Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1988, Síða 25
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988.
41
Afmæli
Ásmundur Ólafsson
Ásmundur Ólafsson framkvæmda-
stjóri, Jörundarholti 114, Akranesi,
er fimmtugur í dag. Ásmundur er
fæddur á Akranesi og ólst þar upp.
Hann útskrifaðist úr Verslunar-
skóla íslands og verslunarskóla í
London. Ásmundur vann við bók-
hald í Rvík og síðan við Bæjarútgerð
Akraness. Hann var lengi starfs-
maður Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðju Akraness hf. og Sements-
vprksmiðjunnar. Ásmundur hefur
verið framkvæmdastjóri Dvalar-
heimilisins Höfða frá 1981. Hann
hefur starfað í Knattspyrnuráði
Akraness, sjálfstæðisfélaginu Þór
og kiwanisklúbbnum Þyrli. Ás-
mundur kvæntist 16. júlí 1966, Jón-
ínu Ingólfsdóttur, f. 10. apríl 1941,
yfirljósmóður. Foreldrar Jónínu eru
Ingólfur Jónsson og kona hans
Mikkalína M. Alexandersdóttir.
Börn Ásmundar og Jónínu eru
Þórður, f. 28. apríl 1968, og Stefán
Orri, f. 18. mars, d. 13. maí 1977.
Fóstursonur Ásmundar er Ingólfur
Geir Gissurarson, f. 4. desember
1962, íþróttakennari, kvæntur
Margrétu Svafarsdóttur og eiga þau
eina dóttur, Jónínu. Systkini Ás-
mundar eru Þórður, f. 11. október
1931, d. 8. nóvember 1936, Siguröur,
f. 21. september 1933, framkvæmda-
stjóri, Ragnheiður, f. 6. janúar 1935,
húsmóðir og skrifstofumaður, Þórð-
ur Helgi, f. 5. janúar 1937, rannsókn-
armaður, Gunnar, f. 26. nóvember
1945, aðalbókari og Ólafur Grétar,
f. 16. janúar 1948, skrifstofumaður.
Foreldrar Ásmundar eru Ólafur
Frímann Sigurðsson, fyrry. forstjóri
á Akranesi, og kona hans Ólína Ása
Þórðardóttir. Ólafur er sonur Sig-
urðar, formanns á Akranesi, Jó-
hannessonar og konu hans Guðrún-
ar Þórðardóttur, sjómanns á Akra-
nesi, Halldórssonar. Ólína er dóttir
Þórðar, útgerðarmanns á Akranesi,
Ásmundssonar, útvegsbónda á Há-
teigi á Akranesi, Þórðarsonar, b. í
Elínarhöfða á Akranesi, Gíslasonar.
Móðir Ásmundar var Elín Ás-
mundsdóttir, b. í Elínarhöfða, Jörg-
enssonar, b. í Elínarhöfða, Hansson-
ar Klingenbergs, b. á Krossi á Akra-
nesi, ættföður Klingenbergsættar-
innar. Móðir Þórðar var Ólína
Bjarnadóttir, b. á Kjaransstöðum,
Brynjólfssonar, b. á Ytrahólmi,
Teitssonar, vefara í Rvík, Sveins-
sonar. Móðir Ólínar var Helga Ól-
afsdóttir Stephensen, b. og stúdents
í Galtarholti, Björnssonar Stephen-
sen, dómsmálaritara á Esjubergi,
Ólafssonar, stiftamtmanns í Viðey,
Stefánssonar, ættfóður Stephensen-
ættarinnar. Móðir Ólafs Stephensen
var Margrét Jónsdóttir, systir Jóns
Espólín, sýslumanns á Frostastöð-
um. Móðir Helgu var Anna Stefáns-
dóttir Scheving, umboösmanns á
Leirá, Vigfússonar Scheving, sýslu-
manns á Víðivöllum, Hanssonar
Scheving, klausturhaldara á
Möðruvöllum, Lauritzsonar Schev-
ing, sýslumanns á Möðruvöllum,
ættfoður Schevingættarinnar.
