Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1988, Síða 26
42
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988.
Andlát
Eyþór Ómar Þórhallsson tannlæknir
varð bráðkvaddur á heimili sínu
þann 23. nóvember.
Margrét Jónsdóttir, Samtúni 14,
Reykjavík, lést á Landakotsspítala
flmmtudaginn 24. nóvember.
Jarðarfarir
Þórdís Sigurgeirsdóttir, frá Svarfhóli
í Miklaholtshreppi, verður jarðsung-
in frá Garðakirkju föstudaginn 24.
nóvember.
Þórunn Böðvarsdóttir, frá Butru í
Fljótshlíð, verður jarðsungin frá þor-
lákskirkju í Þorlákshöfn laugardag-
inn 26. nóvember kl. 15.
Guðný Ingibjörg Sigvaldadóttir,
Sandhólum, Tjömesi, sem andaðist í
sjúkrahúsi Húsavíkur þann 21. nóv-
ember, verður jarðsungin frá Húsa-
víkurkirkju laugardaginn 26. nóv-
ember kl. 10.30.
Minningarathöfn um Kristin
Rúnarsson og Þorstein Guðjónsson,
er létust af slysförum 18. október í
Nepal, fer fram í Hallgrímskirkju
laugardaginn 26. nóvember kl. 13.30.
Tónleikar
Vísnalög í Norræna
húsinu
Laugardaginn 26. nóvember kl. 16 munu
Þorvaldur Öm Ámason og Ragnheiður
Jónsdóttir syngja og leika á gítar nokkur
visnalög í kjallara Norræna hússins en
þar stendur yfir málverkasýning Björg-
vins Björgvinssonar. Einnig munu með-
limir úr söngfélaginu Samstillingu taka
undir með þeim Þorvaldi og Heiðu. Mál-
verkasýningunni lýkur sunnudagskvöld-
ið 27. nóv. nk. og er opin um helgina kl.
14-22.
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Aðrir tónleikar í ljóðatónleikaröð ;
Gerðubergi vom haldnir sL mánudag. Á
þeim tónleikum söng Rannveig Braga-
dóttir lög eftir Haydn, Mozart, Hugo
Wolf, Mahler og de Falla við undirleik
Jónasar Ingimundarsonar. Húsfyllir var
og að þessu sinni verður orðið við áskor-
unum um að endurtaka ljóðatónleikana
og verða þeir endurteknir nk. sunnudag
27. nóvember kl. 17. Forsala aðgöngumiða
er í Gerðubergi.
Tilkyimingar
Kringlan komin í jólafötin
í Kringlunni er nú verið að setja upp jóla-
skreytingar í göngugötum og verslunum
en einnig verður sérstök jólalýsing á bíla-
stæðum hússins. Jólahátíðin hefst laug-
ardaginn 26. nóv. kl. 11 er Ástríður Thor-
arensen borgarstjórafrú kveikir á jólatré
hússins og veitir viðtöku Qárframlagi til
Bamaspítala Hringsins. Skólakór Kárs-
nesskóla syngur og ýmislegt fleira verður
til skemmtunnar.
Mælskukeppni í Kópavogi
Mælsku- og ræðukeppni 3. ráðs ITC á
íslandi verður haldin í Hamraborg 5, 3.
hæð (fyrir ofan Vedu), sunnudaginn 27.
nóvember kl. 14. ITC deildin Ösp leggur
fram tillögu um að allar hvalveiðar til
vísinda verði leyfðar hér við land. Með-
mælendur em félagskonur í ITC deild-
inni Ösp frá Akranesi. Kaffiveitingar
verða í hléi. Allir velkomnir.
Aðventu fagnað
í Neskirkju
Eins og venja hefur verið undanfarin ár
verður meira umleikis í kirkjustarfinu á
sunnudaginn kemur, þann fyrsta í að-
ventu, en endranær. Bamaguðsþjónusta
hefst kl. 11 og setja söngvar, sögur,
fræðsla og helgileikur svip sinn á hana.
