Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1988, Page 17
16
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988.
íþróttir
^s~yj ,
• Katarína Witt sýnir listir sínar á ísnum en klæðaburöur hennar kom
við kauninn á mörgum á sama tíma og augu annarra glöddust.
Símamynd Reuter
Frökku dansklæðin
sett í bann á ísnum
- bylgjan sem Witt hóf brotin á bak aftur
Austur-þýska ísdrottningin Kat-
arína Witt vann hug og hjarta
heimsbyggðarinnar á ólympíuleik-
unum í Calgary í Kanada. Fram-
koma hennar þótti einstök, fram-
ganga hennar á ísnum af sama
skapi tignarleg og klæöaburður
hennar sérstakur.
Ekki voru þó allir á einu máli um
ágæti þess síðasttalda. Þeir sið-
prúðustu þoröu þó lítiö að hafast
að en þótti þeim mörgum Katarína
dylja full skanimt kverflegan þokka
sinn.
i kjölfar þess að austur-þýska
stjarnan hvarf af ísnum, en hún
hefur nú snúið sér aö leiklistinni,
heiúr alþjóðasamband skautadans-
ara ákveðið að refsa þeim íþrótta-
mönnum sem þykja of djarfir í
klæðaburði á ísnum að sögn
danska blaðsins Pohtiken.
Munu þeir fá lakari einkunn sem
sýna kúnstir í klæðum sem hylja
of lítið að áliti dómara eða kveikja
hjá þeim kenndir sem bersýnilega
er ekki ætlast til að hrært sé við.
-JÖG
Arftaki Alfreðs bestur
- án þess að skora
Danir eiga marga sterka íþrótta-
menn sem gera garðinn frægan
fjarri heimahögunum. Einn þeirra
er handknattleiksmaðurinn Erik
Veje Rassmussen, arftaki Alfreös
Gíslasonar hjá Tusem Essen í Vest-
ur:Þýska!andi.
Á dögunum var uppgjör topplið-
anna í úrvalsdeildinni þýsku og
höfðu Essenkempur betur gegn
leikmönnum Gummersbach, 19-16.
eitt einasta mark
Að sögn danska blaðsins Politi-
ken var Eiríkur einn besti maður
vaharins í leiknum. Það var hins
vegar einn hængur á, Rassraussen
skoráði nefnilega ekki eitt einasta
mark í leiknum.
Pohtiken segir að sá danski hafi á
hinn bóginn lagt upp bróðurpartinn
af mörkum Esseiúiðsins. Þeir vita
bersýniiega hvernig orða á hlutina
frændurokkaríDanaveldi. JÖG
Þessir tveir kappar verða í sviðsljósinu f fþróttaþætti Stöðvar 2
khikkan hátffimm á morgun en þá keppa þeir Björgvfn Hallgrímsson,
tfl vinstri, og Amar Richardsson 111 úrslita í 3. stigamóti billiardsambands-
ins. Björgvin vann Jón öm Sigurðsson i undanúrslitum, *-1, en Amar
vann Brynjar Valdimareson, 4-2. Brynjar er efstur i stigakeppninni með
106,40 Stig. Ásgeir Guöbjartsson er nwstur með $0,35 slig, Jónas P.
Erik Torstvedt fær tugi
milljóna hjá Tottenham
- standi hann undir slánni hjá enska liðinu
Ef fer sem horfir er Erik
Thorstvedt, landsliðsmarkvörðurinn
norski, á íorum frá Gautaborg til
Tottenham Hotspur. Það má segja
að draumur norska markvarðarins
sé þar að rætast því að hann dreymdi
á yngri árum um að standa undir
markslánni híá liði í ensku deilda-
keppninni.
Félagaskiptin frá Svíþjóð til Eng-
lands munu gera Thorstvedt að millj-
ónamæringi en svo kann að fara að
hann hljóti um 28 milljónir íslenskra
króna í sinn hlut, að sögn norskra
dagblaða. Það eru engir smáaurar
fyrir leikmann en Thorstvedt þykir
mjög traustur og öruggur markvörð-
ur. Hann var á sínum tíma tekinn inn
í hð Gautaborgar í kjölfar þess að
landsliðsmarkvörður íslendinga,
Bjami Sigurðsson, gaf sænska liðinu
afsvar um að leika með því.
