Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Side 15
15
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988.
pv__________________________________________________________________________________Merming
Bók óháð bókum
Þaö er heldur dapurlegt aö þurfa
að byrja frásögn af góöri bók á því
að fárast yfir flumbruskap á titilblaði
og framan á kápu. Á báöum stööum
er sögumaður skráður Þorsteinsson
en rétt feöraður Þórðarson hvar-
vetna í inngangi og aftan á kápu.
Mega prófarkalesarar illa við una.
Að öðru leyti er þetta einhver
gæfulegasta bók sem lengi hefur
komið út í fjölskrúðugum hópi end-
urminninga með þjóðlegu fróðleiks-
ívafi. Þórður Tómasson hefur unnið
nýtt afpek. Hann hefur leitt fram
óvenju ljóslifandi frásagnarmáta
einnar af þeim mörgu persónum sem
fáir þekktu utan heimasveitar, tolldu
sjaldan lengi á sama stað og voru
næstum áhtnar utangarðsmenn.
Þeir voru þó eins náttúrulegir sprot-
ar úr fósturmold og þjóðdjúpi og villi-
gróður í túnum eða úti um holt og
móa. Mörgum eru þess háttar karlar
og konur í barnsminni og mátti
heyra fólk hafa hitt og þetta eftir
þeim, ýmist viturlegt, hnyttið eða
kaldhæðnislegt. Einstök tilsvör af
þessu tagi hafa og víöa birst.
Tungutakið safamikið
Ég minnist þess þó ekki að heil bók
hcifi áður verið saman sett þar sem
maður af þessari gerð hefur orðið
allan tímann eftir að inngangi slepp-
ir. Þessi maður hét Sigurður Þórðar-
son, fæddur á Brunnhól í Hornafirði
Bókmenntir
Árni Björnsson
1887, en dvaldist frá tvítugsaldri í
Árnes- og Rangárvallasýslu. Hann
var ýmist kallaður Siggi Hornfirð-
ingur, Siggi Þórðar eða Siggi Hom
og dó 1970.
Ekki skiptir litlu máli af hvílíkri
natni og virðingu skrásetjari fer með
orð sögumanns. Orðfæri hans er lát-
ið halda sér eftir föngum og þar gefur
á að líta. Tungutakið er svo safa-
mikið og þó blátt áfram að stundum
minnir á þá upphafningu sem Jónas
Hallgrímsson veitti einatt hvers-
dagslegum orðum. En þar fyrir utan
eru sögumanni mörg orð og merk-
ingarafbrigði munntöm sem fæstir
utan Hornaíjarðar kannast við og
finna varla í orðabókum. Þórður hef-
ur tekið þann kost að skýra sum
þeirra neðanmáls eins og haggall:
regnbogastúfur í hafl; meinári: hest-
ur sækinn í slægjur; rosasvefn:
svefndrungi í ótíð; gangstroka: hraö-
skreiður. Hann leyfir sér og stundum
að líkja eftir framburði sögumanns
sem t.d. segir ætíð eitinn fyrir heitinn
um látna menn. Deila má um hvar
draga skuli mörk við að skrá eftir
framburði.
Líkt og silfurbergsnáma
Frá sjónarmiði þjóðfræði eru þess-
ar frásagnir líkt og silfurbergsnáma
vegna þess hve Siguröur er óháður
prentuðum þjóðsögum eða öðrum
bókum um þjóðhætti og þjóðtrú. Það
er helst svo að sjá og mun rétt vera
að hann hafið lítið lesið af bókum.
Slíkra manna hafa íslenskir safnend-
ur þjóðfræða löngum saknað á síðari
áratugum. Oftast er þeim nefnilega
vísaö á „fróðleiksmenn" sem ósjald-
an reynast vera vel iesnir menn og
hafa fróðleik sinn úr ritum sem fmna
má á bókasöfnum. í viðtalsbókum er
stundum eins og kafli um heimilis-
hætti sé endursagður úr Þjóðháttum
Jónasar frá Hrafnagili og skotið inn
á viðeigandi stað. En hér skýtur þrá-
sinnis eins og í framhjáhlaupi upp
sögn, þjóðtrúarhugmynd eða vinnu-
áðferð frá 19. öld sem menn hafa
hvergi lesið um áður. Einnig er tölu-
vert af vísum og þulubrotum í ann-
arri gerð en áður komst á þrykk.
Að raða brotum saman
Þetta er ekki viðtalsbók sem unnin
er á skömmum tíma eins og nú er
mjög í tísku. Áratugum saman skráöi
Þórður eina frásögn eða mola í senn
þegar hann hitti Sigurð „á hlaup-
um“ eins og hann tekur tii orða, síð-
ustu árin þó með segulband við hönd.
Átján árum síðar raðar hann brotun-
um saman.
Þórður segir að framan af þessari
öld heföi verið hægt að taka saman
bók sambærilega við þessa í flestum
sveitum landsins. Nú sé það liðin tíð
og önnur áþekk þessari muni ekki
síðar sjá dagsins Ijós. Rétt er það. En
sviplíkir menn Sigurði munu ætíð
verða til þótt tækjum sé breytt. Það
er meiri spurning hvort við munum
framvegis eignast menn sem hafa
næga þolinmæði, áhuga og smekk til
MrtlVrDIT
PJUX/IIUJ
Sicráð cftír Sigurðí Þorstdnsaynl fra Örunniió!
að skrásetja eftir þeim án þess að
aflaga stíl þeirra að „kröfum tímans“
og gera þá að viðundrum.
Árni Björnsson
Þóróur Tómasson í Skógum
Þjóðhættir og þjóðtrú
Skráð eftir Sigurði Þorsteinssyni
[les: Þórðarsyni] trá Brunnhól
Litli prófessorinn
kr. 2.100,-
Enskukennarinn
kr. 5.950,-
Snerta og uppgötva
kr. 6.975,-
IUEf) LEIKFÖNGUNUM FRÁ TEXAS-INSTRUMENTS
Fást hjá
Casio búðinni
Síðumúla 20
NESC0
Kringlunni
MAGNA
Laugavegi
TÓMSTUNDAHÚSINU
Laugavegi
. ÉH
WM
* ■*****"' ny*****
171
Islenskur leiðar-
vísir með öllum
tækjum.
EINKAUMBOÐ A ISLANDI TEXAL HF. SIMI 673911.