Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1988, Page 29
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988.
45'
Silvia drottning dvaldi heima i Svi-
þjófl og stundaði veiðar á meðan
/kóngurinn svaf yfir sig á ólympiu-
leikunum i Seoul.
Kóngurinn
svaf yfir sig
Silvía Svíadrottning kaus að vera
heima þegar ólympíuleikarnir voru
haldnir í Seoul. Bóndi hennar fór því
einsamall að fylgjast með leikunum.
Sænskir, sem gjaman eru taldir
nokkuð ,,hysterískir“, töldu að dvöl-
in syðra gæti verið hættuleg fyrir
hana - betra að vera heima í örygg-
inu í Svíþjóð. Silvía tók það bara ró-
lega á meðan og stundaði veiðar af
miklum skörungsskap.
En það var mikið á drottninguna
lagt þó hún væri bara heima. Hún
mátti þola að lesa um það í blöðunum
að Svíar hefðu misst af því að fá að
halda vetrarólympíuleikana vegna
þess að kóngurinn hefði sofið yfir
sig. Skýringin á óheppni Svía er þó
vafalaust ekki svona einfold. En samt
finnst almenningi í Svíþjóð að þetta
heföi nú gengið eitthvað betur ef
drottningin hefði verið með.
Sonny ræðst
á Cher
Sonny Bono heldur því fram að
Cher þyki enn vænt um hann. Að
minnsta kosti er hún alltaf að tala
um hann.
„Hvemig er öðravísi hægt að skýra
þessi fúkyrði sem hún viðhefur um
mig í tima og ótíma?“ spyr Sonny
sem nú er orðinn borgarstjóri í bæn-
um Palm Springs í Kaliforníu.
Sonny segir að sér finnist það und-
arlegt að hún skuli alltaf vera að
tönnlast á gömlum ágreiningsmálum
þeirra og hjónavandræðum þegar
henni gengur svona ljómandi vel.
„Það er engu líkara en hún vilji lifa
í fortíðinni. Þetta raus hennar særir
mig að vísu en mér finnst það heill-
andi. Það sýnir best hvaða áhrif ég
hef enn á hana,“ segir borgarstjór-
inn.
Skömmu áður en Cher fékk óskar-
inn fyrir framgang sinn í kvikmynd-
inni Moonstrack sagði hún í viðtali
að Sonny hefði verið svín og þar fram
eftir götunum. Hann sé áreiðanlega
góður eiginmaður núna en hafi verið
afleitur þegar þau vora gift.
Sonny er nú kvæntur fjórðu konu
sinni, 26 ára fyrrverandi sýningar-
stúlku. En hann mun aldrei hafa
gleymt því áfalli sem missir Cher var
honum.
ekki annafl að sjá en vel færi á með
þeim - þrátt fyrir öll fúkyrðin.
Sviðsljós
Síðastliðinn sunnudag opnaði Norræna ferðaskrifstofan i Reykjavik sem hefur að meginmarkmiði að hafa á hendi
aðalumboð fyrir færeysku farþega- og bilferjuna Norröna. Ferðaskrifstofan er i eigu Austfars hf. á Seyðisfirði,
ýmissa einstaklinga á landinu og Pf. Smyril Line í Færeyjum. Skrifstofan hefur aðsetur að Laugavegi 3,3ju hæð.
Á myndinni skála aðstandendur fyrir opnuninni - f.v. Þorvaldur Jóhannsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, Óli Hamm-
er frá Smyril Line, Emil Kristjánsson, framkvæmdastjóri Norrænu ferðaskrifstofunnar, Jónas Hallgrimsson, for-
stjóri Austfars og Tomas Arraboe, stjórnarformaður Smyril Line. DV-mynd GVA
Hver er þessi maður?
Oriol með Robert Mitchum... Oriol með Gregory Peck og að lokum Oriel ásamt Phil Collins.
Margir eiga þá ósk heitasta að
verða frægir og fá mynd af sér í fjöl-
miðlum. Sagt er að helsta ráðið sé
að sjást á réttum stöðum með réttu
fólki. Þetta veit Oriol Rangel sem allt
frá árinu 1972 hefur mætt við af-
hendingu óskarsverðlaunanna.
Myndir af honum birtast í sjónvarpi
og blöðum um allan heim en enginn
kannast við kappann. Og það er ekki
eins og honum sé boðið á staðinn -
hann smyglar sér inn. Á hverju ári
klæðir hann sig í smóking og kemur
svo í glæsikerru til afhendingarinnar
eins og allir hinir frægu. En þeir sem
smygla sér geta ekki ætlast til að fá
bestu sætin og því verður Oriol aö
sætta sig við að hírast á göngunum.
Besta við þetta ailt er að flestir viija
stilla sér upp með honum fyrir
myndatöku því hann hlýtur jú að
vera „einhver". Hann segir sjálfur
að bestu viðtökurnar hafi hann feng-
ið hjá Jack Lemmon og Jack Nic-
holson en Ryan O’Neal og Jane
Fonda heföu verið virkilega dónaleg.
Við afhendingu óskarsverðlaun-
anna 1975 mætti Brooke Shields með
Michael Jackson. í þá daga var Mic-
hael lítt þekktur og því hafði Oriel
engan áhuga á að láta mynda sig með
honum. „En ég hef nagað mig í
handabökin æ síðan því Michael læt-
ur ekki sjá sig með hvejjum sem er,“
segir hinn „ heimsfrægi" Oriel Rang-
el.
Að komast á mynd með Paul Hogan (Krókódíla-Dundee) er hreint ótrúlegt
ævintýri.
,Hver er þessi náungi?" gæti Liza Minnelli verið að spyrja
Ólyginn
sagði...
Eddie
Murphy
gengur ekki hægt um gleðinnár
dyr. Sem hótelgestur tekur hann
ekki nokkurt tillit til sambýlinga
sinna sem liggja andvaka heilu
næturnar. Hann heldur einhverj-
ar þær villtustu veislur sem sög-
ur fara af og aðrir gestir gnísta
tönnum í bræði sinni.
En nú hefur uppáhalds hótelið
hans tekið af skarið. Innréttuð
hefur verið íbúð, sérstaklega fyr-
ir Eddie og hávaðaseggina, og er
hún hljóðeinangruð í hólf og gólf.
Sumum yrði nú bara hent út
vegna hávaða.
William Hurt
er hinn mesti nískupúki, ef
marka má orð barnsmóður hans,
Söndru Jennings. Hún staðhæfir
að þau mæðginin hangi nánast á
horriminni því meðlagsgreiðsl-
urnar rétt lafi í 100 þús. ísl. kr. á
mánuði. Þetta er engan veginn
nægjanlegt að hennar mati og
krefst hún þess að upphæðin
verði 7-fólduð, hvorki meira né
minna.
Það vita jú allir að framfærslu-
kostnaður fer stighækkandi og
allir verða að lifa.
Joan Collins
fékk heldur betur skell um dag-
inn. Til stóð að hún kæmi fram í
breskri sjónvarpsseríu en á síð-
ustu stundu kom afboð. Hún varð
að vonum svolítið sár og spurðist
fyrir um ástæðuna. Það hefði hún
betur látið ógert því svarið var
ennþá meira særandi. Þessir
óskammfeilnu kvikmyndagerð-
armenn sögöu hana einfaldlega
of gamla.
Hér sannast að óft má satt kyrrt
liggja.