Þess má geta aö Pétur Pétursson,
Pétur Ormslev og Ath Eðvaldsson
skoruðu allir mörk hjá Thorstvedt í
fyrrahaust í tveimur landsleikjum
íslendinga og Norðmanna sem þá
fóru fram í undankeppni Evrópu-
meistaramótsins og Thorstvedt hef-
ur sagt aö þær tvær vikur, þegar
• Erik Thorstvedt byrjar væntan-
lega að leika með Tottenham í 1.
deildinni á næstunni en hann hóf
æfingar með liðinu í gær. Þeir Guðni
Bergsson gætu orðið samherjar en
Guðni hefur dvalið hjá Tottenham
frá því á mánudag.
Noregur tapaði tvisvar fyrir íslandi,
séu þær verstu á sínum knattspymu-
ferh.
Tíu norskir blaðamenn
Thorstvedt mætti á æfingu hjá
Tottenham í gærmorgun og þar
fylgdust með honum tíu landar hans
úr blaðamannastétt sem mættu á
æfingasvæðið í „minibus", að sögn
Guðna Bergssonar, sem æfir þessa
dagana með félaginu, eins og kunn-
ugt er. Thorstvedt býr á hóteh
skammt utan við London ásamt
Guðna, Spánverjanum Amar og þeim
Paul Stewart-og Paul Gascoigne, en
þeir þrír síöarnefndu gengu allir til
liðs við Tottenham í sumar og haust.
Guðni sagði í spjalh við DV í gær-
kvöldi að Tottenham og Gautaborg
ættu eftir að ganga frá málum sín á
milli en Thorstvedt væri búinn að
ganga frá samningum sínum við
Tottenham.
Um sín mál sagði Guðni að þau
væru óbreytt, hann myndi æfa áfram
með liðinu og spila með varaliðinu
gegn Ipswich á morgun og Fulham á
þriðjudag og eftir það færu málin
væntanlegaaðskýrast. JÖG/VS
Fyrirvarinn reynd-
ist allt of stuttur
- ekkert verður af leik við Dani
„Það veröur ekkert úr því að Dan-
ir leiki hér landsleik á mánudags-
kvöldið. Fyrirvarinn reyndist allt of
stuttur,“ sagði Jón Hjaltalín Magn-
ússon, formaður HSÍ, í samtah við
DV í gærkvöldi. Til stóð að fá Dani
til að leika hér einn landsleik í Laug-
ardalshöll á mánudagskvöld.
„Það er ekkert ákveðið ennþá með
landsleiki fram að B-keppninni,“
sagði Jón Hjaitalín ennfremur. Þess
má geta að Bogdan Kowalczyck
landshðsþjálfari kemur til landsins í
byijun desember og þá hefst undir-
búningur fyrir keppnina.
-SK
Blómstrar Olsen
hjá Bordeaux?
Enska knattspyman átti ekki við
Jepser Olsen. Franski leikstílUnn
hentar miklu betur manni með hans
tækni og hæfileika. Hjá Bordeaux
getur hann blómstrað að nýju og
komist í kjölfarið í danska landsliðið.
Þetta er áht Sepp Piontek á félaga-
skiptum danska landsliðsmannsins
Jesper Olsen. Hann er nú í herbúð-
um franska liðsins Bordeaux eftir
nokkur rysjótt tímabil með enska
stórveldinu Manchester United.
Þar átti Olsen aldrei fast sæti í lið-
inu, sat á bekknum og lék á víxl. Að
sögn danskra blaöa fær Piontek nú
betra færi á að fylgjast með Olsen
en áður því danska pressan segir að
Daninn verði einn burðarása í
franska liðinu.
Jesper Olsen á því bjartari daga
framundan en hann hefur sótt á
brattann síðasta kastið og var til að
mynda eini landsliðsmaður Dana
sem ekki fékk að spreyta. sig í Evr-
ópumótinu í Vestur-Þýskalandi 1
sumar. JÖG
Frétta-
stúfar
Aðalfundur ÍA
Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA
verður haldinn á morgun, laugardag,
og hefst kl. 14 í sal Fjölbrautaskólans
á Akranesi. Um kvöldið verður síðan
uppskeruhátíð sumarsins og hefst
hún á Hótel Akranesi kl. 20.
