Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1989, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989.
Viðskipti
Hvernig stóðust spárnar?
- Félag íslenskra iðnrekenda komst næst því
Félag íslenskra iönrekenda komst
næst því aö spá fyrir um verðbólgu
á árinu 1988. Þaö spáöi í desember
1987 að verðbólgan yröi 21 prósent
frá upphafi til loka ársins 1988. Raun-
veruleikinn varð 18 prósent verö-
bólga. Miöaö er við hækkun fram-
færsluvísitölunnar. Opinberar stofn-
anir eins og Þjóðhagsstofnun og
Seðlabanki spáöu 10 og 11 prósent
verðbólgu. Þær spár sem hér eru
bornar saman eru allar geröar á síð-
ustu mánuðum ársins 1987 og voru
fyrir áriö 1988.
Félag íslenskra iðnrekenda
Félag íslenskra iðnrekenda með
framkvæmdastjórann, Ólaf Davíðs-
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
son hagfræðing, í fararbroddi spáði
í desember árið 1987 aö verðbólgan á
árinu 1988 yrði 21 prósent. Þetta birt-
ist í efnahagsspá félagsins. Þegar leið
á árið 1988 breytti félagið raunar spá
sinni og gerði ráð fyrir mun meiri
verðbólgu.
Ólafur Davíðsson hagfræðingur
vann um árabil á Þjóðhagsstofnun.
Hann var ætíð næstæðsti maður
stofnunarinnar. En á tímabili eftir
1980 gegndi hann starfi forstöðu-
manns stofnunarinnar er Jón Sig-
urðsson vann hjá Alþjóða gjaldeyris-
sjóðnum í Bandaríkjunum. Ólafur
var ráðinn framkvæmdastjóri Félags
íslenskra iðnrekenda þegar Jón sneri
heim og tók við Þjóðhagsstofnun aft-
ur.
Verslunarráð íslands
í lok ársins 1986 komst Verslunar-
ráð íslands næst því að spá fyrir um
verðbólgu ársins 1987. Að þessu sinni
er Verslunarráð nokkuð frá því. Ráð-
ið spáði að verðbólgan yrði yfir 30
prósent frá upphafi til loka ársins
1988. Það sem helst fer með spána er
að gert var ráð fyrir mun meiri geng-
isfellingu og minni samdrætti en
raun varð á. Framkvmdastjóri þess,
Vilhjálmur Egilsson, telur raunar aö
þessar gengisfellar eigi eftir að koma
fram og að í lok ársins hafi um 15
prósent gengisfellingi verið í pípun-
um þegar ríkisstjómin felldi gengið
um 4 prósent.
Þjóðhagsstofnun
Þjóðhagsstofnun gaf í október út
þjóðhagsáætlun. í kaflanum um
horfur fyrir árið 1988 segir að mikil
óvissa sé um verðlag á árinu 1988.
Þjóðhagsstofnun gerir hins vegar ráð
fyrir því aö frá upphafi til loka ársins
1988 verði veröbólgan um og innan
við 10 prósent. í þessari áætlun er
gert ráð fyrir að gengi krónunnar
verði óbreytt út árið 1988. Stofnunin
bendir á að kjarasamningar, sem fyr-
ir lá að gera á árinu, hafi mikil áhrif
á þróun verðbólgunnar. Niðurstaðan
er samt sú að Þjóöhagsstofnun var
nokkuð fjarri því sem síðar varð.
Það er athyglisvert að Þjóðhags-
stofnun spáði í desember árið 1986
um 6 til 8 prósenta verðbólgu á árinu
1987. Þegar árið var nýbyrjað kom
endurskoöuð þjóöhagsáætlun sem
gerði ráð fyrir um 10 til 12 prósent
verðbólgu á árinu 1987. Raunveru-
leikinn varð hins vegar 25 prósent
verðbólga.
Seðlabankinn
Seðlabankinn er ævinlega mjög á
sömu nótum í spám sínum og Þjóð-
hagsstofnun. Aö þessu sinni spáði
Seðlabankinn í byrjun desember árið
1987 að verðbólgan ætti eftir að verða
um 11 prósent á árinu 1988, það er
frá byrjun þess til loka.
