Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Síða 19
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988. 19 Setjumst allir þar og gleðjum oss Aö gefnu tilefni og vegna þeirrar áráttu höfundar þessa greinar- korns aö vera sífellt að leita aö lausnum til bóta fyrir bæöi „solt- in“ og „bitin“ (samb. sárt bítur solt- in lús) þjáningarsystkini í sam- félagi voru leyfir hann sér aö stinga upp á lausn til samkomulags í einu stærsta sakamáli „sem komiö hef- ur verið upp“ í samfélagi voru, „forsetabrennivínsmábnu" svo- kölluöu sem af einhveijum óskilj- anlegum ástæðum varð til árið 1982. (Ég vil vekja athygli á því aö þaö er annar verknaður að „koma upp sakamáli" en að „koma upp um sakamál“.) Hinn „þríeini" Sá sem vill leggja ráð til lausnar og samkomulags í þessu máb verö- ur að gera sér grein fyrir réttri skilgreiningu á fyrirbærinu „hand- hafl forsetavalds". Núverandi for- seti Sameinaös Alþingis hefur skil- greint fyrirbærið þannig að það sé ekki þrír einstaklingar og ekki einn einstakhngur heldur sé það „ÞRÍ- EITT“. Þetta er ákaflega merkilegt fyrirbæri og á sér varla samanburð við annað en „TVÍEINDINA“, það er að segja mann og konu sem ganga í heilagt hjónaband. „TVÍEINDAR“-hugtakinu hefur verið gefið samnefni í einu orði í málinu, það er hjón. Hinn „ÞRÍ- EINI“ handhafi forsetavalds hefur mátt una þeim málspjöllum að vera brotinn upp í fleirtöluna „hand- hafar forsetavalds", sem fyrir utan að vera málspjöll gefur alranga mynd af fyrirbærinu. Hver láir hægri höndinni á þeim „ÞRÍEINA" þótt hún telji sig fijálsa og óháða í þessari fleirtölusúpu? En hvað svo sem sú hægri gjörði, án þess að sú vinstri vissi, þá verð- ur sá „ÞRÍEINI" að bera sinn brest KjaUarinn Hólmfríður Jónsdóttir húsmóðir heill og óskiptur, það er ekkert efa- mál. Álitamál er aftur á móti hvar sök liggur ef grípa þarf til þess að höggva af hönd að fomum sið. Vanræksla Nú virðast mál standa þannig, samkvæmt tilætlun stjórnarskrár, að „handhafa forsetavalds" sé að minnsta kosti heimilt að gera bæði sér og öðrum glaðan dag þegar for- seti lýðveldisins bregður sér af bæ. Þar mun hvergi vera getið um hversu margir skulu gleðjast eða hvar né hversu lengi eða oft. Víða í túlkun á lögum mun vera mjótt á milli „tilætlunar" og „til- skipunar“, „heimildar" til. ein- hvers eða beinnar „skyldu“. Með þetta í huga má vel hta þannig á að sá hluti „handhafa forseta- valds", sem leysti ekki út áfengi á bestu kjörum til að gjöra öðrum glaöan dag í fjarveru forseta ís- lands hafi vanrækt skyldur sínar en að hinn hlutinn, sá sem leysti veislufóng út, hafi rækt þessar skyldur samkvæmt stjórnarskrá. Samkvæmt þessari skilgreiningu á embættisskyldu þess „ÞRÍEINA“ í „forsetabrennivínsmálinu" hafa þau Jón Helgason, Steingrímur Hermannsson, Þorsteinn Pálsson og Guðrún Helgadóttir öll vanrækt tilmæli stjórnarskrárinnar um að gjöra einhverjum glaðan dag í fjar- veru forseta vors. Ef til vill kemur þessi vanræksla einungis til af því að „handhafi forsetavalds“ sé ekki örvhentur og eigi bágt með að bera 100 vínkassa með 12 flöskum hvem í vinstri hendinni ofan í kjcdlara? Allt máhð þarf sem sagt ekki að vera annað og meira en þetta. En hvernig brást þjóðin við þess- um vanda síns æðsta embættis? Náttúrlega eins og hennar var von og vísa, með „neikvæða pólnum í hæðinni", dæmdi saklausa en sýknaði seka, saug sig þar fasta sem hún hélt að blóðið væri að finna, eins og langsoltið og lang- þyrst lúsaróféti. Margir bestu menn á efsta tróni hafa mátt sjá frarhan í þjóðina í líki ótótlegustu kvikinda. Ég man eftir einum sem lýsti því fyrir skömmu að hann sæi hana fyrir sér eins og lítinn, ljótan frosk sem stekkur upp úr fúlri tjöm, geiflar sig og skrækir, heldur að hann sé fallegur og viti allt. í mannheimum ber okkur náttúr- lega ekki skylda til að skilja soltnar lýs og ljóta froska en okkur ber skylda til að koma með ráð ef við teljum okkur hafa þau, ráö sem leiðrétt gætu trúnaðarbresti milli þjóðarinnar og hennar bestu „sona“. Þjóðin á líka við sitt að