íslandsmótið í karate
íslandsmótið í karate fer fram í Laug-
ardalshöllinni á morgun, laugardag,
og hefst kl. 14. Úrsht byija síðan kl.
15.20. Keppendur eru 25 frá sex félög-
um og keppa í kata kvenna og karla
og fimm flokkum karla og éinum
flokki kvenna í frjálsri viðureign.
Uppskeruhátíð ÍK
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar
ÍK fer fram á sunnudaginn, 27. nóv-
ember, í vestursal í Digranesi og
hefst kiukkan fjögur og lýkur klukk-
an sex. Vaiinn verður íþróttamaður
ÍK 1988, ýmis önnur verðlaun afhent
og boðið verður upp á veitingar og
skemmtiatriði. Foreldrar og aðrir
velunnarar knattspyrnudeildar ÍK
eru hvattir til að láta sjá sig.
Keilumót í Garðabæ
Flestir bestu keiluleikarar landsins
verða á meðal þátttakenda í opna
Gull & silfur kvennamótinu í keilu
sem fram fer um helgina í Keilulandi
í Garðabæ. Mótið hefst í dag, fóstu-
dag, klukkan sjö. Úrslitin hefjast síð-
an klukkan hálfþijú á laugardag.
Þess má geta að verðlaun fyrir þijú
efstu sætin verða glæsilegir dem-
antsskartgripir.
f Körfubolti
WStaðan /
pw 11", 1. íbíii
Flugleiðadeild:
KR-ÍR........................58-59
ÍBK-Tindastóll....................
A-riðill:
Njarðvík.....13 13 0 1163-927 26
Valur........14 9 5 1201-1043 18
Grindavík... 14 7 7 1118-1047 14
ÍS...........14 1 13 877-1343 2
Þór..........14 1 13 1044-1334 2
B-riðill:
Keflavík.....13 11 2 1124-919 22
KR...........14 10 4 1122-1039 20
ÍR...........14 7 7 1051-1062 14
Haukar.......13 6 7 1162-1083 12
Tindastóll... 13 3 10 1076-1161 6
1. deild karla:
Snæfell-Víkverji...........73-46
Reynir.........7 6 1 466-345 12
UÍA............6 4 2 411-356 8
Skallagrímur...7 4 3 441-156 8
Laugdælir.....6 3 3 841-339 6
UBK............6 3 3 415-399 6
Snæfell........6 3 3 425-418 6
Léttir.........7 2 5 410-494 4
Víkveiji.......5 0 5 251-344 0
1. deild kvenna:
KR-Grindavik.................61^2
Valur........6 6 0 0 158-110 12
KR...........6 6 0 0 159-129 12
FH...........6 4 0 2 157-138 8
Stjaman......6 3 0 3 130-126 6
Víkingur.....6 3 0 3 160-165 6
KA...........6 2 0 4 134-142 4
Grótta.......6 2 0 4 128-141 4
UBK..........6 1 0 5 125-153 2
ÍBV.........5 1 0 4 102-121 2
Fram........5 1 0 4 104-132 2
Markahæstir:
Hans Guðmundsson, UBK......42/9
Alfreð Gíslason, KR........41/7
Ámi Friðleifsson, Vík......39/8
Valdimar Grímsson, Val.....38/6
Páll Ólafsson, KR..........35/0
Sigurður Gunnarsson, ÍBV...33/6
Bjarki Sigurðsson, Vík.....32/1
Sigurpáll Aðalsteinss, KA..32/18
Óskar Ármannsson, FH.......31/18
Sigurður Sveinsson, Val....30/6
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988.
33
:plp|
• Alfreð Gíslason brýtur sér leiö framhjá þeim Sigurði Ragnarssyni og Karli Þráinssyni og skorar eitt níu marka sinna fyrir KR
í gærkvöldi. DV-mynd Brynjar Gauti
(P)Alli með 19
- Páll og Alfreö afgreiddu Víkinga, 31-26
Páll Ólafsson og Alfreð Gíslason voru
mjög atkvæðamiklir í liði KR í gærkvöldi
er vesturbæjarliðið vann stóran sigur á
Víkingum í 1. deildinni í handknattleik.
