Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1989. Fréttir Sameinuð verkalýðs- hreyfing í samninga við ríkisstjórnina? - ráðherrar á fundum hjá Verkamannasambandinu og opinberum starfsmönnum „Ég tel að öll sambönd og bandalög vinnandi manna eigi að ganga sam- einuð til samninga við ríkisstjórnina um það sem snýr að tryggingum, sköttum og öðru því sem semja þarf um við ríkið. Aftur á móti tel ég að semja eigi um kaup og kjör í minni hópum og þar fari saman þeir sem eiga samleiö," sagði Bjöm Grétar Sveinsson, formaður Verkalýðsfé- lagsins Jökuls á Höfn, í samtali við DV. Hann sagði að sú hugmynd að sam- bönd og bandalög vinnandi fólks kæmu sameinuð til samninga við ríkisvaldið ætti vaxandi hljómgrunn innan verkalýðshreyfingarinnar. Björn benti á að þeir sem fyrstir hefðu farið af stað í samningum und- anfarin ár, hefðu um leið markað leiðina fyrir aðra í samningum. Þetta hefði oft verið óvinsælt af þeim sem síðastir semja vegna vegna þess að samningar þeirra vom bundnir þeg- ar þeir fyrstu sömdu. Ef fulltrúar allra sambanda og bandalaga kæmu sér saman um ákveðnar kröfur strax í byrjun sætu engir eftir. Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, sagði í samtali við DV að hann tæki undir þetta sjónarmið. „Varðandi það að bæta kjör launa- fólks í landinu tek ég heilshugar undir' hugmyndir um sem víðtæk- asta samvinnu þess og þá alveg burt- séð frá því hvað samböndin eða bandalögin heita,“ sagði Ögmundur. -S.dór Skipverjar á Akureyrartogaranum Harðbak voru i fyrradag á björgun- arnámskeiði hjá Slysavarnaskóla sjómanna. Æfingin fór fram við Torfunesbryggju, TF-SIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var notuð við æfinguna og æfð voru ýmis afbrigði björgunar. DV-mynd gk Fundaferð A-flokka foraianna: Kemur ekki til mála að ég mæti á fundinn - segir Karvel Pálmason alþingismaður „Ég hef sagt þeim það að ekki komi til mála að ég mæti á þennan fund á ísafirði á föstudaginn. Ég sé engan tilgang með þessum fundum, tel þá enda vera tímaskekkju," sagði Kar- vel Pálmason alþingismaður að- ARCTIC CAT spurður hvort hann ætlaði að mæta á fyrsta fund formanna A-flokkanna á ísafirði á föstudag. Mikil andstaða er í báðum flokkun- um, Alþýðuflokki og Alþýðubanda- lagi, viö þessa sameiginlegu funda- ferð formannanná. Ýmsir þingmenn flokkanna hafa lýst andstöðu við þá, líkt og Karvel. Andstaðan er öllu meiri í Alþýöuflokknum en Alþýðu- bandalaginu. Hjörleifur Guttormsson hefur lýst því yfir í DV að hann sé andvígur þessum fundum og hann mun ekki mæta á fundinn á Austfjörðum. „Ég mun áreiðanlega ekki mæta á fundinn á Akranesi,“ sagði Skúh Alexandersson aðspurður hvað hann ætlaði að gera. Skúh sagði að í sjálfu sér væru þessir fundir sér að meina- lausu. Menn mættu sín vegna ferðast um landið og tala viö fólk. Hins veg- ar væri þetta ekki leiðin til að sam- eina A-flokkana, það myndi aldrei gerast á ferðalögum Jóns Baldvins ogÓlafsRagnars. -S.dór Bréfakaup lífeyrissjóöanna: verð 400.000 verð 390.000 verð 230.000 verð 340.000 verð 360.000 verð 320.000 verð 300.000 verð 310.000 verð 250.000 verð 185.000 Óskum eftir sleðum í umboðssölu íla- Vélsleðasalan BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR 84060 & 681200 ■ Suðurlandsbraut 14 Arctic Cat: Wild Catárg. '88, El Tigre árg. '88, EITigreárg. '85, Cheetah árg. '87, Cheetahárg. '87, Cheetah árg. '87, Cheetah árg. '86 Pantera árg. '87 Yamaha SRU árg. '83, Polaris Indytrail árg. '83, Þurfum formlega yfirlýsingu um ríkisábyrgð - segir Benedikt Davíðsson, formaður stjómar SAL „Við höfum sent út leiðbeiningu til lifeyrissjóðanna um það að við telj- um skorta tryggingar til þess aö heimilt sé fyrir sjóðina að kaupa þessi skuldbreytingarbréf Atvinnu- tryggingarsjóðs. Og enn höfum við ekki séð neitt sem breytir þeirri skoðun. Ef einstakir ráðherrar, sem hlaupa á milh funda hjá verkalýðs- félögum, eru með yflrlýsingar um að bréfin séu ríkistryggð væntum við þess að ríkisstjómin gefi út formlega yfirlýsingu eöa setji lög þess efnis að bréfin séu