Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1988, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið I hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í sima 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FOSTUDAGUR 25. N0VEMBER 1988.
Edda Guðmimdsdóttir:
Steingrímur
metur þennan
stuðning mikils
„Ég held að ástæða þess hve vel
Steingrími gengur að ná til almemn-
ings sé sú að fólk hefur á tilfinning-
unni að hann sé að segja þeim sann-
leikann, hann sé ekki að leyna al-
menning neinum staðreyndum. Hon-
um fmnst að fólk eigi rétt á að fylgj-
ast með og eftir því sem hann veit
best segir hann fólki frá þvi sem er
aö gerast. Ég held að fólk finni það
vel að hann gerir það,“ sagði Edda
Guðmundsdóttir, eiginkona Stein-
gríms Hermannssonar, þegar hún
var spurð um hugsanlegar skýringar
á vinsældum forsætisráðherrans.
„Ég veit að Steingrímur metur
—þennan stuðning mikils. Það er hon-
um mikils virði að fá þennan stuðn-
ing ekki síst nú þegar hann þarf að
taka á erfiðum málum og reyna að
leysa þau og það í samvinnu við al-
menning en öðruvísi er það ekki
hægt.“ Edda sagði að ekki lægi nein
leyniformúla að baki vinsældum
Steingríms, lykilhnn að því væri ein-
faldlega að vera eðlilegur og segja
almenningi rétt og satt frá. -SMJ
„Veitekki
hvað ræður
- segir Bryndís Schram
„Ég veit ekki hvað ræður vinsæld-
um stjómmálamanna og stjóm-
málaflokka," segir Bryndís Schram,
eiginkona Jóns Baldvins Hannibals-
sonar, um niðurstöðu vinsælda-
könnunar DV. Jón Baldvin hlaut
rúm 15 prósent atkvæða og varð í
öðm sæti.
„Nú orðið reyni ég að leiða hjá mér
niðurstöður skoðanakannana. Ég er
satt að segja löngu hætt að botna í
hvað ræður skoðunum fólks. Mér
fihnast niðurstöður oft svo fjarri
raunveruleikanum. Ef ég tæki fullt
mark á skoðanakönnunum væri ég
ýmist að hlæja eða gráta. Það er botn-
inn í dag og toppurinn á morgun.
Með því að leiða þetta hjá mér er ég
kannski að reyna að verjast áfollum.
Ef til vill em þetta ósjálfráð við-
brögð,“ segir Bryndís Schram. pv
- sjá Us. 2 og 3
Bílstjórarnir
aðstoða
'SSnDIBiLBSTÖÐin
LOKI
Og sjá menn nú ýmis-
legt í röku Ijósi!
„Eg leysi út ábyrgðir fyrir Stál- greiða það,“ sagði Stefán Hjaltason, er lögregluvörður við bátinn. Lög- „Það er búið að þinglýsa bátnum
vík nær daglega. Þeir eiga að vera útgerðarmaður frá Ólafsvik. fræðingar deiluaðila reyna sættir í á mitt nafh. Stálvík á haldsrétt í
búnir að afhenda bátinn en hafa Stefán sigldi nýsmiöuðum bát dag. bátnum en það vegur ekki þungt.
ekki getað staðið við það. Þeir eru sínum frá Hafnarfirði til Reykja- Dröfn í Hafnarfirði átti líka halds-
búnir að fá tryggingar fyrir því sem víkur í nótt. Þetta gerði Stefán í „Þetta er tilkomið vegna ágrein- rétt - þar til ég greiddi þeim í gær
ég á eftir ógreitt. Það vora um sjö trássi við vilja forráðamanna Stál- ings um uppgjör. Báturinn hefur - en reyndar átti Stálvík að standa
hundmð þúsund krónur. Sú upp- víkur, en það fyrirtæki annaðist ekkiveriðafhenturformlegaogþví skil á þeirri greiðslu en ekki ég.