Móðir Ólafs Frímanns var Emelía
Þorsteinsdóttir, útvegsbónda á
Grund á Akranesi, Jónssonar, b. á
Ölvaldsstöðum, Runólfssonar. Móð-
ir Þorsteins var Ragnheiður Jó-
hannsdóttir, prests á Hesti, Tómas-
sonar, stúdents og skálds á stóru
Ásgeirsá, Tómassonar. Móðir Ragn-
heiðar var Oddný Jónsdóttir, b. og
umboðsmanns á Melum, Ketilsson-
ar, bróður Magnúsar, sýslumanns á
Skarði. Móðir Jóns var Guðrún
Magnúsdóttir, systir Skúla land-
fógeta. Móðir Emelíu var Ragn-
heiður Þorgrímsdóttir Thorgrims-
sonar, prests á Saurbæ á Hvalfjarð-
arströnd, Guðmundssonar, prests á
Lambastöðum, Þorgrímssonar.
Móðir Þorgríms var Sigríður Hall-
Ásmundur Ólafsson.
dórsdóttir, prests í Hítardal, Finns-
sonar, biskups í Skálholti, Jónsson-
ar. Móðir Ragnheiðar var Ingibjörg
Guömundsdóttir, systir Helga
Thordersen biskups. Ásmundur er
á ferðalagi erlendis.
90 ára 75 ára
Jón Friðriksson,
Hömrum, Reykdælahreppi, Suð-
ur-Þingeyj arsýslu.
Jómundur Einarsson,
Ömólfsdal, Þverárhlíðarhreppi í
Mýrasýslu.
Þuríður Bárðardóttir,
Meltröð 2, Kópavogi.
60 ára
85 ára
Guðmundur Þorbergsson,
Strandgötu 6, SuðurQarðarhreppi,
Vestur-Barðastrandasýslu.
80 ára
Svanhvít Magnusdóttir,
Stigahlíð 30, Reykjavík.
Ingólfur F. Mágnússon,
Melabraut 46, Seltjarnarnesi.
Eiríkur A. Guðjónsson,
Torfnesi, Hlíf, Isafirði.
Aðalbjörg Guðmundsdóttir,
Hlíðarendavegi 6B, Eskifirði
Maríus Jónsson,
Stýrimannastig 13, Reykjavík
Auðbjörg Ámundadóttir,
Fossgerði, Eiöahreppi, Suður-
Múlasýslu.
Elínborg Óladóttir,
Sigtúni 59, Reykjavík.
Hjörtur Guðmundsson,
Litlu-Gröf, Borgarhreppi, Mýra-
sýslu.
Páll Ingimarsson,
Hríshólum 3, Garðabæ.
Eirný Sæmundsdóttir,
Fannafold 145, Reykjavík.
Elin H. Guðmannsdóttir,
Vesturbrún 12, Reykjavík.
Karl Finnbogason,
Tunguvegi 50, Reykjavík. Hann
verður að heiman.
Hrefha Maríasdóttir,
Melgerði 38, Kópavogi.
Erlendur Guðmundsson,
Heiðmörk 62, Hveragerði.
Björn Jóhannesson,
Esjuvöllum 13, Akranesi.
Haukur Bjarni Óskarsson,
Eyjabakka 28, Reykjavík.
50 ára
Tómas Tómasson,
Gyðufelli 12, Reykjavík. '
Einar Werner Ipsen,
Bræðraborgarstíg 24, Reykjavík.
Björg Helgadóttir,
Laufásvegi 31, Reykjavík.
Hrafn Ragnarsson,
Aðalgötu 26, Ólafsfiröi.
Guðbjörg R. Sigmjónsdóttir,
Háteigi 5, Keflavik.
Aðalheiður Ragnarsdóttir,
Vitabraut 11, Hólmavík.
Lija Jóhannesdóttir,
Ásgarði 5, Neskaupstað.
40 ára
Kristján Ragnarsson,
Svínaskálahlíð, Eskifirði.
Hjördís Guðmundsdóttir,
Amartanga 44, Mosfellsbæ.
Sigurður Ingólfsson,
Grenigmnd 8, Kópavogi.