Seðlabankinn gekk út frá því eins
og Þjóðhagsstofun að gengiö yröi
stöðugt á árinu 1988 og að kjara-
samningar yrðu ekki hærri en fyrir
lá að BSRB hafði samið um eða í
kringum 7 prósent. Ekki varð það
raunveruleikinn. Hvað þá að spá
bankans um gengi væri rétt. Það átti
Ólafur Daviðsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra iðnrekenda,
var næstæðsti hagfræðingur Þjóð-
hagsstofnunar um árabil.
nefnilega eftir aö falla um 22 prósent
á árinu.
ASÍ
Alþýðusamband íslands, ASÍ, gerði
ráð fyrir því í kringum síðustu ára-
mót að verðbólgan myndi verða um
30 prósent á árinu. Forsendurnar
voru ekki ósvipaðar þeim sem Versl-
unarráðið haföi eða að stjórnvöld
myndu skrá raungengið rétt, það er
láta gengið falla og síga, eða hvað það
heitir, til að halda útflutningsat-
vinnuvegunum gangandi. Sem aftur
átti að þýða að samkeppnisstaðan
breyttist ekki. Gert var ráð fyrir að
kaupmáttur héldist. Þannig að for-
sendurnar voru í raun verðbólga og
launahækkanir á árinu 1988. í mars
endurskoðaði ASÍ svo spána og gerði
ráð fyrir um 17 prósent verðbólgu.
Þar hitti sambandið nokkuð nærri
raunveruleikanum.
VSÍ
Vinnuveitendasamband íslands,
VSÍ, gerði í raun enga áætlun um
verðbólguna á árinu 1988. Það gaf sér
hins vegar að ef launahækkanir yröu
snemma á árinu aðeins 7 prósent og
í kjölfarið kæmi 6 prósent gengis-
feliing yrði verðbólgan um 12 prósent
á árinu. Eftir að Vestfjarðasamning-
ar voru í höfn og þóttu ekki nægileg-
ir var ljóst aö ekki myndi 12 prósent
spáin ganga eftir.
Veðurspá og verðspá
Hagfræðingar hafa stundum líkt
verðbólguspám við veðurspár. Hag-
stjórnartækin eru þá þau tæki sem
hafa áhrif á gang lægða hjá veður-
fræðingunum. Þetta er skemmtileg
samlíking. í stað þess að hið opinbera
hefði áhrif á gang lægða og héldi
verðbólgunni niðri, flæddu lægðirn-
ar yfir okkur með tilheyrandi verð-
bólgurigningu.
Annað verður að hafa í huga. Það
er í raun ekki það sama að gera efna-
hagsspá og efnahagsáætlun. Amy
Engilberts spákona spáir en gerir
ekki áætlanir. Hún segir ekki að ef
þetta og hitt gerist lendi menn í ævin-
týrum. Hún segir einfaldlega að
menn lendi í ævintýrum eða ekki.
Það gefur auga leið að Seðlabank-
inn er meira í því sem kallast efna-
hagsáætlanir en efnahagsspár. Ef
bankinn spáði mikilli gengisfellingu
gæti orðið erfitt að birta slíka spá þar
sem bankinn myndi fyllast daginn
eftir af fólki sem væri gráðugt í gjald-
eyri.
Hvernig hefði
Amy Engilberts spáð?
Þaö hefði verið gaman að sjá spá
spákonu eins og Amy Engilberts um
verðbólguna árið 1988. Kannski að
hún hefði séð fyrir launahækkanir
sem kæmu af stað verðbólgu. Tregðu
í nokkum tíma við að fella gengið.
Svartan miðvikudag í maí þegar
gengið féll af sjálfu sér vegna mikill-
ar ásóknar í gjaldeyri. Og svo nýja
Hvernig stóðust verðbólguspárnar?
Svona voru verðbólguspárnar. Raunveruleikinn, er kemur fram á myndinni
sem ör þvert á súlurnar, varð 18 prósent verðbólga frá upphafi til loka
árins 1988. DV-graf JRJ
Sametning Sjóvá og Almennra:
Búið er að skrá fyrirtækið
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
- tveir forstjórar stýra því
Fyrirtækiö Sjóvá-Almennar
tryggingar hf. var stofnaö 16. des-
ember síðastliðinn og skráö hjá
Hlutfélagaskránni 30. desember,
samkvæmt upplýsingum frá Hluta-
félagaskránni í gær. Forstjórar
hins nýja fyrirtækis eru Einar
Sveinsson og Ólafur B. Thors.
