugur á morgun, 19. nóv. Að dagskrá þessari standa ásamt listakonunni ýmsir vinir og skólafélagar Magnúsar. Kl. 18 í dag verður flutt tónverk eftir Atia Heimi Sveinsson, sem tileinkað er minningu Magnúsar Jónssonar. Á laugardag verð- ur sýningin opnuð kl. 14 og kl. 15 munu Eyvindur Erlendsson og Karl Guð- mundsson lesa úr leikriti eftir Magnús. Á sunnudag kl. 15 verður leiklestur á leikriti Magnúsar, Ég er afi minn. Tilkyimingar Ný sólbaðsstofa Nýlega var sólbaðstofan Ljós opnuö við Grettisgötu 57a. Boðið er upp á 12 tíma ljósakort á kr. 2000 og einnig staka tíma. Ávallt kaffi á könnunni. Trúnaðarbréf afhent Hinn 7. nóvember sl. afhenti Höröur Helgason sendiherra Kenan Evren, for- seta Tyrklands, trúnaöarbréf sitt sem sendiherra íslands 1 Tyrklandi meö aö- setur 1 Kaupmannahöfn. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum fer fram á neðangreindum tíma: Kársnesbraut 47, efri hæð, þingl. eig- andi Rögnvaldur Ólafsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 21. nóvember ’88 kl. 10.45. Uppboðsbeiðendur eru Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi og Bæjarsjóður Kópavogs. Álfhólsvegur 49, kjallari, þingl. eig- andi Hörður Rafo Sigurðsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 21. nóvember ’88 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi og Bæjarsjóður Kópavogs. Lundarbrekka 2, 2. hæð t.v., þingl. eigendur Pétur Pétursson og Laufey Jónsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 21. nóvember ’88 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi, VeðdeOd Landsbanka ' Islands, Bæjarsjóður Kópavogs og Ólafur Gústafeson hrl. Neðstatröð 4, þingl. eigendur Harpa Guðmundsd. og Ragnar Sigurjónsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 21. nóvember ’88 kl. 15.45. Uppboðsbeið- endur eru Veðdeild Landsbanka Is- lands og Ólafúr Gústafeson hrl. Birkigrund 1-A, nyrðra hús, þingl. eig- andi Baldur Schröder, fer fram á eign- inni sjálfri mánud. 21. nóvember ’88 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru Veð- deild Landsbanka íslands, Gísli Bald- ur Garðarsson hrl., Hróbjartur Jónat- ansson hdl. og Landsbanki íslands. Grenigrund 3, þingl. eigandi Pétur Sveinsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 21. nóvember ’88 kl. 11.30. Uppboðsbeiðendur eru Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi og Reynir Karls- son hdl. Smiðjuvegur 11, 3. súlubil n.h., þingl. eigandi Bomanite á íslandi, fer fram á eigninni sjálfri þriðjud. 22. nóvem- ber ’88 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru Verslunarbanki íslands og Guð- mundur Jónsson hdl. Víghólastígur 3, þingl. eigandi Ásta Hlíðarvegur 146, þingl. eigandi Kristófer Eyjólfsson, fer fram á eign- inni sjálfri mánud. 21. nóvember ’88 kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur eru Iðn- aðarbanki Lslands hf. og Gjaldskil sf. Sigtryggsdóttir, fer fram á eigninm sjálfri mánud. 21. nóvember _’88 kl. 16.15. Uppboðsbeiðendur eru Útvegs- banki íslands og Iðnaðarbanki íslands hf. BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI JAM’AR 1989 : f ‘2 :t t 5 6 7 ? $ 9 1» lf 12 13 14 ■Í l.> H> 17 1S 1*> 20 21 < 22 23 24 25 26 27 2.S i 2*1 30 31 Almanök frá Snerruútgáfunni Snerruútgáfan sendir frá sér þrjú alman- ök fyrir 1989. íslenska almanakið sem kemur út í 7 sinn. Þar eru valdar Ijós- myndir víðs vegar af landinu. Snerru- almanakið, sem út kemur í 4. sinn, minna landkynningaralmanak með ljósmynd- um úr öllum landshlutum, og íslenska náttúrualmanakiö, nýtt almanak, m.a. með myndum frá öræfum íslands. Alma- nökin eru öll prentuö í Odda hf. Þess má geta að almanökin eru tilvalin gjöf til vina og viðskiptamanna um jól og ára- mót. Bítlavinafélagið á Selfossi og í Glæsibæ Bítlavinafélagið hefur gert víðreist um landið