Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988. Spumingin Ætlar þú að fara í kirkju á jólunum? Ólöf Gunnlaugsdóttir húsmóðir: Nei, við erum ekki vön að gera það. Jón Sævar Sigurðsson matreiðslu- maður: Já, ég hafði hugsað mér að gera það í þetta sinn. Ragnar Gunnarsson viðskiptafræð- ingur: Nei, það er ég ekki vanur aö gera. Arnfriður Jónsdóttir skrifstofu- stúlka: Nei, það geri ég aldrei. Ég hef einu sinni farið. Dana Arna Sigurvinsdóttir húsmóð- ir: Já, það er fastur liður og tilheyrir jólahaldinu á mínu heimili. Magnús Skúlason tölvari: Nei, ég geri ekki ráð fyrir því. Það er ekki vaninn. Lesendur___________________________________________ Skólatannlæknar og skattamál: Skattgrefðend- urafskiptir Guðni Guðnason hringdi: Það hefur verið talsvert til umræðu að taka skattamál tannlækna til skoðunar, eins og’ það heitir, meira að segja sérstakrar skoðunar, og búið að samþykkja í borgarráði að rann- saka sérstaklega kostnað við skóla- tannlækningar. Talið er að tann- læknakostnaður skólabarna sé um helmingur alls kostnaðar borgarinn- ar vegna heilbrigðismála. Þar sem um 30% skólatannlækn- inga fer fram á einkastofum víðs veg- ar um borgina, en þessi kostnaður nemur um 70% af öllum kostnaði borgarinnar, er ekki nema eðlilegt að þetta mál allt veröi rannsakað. Hefur eins og áður segir verið skipuð nefnd í rannsókn á málinu öllu. En nú er ég kominn að kjarna þess máls sem ég hef áhuga á. Hann er þessi; hvers vegna í ósköpunum er ekki fyrir löngu búið að koma tann- lækningum og tannviðgerðum fyrir alla inn í heilbrigðiskerfið? Hvers vegna alltaf þetta dekur við börn, skólabörn, dagheimilisbörn, „barna- börn“ og ég veit ekki hvað? Hér gengur allt út á aðhlynningu á börnum, börnin eiga að fá þetta og fá hitt og ekkert er ofgert fyrir „bless- uð börnin“. Síðan verða þau ofdekr- uð, vanþroska og slefa af sælgætis- Búlgarskt ástand hjá mörgum í tannheilsu, segir hér m.a. áti. Þau hefðu sko gott af að finna fyrir tevatninu bæði í aga og að- haldi. Ef þessir foreldraaumingjar hefðu einhvern þrótt í sér létu þeir krakkana éta ögn minna sælgæti, og þá minnkaði kostnaður hjá skóla- tannlæknum. Er nú ekki kominn tími til að við, skattborgararnir sem greiðum fyrir þessa þjónustu fyrir öll börnin, jafnt eigin börn sem annarra, meðan heilsa endist, fáum einhverja ívilnun eins og þau? Við erum mörg hver komin með svo slæmar tennur að Búlgaríuferðar er þörf, en höfum ekki einu sinni efni á að fara þangað. Það er tími til kominn að við sem borgum brúsann rísum upp og mót- mælum því að vera ávallt afskipt í tannlæknaþjónustu. Frjálslyndisstefna í uppeldismálum: Ríður þjóðinni að fullu B.B. skrifar: Ég tek undir með K.Þ. í lesenda- dálki DV hinn 6. des. sl. um að bregð- ast þurfi af festu viö skrílslátum Breiðholtsunglinganna í strætis- vögnunum. Það er hryllilegt að sjá myndir af þeim skemmdarverkum sem unglingarnir hafa unnið og undrar mig að vagnstjórar yfirleitt skuli ekki neita að aka leiðina á þess- um tíma. - Til hvers er eiginlega' verið að hafa strætisvagnaferðir svona lengi fram eftir, nema til að þjónka við þá unglinga sem eru að slæpast í miðborginni fram eftir nóttu? Það væri fróölegt að SVR upp- lýsti hvort vinnandi einstaklingar séu að ferðast með vögnunum á þess- um tíma. Það er einkennilegt aö ekki skuli vera hægt að sækja þessa vandræða- unglinga til saka og láta þá standa fyrir máli sínu. Þeir hljóta að vera með persónuskilríki á sér og því gæti lögreglan gefið skýrslu um mál- ið og látið skemmdarvargana eða aðstandendur þeirra greiöa skemmdirnar. - Eftir að myndimar birtust í sjónvarpinu liggja allir ungl- ingar í Breiðholti undir grun, en það þyrfti að upplýsa málið betur. Voru þessir unghngar t.d. úr Breiðholti I, II eöa III? Það er engum greiði gerður með því að láta unglingana vaða svpna uppi, allra síst þeim sjálfum. - Ég skora á ráðamenn SVR aö gefa þessum skemmdarvörgum tvo kosti; annaðhvort að ganga um vagnana eins og siðað fólk eða að engir vagn- ar gangi á þessum tíma. Fólk er hætt að hafa nokkurt heil- brigt siðferðismat. Þeir foreldrar sem vilja ala börnin sin upp í góðum sið- um ráða ekki við neitt lengur. Þetta byrjar í æsku, þegar bömin eru látin dansa með allri vitleysunni til að verða ekki útskúfuð af jafnöldrum sínum og eftir það taka þau ekki sið- ferðilegum leiðbeiningum, kunningj- amir ráða ferðinni. Nágrannabörnin sitja fram eftir nóttu við að horfa á glæpamyndir í sjónvarpi eða af myndböndum og lítillækka svo hin sem verið er að reyna að halda frá ofbeldismyndum og lágkúru. Allt niður í 11 ára nemendur í grunnskólum halda „partý“ með víndrykkju og öðru sem henni