Stjórnarformaður er Benedikt
Sveinsson, fyrrura stjómarformað-
ur Sjóvá.
Síðar f þessum mánuði halda
bæði Sjóvá hf. og Almennar trygg-
ingar hf. hluthafafundi þar sem
gengið verður formlega frá samein-
ingunni. Fundirnir veröa að öllum
líkindum haldnir sama dag. Síð-
degis þennan dag veröur svo sara-
eiginlegur hluthafafundur Sjóvá-
Almennra trygginga hf. haldinn.
Formaöur hinnar nýju stjómar
Ólafur B. Thors, nýr forstjóri
Sjóvá-Almennra trygginga hf.
Einar Sveinsson, nýr forstjóri
Sjóvá-Almennra trygginga hf.
er Benedikt Sveinsson, formaður
stjórnar Sjóvá. Varaformaður er
Hjalti Geir Kristjánsson, núver-
andi formaöur stjórnar Almennra
trygginga. Svo virðist því sem
Sjóvá muni eiga meira í hinu nýja
fyrirtæki en Almennar tryggingar.
Aörir í stjórn em ÁgústFjeldsted,
Jóhann G. Bergþórsson, Kristinn
Björnsson, Kristján Loftsson, Teit-
ur Finnbogason. Varamenn eru
Ólafur Davíðsson og Einar Sveins-
son.
Framkvæmastjórar hins nýja
fyrirtækis era Einar Sveinsson,
framkvæmdastjóri Sjóvá, og Ólafur
B. Thors, framkvæmdastjóri Al-
mennra trygginga hf. Báðir hafa
eru þeir handhafar prókúru, sam-
kvæmt Hlutafélagaskránni í gær.
-JGH
ríkisstjóm um haustið með Stein-
grím Hermannsson í fararbroddi.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 2-4 Lb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 2-4,5 Lb
6mán. uppsögn 2-4,5 Sb
12mán. uppsögn 3,5-5 Lb
18mán.uppsögn 8 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Vb
Sértékkareikningar 0.5-4.0 Ab
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6mán. uppsögn 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb
Innlán með sérkjörum 3,5-7 Lb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7.5-8,5 Úb.Bb,- Vb
Sterlingspund 11-12,25 Úb
Vestur-þýsk mörk 3,75-4,5 Vb.Sp,- Úb.Bb
Danskarkrónur 6,75-8 Vb.Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 11-12 Lb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 11,75-12,5 Vb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(vfirdr.) 14,5-17 Lb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 8-8,75 Vb
Útlántilframleiðslu
isl. krónur 12-12,5 Lb.Sb,- Bb.Úb
SDR 9.5 Allir
Bandaríkjadalir 11-11,5 Úb
Sterlingspund 14,50- allir
14,75 nema Úb
Vestur-þýsk mörk 7,25-7,5 allir nema Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 27,6 2.3 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverötr. des. 88 17,9
Verðtr. des. 88 8.7
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalajan. 2279 stig
Byggingavisitala jan. 399,5 stig
Byggingavisitala jan. 125,4stig
Húsaleiguvísitala Engin hækkun Verð- stoðvun
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,428
Einingabréf 2 1,932
Einingabréf 3 2,226
Fjölþjóöabréf 1.268
Gengisbréf 1.586
Kjarabréf 3,417
Lífeyrisbréf 1.724
Skammtímabréf 1.193
Markbréf 1.813
Skyndibréf 1,045
Sjóösbréf 1 1.644
Sjóðsbréf 2 1.381
Sjóösbréf 3 1,168
Tekjubréf 1.545
HLUTABREF
Söluverð aó lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 130 kr.
Eimskip 380 kr.
Flugleiðir 288 kr.
Hampiðjan 155 kr.
Hlutabréfasjóður 151 kr.
Iðnaöarbankinn 177 kr. .
Skagstrendingur hf. 200 kr.
Útvegsbankinn hf. 134 kr.
Verslunarbankinn 146 kr.
Tollvörugeymslan hf. 126 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavixla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, LJb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
ENOURSKINSMERKI
ERU NAUÐSYNLEG FYRIR ALLA!
Best er að hengja
tvii merid,
fyrir neðan mitti
- sitt á Imxa hlið.
Á skjótfatnaði
er heppilegt
að hafa
endurskinsrenninga
fremst á ermum
og á faldi að
aftan og framan.
UMFERÐAR
RÁÐ