Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1988, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988.
11
Utlönd
Koskotas gæti fellt
stjórn Papandreous
Andreas Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, á við mikinn vanda að stríða i ríkisstjórn sinni vegna tengsla við fjárglaeframanninn George
Koskotas. Papandreou er hér með nýju ástinni í lífi sinu, Dimitru Liani, sem er helmingi yngri en hann.
Gríski auðkýfingurinn og flótta-
maðurinn George Koskotas var
handtekinn við komuna til Boston
í gærmorguni Bandariskir alríkis-
lögreglumenn handtóku Koskotas
þegar hann steig út úr einkaþotu
sinni. Hann mun mæta fyrir rétt á
fostudag.
Koskotas kom til Boston frá Rio
de Janeiro í Brasilíu.
Grískir embættismenn segja að
farið hafi verið fram á það við
gríska sendifulltrúa í Brasihu að
þeir leiti að auðkýfingnum og út-
gefandanum George Koskotas sem
nú er á flótta undan réttvísinni í
Grikklandi. í kringum hann hefur
myndast stórkostlegt hneykslismál
í Grikklandi og hefur hneykshð
teygt arma sína aha leið inn í ríkis-
stjóm landsins.
Þessi beiðni var borin fram síð-
asthðinn mánudag í kjölfar frétta
um að Koskotas, sem hvarf frá
Grikklandi fyrr í þessum mánuði
eftir að hafa verið sakaður um fals
og svik, hefði eytt fimm dögum á
Rio Palace lúxushótehnu í Rio de
Janeiro.
Erindisleysa í Brasilíu
Grískir stjómarerindrekar í
Brasihu staðfestu á mánudag að
Koskotas hefði verið á hótelinu en
sögðu að hann væri farinn þaðan
og ekki væri vitað hvert, að sögn
talsmanns gríska sendiráðsins,
Sotiris Kostopoulos.
Samkvæmt heimildum frétta-
manna hafði Koskotas flutt með
konu sína og fjölskyldu í einbýhs-
hús í dýrasta hluta Rio de Janeiro.
„títanríkisráðherrann gaf fyrir-
mæli um að starfsfólk sendiráðsins
ætti að halda áfram tilraunum sín-
um til að komast aö því hvar Ko-
skotas er niðurkominn," sagði Ko-
stopoulos.
Grikkland hefur ekki framsals-
samning við Brasihu.
Undraverður frami
Koskotas, sem er af grískum og
amerískum uppruna, stjómaði
Krítarbanka og átti fiölmiðlaveldi
sem samanstóð af þremur stórum
dagblöðum, fjórum tímaritum og
útvarpsstöð. Hann átti einnig
knattspymuhð. Koskotas hvarf frá
Grikklandi fyrr í þessum mánuði
þrátt fyrir að hann væri undir eftir-
hti allan sólarhringinn.
Honum hafði verið bannað að
yfirgefa landið. Tveir ráðherrar
hafa sagt af sér vegna þessa máls
og hvarfs hans og annar þeirra var
dómsmálaráðherra landsins.
Koskotas, sem kom til Grikk-
lands árið 1979 og reis fljótt til valda
og áhrifa, hefur einnig verið sakað-
ur um að hafa hindrað rannsókn á
færslum hans í Krítarbanka, sem
er annar stærsti banki landsins.
Rekstur bankans undarlegur
í skýrslu, sem sérstakur endur-
skoðandi gerði opinskáa á mánu-
dag, kemur fram að fundist hafi
óregla í bankafærslum og að eftir-
htskerfi bankans hafi verið ófull-
nægjandi.
„Kerfisbundnar skoðanir á
áhættuatriðum í rekstri bankans
leiða í ljós að veigamikil atriði í
alþjóðaviðskiptum bankans era i
ólestri og bendir það til þess að
stjómendur bankans hafi notað
nýstárlegar stjórnunaraðferðir,"
segir endurskoðandinn, Spiros
Papadatos.
Papadatos sagði að staða bankans
væri nú neikvæð um rúma níu
mihjarða íslenskra króna og að
búast mætti við að í árslok yrði hún
orðin neikvæð um tíu mihjarða
króna.
„Þessi neikvæða staða er óskýr-
anleg og að mínu mati stafar hún
af því að peningar streyma út úr
bankanum vegna einhvers sem
ekki tengist bankastarfsemi," sagði
hann.
Papadatos, sem byrjaði að yfir-
fara reikninga bankans þann 24.
október síðasthðinn, sagði að hann
þyrfti meiri tíma th að ljúka rann-
sókn sinni.
Stjórnmálahneyksli
Menntamálaráðherra Grikk-
lands, George Papandreou, sem er
sonur Andreasar Papandreou for-
sætisráðherra, ásakaði Koskotas á
dögunum um að hafa falsað skjöl
og sagði að hann væri að reyna að
kúga ríkisstjómina.
Papandreou forsætisráðherra
hefur lýst því yfir að hneykshsmál-
ið sé samsæri, ætlað iil að grafa
undan stjóm sinni.
Papandreou, sem er 69 ára gam-
all, kom frá London fyrir sjö vikum
en hann hafði gengist undir hjarta-
skurðaðgerð þar.
Vandamál hans nú eru ekki af
hehsufarsástæðum heldur stendur
hann frammi fyrir því að verða
niðuriægður og horfir upp á ríkis-
stjóm sína leysast upp.
Minna hneyksli
hverfur í skuggann
Þótt það hafi vakið mikla athygh
og umtal þegar Papandreo sagði
skhið við eiginkonu sína og hóf
samband við Dimitru Liani, 34 ára
gamla flugfreyju, geta Grikkir fyr-
irgefið honum það. Það em hins
vegar náin tengsl ríkisstjómar
hans við George Koskotas sem era
aðalvandamál hans um þessar
mundir.