stríöa ekkert síður en hennar bestu menn. Það þarf ekki mörg orð til að túlka líðan þjóðarinnar eða langanir þegar vínmál af toga sem þessum verða að þjóðmáh, bestu og bitnustu menn hafa vitað það í næstum mannsaldur að hún er ein þyrstasta þjóð heimsins enda hafa þeir með samþykkt bjórfrumvarps- ins svokallaða sýnt fyllsta skhning á þessari þjáningu hennar. Sanngjörn lausn til sátta í því vínmáli, sem nú er á döf- inni, veröur þessi þyrsta og bit- glaða þjóð sjálf að koma auga á þau tækifæri sem það býður, þ.e.a.s. ef hún ætlar að hafa eitthvað upp úr þessu annað en nöldrið og skömm- ina. Hún verður að gera sér grein fyrir því hvar blóðið er og hverja hún á að bíta. Ég veit að þjóðin verður stórglöð þegar ég bendi henni á þá staðreynd að blóðið er að stórum hluta enn óátekiö á bestu kjörum í kjöhurum ÁTVR og að stórum hluta ódrukkið í geymslu nokkurra bestu manna - og veisl- urnar, sem þeim „ÞRÍEINA" er bent á í stjórnarskránni aö honum sé að minnsta kosti heimilt aö halda, ef ekki beinlínis skylt, hafa safnast upp ónotaðar vegna emb- ættisglapa allt frá árinu 1982 og lengur eftir því sem sumir telja. Ég vona því að þjóðin taki skjótt og hressUega undir efhrfarandi tU- lögur sem sanngjama lausn tU sátta: 1. Jóni, Steingrími, Þorsteini og Guðrúnu skal gert að taka þegar í stað út áfengi á bestu kjörum skv. meðaltalsúttektarkvóta hverrar einingar þess „ÞRÍ- EINA“ frá 1. jan. 1982 til 1. des. 1988. 2. Sá „ÞRÍEINI“ skal bjóða ís- lensku þjóðinni til samneyslu þess áfengis sem hann fengi í hendur skv. 1. lið, að viðbættu því sem áður var út tekið frá ársbyrjun 1982 og enn er ódrukkið í kjöllurum ógreindra vahnkunnra manna. 3. Gamlársdagur 1988 skal valinn sem tími til fagnaðar þessa en samkomustaður skal vera Reið- hölhn í Reykjavík. (Staðarval er með tUliti fil landsbyggðarinnar og bænda, að sjálfsögðu.) Ef þessi leið yrði farin ætti öllum góðum siðum að vera fullnægt í sátt. Að sjálfsögðu yröi þetta stór- kostleg veisla. Hugsið ykkur bara 10.000 lítra af 45% vodka (nú er ein- hvern farið að dreyma stórt), það nægði tU að halda 50 þúsund meðal- vínsvelgjum góðglöðum í fimm til tíu klukkustundir, kannski lengur. Ef „handhafi forsetavalds" heldur þessa þjóðarveislu, eins og stungið er upp á, tel ég sjálfsagt og efast raunar ekki um að hann verði sýknaður allur eins og hann leggur sig af öllum áburði um siðleysi, æruleysi, embættisglöp, græðgi og síðast en ekki síst af vanrækslu í opinberu starfi. Hólmfríður Jónsdóttir „Ef til vill kemur þessi vanræksla ein- ungis til af því áð „handhafi forseta- valds“ sé ekki örvhentur og eigi bágt með að bera 100 vínkassa með 12 flösk- um hvern í vinstri hendinni ofan í kjall- ara?“ Dýrustu lóðir landsins „Við finnum nokkra tugi heimilistækja sem alveg hefði mátt nota nokkur ár enn,“ segir greinarhöf. m.a. - Frá sorphaugum borgarinnar. Það styttist í að búið verði að fylla upp voga og víkur þær í Gufu- nesinu sem Sorphaugar Reykjavík- ur ráða yfir. Ekki veit ég gjörla hvað gera á við landsvæði það sem unnið hefur verið úr greipum sjáv- ar en hitt veit ég að hvaða starfsemi sem þar kann að verða mun koma til með að standa á dýrustu lóðum þjóðfélagsins. „Haugaarfleifðin“ Hvernig stendur á þessari full- yrðingu? Ég skal segja ykkur frá því. A hverjum fermetra lands á sorphaugununí má skera þver- sneið niður á tíu metra dýpi og kemur þar margt í ljós. Við skulum segja að við rekumst á a.m.k. fjórar bifreiðar, margar hverjar voru í góöu lagi þegar þeim var ekið á haugana. Við finnum nokkra tugi heimilistækja sem alveg hefði mátt nota nokkur ár enn. Viö finnum ýmsan annan varning sem í raun- inni mætti nýta betur en var fórnað á altari samfórnarinnar í þenslu- kreppunni miklu þegar allt skyldi keypt fyrir lánsfé og helst átti að henda öllum gömlu drasli þvi aö það þótti ekki fínt að eiga gamla hluti í fyrra. í fyrra höföum við efni á að tala eins og moldríkir fak- írar en það var í gær. Eftir sitja lánardrottnar þeir sem reyttu í okkur fáeina milljarða og hlæja við