Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Page 17
16
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1989.
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1989.
17
íþróttir
Iþróttir
Frétta-
stúfar
Það er ekki á
hverjum degi sem
________atvinrtumenn í
knattspymu hvería
sporlaust frá félögum sínum.
Þetta hefur þó átt sér stað í
Belgíu. Zambíumaðurinn Ka-
lusha Bwalya, sem leikur með
Cercle Brugge í 1. deildinni, lék
með landsliði Zambíu gegn
Marokkó um síðustu helgi og
átti hann að mæta aftur til
Brugge á mánudaginn. Ekkert
hefur til hans spurst og einn
forráðamanna Brugge sagði í
gær að hann hefBi ekki hug-
mynd um hvar Zambíumann-
inn væri að finna. Þess má geta
að Bwalya varð frægur á
ólympíuleikunum í Seoul þegar
hann skoraði þrjú mörk í 4-ð
sigri Zarabíumanna gegn
ítölum.
Markvörðurinn dæmdur
Aðalmarkvörður Real Madrid
lék ekki með liði sínu í gær-
kvöldi er Real Madrid lék gegn
Malaga í spönsku knattspyrn-
unni. Ástæðan er sú að hann
var dæmdur í leikbann á dög-
unum fyrir óíþróttamannslega
framkomu í frægum leik Real
Madrid og Atletico Madrid. Þá
var þremur leikmönnum vísað
af leikvelli og átta gul spjöld
voru á lofti. Forráðamenn Real
áfrýjuðu upphaflegum dómi
sem var þriggja leikja bann og
fésekt og höfðu eins leiks bann
upp úr krafsinu.
Timamót í körfunni
í fyrsta skipti í 21
ár munu ísraelsÉir
körfuknattleiks-
menn leika i Sovét-
Jh
ríkjunum í vikunni. Þá mætir
Maccabi Tel Aviv frá ísrael liði
CSKA Moskva í Evrópukeppni
félagsliða. Sovétrikin sMtu
stjómmálasambandi viö ísrael
árið 1967 og síðan hafa sam-
skipti þjóðanna verið stirð á
íþróttasviðinu sem á öðrum
sviðum. Um 200 stuöningsmenn
hugðust fara með Maccabi til
Moskvu en þeir fengu ekki
vegabréfsáritun. Búist er viö
miklum hörkuleik enda á ferö
tvö af bestu félagsliðum i heimi
í körfuboltanura.
IAAF vill breytingu
Nokkrar líkur eru
nú taldar á þvi að
_____ alþjóða frjáls-
íþróttasambandið
samþykki nýjar reglur næsta
haust vegna þátttöku ftjáls-
íþróttamanna á mótum í Suður-
Afríku. Tlllaga hefur komið
fram þess efnis að ef íþrótta-
maður keppi í S-Afríku fari
hann sjálfkrafa í aMt að tveggja
ára bann. TaMð er að þessi
ákvæði, verði þau samþykkt,
geti haft mikil áhrif á hugsan-
lega endurkomu hlaupadrottn-
ingarinnar Zolu Budd til Bret-
lands en hún hefur lýst þvi yfir
að hún hafi áhuga á því að snúa
á ný til Bretlands.
Taka „stubbarnir“
völdin í fótboltanum?
Júgóslavneski knattspyrnu-
þjálfarinn Ivic Tomislav, sem
er viö stjórn hjá franska Mðinu
Paris SG, hefur lýst yfir þeirri
skoðun sinni að knattspyrnu-
menn framtíðarinnar verði
leikmenn sem séu 1,60 metrar á
hæð og á hann þar ekki síöur
við varnarleikmenn. Bendir
Júgóslavinn á aö þyngdar-
punktur þeirra minni sé mun
lægri og þaö gefi betri mögu-
leika á betri knattmeðferð og
meiri hraða. Ivic þessi er þekkt-
ur þjálfari og hefur raeðal ann-
ars þjálfaö þjá Ajax og Porto.
Þríeyki
með IBK
- Guðni, Ástráður og Steinar
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Nú geta leikmenn og stuðnings-
menn 1. deildar liðs ÍBK í knatt-
spyrnu andað léttar. Um helgina
munu þrír þjálfarar skrifa undir
samning við félagið, þeir Guðni
Kjartansson, Ástráður Gunnarsson
og Steinar Jóhannsson.