Stjórnin studdi við
bakið á svindlaranum
Það var sósíahstastjórn Pap-
andreous sem tók miklu ástfóstri
við Koskotas og var honum hamp-
að sem kraftaverkamanni sem aðr-
ir mættu taka sér th fyrirmyndar
ef grískur efnahagur ætti að vænk-
ast.
Eftir að Koskotas keypti Kritar-
banka árið 1984 réð hann sér fjölda
aðstoðarmanna sem áður höfðu
starfað í Sósíalistaflokki Pap-
andreous. Lögfræðingur hans hafði
verið ráðherra í ríkistjórninni.
Ráðgjafi hans í fjölmiðlaveldinu
var fyrrum talsmaður ríkisstjórn-
arinnar.
Peningar frá ríkinu streymdu inn
i bankann og Koskotas gat bætt við
veldi sitt vinsælu knattspymufé-
lagi, útvarpsstöð og prentsmiðju.
Þetta líkaði öðram útgefendum
iha, svo sem vænta mátti. Grun-
semdir þeirra gagnvart Koskotas
jukust um allan helming þegar
hann var sakaður um skattsvik í
bandaríkjunum á síðasta ári. En
rikisstjómin lét kröfur þeirra um
rannsókn á því hvemig Koskotas
heföi komist yfir ríkidæmi sitt sem
vind um eyru þjóta.
Ekki lengur hægt
að breiða yfir
Útgefendumir sökuðu Agam-
emmon Koutsoyorgas varaforsæt-
isráðherra, sem einnig var dóms-
málaráðherra, um að reyna að teíja
máhð og breiða yfir það.
Það var svo í sumar að saksókn-
arinn í Aþenu hóf rannsókn. Ýmsir
sögðu að rannsóknin gengi ekki
eins fijótt og eðhlegt væri. Ríkis-
stjómin neitaði að fyrirskipa að
reikningar Kritarbanka væru yfir-
farnir. Stjómin lét löks undan þeg-
ar Grikklandsbanki lagöi fram
gögn sem bentu th þess að skjöl sem
staðfestu bankainnstæður, sem
Koskotas sagðist eiga í Ameríku,
væru fólsuð.
Það var síðan i október sem sér-
stakur endurskoðandi hóf rann-
sókn á reikningum bankans, eins
og áður sagði.
Stjórnarandstaðan ræðst
á ríkisstjórnina
Eftir að Koskotas hvarf úr landi
sakaði stjórnarandstaðan ríkis-
stjómina um að hafa hjálpað hon-
um að flýja th að koma í veg fyrir
að hann kæmi upp um sphlingu
innan stjórnarinnar.
Koutsoyorgas bauðst th að segja
af sér sem dómsmálaráðherra eftir
að stjórnarandstaðan hafði sakað
hann um að hafa hjálpaö til við að
breiða yfir málið.
Forsætisráðherrann gekk í máhð
til að bjarga ríkisstjóm sinni frá
upplausn þrátt fyrir að læknar
hefðu skipað honum að halda
kyrra fyrir. Papandreou lét undan
kröfum stjómarandstöðunnar um
þingrannsókn. Nauðsynlegt var að
gera breytingar á ríkisstjóminni
en Papandreou komst að því að
margir flokksmanna hans voru
ekki tilbúnir að ganga inn í stjóm-
ina fyrr en búið væri að reka þá
sem hefðu komið nálægt þessu
máh. Sérstök áhersla var lögð á að
losna við Koutsoyorgas. Þann 16.
nóvember var gerð minni háttar
uppstokkun. Koutsoyorgas fékk að
vera áfram í ríkisstjóm en hann
gegnir ekki lengur embætti dóms-
málaráðherra. Stjórnarandstaðan
hefur sett fram ákveðnar kröfur
um að boðað verði til kosninga hiö
fyrsta.
Raðir sósíalista riðlast
Um svipað leyti sagði einn af virt-
ustu þingmönnum Sósíahsta-
flokksins, Apostolos Lazaris, sig úr
flokknum og sagði af sér þing-
mennsku. Hann sakar Papandreou
um að hafa hylmt yfir sphhngu og
breitt yfir þetta alvarlega mál og
þar með gert aðför að lýðræðinu.
Nú velta menn því fyrir sér
hversu lengi hjarta Papandreous
þohr þetta álag og hvort rikis-
stjórnin þolir þetta hneyksh.
Reuter
Koskotas gisti á Hótel Loftleiðum:
Gaf upp falskt nafn
- segir móttökustjóri Hótel Loftleiða
„Hann var með fjölskyldu sina
með sér. Þau vora eins og hveijir
aðrir gestir. Þau tóku stórt her-
bergi á leigu - en ekki neina svítu.
Þau komu hingað snemma að
morgni. Hingað kemur mikið af
fólki sem kemur th landsins á
einkaflugvélum. Flugvélunum er
lagt hér fyrir utan og þetta fólk
kemur á öhum tímum sólar-
hringsins og að sjálfsögðu er þetta
fólk jafnmisjafnt og það er margt,“
sagði Geirlaug Magnúsdóttir,
móttökustióri Hótel Loftleiða.
Geirlaug sagði að þégar Koskot-
as heföi skráð sig inn á hótehð
heföi hann ekki gefið upp sitt rétta
nafn heldúr heföi hann skráð sig
á hótehð undir nafni flugmanns-
ins sem flaug einkaþotu hans.
-sme