Kl. 14 hefst fjölskylduguðsþjónusta með
þátttöku um 100 fermingarbama. Kl. 17
hefst síðan samvera í kirkjunni þar sem
Sigmundur Magnússon læknir flytur
hugleiöingu. Kór Melaskóla syngur undir
stjóm Helgu Gunnarsdóttur. Heimir
Wíum syngur einsöng og Lin Wei og
Gary Mc Bretney leika saman á fiðlu og
selló. Auk þess verður almennur söngur
og organisti kirHjunnar leikur á orgelið.
Neskirkja-félags-
starf aldraðra
Samverustund á morgun, laugardag, kl.
15. Lesið úr jólabókum. Böm og unghng-
ar Tónlistarskóla Seltjamamess flytja
tónlist.
Húnvetningafélagið
Spilað á laugardag í Húnabúð, Skeifunni
17. Allir velkomnir.
Átthagafélag Strandamanna
í Reykjavík
verður með spilakvöld og dansleik í Dom-
us Medica laugardaginn 26. nóvember kl.
21.
Gestur að austan
Litla svið Þjóðleikhússins:
JAPANSKIR LEIKDANSAR
Dansari: Yoh Izumo
Kynnir: Haukur Gunnarsson
Aðstoðarmaður Yoh Izumo: Sakahito
Ishikawa
Yoh Izumo er japönsk dansmær
sem komin er hingað til lands til
þess að kynna okkur foma dans-
hefð landa sinna og var fyrsta sýn-
ingin af þremur á Litla sviði Þjóð-
leikhússins í gærkvöldi.
Sýning hennar er að því leyti frá-
brugðin öðram shkum sem ég hef
séð að miklu nákvæmari og ítar-
legri kynning en venjulega fer fram
á undan dansatriðunum. Þá verður
Leiklist
Auður Eydal
líka auðvelt fyrir áhorfandann að
fylgjast með fíngerðum hreyflng-
um og látbragði dansarans og skilja
um leið merkingu og innihald sem
annars færi vísast fyrir ofan garð
og neðan hjá venjulegum græningj-
um. Þeir sem ekki eru innvígðir í
aldagamlar heföir þessa hstforms
læra margt nýtt á sýningu Yoh Iz-
umo og verða án vafa færari um
að njóta japanskra dansa hér eftir.
HauKur J. Gunnarsson er kynnir
og flytur áhorfendur greinargóðar
skýringar á þægilegan og afslapp-
aðan hátt. Hann sagði sögu dans-
hstar í Japan og gerði grein fyrir
mismunandi dansformum.
Hann er þaulkunnugur japönsku
leikhúsi og menningu eftir nám og
dvöl í landinu þar sem hann var
m.a. nemandi Yoh Izumo.
Skemmtilegast og nýstárlegast
var að fylgjast með því þegar hsta-
konan sminkaði sig á sviðinu og
breytti sér úr ofurfínlegri dáns-
meyju í ógnvekjandi og bosmamik-
inn Samurai-stríðsmann í síðari
hluta dagskrárinnar.
Haukur sat hjá henni á meðan
og bað áhorfendur að horfa á Yoh
Izumo en hlusta á sig. Hann lýsti
svo stig af stigi þeim hefðum sem
liggja að baki svo að segja hverjum
einasta andlitsdrætti þar sem
ákveðnir litir eru notaðir til að
túlka mismunandi eigindir og eðli
persónanna.
Með hjálp aðstoöarmanns klædd-
ist svo Yoh margbrotnum og fyrir-
ferðarmiklum búningi og sté síðan
dans stríðsmannsins sem lýsir í
senn hetjuskap hans og hreysti.
Hreyfmgamar eru kröftugar og í
thburðum leggur dansarinn
áherslu á fyrirferö og kraft.