heimsku okkar. Að hugsa sér hví- Ukt ofurhlutfall erlendra lána fór beint í „haugaarfleiðina“. Við feng- um aö láni mikið fjármagn sem heföi verið hægt aö nýta til þess að ala upp betri nýtingu á þeim framleiðsluvörum okkar sem í dag Kjallariim Friðrik Á. Brekkan blaðafulltrúi eru vannýttar. Við fengum peninga og tækifæri til þess að reyna að sá hugsun hagsýni og ráðdeildar í huga ungu kynslóðarinnar en hvað gerðum við þess í stað? Við ólum upp eyðsluklær og óraunsæjan hugsunarhátt. Ungt fólk með gap- andi munn og óseðjandi neyslu- varningsseggi. Fyrst ráðandi öfl vildu hafa þetta þannig með þvi að láta hlutina fljóta geta menn sjálf- um sér um kennt og verða að taka afleiðingunum. Aíleiðingarnar verða þær að festa gamla lýðveldis- skipulagsins fer öll úr böndunum. Komið að skuldadögum Gott er alltaf þegar upp rís þrótt- mikil ný kynslóð en ég er hræddur um að hana skorti nokkuð á að hafa fengið í veganesti skilning á samspih hins liðna og atburði dags- ins. Vissulega hafa margir af ungu kynslóðinni ferðast víða en ég er hræddur um að flest ferðalög séu til skemmtunar. Ekki er raun- veruleikinn skynjaður með opnum huga. Ef vel er að gáð í kringum sig erlendis og spáð í fiölskyldu- mynstur kemur allt annað upp á teningnum en hér er staðreynd í dag. Suður á Ítalíu er fiölskyldan allt og samheldni og samhjálp mik- il. I þýskumælandi löndum Evrópu er ráðdeild og sparnaður fyrsta boðorðið enda sú hugsun sprottin upp úr neyð eftirstríðsáranna. Víð- ast hvar annars staðar í heiminum er mikil fátækt og tækifæri engin til þess að njóta þess að mega eyða og kaupa allt sem auglýst er í al- þjóðlegum timaritum. Við hér á Islandi höfum af einhveijum ástæðum slysast inn í þá hringiðu að hafa á fáum árum getað keypt allt sem hugurinn girntist af dýrum munaðarvarningi. Síðan nutum við þess í tilgangsleysistómi vel- gengnistimabils að kasta frá okkur með þóttafullu brosi gamla dótinu. Því var ofaukið. í dag er komið að skuldadögunum og herðir vand- lega að á öllum sviðum. Þetta heföi ekki þurft að gerast. Málið er það að mikið af ungu fólki lenti inn í þá hringiðu að vinna við afgreiðslu og innflutning á munaöarvarn- ingnum sem við höfðum ekki efni á að eignast til að byrja með. Þetta er eins og þegar fall Rómaveldis blasti viö á sínum tíma. Hingað eru fluttir inn duglegir vinnuþurfi unghngar i þúsundatali frá hinum Norðurlöndunum og Evrópu til þess að vinna við framleiöslustörf- in og til þess að hlúa að eldri kyn- slóðinni á sjúkrahúsum og elli- heimilum. Erlendir unglingar eru að hlúa að eldri kynslóðinni sem skóp möguleikann á því að ísland gæti öðlast þá möguleika að verða traustur lántakandi á erlendum vettvangi. Ég held aö eldri kynslóð- in hefði nú frekar vifiað að við eyddum lánstraustinu í að fá hing- aö fiármagn til uppbyggingar og fullnýtingar á hráefnum okkar. Eg held að Jón gamli á elliheimilinu hefði frekar vifiað sjá barnabarnið í forystusveit þeirra sem byggju í haginn fyrir næstu kynslóö með því að heita starfsorku sinni i þágu útflutningsatvinnuveganna í stað- inn fyrir að afgreiða í sérverslun fyrir baðsölt, ilmsápur og silki- slaufur fyrir hunda. Við stukkum upp í hringekjutímabil þar sem allt var keypt, meira að segja nenntum við ekki sjálf að pakka fiskinum né hlúa aö foreldrum okkar á lang- legudeildum landsins. Við keypt- um bara einhverja „atvinnuleys- ingja“ utan úr heimi til þess að sjá um þetta fyrir okkur. Á meðan æskan afgreiðir renni- lása og innflutta kleinuhringi læra erlendu ungmennin að meta fortíð okkar í gegnum kynni sín af gömlu kynslóðinni. Verða það ef til vill innflytjendurnir sem taka yfir landið, verða sterkir og taka viö stjórn atvinnuveganna og koma síðan með fuha vasa fiár til okkar afgreiðslumannastéttarinnar og kaupa inn fyrir jólin? Friðrik Ásmundsson Brekkan „Á meðan æskan afgreiðir rennilása og innflutta kleinuhringi læra erlendu ungmennin að meta fortíð okkar í gegn- um kynni sín af gömlu kynslóðinni.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.