Sigríður Karlsdóttir
Sigríður Karlsdóttir, fyrrv. kaup-
maður, Vorsabæ 17, Reykjavík, varð
sextug í gær. Sigríður er fædd í
Brekku í Sogamýri í Rvík og ólst
upp á Hverfisgötunni og Gríms-
staðaholtinu. Hún vann við verslun-
arstörf og eigin kaupmennsku
1965-1980, lengst við verslunina
Björk og Lúnu í Kópavogi, síðar var
hún með verslunina Heimihsmark-
aðinn í Hafnarfirði ásamt eigin-
manni sínum. Sigrún bjó lengst af á
Álfhólsvegi 57 í Kópavogi en er nú
búsett í Vorsabæ 17 í Rvík. Hún var
félagi í fimleikadeild og skíðadeild
íþróttafélagsins Ármanns á yngri
árum og var kostuð af félaginu til
skíðanáms á ísafirði 1946. Sigrún
var einn af stofnendum Systrafé-
lagsins Iöunnar og Soroptimista-
klúbbs Kópavogs. Hún var varafor-
seti Landssambands soroptimista
1980-1981. Sigríður giftist 23. ágúst
1947 Einari Péturssyni, f. 2. nóvemb-
er 1923, húsasmíðameistara og síðar
kaupmanni. Foreldrar Einars voru
Pétur Sigurðsson, búfræðingur frá
Hjaltastöðum, og kona hans, Guð-
laug Sigmundsdóttir frá Gunnhild-
argerði. Börn Sigríðar og Einars eru
Pétur, f. 4. nóvember 1947, flugmála-
stjóri, Sigríður Björg, f. 21. mars
1952, umsjónarmaður eftirlauna-
sjóðs Sláturfélagsins, og Þórhallur,
f. 12. ágúst 1961, húsasmíðameistari
í Rvík. Systkini Sigríðar eru Harald-
ur, f. 1922, húsasmíðameistari í
Rvík, Guðrún, f. 1924, starfsmaður
Iðnaðarbankans í Hafnarfirði, Þór-
halla, f. 1926, kaupamaður í Kópa-
vogi, Kristín, f. 1932, hótelstýra í
Rvík, Ásgeir, f. 1934, húsasmíða-
meistari í Rvik, Hjördís, f. 1936, ljós-
móðir í Rvík, Fjóla, f. 1937, verslun-
armaður í Rvík og Þórdís, f. 1938,
verslunarmaður í Rvík.
Foreldrar Sigríðar eru Karl Har-
aldur Óskar Þórhallsson, vörubíl-
stjóri í Rvík, og kona hans, Guðlaug
Sigríður Þorsteinsdóttir. Karl var
sonur Þórhalls, verkamanns i Rvík,
Þórhallssonar, b. í Tungu í Hörðu-
dal, Jónssonar, b. í Hlíð í Hörðudal,
Ormssonar, b. í Fremri-Langey, Sig-
urðssonar, ættföður Ormsættarinn-
ar, föður Jóns, langafa Jónasar, föð-
ur Snæbjarnar, vegamálastjóra.
Guðlaug var dóttir Þorsteins, b. í
Snotru í Landeyjum, bróður Sigur-
þórs, afa Ragnheiðar Helgu Þórar-
insdóttur borgarminjavarðar. Þor-
steinn var sonur Sigurðar, b. í
Snotru, Ólafssonar, b. í Múlakoti í
Fljótshlíð, Árnasonar, föður Jakobs,
langafa Sveins Þorgrímssonar, stað-
arverkfræðings Blönduvirkjunar.
Móðir Sigurðar var Þórunn ljós-
móðir, systir Þórunnar, langömmu
Steinunnar, langömmu Jóhönnu
Sigurðardótturfélagsmálaráðherra.
