Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1988, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988.
Viðskipti
Biblíuspádómur um nýtt álver
Eftir sjö feit ár í álrekstri kemur
brátt að sjö mögrum árum. Við verð-
um því að nota tækifærið og fá út-
lendinga til að bygga áliðju á íslandi
sem fyrst, annars- gæti það orðið of
seint. Á þessa lund var niöurstaða
ráðstefnu sjálfstæðisfélaganna í
Hafnarflrði í fyrradag um nýtt álver
á íslandi, í samantekt Jónasar Elías-
sonar ráðstefnustjóra.
Jóhannes Nordal, forstjóri Lands-
virkjunar og Seðlabankastjóri, sagði
að alþjóðleg stórfyrirtæki á sviði ál-
framleiðslu væru um þessar mundir
að gera upp við sig hvar ætti að fjár-
festa hagnað undanfarinna missera.
Góður hagnaður hefur verið á ál-
framleiðslu undanfarið og tími
stórra ákvarðana er kominn.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 3,5-6 Lb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 4-7 Lb
6mán. uppsögn 4-6 Vb.Ab
12mán.uppsögn 6-10 Ab
18mán. uppsögn 15 Ib
Tékkareikningar, alm. 1-1.5 Sb
Sértékkareikningar 2-5 Ab.Lb,- Ib.Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Bb.Vb,- Sp
6 mán. uppsögn 2-3,75 Sp
Innlán með sérkjörum 5-12 Sb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 7,75-8 Lb
Sterlingspund 10,75- 11,25 Ub
Vestur-þýsk mörk 3,75-4,25 Ab.Vb,- Sb,
Danskar krónur 7-8 Vb.Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 15,5-18 Ab
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 15,5-18,5 ' Ab
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 17,5-21 Bb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 8-8,75 Vb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 15-18 Sb.Bb
SDR 9-9,25 Allir nema Bb
Bandarikjadalir 10,5-10,75 Ub.Sb,- Sp
Sterlingspund 13,50- 13,75 Sb.Sp
Vestur-þýsk mörk 6,5-6,75 Sb.Sp Vb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 27,6 2.3 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverðtr. nóv. 88« ■ 20,5
Verðtr. nóv. 88 8,7
ViSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 2272 stig
Byggingavisitala nóv. 399,2 stig
Byggingavísitala nóv. 124,8stig
Húsaleiguvisitala Engin hækkun 1. okt. Verðstoðvun
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,375
Einingabréf 2 1,920
Einingabréf 3 2,192
Fjölþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1.573
Kjarabréf 3,369
Lífeyrisbréf 1 697
Markbréf 1,781
Skyndibréf 1,032
Sjóðsbréf 1 1,621
Sjóðsbréf 2 1,409
Sjóðsbréf 3 1,156
Tekjubréf 1,569
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 118 kr.
Eimskip 346 kr.
Flugleiðir 273 kr.
Hampiðjan 130 kr.
Iðnaðarbankinn 172 kr.
Skagstrendingur hf. 160 kr.
Verslunarbankinn 134 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriöja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
■Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
Áhugamenn um ál hittust í Hafnarfirði og ræddu um áliðju.
DV-mynd:Gunnar
Á fundinum voru komnir saman
helstu talsmenn stóriðju á íslandi og
voru allir sammála um að kappsam-
lega skyldi unnið að því að hrinda
núverandi stóriðjuáætlunum í fram-
kvæmd. „Grípum gæsina meðan hún
gefst,“ var viðkvæðið á fundinum
sem haldin var í Gaflinum í Hafnar-
firði.
Engar úrtöluraddir heyrðust á
fundinum, utan hvað að Bjarni
Hannesson vildi fá að andæfa stór-
iðjumönnum. Ætlun Bjarna fór í
vaskinn og hvarf hann af fundi.
Þær hugmyndir sem núna eru um
nýtt álver í Straumsvík eiga sér upp-
haf á síðastliðnu sumri þegar stjórn-
völd hleyptu af stokkunum svoköll-
uðu Átlantal verkefni. Nefnd var
skipuð og nálgaðist hún fjögur evr-
ópsk fyrirtæki á sviði álframleiðslu.
Málið er komiö á þann rekspöl að
málsaðilar eru búnir að samþykkja
að gera hagkvæmninsathugun á
rekstri álvers í Straumsvík.