hæð hefur breyst vegna þess að smiði bátsins. Stálvikurmenn var hann tekinn óftjálsri hendi. Ég Hver og einn, sem hefur unnið eitt-
þeir verða að greiða dagsektir og komu til Reykjavíkur í nótt og held að mn sé að ræða mun hærri hvað við bátinn og telur sig ekki
einshefégþurftaðleysaútábyrgð- hugðust sigla bátnum aftur til upphæð en þau sjö hundruð þús- hafa fengið sitt, á sama haldsrétt
ir fyrir þá. Þeir áttu að láta halla- Hafnaríjarðar. Til orðaskipta og und sem útgerðarmaðurinn telur,“ ogStálvík,“sagðiStefánHjaltason.
prófabátinnen gátu það ekki vegna átaka kom á milli aðila og að end- sagði Júlíus Sóines, sfjómarfor- -sme
peningavandræða - svo ég varð að ingu var lögregla kölluð til og nú maður Stálvíkur.
„Nú ætla ég að fara að gera út á búsáhöld og gjafavörur,“ sagði Bergur Rögnvaldsson í morgun þegar hann
hampaði Electrolux ryksugunni í bátnum sínum í Hafnarfirði. Bergur var staddur 8 mílur frá landi í gær og var
að draga línu - hann vænti 25 kilóa þorsks og hugsaði sér gott til glóðarinnar. Þá birtist þessi myndarlega ryksuga,
að vísu án barka, en Bergur fór ekki tómhentur í land þó hann fengi ekki mikið annað en þetta huggulega heimil-
istól. Hann telur að þetta „nýstárlega veiðarfæri" hafi verið á 55 m dýpi. Kannski að einhver annar hafi ætlað að
vitja ryksugunnar? Ótt/DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Slydda eða
snjóél fyrir
norðan
Á morgun verður austan- og
suðaustangola um mestallt land.
Hiti nálægt frostmarki við norð-
urströndina og þar má búast við
slyddu eða snjóéli. Annars staðar
verður 3-7 stiga hiti og skýjað að
mestu. Dáhtil rigning eða súld
suðvestanlands.
Eldey og Keflavik:
Uppgjörið
breytti okkar
hugmyndum
„Bráðabirgðauppgjörið breytti
okkar hugmyndum en dró ekki úr
okkur. Við munum ræða þetta og
skoða betur um helgina. Þetta er al-
gjört trúnaðarmál og það verður far-
ið með það sem shkt. Ég get þó sagt
að staða Hraðfrystihúss Keflavíkur
er ekki betri en ég átti von á,“ sagði
Jón Norðfjörð, stjórnarformaður út-
gerðarfyrirtækisins Eldeyjar á Suð-
umesjum.
Stjóm Eldeyjar hefur nú til skoð-
unnar bráðabirgðauppgjör, fyrir
fyrstu átta mánuði þessa árs, frá
Hraðfrystihúsi Keflavíkur.
Eldey freistar þess að kaupa hluta-
fé SÍS í Hraðfrystihúsinu og afstýra
þar með að báðir togarar Hraðfrysti-
hússins verði seldir til Sauðárkróks.
„Við getum hugsanlega svaraö
endanlega hvort við göngum til
samninga um eða eftir helgi,“ sagði
Jón Norðfjörð. -sme
Ólafur Ragnar Grímsson:
Áfengiskaupin
ekki einkamál
„Þaö er skrýtið að Magnús Thor-
oddsen haldi því fram aö hann hafi
ekki séð neinar reglur um þessar
áfengisúttektir. Honum á að vera
ljóst eins og öðmm að þessi tegund
viðskipta opiberra aðila er aðeins til
að standa undir gestamóttökuskyld-
um embættismanna. Þeir aðilar sem
fá að kaupa áfengi á kostnaðarverði
fá það vegna þeirrar gestgjafaskyldu
sem á þeim hvílir,“ sagöi Ólafur
Ragnar Grímsson við DV.
„Síðustu 20 ár hafa handhafar for-
setavalds haft heimild th áfengis-
kaupa vegna þessa og sá réttur er
aðeins í gildi þegar forseti er ekki á
landinu. Ég hélt að þetta þyrfti ekki
að skýra fyrir forseta Hæstaréttar.
Það er af og frá að þetta sé hans
einkamál. Ég hélt að menn í hans
stöðu kynnu mun á embættisverkum
og einkaskyldum." -hlh
- sjá einnig bls. 2