Eftir öruggum heimildum DV mun
þó þessi samningur aðeins gilda til
vorsins og þá mun skýrast hvort þeir
stjórni liðinu áfram út keppnistíma-
bilið. Þremenningarnir munu einnig
sjá um 2. flokk félagsins.
Þessir þrír eru allir fyrrverandi
leikmenn með ÍBK og hafa allir þjálf-
að meira og minna fyrir félagið.
Guðni stjórnaði meistaraflokkslið-
inu um nokkurra ára skeið og hinir
tveir hafa séö um yngri flokka þess
með góðum árangri.
Skíðastökkvarinn:
Örninn fiðurlausi
er sérvitur trúður
- segir breskur íþróttaáhugamaður um Edwards
Ekki eru allir sáttir við framgöngu
skíðastökkvarans heimsfræga, Eddy
Edwards, sem unnið hefur hug og
hjarta heimsbyggðarinnar með
framgöngu sinni.
Edwards er einn þeirra fáu sem er
dýrkaður fyrir það eitt að vera léleg-
astur skíðastökkvara en hann hefur
gjarnan það eitt að markmiöi að
komast klakklaust fram af palMnum
og niður á jafnsléttu.
Nýverið heppnaðist þessi ætlun
„arnarins fiðurlausa" ekki betur en
svo að hann tók kollsteypu og slasað-
ist illa á mótsstað í Austurríki.
Kom í ljós í kjölfar rannsóknar að
„örninn" þjáist af innvortis blæðing-
um og munu nýrun hafa skaddast.
Er því nánast ljóst að hann mun ekki
keppa meira á þessu tímabili.
í bréfi í Sunday Mirror nýverið
lætur bréfritari nokkur þessi orð
falla um slysið:
Bestu fréttir vikunnar eru þær að
Eddie Edwards er meiddur. Vonandi
merkja þau tíðindi að við verðum
lausir við hin fáránlegu tilþrif hans
í snjópum.
Hvers vegna er þessum manni
sinnt í fullri alvöru þegar ljóst er að
hann er ekkert annað en sérvitur
trúður.
Blaðamaður Sunday Mirror svarar
bréfritara og segir: Vertu sanngjarn,
félagi, hann er hugrakkur og sérvitur
trúður. JÖG
• Eddie Edwards, einn vinsælasti skíðastökkvari í heimi, undirbýr sig fyrir
stökk á móti í Austurríki fyrr í vetur. Simamynd/Reuter
Sagt efdr Mkinn:
Betra en gegn Svíum
- sagði Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfari
ar leikfléttur okkar gengu upp.
Varnarleikurinn var einnig mjög
sterkur. Héðinn Gilsson átti stór-
kostlegan leik. Um næstu helgi
mætum við A-Þjóöveijum heima
í tveimur landsleikjum og ég hvet
fólk til að fjölmenna á þá leiki.
Gunnar Guimarsson, DV, Slagelse:
„Viö stöndum nálægt íslenska
liðinu. Það vantar herslumuninn
á að við stöndum jafnfætis íslend-
ingum. Eftir á að hyggja er spurn-
ing hvort við heíöum átt að taka
Kristján Arason úr umferð. En
maður er alltaf vitur eftir á. ís-
lendingar voru seigir að finna
glufur í vörninni hjá okkur. fs*
lendingar eru vel samæfðir og
með gott kerfisbundið Mð. Ég var
óánægður með markvörsluna hjá
okkur,“ sagöi Anders Dahl-Nils-
en, landsMðsþjálfari Dana, eftir
leikinn gegn íslendingum t gær-
kvöldi.
Þorgils Óttar Mathiesen
„Þetta var nfiög skemmtilegur
leikur. Við börðumst vel og flest-
Bogdan Kowalczyk
„Þessi leikur var betri en leikur-
inn gegn Svíum í fyrrakvöld. Nú
lékum við vel allan leikinn. AMir
sem einn börðust vel. Einar,
Kristján og Héðinn voru bestir.