fylgir og foreldrar þeirra verða að fara úr húsi á meðan! Börnin eru jafnvel tahn hafa gott af því að sjá lífið „eins og það er“ (eins og §umir telja að það eigi að vera), og síðan er þau komast á unglingsaldurinn verður það að vera eitthvað meira krassandi og „töíT‘. - Þessi fijálslyndisstefna í uppeldismálum er að ríða bæði ungl- ingum og foreldrum að fullu, já þjóð- félaginu í heild. Hvers á hún að gjalda, rjúpan hvíta? mannsins hjarta", og hjá honum er ekki miskunnar að vænta, þegar varnarlaus rjúpan á i hlut. „Sportveiðimennska" og „heilsu- bótarveiðimennska" eru orð sem rjúpnaskyttur velja þessu atferli sínu, líklega til þess að milda álit al- mennings á gjörðum sínum, en verka á flesta sem algjör öfugmæli og hræsnistal. - Dýradráp án brýnnar nauðsynjar er af illum rótum runnið. Morðfýsn er ættuð þaðan sem síst er að leita fagurra fyrirmynda. Nóg er af mat á landi okkar og enginn þarf þess vegna að drepa rjúpur til aö seðja svangan maga, sem betur fer. Ef vel væri, myndi enginn leita sér ánægju í drápi villtra dýra, nábýlinga okkar og samlanda, sem í raun eiga jafnmikinn rétt til lífs og við mennirnir. Hættum að drepa ijúpuna litlu, sýnum henni vinsemd og vernd .en ekki hið gagnstæða. Það mundi skapa sannari gleði í brjóstum okkar og vera okkur að öllu leyti samboðn- ,ara. Ingvar Agnarsson skrifar: Því miöur hafa nú staðið yfir rjúpnaveiðar á kjörlendum þessara fógru fugla. Uppfullir af morðgirni æða veiðimenn um fjöll og heiðar með byssur um öxl og skjóta á allt sem hreyfist. - Venjulegt fólk er var- aö við því í fjölmiðlum að vera á ferh þar sem helst er von þessara veiði- manna, því vel gætu banvæn skot þeirra hæft fleiri en fuglana htlu. „Blessuð ijúpan hvíta“ á sér einsk- is ill von, er hún hrökklast undan hríðarbyljum ofan á láglendari svæði. Hún trúir engu illu á þessar tvífættu mannverur sem hún sér læðast um í snjónum. En „hart er Stundum leitar rjúpan sér hælis heima við bæi þegar harðast sverfur að, segir bréfritari meö mynd sem hann sendir með og hér birtist. DV Litlu jólin í skólunum: Allir eða enginn M.M. hringdi: Nú hefur það verið vani tals- vert lengi að halda smágleði í skólunum síðasta kennsludag fyrir jól. Oft er þessi riðburður kallaður „litlu jólin“. Þetta er skemmtilegur siöur - svo langt sem hann nær og ef allir eru með og engir eru settir hjá. Nú á ég ekki við börnin, þau eru öll með eins og vera ber og þar er vonandi allt með sóma. Ég á við starfslið skólanna, kennara og aðra sem þar starfa. það hefur verið venja, a.m.k. sums staðar, að kennaralið hefur sest að snæð- ingi að loknum „litlu jólunum" og eti og drekki eins og best geng- ur þær veitingar sem þar er boðiö upp á. En á þessu hefur sums staðar verið sá ágalli aö ekki eru þama allir jafnir fyrir réttlætinu. Þann- ig veit ég til þess aö t.d. ræstinga- fólki hefur ekki verið boðiö aö taka þátt í þessum samkvæmum. Þannig var það t.d. í Breiðholts- skóla í fyrr a, hvað sem nú verður. Ef þetta er á vegum borgarinn- ar þá ætti hér að vera um sam- ræmingu að ræða og að allir sitji við sama borð í þessum efnum. Svo hefur ekki verið hingað til. En kannski verður breyting á að þessu sinni. „Ég er Ijós heimsins“. Gledilitir árunnar Einar Ingvi Magnússon skrifar: Nú líður óðum að jólum, friöar- hátíð frelsarans, mitt í svartasta skammdeginu hérna á norður- slóðum. Þótt nú sé orðið kulda- legt inni í miðju landi uppi á há- lendinu þá gerist borg og bær og sérhvert byggt ból hlýlegra meö hverjum deginum sem líður um leiö og jólaljósunum fjölgar viö bústaði mannanna barna. Hvert sem litið er heim að byggðu bóli blasa ijósin við í öll- um regnbogans litum og gleðilit- um árunnar. Dýröleg sjón sem lífgar upp á tilveruna, i orðsins fyllstu merkingu. Jafnframt minna jólaljósin okkur á hinn mikla viöburð sem englarnir foröum daga boðuöu: „Yður er i dag frelsari fæddur." - Höfum hugfóst orð Krists er hann sagði: Eg er Ijós heimsins, hver sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkrinu heldur hafa ljós lífsins. Með ósk um gleðileg jól. Betri sjónvarpsdagskrá: Krakkar, stönd- um saman Krakkar í gaggó á Húsavík skrifa: Viö erum hér nokkrir krakkar í gaggó og okkur langar til að láta í Ijósi óánægju okkar með sjón- varpið yfirleitt. Hvernig væri nú að sjónvarpið hætti að endursýna hina ýmsu þætti hvaö eftir ann- að? Við vonumst til að fá mjög góöa sjónvarpsdagskrá um jólin en ef þið ætlið að endurtaka eitthvert efni endursýniö þá vinsæla þætti eins og Lassí, Húsiö á sléttunni, Bgpanza og fleira í þeim dúr. Krakkar, stöndum saman um að fara fram á góða jóladagskrá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.