undanfarna tvo mánuði og leikið á dansleikjum fyrir þúsundir lands- manna. í kvöld verður félagið á Hótel Selfossi og á laugardagskvöld í Glæsibæ í Reykjavik. Á efnisskránni verða lög af nýjum og gömlum hljómplötum félagsins ásamt vel flestum stuðlögum bítlaár- anna. •MIN ITC (áður málfreyjur) Upplýsinga- og blaðafulltrúar ITC á Ís- landi eru: Hjördís Jensdóttir, s. 91-28996, Jónína Högnadóttir, s. 94-3662, Marta Pálsdóttir, s. 91-656154, og Guðrún Lilja Norðdahl, s. 91-46751. Hafiö samband sem áhuga hafið á að kynnast ITC. Erindi um gagnrýna hugsun Laugardaginn 19. nóvember kl. 14 heldur Páll Skúlason prófessor opinberan fyrir- lestur á vegum Norræna sumarháskól- ans í Lögbergi, Háskóla íslands, og jafn- framt verður starfsemi Norræna háskól- ans kynnt. Páll Skúlason ræðir um efnið „Hvað er gagnrýnin hugsun?" Hann mun rekja mismunandi skilgreiningar á gagn- rýnni hugsun og velta upp spurningum um það í hvaða mæli slíka hugsun er að finna í nútíma vísindum og háskólum. Norræni sumarháskólinn er samtök áhugafólks á öllum Norðurlöndum og er starfsemi hans styrkt af Norðurlanda- ráði. Sjúkrahúsið og heilsugæslu- stöðin í Keflavík til sýnis. Stjórn og starfsmenn Heilsugæslustöðv- ar Suðurnesja ogSjúkrahúss Keflavíkur- læknishéraðs bjóða íbúum á Suðumesj- um að koma og skoða sjúkrahúsið og heilsugæslustöðina í Keflavík sunnudag- inn 20. nóvember kl. 14-17. Húsnæði beggja stofnananna verður til sýnis, auk þess sem sýndar verða og veittar ýmsar upplýsingar um starfsemina. Til viðbótar gefst gestum kostur á að láta mæla blóð- þrýsting og fl. Jólaföndurnámskeið Skráning hefst og námskeiðið kynnt í GaUerí 15, Skólavörðustíg 15 í dag kl. 14-18 og á morgun kl. 10-14. Kynningarhátíð á Eiðistorgi í dag og á morgun verður kynningar- hátíð á Eiöistorgi. Verður þar margt sér tU gamans gerð og m.a. verður boðið upp á risatertu, stærstu tertu landsins. Kl. 17 í dag sýna skylmingamenn Ustir sínar og kl. 18 leikur hljómsveit. Á morgun hefst gamanið kl. 11 með kökuveislu. Kl. 12 sýnir fimleikadefid KR. Kl. 13 verður tísku- og hárgreiðslusýning og kl 14 syng- ur Selkórinn. Þá bjóða verslanir upp á spennandi tílboð og afsláttur verður í gangi. Fundir Kvenfélag Neskirkju heldur afmæUsfund sinn nk. mánudags- kvöld kl. 20.30 í safnaðarheimUi kirkj- unnar. Snyrtifræðingur kemur á fundinn og gefur ráðleggingar um snyrtingu. Skólamálanefnd HÍK efnir tU almenns fundar f Odda fimmtu- daginn 24. nóvember nk. Fundurinn verður haldinn í stofu 101 og hefst kl. 17. Frummælandi á fundinum verður Gerð- ur G. Óskarsdóttir, ráðunautur mennta- málaráðherra í skóla- og uppeldismálum. Hún mun ræða hugmyndir sínar um úr- bætur innan skólakerfisins. Bandalag kvenna í Reykjavík gengst fyrir hádegisverðarfundi á Hall- veigarstöðum laugardaginn 17. nóvem- ber nk. Hádegisverðurinn kostar kr. 70Ö. Fyrirlesari á fundinum verður Halldóra Ólafsdóttir geðlæknir. Hún fjallar um geðheilsu kvenna. Bandalagskonur eru hvattar til að fjölmenna og beðnar að til- kynna þátttöku í síma 19383 og 37057. Landlæknir mætir á fund hjá Lífsvon Laugardaginn 19. nóvember nk. verður fundur hjá samtökunum Lifsvon í Hall- grímskirkju. Landlæknir, Ólafur Ólafs- son, mætir á fundinn og mun hann ræða um hina umdeildu fóstureyðingarpillu sem er að koma á markað í Frakklandi og víðar um Evrópu. Auk þess mun land- læknir svara fyrirspurnum fundarfólks um fóstureyðingar almennt eins og þær eru framkvæmdar hér á landi. Lífsvon er, eins og kunnugt er, samtök sem hafa það að markmiði sínu að standa vörð um rétt ófæddra bama til lífs. Samtökin voru stofnuð árið 1985 og eru félagar milh 12 og 1300. Fundurinn, sem verður i hliðar- sal Hallgrímskirkju, hefst kl. 15 og er opinn öllum sem áhuga hafa á málefninu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.