KR sigraði, 31-26, og þeir Páll og Alfreð
skoruðu 19 af mörkum KR. Staðan í leik-
hléi var 16-15, KR í vil.
Víkingar mættu til leiks án tveggja lyk-
ilmanna. Guðmundur Guðmundsson er
meiddur á olnboga og getur ekki æft í
nokkra daga, og varnarmaðurinn sterki,
Einar Jóhannesson, er erlendis og það
munar um minna fyrir Víkinga. Það kom
berlega í ljós í leiknum í gærkvöldi.
Gangur leiksins
Fyrri hálfleikur var mjög jafn en mest
náðu KR-ingar þriggja marka forskoti.
Eitt mark skildi liðin að í leikhléi en
KR-ingar komust fljótlega í 20-16 í síðari
hálfleik. Víkingar minnkuðu síðan mun-
inn í 25-23 eftir að KR haföi komist í
25-20. Víkingar gerðu síðan mörg mistök
í síðari hluta seinni hálfleiks og sigur
KR var aldrei í nokkurri hættu.
Páll og Alfreð skoruðu 19 mörk
Páll og Alfreð voru bókstaflega allt í
öllu hjá KR. Þessir tveir bera Uðið aiger-
lega uppi og aðrir leikmenn falla alveg í
skuggann. Páll skoraði 10 mörk og Alfreð
9. Annars virðist KR-liðinu skorta nokk-
uð á til að teljast líklegt til að vinna ís-
landsmótið að þessu sinni. Allavega
verður það að leika mun betur í næstu
leikjum en í gærkvöldi.
Víkingar verða
að leika varnarleik
Víkingar verða að fara að leika vamar-
leik ef þeir ætla að fá stig í deildinni í
næstu leikjum. í gærkvöldi fékk liðið á
sig 30 mörk eða meira í annað skiptið í
röð. Annars geta Víkingar þokkalega viö
leik sinn unað, það var mjög slæmt fyrir
liðið að missa Guðmund og Einar, og
ekki bætti úr skák að Bjarki Sigurðsson
náði sér engan veginn á strik. Þeir Bjarki
og Guðmundur skomðu sem kunnugt er
18 mörk í síðasta leik Víkings. Þá verður
ékki Utið framhjá þeirri staðreynd að
dómarar leiksins vom Víkingum óhag-
stæðir, en það réð ekki úrshtum. Ámi
Friðleifsson lék vel og var bestur Vík-
inga.
Mörk KR: Páll Ólafsson 10, Alfreö
Gíslason 9/1, Stefán Kristjánsson 5, Konr-
áð Olavsson 3, Jóhannes Stefánsson 2,
Sigurður Sveinsson 1, Guðmundur Al-
bertsson 1.
Mörk Víkings: Ámi Friðleifsson 1Ó/4,
Siggeir Magnússon 6, Eiríkur Benónýs-
son 3, Karl Þráinsson 3, Bjarki Sigurðs-
son 3, Sigurður Ragnarsson 1.
Víkingar vom einum færri í 16 mínútur
en KR-ingar í tíu. Leikinn dæmdu Rögn-
vald Erlingsson og Gunnar Kjartansson
og hafa dæmt betur.
-SK
_________________íþróttir
ÍR-ingar héldu
haus í lokin
- og unnu KR sanngjamt, 59-58
Með því að halda boltanum síðustu
45 sekúndurnar tókst ÍR-ingum að
innbýrða nauman en sanngjarnan
sigur á KR-ingum í Hagaskólanum í
gærkvöldi. Lokatölur urðu 59-58
Breiðhyitingum í vil en þeir höfðu
forystu allan tímann ef undanskildar
em upphafsmínútumar þegar KR
komst í 5-0. Þá meiddist Birgir Mika-
elsson og hvarf af leikvelli, ÍR skor-
aði 13 stig í röð á meðan KR-ingar
voru að jafna sig og þau gerðu útslag-
ið þegar upp var staðið.