ríkistryggð,“ sagði Bene- dikt Davíðsson, formaður stjórnar Sambands almennra lífeyrissjóða, í samtah við DV. Hann sagði að áskorun fram- kvæmdastjórnar Verkamannasam- bandsins, um að lífeyrissjóðimir keyptu bréfin, breyttu þarna engu um. Hins vegar, ef ríkisstjórnin gæfi út formlega yfirlýsingu um ríkis- ábyrgð á bréfunum, yrðu stjórnar- menn SAL manna fyrstir til að mæla með því að sjóðirnir keyptu bréfin á sambærilegum kjömm og þeir geta fengið annars staðar. Benedikt benti á að í upphafi hefði verið leitað, af ýmsum aðilum, til forsætisráðherra og spurt hvort rík- isábyrgð væri á þessum bréfum. Hann gat ekki svarað því strax. Nokkru seinna svaraði hann því th að svo væri ekki. Enda eru lögin um Atvinnutryggingarsjóö þannig að þau segja að sjóðurinn beri ábyrgð á skuldbindingum sínum, þar á meðal þessum bréfum, með eignum sínum einum. Þetta þýðir að lögin kveða e’.vki á um ríkisábyrgð. „Skömmu seinna fóm svo einstaka ráðherrar, þar á meðal Steingrímur Hermannsson, að lýsa því yfir í fjöl- miðlum og víöar að þeir teldu að þessi bréf væru jafngóð og bréf ann- arra ríkistryggðra sjóða. Það eru hins vegar hvergi til neinir pappírar um að svo sé. Þegar við fáum shka pappíra, annað hvort í lögum eða í yfirlýsingu frá ríkisstjórn, munum við mæla með að lífeyrissjóðirnir kaupi bréfin," sagöi Benedikt Dav- íðsson. -S.dór Sandkom dv Allt fór i tollinn Togarifrá oinusjávar- plássatmakom úrsigfingu skömmu(.>!tir jól. Forráða- mennútgerð- arinnarkéýþtu séróliklegustu hlutiiút- landinuog fluttu heim með togaranum. Þegar skipið kom til heimahafnar lét skip- stj órinn toh verði vita af varningi út- geröarmannanna. Hald var lagt á aht góssið. Sú mun ekki hafa verið ætlun eigendanna. Frá því skipið kom úr siglingunni hafa forráöamenn fyrir- tækisins verið að ley sa vaminginn úr tohinum - í smáskömmtum. Út- gerðarforkóffar staðarins kunna skipstjóranum vist litlar þakkir. Steingrímur slæmur félagsskapur? Stöð2sýndi nýl(’gaþ;ut|iar semsjónvarps- stjórinn, Jón ÓttarRagnars- son. ræddi við SteingrimHer- mannsson for- sætisráðberra. Þátiurinn hét „íslagtogimeð Steingrími Hermannssyni". í orða- bókum er slagtog skilgreint sem fé- lagsskapur. Nokkrir málvemdunar- menn hafa hafl samband við Sand- korn vegna þáttarins. Þeir eru á einu máli um að slagtog merki slæmur félagsskapur. Eflaust má deila um h vort gott er eða vont að vera í félagsskap við SteingrímHermannsson. Margir, þá sérstaklega pólitískir andstæðingar Steingrims, telja ekki aðeins að slæmt sé að vera í félagsskap með honum - heldurogaöhannséhinn versti maður. Sjálfstæðismenneru þeirra á meðal. Þeir munu seint fy rir- gefa Steingrími er hann dró stólinn undan Þorsteini. Bílasalar bölva Bifreiðaskoðun Bilasalareru alltannaðen ánægðirmeð Bifreiðaskoðun íslands.Tilsíð- ustuáramóta, erBifreiðaefhr- lihðvaroghét, gátuþeirfengið upplýsingar uraveðbondog kílógjaldbif- reiða með einu símtah. Eftir áramót, er Bifreiðaskoðun Islands tók til starfa, er þetta öllu erfiðra. Þegar rik- isfyrirtækið hefur hætt og einkavæð* ingin hefur tekið við þyngjast öll samskipti og verða erfiðari og um- fram aht leiöinlegri. Bílasalar mtrnu sakna Bifreiðaeftirhtsins sárlega - þrátt fyrir að þjónusta þar hafi ekki þótt ýkja merkileg. Það sannast enn og aftur aö enginn veit h vað átt hefúr fVrrenmissthefúr. Hrafn horfði í urnræöu- þætti, sem HrafnGunn- laugssonstýrði íSjónvarpinuá þriðjudags- kvöld,nefhdi hannnokkrum sinnumorðatil- tæki setnfáir hafahcyrtáö- ur.Þettaum- deilda orðatiltæki er svona: að horfa ígráöið. Samkvæmtupplýsingum frá Oröabók Háskólans hefur oröatil- tækið verið notað einu sinni áður. Það gerði Jón Thorarensen í skáld- sögunni „Útnesjamenn" sem kom út árið 1949. Eftir þátt Hrafns skiptust menn á skoðunum um orðatiltækið. Þar sagði Hrafn aö harrn hefði þetta úr þýðingu eftir Helga Hálfdanarson. Sé það rétt hjá Hrafhi - þá veit Orða- bókin ekki að Helgi Hálfdanarson hafi notað þetta orðatiltæki. Umajón: Sigurjón Egilsson í gráðið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.