Fyrri dansamir á efnisskránni
voru af öðrum toga og fínlegri. í
fyrsta dansinum, Edo Miyage, sem
þýðir svipmyndir eða minningar
frá Tokýo, var auðvelt eftir skýr-
ingar Hauks að fylgjast með sjö
persónum sem lýst er í dansinum.
Dansinn er mjög leikrænn og lát-
bragð notað til þess að aðgreina og
túlka m.a. gleðikonu og götudans-
ara, blindan nuddara og guð barn-
anna.
Enn einn dansinn var byggður á
htlu ævintýri, ævafornu, um konu
sem ræðst gegn sjálfum guði hafs-
ins, Drekakonunginum, og fórnar
lífi sínu fyrir þann sem hún elskar.
Japönsk tónhst, sungin og leikin,
hljómaði með dönsunum.
AE
Yoh Izumo.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardag-
inn 26. nóvember. Lagt verður af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10. Nú er svartasta
skammdegið og bæjarrölt Hana nú lýsir
það upp. Samvera, súrefni og hreyfing í
góðum félagsskap. Nýlagað molakaffi.
Tapað fundið
Lyklakippa tapaðist
Rauð lyklakippa tapaðist sl. þriðjudag í
Kringlunni eða nágrenni hennar, Þver-
holti eða Rekagranda. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 27022.
Gullhringur tapaðist
Gullhringur með rauðum sporöskjulaga
steini tapaðist laugardaginn 12. nóvemb-
er, annaðhvort á Laugavegi eða í Kringl-
unni. Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 35784 eða 21431.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Þórsmörk - aðventuferð 25.-27. nóv.
Gist í Skagfjörðsskála í Langadal en þar
er aðstaða fyrir ferðafólk sú besta sem
gerist í óbyggðum. Stór setustofa er fyrir
kvöldvökur, stúkað svefnloft, tvö eldhús,
og miðstöðvarhitun svo að inni er alltaf
hlýtt og notalegt. Fararstjóri skipuleggur
gönguferöir. Kvöldvaka og jólaglögg
verður á laugardag. Ferðalög í íslensku
skammdegi eru öðruvísi. Missið ekki af
þessari ferð. Fararstjóri: Kristján Sig-
urðsson. Brottför kl. 20 í kvöld. Uppl. og
farmiðas. á skrifstofu FÍ, Öldugötu 3.
Dagsferð sunnudag 27. nóv.
Kl. 13 Vogar - Vogastapi - Njarðvik.
Ekið að Vogum á Vatnsleysuströnd og
gengið þaðan með ströndinni til Njarð-
víkur. Létt og þægileg gönguleið um lág-
lendi. Verð kr. 600. Brottfór frá Umferð-
armiðstöðinni, austan megin. Farmiðar
við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorð-
inna. Áramótaferð FÍ - farmiðar. Þeir
sem eiga frátekna miða í áramótaferðina
verða að greiða þá fyrir 10. des nk. ann-
ars seldir öðrum.
Útivistarferðir
Sunnudagsferð 27. nóv. kl. 13
Brimnes-Hofsvík. Gengið frá Saltvík um
óvenjulega leið undir hömrum Brimness
og í Hofsvík. Létt og skemmtileg strand-
ganga. Verð 800 kr., fritt f. börn m. full-
orðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu.
Áramótaferð í Þórsmörk, 4 dagar.
Brottför 30. des. kl. 8. Gist í Útivistarskál-
unum i Básum. Fjölbreytt dagskrá með
gönguferðum á daginn, kvöldvökum,
áramótabrennu, álfadansi o.fl. Pantið
strax. Uppl. og farmiðar á skrifstofunni,
Grófmni 1, símar 14606 og 23732 (opið kl.
9.30-17.30).