Staðan í hálfleik var 36-30 og for-
ystan var 7-11 stig þar til á lokamín-
útunum að KR-ingar gerðu sér loks-
ins grein fyrir því að þeir væru að
tapa leiknum og fóru að beijast.
Leikur þeirra var í molum mestallan
tímann og ívar Webster hélt þeim á
floti í sókn og vörn þótt honum væru
oft sjálfum mislagðar hendur. Jó-
hannes Kristbjömsson tók viö sér
undir lokin en þá var það of seint.
ÍR-ingar náðu forystu sinni með
krafti og baráttu og þeir Sturla og
Björn fóru á kostum í fyrri hálfleikn-
um, skoruðu 24 af fyrstu 25 stigum
liðsins en höíðu hægt um sig eftir
það. Sturla var þó óhemjudijúgur í
vöm allan tímann og dreif liöið
áfram og það voru samheldnin og
baráttugleðin sem vom gmnnurinn
að sigri ÍR-inga.
Stig KR: ívar Webster 23, Ólafur
Guðmundsson 12, Jóhannes Kristj-
ánsson 11, Láms Árnason 5, Lárus
Valgarðsson 4, Gauti Gunnarsson 3.
Stig ÍR: Sturía Örlygsson 16, Björn
Steffensen 13, Jón Örn Guðmunds-
son 10, Jóhannes Sveinsson 7, Bragi
Reynisson 6, Ragnar Torfason 4, Karl
Guðlaugssón 3.
Leifur Garðarsson og Gunnar Val-
geirsson dæmdu leikinn mjög vel.
-VS
ÍBK stakkaf
- og sigraöi Tindastól, 99-64
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Enn einu sinni náðum við góðum
kafla í síðari hálfleik. Við komum vel
undirbúnir til leiks eftir að hafa tap-
að fyrir Tindastól í síðustu umferð,"
sagði Jón Kr. Gíslason, fyrirliði ÍBK,
eftir að lið hans hafði unnið Sauð-
krækingana, 99-64, í gærkvöldi.
Staðan í hálfleik var 49-14, heima-
mönnum í hag.
Fyrri hálfleikur var mjög slakur
hjá báðum liðum, sérstaklega Keíl-
víkingum, þar sem varnarleikur
þeirra var í molum. Úrshtin réðust á
fimm mínútna kafla í byrjun síðari
hálfleiks, þar sem Keflvíkingar náðu
20 stiga forskoti, sem þeir síðan
bættu enn frekar við. Bestir þeirra
vom Guðjón og Jón Kr., og skárstir
í liði gestanna voru Valur og Eyjólfur
sem þó hafa oft leikið betur.
Stig ÍBK: Jón Kr. Gíslason 23, Guð-
jón Skúlason 22, Sigurður Ingimund- ,.
arson 17, Magnús Guðfinnsson 8,
Albert Óskarsson 7, Axel Nikulásson
7, Nökkvi Jónsson 6, Falur Harðar-
son 5, Einar Einarsson 2, Gestur
Gylfason 2.
Stig Tindastóls: Valur Ingimundar-
son 20, Eyjólfur Sverrisson 17, Sverr-
ir SverrisSon 13, Björn Sigtryggsson
10, Ágúst Kárason 2, Guðbrandur
Stefánsson 2.
Dómarar. vom Jón Otti Ólafsson
og Jón Bender og dæmdu mjög vel.
,t0
JP
Sala getraunaseðla lokar kl. 14:45 á laugardögum
47. LEIKVIKA - 26. NÓV. 1988 1 X 2
leikur 1. Charlton - Nott.For.
leikur 2. Coventry - AstonVilla
leikur 3. Derby - Arsenal
leikur 4. Middlesbro • Sheff.Wed.
leikur 5. Norwich - Luton
leikur 6. Shouth.ton - Millwall
leikur 7. Tottenham - Q.P.R.
leikur 8. West Ham - Everton
leikur 9. Blackburn - Portsmouth
leikur 10. Leeds - Stoke
leikur 11. Leicester - Bradford
leikur 12. W.B.A. - Crystal Palace
Símsvari hjá getraunum eftlr kl. 17:00 á laugardögum er 84590 og 84464.
MUNIÐ HÓPLEIKINN