Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1988, Page 10
10
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988.
Utlönd
Efnavopnaæfing
Kevin McDonaid, verslunarstjóri i blaöa- og timaritaverslun í New York,
heldur hér ó nokkrum gömlum eintökum ai myndasögubföðum sem
eitt sinn voru vinsael. Meðal annars heldur hann á Superman, Detective
Comics og The Amazing Spíderman. Á bak við hann má sjá heilan
vegg fullan af nýjum myndasögublööum, ætluðum handa fuflorðnum.
Fullorðiö fólk virðist í siauknum mæli drekka í sig teiknimyndasögur.
Símamynd Reuter
Myndasögur vinsælar á ný
Israelskir námsmenn við strangtrúarskóla skoða hér trúarlegar
kennslubækur á meöan á æfingu gegn efnavopnum stendur. í gær tóku
meira en fjórtán hundruö þúsund israelsk skólabörn þátt í sltkum æfing-
um og meira en nitján þúsund lærðu aö nota gasgrimur.
Símamynd Reuter
Nýtt eyðnilyf
Ví sindamenn við læknadeild Texasháskóla tilkynntu í gær aö þeir hefðu
þróað lyf sem getur drepið frumur sem smitaðar eru af eyðniveirunni
en lætur í friöi heilbrigöar frumur.
Lyfið, sem enn hefur ekki veriö prófaö á lifandi mönnum, notar plöntu-
prótein til aö ráðast eingöngu á sýktar frumur, segir í tilkynningu frá
læknadeildinni.
Dr. Jonatlian Uhr, deildarforseti viö læknadeild háskólans, sagöi að lík-
lega myndi líöa eitt ár þar til lyfiö, sem er enn á tilraunastigi, verður
prófaö á mönnum. Ekki er hægt að nota tilraunadýr þar sem þau sýkjast
ekki af eyöni.
Þetta nýja lyf er ekki lækning á eyðni en búist er við að þaö geti hægt
mjög á hraða sjukdómsins og að aukaverkanir þess verði mun minni en
aukaverkanir þeirra lyfja sem nú eru notuð.
Til átaka kom á herteknu svæðunum í gær milli hermanna og araba. Myndin er frá Gaza.
Símamynd Reuter
Éiáip ^ -
IB£1 . MrmM
Hægri flokkarnir
setja fram kröf ur
Þrír hægri flokkar í ísrael hafa
bæst í hóp þeirra sem Yitzhak Sham-
ir forsætisráðherra þarf að taka tillit
til viö myndun nýrrar ríkisstjórnar.
Með stuöningi hægri manna og
klerkaflokka hefur Likud-bandalag
Shamirs meirihluta á pappíurnum
eftir kosningamar þann 1. nóvember
síðastliöinn. Aðstoðarmenn hans
segja hins vegar að hann hafi ekki
áhuga á samsteypustjóm þessara
flokka þar sem hann óttast að rót-
tækar skoðanir þeirra geti móðgað
Bandaríkjastjóm og gyðinga erlend-
is.
Verkamannaflokkurinn greiddi í
gær atkvæði gegn viðræðum viö
Likud-bandalagiö en gaf samt í skyn
aö ræöa mætti ný boð um ráðherra-
embætti. Likud-bandalagiö hefur
ekki viljað láta Verkamannaflokkinn
fá mikilvægar ráðherrastöður.
Tehiya flokkurinn, sem er langt til
hægri, kveðst ekki vilja taka þátt í
stjómarsamstarfi meö Likud nema
Shamir lofi að vinna að frelsun
þriggja skæruliða gyðinga sem hand-
teknir vom fyrir árásir á araba á
Þrengt er nú að Shamir, forsætis-
ráðherra ísraels, úr öllum áttum
varðandi stjórnarmyndun.
Símamynd Reuter
vesturbakkanum. Skæruiiðarnir
fengu lífstíöarfangelsisdóma fyrir
árás á skóla árið 1984. Fjórir biðu
bana í árásinni og rúmlega þrjátíu
særðust. Lífstíðarfangelsisdómnum
var síðan breytt í fiórtán ára fangels-
isdóm.
Þjóðarflokkurinn krefst aö komiö
verði á lögum sem veiti sakaruppgjöf
öllum borgurum og hermönnum sem
framiö hafa brot þegar öryggi þeirra
var ógnað vegna óeirða. Er þá eink-
um átt viö uppreisnina á herteknu
svæðunum.