Þórunn var dóttir Þorsteins, b. og
smiðs á Vatnsskarðshólum í Mýr-
dal, Eyjólfssonar, og konu hans,
Karítasar ljósmóður, stjúpdóttir
Jóns Steingrímssonar „eldprests",
Jónsdóttur, klausturhaldara á
Reynistað, Vigfússonar. Móðir Jóns
var Helga Jónsdóttir, biskups á Hól-
Sigríöur Karlsdóttir.
um, Vigfússonar, og konu hans,
Guðríðar Þóröardóttur, prests í Hít-
ardal, Jónssonar. Móöir Guðríðar
var Helga Árnadóttir, lögmanns á
Leirá, Oddssonar, biskups í Skál-
holti, Einarssonar. Móðir Karítasar
var Þórunn Hannesdóttir, Scheving,
sýslumanns á Munkaþverá, Lau-
ritzsonar Scheving, sýslumanns á
Möðruvöllum, ættföður Scheving-
ættarinnar. Móðir Þórunnar var
Jórunn Steinsdóttir, biskups á Hól-
um, Jónssonar. Móðir Þorsteins Sig-
urðssonar var Guörún Þorsteins-
dóttir, b. í Hlíðarendakoti í Fljóts-
hlíð, Einarssonar, og konu hans,
Helgu Erlingsdóttur, móður Erl-
ings, föður Þorsteins skálds. Sigríð-
ur tekur á móti gestum að heimili
sínu, Vorsabæ 17, Rvík, eftir hádegi
sunnudaginn 27. nóvember.
Njáll Þórðarson
Njáll Þórðarson, Móabarði 34, Hafn-
arfirði, varð áttræður í gær. Njáll
er fæddur á Akranesi og lauk prófi
úr Stýrimannaskólanum 1930. Hann
var skipstjóri á fiskiskipum á Akra-
nesi til 1958 er hann gerðist fram-
kvæmdastjóri Ferskfiskeftirlitsins
1958-1968. Njáll var deildarstjóri
Fiskmats ríkisins er Ferskfiskeftlit-
ið var sameinað því 1968 og var það
til 1985. Hann var í stjórn og formað-
ur skipstjórafélagsins Hafþórs á
Akranesi og fékk sjómannadagsorð-
una á Akranesi 1978. Njáll var skip-
stjóri á Fylki er hann bjargaði
áhöfninni á Birni II. í aftakaveðri
11. febrúar 1944. Njáll giftist 22. des-
ember 1931 Helgu Sigurðardóttiy,
f. 7. nóvember 1911. Foreldrar henn-
ar eru Sigurður Ólafsson, kennari í
Hafnarfirði, og kona hans, Steinunn
Ólafsdóttir. Börn Njáls og Helgu eru
Sigurbjörg, f. 21. september 1932,
sjúkraliði í Hafnarfirði og á fjögur
börn; Sigurður Njáll, f. 4. apríl 1939,
framleiðslustjóri í Hafnarflrði,
kvæntur Guðrúnu H. Ágústsdóttur
bankaritara og eiga þau þijú börn;
Siguröur Gunnar, f. 4. apríl 1939,
skipstjóri í Hafnarfirði, kvæntur
Sigurleif Siguröardóttur, verslunar-
manni og eiga þau fjögur börn;
Steinunn Erla, f. 2. júlí 1944, gift
Hans Bjarna Guðmundssyni, húsa-
Njáll Þórðarson.
smið í Rvík, og eiga þau þrjú börn
og Elín Helga, f. 5. nóvember 1946,
aðalféhirðir á Skagaströnd, gift
Magnúsi Ólafssyni verkstjóra og
eigaþauþrjúbörn.
Foreldrar Njáls voru Þórður Þórð-
arsson, vitavörður á Siglunesi, og
Sigurbjörg Jónsdóttir. Þórður var
sonur Þórðar Brandssonar og Þóru
Magnúsdóttur, b. á Kálfsstöðum í
Vestur-Landeyjum, Guðlaugssonar.
Sigurbjörg var dóttir Jóns Þorkels-
sonar, b. í Flekkuvík á Vatnsleysu-
strönd, og konu hans, Guðrúnar
Eyjólfsdóttur. Njáll verður staddur
á Hótel Absalon í Kaupmannahöfn.
Hlmæli til
afmælisbarna
Blaðið hveturafmælisbörn
og aðstandendur þeirra til
að senda því myndir og
upplýsingar um frændgarð
og starfssögu þeirra. Þessar
upplýsingar þurfa að berast
í síðasta lagi þremur dögum
fyrirafmælið.
Munið að senda
okkur myndir