-pv
Ákvörðun um álver í vetur
Alþingi þarf að taka á dagskrá
frumvarp um nýtt álver ekki seinna
en í mars eða april í vetur ef takast
á að knýja fram samþykkt fyrir nýju
álveri á næsta ári. Guðmundur Þór-
arinsson, þingmaður Framsóknar-
flokksins, sagöi á fundi í Hafnarfirði
í fyrradag að álversmálið yrði að
ganga hratt fyrir sig til að hægt yrði
að ganga frá málinu viö evrópsku
stóriöjumar fjórar á þeim tíma sem
menn settu sér.
í janúar eða febrúar í vetur myndi
hggja fyrir niðurstaða hagkvæmnis-
athugunar sem bandaríska ráðgjafa-
fyrirtækiö Bechtel Inc. stæði fyrir.
Að lokinni hagkvæmisathugun væri
hægt að fara í samningaviðræður við
þau fjögur fyrirtæki sem standa að
athuguninni ásamt íslenskum
stjórnvöldum. Ef grundvöllur yrði til
samninga þyrfti að fá samþykkt Al-
þingis fyrir nýju álveri.
Guömundur sagði tvær leiöir koma
til greina. Annars vegar að leggja
fram tilbúinn samning fyrir Alþingi,
eins og gert var í tilfelli ísals og ál-
versins í Straumsvík fyrir 20 árum.
Hins vegar að fá Alþingi til að sam-
þykkja heimild til stjórnvalda þannig
að þau gætu gengið til samninga, en
þannig var staðiö að málum járn-
blendiverksmiðjunnar á Grundart-
anga. Guðmundur taldi síðari kost-
inn vænlegastan.
pv
Hafnfirðingar gefa ekki afslátt
„Viö fógnum nýju álveri, en er- Guðmundur sagði það kröfu tíðkast fyrir aðra atvinnustarf- Guðmundur sagði að ef ísal lyti
um hvorki hálfblindir né með doll- Hafiifirðinga að nýja álverið tæki semi. ; sömu reglum og önnur fyrirtæki
araraerki í augunura,“ sagði Guð- á sig sömu skatta og skyldur gagn- Álver ísal í Straumsvík er á sér- þá næmi upphæðin 100 milljónum
raundur Ámi Stefánsson, bæjar- vart Hafnarfjarðarbæ og önnur stökum samningi við Hafnarfjarö- krónasemárlegarynniíbæjarsjóð.
stjóri i Hafnarfirði, á fundi í fyrra- fyrirtæki. Á móti kæmi að bærinn arbæ og bærinn fær um 20 miÚjón- -pv
dag um nýtt álver. veitti álverinu sömu þjónustu og ir í skatta og gjöld af álverinu.
Ný verslunar-
miðstoð opnuð
í dag verður Verslunarhúsið sf.
opnað á Gerðubergi 1 í Breiöholti.
Undir þaki Verslunarhússins verður
margvíslegur verslunar- og þjón-
usturekstur. Verslanir bjóða upp á
„sérhæfðar lúxusvörur, með mörg-
um frægustu merkjum heimsins á
boðstólum," eins og segir í fréttatil-
kynningu.
Davíð Oddsson borgarstjóri mun
formlega opna húsið og verður hátíð
fyrir boðsgesti milh kl. 17 og 20 í
dag. Opnunarhátíðinni lýkur með
flugeldasýningu kl. 20.
Á morgun verður sérstök opnunar-
hátíð fyrir böm og fá þau gefins
blöðmr og hitta trúða. Þá fá böm og
unghngar frían ís, kók og pitsu á
laugardaginn kl. 14-20.
ÍAffHtósÓ UTVSMBt'
íMxm fmimm
-=
Verslunarhúsinu verður margvisleg verslun og þjónusta
Einkennilegt einkennismerki Samkorta
Nauðalik einkennismerki oliufyrirtækis og Samkorta.
Hvaö er sameiginlegt meö greiðslukortinu Sam-
kort og norska olíufyrirtækinu Saga Petroleum
a.s.? Jú, einkennismerki fyrirtækjanna em gletti-
lega lík hvort öðru.
Saga Petroleum hefur unniö olíu viö strendur
Noregs um nokkurra ára skeið og ekki er vitað
til þess aö fyrirtækið standi í nokkrum tengslum
viö fyrsta „alíslenska greiðslukortið". Samkort
var stofnaö fyrir skömmu og komi til þess að
fyrirtækin metist um það hvort á meiri rétt á
einkennismerkinu, eða lógóinu eins og fyrirbæ-
rið er stundum kahað, verður að telja að Sam-
kort standi verr að vígi. Það getur þó vel verið
aö Saga Petroleum a.s. kippi sér ekki upp við það
aö íslenskt greiöslukortafyrirtæki noti svo að
segja sama einkennismerki og olíufyrirtækiö,
enda starfa fyrirtækin á ólíkum sviðum.
pv