Tzomet flokkurinn kveðst ekki
vilja taka þátt í stjórnarmyndun
nema hann fengi frjálsar hendur í
þinginu þegar kæmi að atkvæða-
greiöslu um löggjöf um trúarleg mál-
efni. Bandarískir gyöingar beijast
nú þegar gegn lagafrumvarpi sem
kveður á um hver sé gyðingur og
hver ekki en Shamir lofaði klerka-
flokkunum því gegn stuðningi viö
stjórnarmyndun.
Shamir kveöst heldur vilja breiöa
stjórn meö þáttöku Verkamanna-
flokksins en Verkamannaflokkurinn
vill ekki ganga aö skilmálum Sham-
irs og hefur því hætt viðræðum.
Margir flokksmanna vilja aö flokk-
urinn verði í stjómarandstöðu.
Reuter
Yfir eitt hundrad látnir
Stórrigningar hafa genglð yffr suðurhluta Thailands að undanförnu. í
kfölfar þeirra hafa fylgt mikll flóð og aurskriður sem hafa orðið að
WSm.
minnsta kosti eitt hundrað og fimmtán manns að bana. Tvö hundruð
manna er saknað. Hér sést kona reyna að bjarga hluta af þaki húss
sins sem ffaut á brott i fióðunum.
Simamynd Reuter
Sameinaðir gegn
Færeyingum
Sumarliði ísleifsson, DV, Árósunu
Samstaða er um það hjá öllum
stjómmálaflokkum í Grænlandi um
aö taka hart á framferði færeyskra
útgerðarmanna vegna veiða þeirra
undan ströndum Namibíu. Færey-
ingar hafa gert samning um veiði-
heimildir á þessu svæði við lepp-
stjóm Suöur-Afríku í Namibíu.
Dönsk stjórnvöld hafa verið lítt hrif-
in og nú hafa Grænlendingar bland-
aö sér í málið.
Til dæmis segir Otto Stenholt, leiö-
togi hins borgaralega flokks Atasuut,
að flokkur hans styöji heils hugar
þá stefnu danska þjóðþingsins að
beita Suður-Afríku viðskiptaþving-
, unum. Jonathan Motzfeldt og græn-
lenska stjómin hóta Færeyingum aö
þeir fái ekki veiðikvóta hjá þeim eins
og gert hafði veriö ráð fyrir. Eru það
einkum loðnukvótar sem búist er við
að Færeyingar missi af ef Grænlend-
ingar gera alvöm úr hótunum sín-
um.
Johan Sundstein, formaður Fólka-
flokksins, sem varð sigurvegari
kosninganna í Færeyjum 8. nóvemb-
er síðastliðinn, er lítið hrifinn af til-
tektum Grænlendinga. Segist hann
líta þaö alvarlegum augum ef þeir
blandi sér í færeysk málefni. Hann
segir ennfremur að Færeyingar verði
sjálfir að ákvéða framtíð veiða við
Suður-Afríku. Það eigi ekki aðrir aö
gera. Sundstein segir ennfremur að
Færeyingar óski eftir að eiga góða
samvinnu við Grænlendinga en sú
samvinna verði aö byggjast á þeim
forsendum að Færeyingar fái sjálfir
að ákveða hvaö þeir veiði.
Sú kenning hefur komið fram,
meðal annars í grænlenska blaðinu
Grönlandsposten, að líta megi á yfir-
lýsingar Motzfeldts um þessi efni
sem stuðning við Atla Dam, lögmann
í Færeyjum og forystumann sósíal-
demókrata þar, en hann hefur beitt
sér mjög gegn veiðum í Suður-Afr-
íku. Flokksformennimir tveir munu
vera nánir vinir og flokkur Mots-
feldts, Siumuut, er systurflokkur
Sósíaldemókrataflokksins í Færeyj-
um.
Grönlandsposten telur ekkert at-
hugavert við þennan stuðning Motz-
feldts viö Atla Dam en leggur áherslu
á að meginatriði málsins sé að ekki
sé unnt að hafa samvinnu við Færey-
inga meðan færeyskir fiskimenn og
landstjórnin þar blessi og styðji
stjómvöld í Suður-Afríku.