Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1989.
5
Fréttir
Skuldbreyting 1 sjávarútvegi:
Afborgunartími
tvöfaidaður á
tugum milljarða
Að sögn Jóns Sigurðssonar við-
skiptaráðherra er ekki gert ráð fyrir
að ríkissjóður hafi frekari milhgöngu
um skuldbreytingar í sjávarútvegi
en kveðið er á um í bráðabirgöalög-
unum; það er í gegnum Atvinnuleys-
istryggingasjóð og Hlutafjársjóð við
Byggðas^ofnun.
„Verið er að tala um að fá þátttöku
sem flestra lánardrottna í skuld-
breytingunni,“ sagði Jón.
Að sögn Þórðar Friðjónssonar, for-
stjóra Þjóðhagsstofnunar, skipta
skuldir sjávarútvegsfyrirtækja
mörgum tugum milljarða. I þeim út-
reikningum sem Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra dreifði í
síðustu viku er meðal annars gengið
út frá því að lengja afborgunartíma
skulda sjávarútvegsfyrirtækja um
helming. Miðað við þær forsendur
er ríkisstjórnin því að láta reikna út
fyrir sig gífurlega skuldbreytingu
sem, ef af henni verður, mun hafa
mikil áhrif á fjármagnsmarkaðinn.
-gse
Dubaitogararnir:
Aðeins ábyrgð fyrir
því sem er smíðað hér
- segir iönaðarráðherra
„Þetta mál liggur skýrar fyrir en
Marokkótogararnir en eigi að síður
er ekki fuUljóst hvaö í þessu tUboði
felst. Verðið á skipunum er hærra
og að því leyti er þetta betra mál,“
sagði ráðherra. Rætt hefur verið um
að til að af smíðinni geti orðið þurfi
800 milljón króna ríkisábyrgð að
koma til. Sagði iðnaðarráðherra að
aðeins yrði hægt að sætta sig við
hluta af þessari ábyrgð og þá aðeins
sem svarar því sem byggt er hérlend-
is.
->SMJ
Hver borgar 95 mUIjóna lækkun á ráforkuverði:
Spurning hvað
ríkið gerir
„Þaö kemur aUs ekki tU greina að
héðan verði nokkurn tímann veittar
ábyrgðir umfram þau verk sem hér
eru unnin,“ sagði Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra en á vegum iðnað-
ar- og fjármálaráöuneytisins er nú
unnið að athugun á því hvað felst í
þeim samningum sem Stálvíkur-
menn hafa gert og ætla hugsanlega
að gera varðandi smíði á 14 skuttog-
urum fyrir Ðubaimenn. Er það svip-
uð athugun og fór fram þegar smíði
Marokkótogaranna kom upp á yfir-
bor^ið.
„Það eru náttúrlega orkuöflunar-
og dreifingarfyrirtækin og ríkið. Rík-
ið á ýmist stóran hlut í eða ber
ábyrgð á rekstri margra þessara fyr-
irtækja svo á endanum er þetta
spuming um hvað ríkið getur og
hvað ríkið gerir," svaraði Jón Sig-
urðsson iðnaðarráðherra aðspurður
um hver greiddi fyrir 25 prósent
lækkun á rafmagnsverði til frysti-
húsa sem ríkisstjórnin hefur ákveð-
ið. Tahð er að þessi niðurgreiðsla
muni kosta um 95 milljónir króna.
„Á verðstöðvunartímanum er auð-
vitað ekki hægt um vik að breyta
gjaldskrám orkufyrirtækjanna til að
standa undir þessu. En það er ekki
enn komin niðurstaða í þessu máh.
Það er til athugunar hjá mér, sjávar-
útvegsráðherra og fjármálaráð-
herra."
-gse
OPNUNARTÍMI
mánudaga — fimmtudaga .. 09.00—18.00
föstudaga .... 09.00—19.00
og opið á iaugardögum til kl. 16.00.
REYKJAVÍKURVEGI 62 - SÍMI 651680
HAFNARFIRÐI
SNÓKEREINVÍGI
STORVmURDUR
ÁÍSLANM!
FUICLIIDASHÓKCR llfl^
Missið ekki af þessu einstaka snókereinvígi sem fram fer á
Hótel íslandi 17. jan. Kl. 21.00. (Húsinu lokað kl. 21.00).
eve uavis
Fimmfaldur heimsmeistari
Isnóker
Miðasala fer fram á helstu billiardstofum landsins og
í Billiardbúðinni Ármúla 15 Reykjavík.
Billiardbúðin.
Nr. 3 á heimslistanum I
snóker.