Héðinn hefur þroskast mikið sem
handknattleiksmaður. Sjálf-
straustiö hefur einnig aukist til
muna. Hann á samt eftir aö bæta
sig mikiö á næstunni," sagði
Bogdan landsMðsþjálfari eftir
leikinn gegn Dönum í gærkvöldi.
• Bjarki Sigurösson átti ágætan leik gegn Dönum í gærkvöldi og skoraði tvö mörk. Á myndinni sést Bjarki fá óblíðar móttökur
frá Magnus Wislander í leiknum gegn Svíum í fyrrakvöld. Símamynd Pressens Bild/Tommy Svensson
Eyrarsundsmótið 1 handknattleik:
Danir lagðir í
fjörugum leik
- íslendingar sigruðu Dani, 24-22, á Sjálandi 1 gærkvöldi
Guimar Gunnarsson, DV, Slagelse:
íslendingar sigruðu Dani á Eyrar-
sundsmótinu í handknattleik í Slagelse á
Sjálandi í gærkvöldi. Lokatölur leiksins
urðu 24-22 en í hálfeik hafði íslenska Mð-
ið eins marks forystu, 12—11. Leikur þjóð-
anna var fjörugur og skemmtilegur á að
horfa. íslenska liðið virðist vera að
springa út á nýjan leik, leikgleðin virðist
nú alls ráðandi.
íslendingar byrjuðu vel gegn Dönum
og komust íjótlega í 3-1. Framan af fyrri
hálfleik gengu öll leikkerfin upp og var
stundum unun að sjá til liðsins. Úm miðj-
an fyrri hálfleik náðu Danir forystunni,
6-7, þrátt fyrir að íslendingar væru ein-
um fleiri. íslendingar jöfnuðu leikinn,
10-10, og stuttu síðar kom Héðinn Gilsson
íslendingum yfir á nýjan leik, 11-10, með
frábæru langskoti. Eins marks forystu
héldu íslendingar fram að leikhléi. Bjarki
Sigurðsson skoraði tólfta markið með því
að stökkva inn úr og grípa knöttinn á
lofti.
Einar Þorvarðarson gaf íslenska liðinu
tóninn strax i upphafi seinni hálfleiks
með því að verja tvö skot á glæsilegan
hátt og íslendingar komust í 14-12. Danir
voru ekki af baki dottnir og jöfnuðu,
16-16. Sigurður Sveinsson kom inn á í
fyrsta skipti í leiknum þegar fimm mín-
útur voru til leiksloka.
Sigurður hleypti strax lífi í leikinn og
var ekki fyrr kominn. inn á en hann gaf
gullfallega sendingu á Þorgils Óttar sem
skoraði. Staðan var þá 2l-19 fyrir íslend-
inga og sigurinn kominn í örugga höfn.
Þó tókst Dönum að minnka muninn i
eitt mark þegar skammt var til leiksloka.
En Guðmundur Guðmundsson rak enda-
hnútinn á góðan sigur tslendinga er hann
skoraði mark úr hraðaupphlaupi örfáum
sekúndum fyrir leikslok.
íslendingar voru vel að þessum sigri
komnir. Vörnin var góð, mikil barátta
og þessir þættir lögðu grunninn að sigr-
inum. Einar varði vel í markinu, sér-
staklega í síðari hálfleik. Einar varöi alls
15 skot í leiknum. Héðinn Gilsson átti
stórleik bæði í sókn og vörn. Mikið hvíldi
á Kristjáni Arasyni í sóknarleiknum en
hann skilaði hlutverki sinu með sóma.
Þessi leikur sýnir að liðið er á réttri leið.
Danir eru með gott lið um þessar mund-
ir en þurfa meiri samæfmgu. Liðið leikur
léttan og skemmtilegan handknattleik.
• Dómarar leiksins voru norskir, Ant-
onsen og Schjerven, og dæmdu þeir í
heildina þokkalega.
• Mörk íslendinga: Héðinn GHsson 7,
Kristján Arason 6, Guðmundur Guð-
mundsson 3, Sigurður Gunnarsson 2,
Bjarki Sigurðsson 2, Þorgils Óttar 2, Júl-
íus Jónasson 1, Sigurður Sveinsson 1/1.
• Mörk Dana: Sletting 8, Erik Veje 4,
Jörgensen 4, Fenger 3/2, Lundby 2, Mertz
1/1. .