Fundir
Félag áhugamanna um
heimspeki
Laugardaginn 26. nóvember kl. 14 býður
Félag áhugamanna um bókmenntir til
nóvemberfundar í stofu 101 í Odda, Há-,
skóla íslands. Fundurinn verður að þessu
sinni helgaður bandarísku Beat-kynslóö-
inni en svo voru kallaðir nokkrir banda-
rískir rithöfundar sem skrifuðu verk sín
á sjötta og sjöunda áratugnum: Jack
Kerouac, Allen Ginsberg, William Burro-
ughs og fleiri. Þessi fundur er haldinn í
tilefni af útkomu bókarinnar On the Road
eftir Kerouac í íslenskri þýðingu Ólafs
Gunnarssonar rithöfundar og ber hún
heitið Á vegum úti. Á fundinum mun
Ólafur lesa úr þýðingu sinni og Einar
Kárason rithöfundur og Gestur Guð-
mundsson félagsfræðingur munu flytja
erindi um hóp þennan. Erindi Einars
nefnist Vegir Beat-skáldanna en erindi
Gests Af hveyju Beat-kynslóð? Auk þess
verður lesið ljóð eftir Allen Ginsberg í
íslenskri þýðingu Dags Sigurðarsonar.
Fundurinn er öllum opirrn, félagsmönn-
um sem utanfélagsmönnum, og er að-
gangur ókeypis.
Aðalfundur Landverndar
verður haldinn í ráðstefnusal Hótel Sögu
nk. laugardag og sunnudag 26. og 27.
nóvember. Fundurinn hefst kl. 10 f.h. á
laugardag á venjulegum aðalfundarstörf-
um. í tengslum við aðalfundinn verður
haldin ráðstefna um mengun og mengun-
arrannsóknir á íslandi. Ráðstefnan er
öllum opin, leikum og lærðum, og hefst
báða dagana kl. 13.30. Flutt verða 12 fram-
söguerindi um þetta efni og gefst ráð-
stefnugestum kostur á að spyrja fram-
sögumenn nánar um mengun og rann-
sóknir og taka þátt í umræðum.
Stofnun Félags eldri
borgara í Kópavogi
Að undanfömu hefur hópur eldri borg-
ara í Kópavogi unnið að undirbúningi
stofnunar hagsmunafélags aldraðra í
Kópavogi, 60 ára og eldri. Stofnfundur
félagsins verður laugardaginn 26. nóv.
kl. 14 í Félagsheimili Kópavogs á 2. hæð.
Þar mun undirbúningsnefndin leggja
fram tillögu að stofnun slíks félags og
einnig drög að samþykktum fyrir það. A
fundinum verða flutt ávörp og umræður
munu fara fram um málefni aldraðra.
Meiming
Bergsteinn Sigurðsson, formaður Féiags
eldri borgara í Reykjavík og nágrenni,
flytur ávarp. Undirbúningsnefndin vænt-
ir þess að sem flestir Kópavogsbúar 60
ára og eldri komi á fundinn og taki þátt
í stofnun þessara samtaka.
Ráðstefnur
Ráðstefna um frjálshyggju á
íslandi
Tímaritið Frelsið efnir til ráðstefnu um
fijálshyggju í íslenskum stjómmálum á
Hótel Sögu (hliðarsal Súlnasalar) laugar-
daginn 26. nóvember nk. Heiti ráðstefn-
unnar er: Geta frjálshyggjumenn snúið
vöm í sókn? Fjallaö verður um sögu,
stööu og framtíð frjálshyggju á íslandi. Á
ráðstefnunni verða flutt þrjú erindi: dr.
Hannes H. Gissurarson stjórnmálafræð-
ingur: Hvað er fijálshyggja? Guðmundur
Magnússon, ritstjóri Frelsisins: Fijáls-
hyggjan og stjórnmálin. Hreinn Loftsson
lögfræðingur: Hefur frjálshyggjan bmgð-
ist? Að erindum loknum verður kafflhlé
og síðan fijálsar umræður. Fundarstjóri
verður Gunnar Jóhann Birgisson lög-
fræðingur. Allir áhugamenn um ftjáls-
hyggju og stjómmál em velkomrtir.
Leikhús
Þjóðleikhúsið
sýnir Ævintýri Hoffmanns í kvöld Og
annaö kvöld kl. 20.
Leikritið Stór og smár veröur sýnt á
sunnudagskvöld kl. 20.
Á litla sviðinu, Lindargötu 7, verður
sýndur japanskur gestaleikur í kvöld
og annað kvöld kl. 20.30. í íslensku óper-
unni, Gamla bíói, verður síðasta sýning
á Hvar er hamarinn? á sunnudag kl. 15.
Leikhúsið í Djúpinu
sýnir Óvininn eftir Hörð Torfason á
sunnudags-, mánudags-, þriðjudags- og
miðvikudagskvöld kl. 21. Sýnt í Djúpinu,
Hafnarstræti 15. Miðapantanir í síma
13340.
Leikfélag Selfoss
sýnir leikritið Máfinn í allra síðasta sinn
í kvöld, 25. nóvember, kl. 20.30 í leik-
húsinu á Selfossi.
Leikfélag Keflavíkur
sýnir revíuna Emm við svona? eftir
Huldu Ólafsdóttur á föstudag, laugardag
og sunnudag í veitingahúsinu Glóðinni í
Keflavík.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Hamlet í kvöld kl. 20 og er það
næstsíðasta sýning. Sýningar á Sveita-
sinfóniu verða á laugardags- og sunnu-
dagskvöld kl. 20.30.
Sjónvarpið - Kona ein:
Ljósbrot
KONA EIN
Klipping, handrit og leikstjórn: Lárus
Ýmir Óskarsson.
Kvikmyndun: Karl Óskarsson.
Tónlist: Hilmar örn Hilmarsson.
Leikari: Guörún S. Gisladóttir.
Kona ein er sú kvikmynd sem fékk
verölaun dómnefndar er fjallaði
um þrjár stuttar kvikmyndir á
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
listahátíö í sumar og voru geröar
eftir verðlaunahandritum sem val-
in höfðu verið á kvikmyndahátíð
árið áður. Hinar tvær voru Feröa-
lag" Fríðu og Símon Pétur fuhu
nafni, en áhorfendur á frumsýn-
ingu völdu þá mynd sem bestu
myndina.
Það þarf engan að undra aö
áhorfendur ög dómnefnd séu ekki
á sama máh, shkt er algengara en
aö allir séu sammála um gæöi einn-
ar kvikmyndar. Nú er það svo að
Símon Pétur fullu nafni og Kona
ein eru mjög óhkar kvikmyndir.
Önnur segir okkur sögu í töluðu
máh en hin eingöngu meö mynda-
véhnni.
Kona ein segir allt í myndmáh
og leik eina leikarans, Guðrúnar
S. Gísladóttur. Þrisvar sjáum við
konu koma heim og leggjast fyrir.
Áhorfandinn á ekki að eiga í nein-
um erfiðleikum meö aö ímynda sér
sálarástand konunnar í hvert sinn.
Hegðun hennar er skýr, ánægja,
leiði og þreyta er það sem mynd-
máhð skýrir.
Lárus Ýmir Óskarsson hefur
sannað þaö með kvikmyndum sín-
um, hvort sem þær eru fyrir sjón-
varp eða kvikmyndahús, að hann
á einkar auðvelt með að tjá sig inn-
an kvikmyndaformsins og þegar
hann hefur hstamann á borð við
Karl Óskarsson bak við mynda-
tökuvéhna þá þarf engum að koma
á óvart sterkt myndmál Konu einn-
ar.
Eftir að hafa séð þær þrjár kvik-
myndir sem gerðar voru eftir verð-
launahandritunum er ég ekki í vafa
um réttmæti dómnefndarinnar.
Kona ein er kvikmynd í besta skiln-
ingi þess orð. Aht sem gerist er í
myndmáh, orð eru óþörf. Lýsing,
kvikmyndun, leikstjórn og leikur
sameinást um að gera myndina eft-
irminnilega. -HK