• Áhorfendur á leiknum voru 1200 og
uppselt.
• Svíar sigruðu Búlgara, 27-21, en ís-
lendingar leika gegn Búlgörum í dag.
Þorvaldur á leið
til Þyskalands
- til viðræðna við Paderbom-Neuhaus
Þorvaldur Örlygsson, landsMðs-
maður í knattspyrnu úr KA, fer á
morgun til Vestur-Þýskalands tíl
viðræðna við forráðamenn 3. deild-
ar Mðsins Paderborn-Neuhaus. Það
félag var í sambandi við hann fyrir
jól, eins og DV skýröi þá frá.
„Ég var búinn að gefa þeim af-
svar en síðan höfðu þeir samband
aftur nú í vikunni og ég ákvað að
slá til og athuga hvaö þeir hafa upp
á að bjóöa. Mér skilst að þeir vilji
að ég leiki með þeim fram í miðjan
maí og ef það verður missi ég af
fyrstu leikjum KA í 1. deiidinni.
Ég hef meiri áhuga á að hætta í
tæka tíð til að vera löglegur í fyrsta
leik með KA en þetta ætti aMt að
skýrast á næstu dögum,“ sagði Þor-
valdur í samtali við DV í gærkvöldi.
Til stóð að Þorvaldur færi í skóla
í Englandi nú eftir áramótin og
æfði með 1. deUdar Mði Nottingham
Forest. Hann sagöi að Mtlar líkur
væru nú á að af þvi yrði.
-VS
Enska bikarkeppnin:
Rosenoir tryggði
West Ham sigur
- er liðiö sló Arsenal út úr keppninni
Þau stórtíðindi áttu sér stað í 3.
umferð ensku bikarkeppninnar í
gærkvöldi að botnlið 1. deildar, West
Ham, sótti toppliðið Arsenal heim og
sló það út úr keppninni með 0-1 sigri.
Það var blökkumaðurinn Leroy
Rosenoir sem rak naglann í líkkistu
„barónanna frá Highbury" með
marki 13 mínútum fyrir leikslok. Þá
svaf vörn Arsenal illa á verðinum
eins og oft áður í leiknum og var
refsað grimmilega. West Ham sækir
Swindon heim í 4. umferð keppninn-
ar.
• Everton átti í erfiðleikum með
gesti sína, 2. deildar lið WBA, í gær-
kvöldi en náði að merja 1-0 sigur.
Kevin Sheedy skoraði sigurmarkið
fiórum mínútum fyrir leikslok og
Everton heimsækir Plymouth í 4.
umferðinni.
• QPR og Manchester United
gerðu sitt annað jafnteíli, nú 2-2, á
Loftus Road. Mark Stein skoraði fyr-
ir QPR en Tony GUl jafnaði fyrir
Man. Utd. Gestirnir komust síðan
yfir í framlengingu með marki frá
varamanninum Deniol Graham en á
lokasekúndunum tókst Alan McDon-
ald að jafna fyrir QPR, 2-2.
• Liðin þurfa aö leika í þriðja sinn
og sigurvegarinn mætir Oxford
heima í 4. umferð. Oxford vann ein-
mitt Sunderland, 2-0, í gærkvöldi.
Loks vann Reading 2-1 sigur á Tran-
mere og mætir Grimsby á útivelli í
4. umferð.
-VS
# Leroy Rosenoir skoraði markið
gegn Arsenal í gærkvöldi.
• Dave Beasant.
Drizic til Southampton
og Beasant til Chelsea
Chris Nicholl, framkvæmdastjóri Southampton, hefur tekið upp budd-
unaog keypt júgóslavneska vamarmanninnMilos Drizicfrá Rad í Belgrad
fyrir um 250 þúsund pund. Drizic er 28 ára gamaU og hefúr leikið þrjá
landsleiki fyrir Júgóslavíu. Þá hafa framkvæmdastjórar Chelsea og New-
castle komist að samkomulagi um kaupverð fyrir markvörðinn Dave
Beasant sem lék áður með Wimbledon en hann gekk til liðs við New-
castle. Bobby CampbeM, framkvæmdastjóri Chelsea, sem leikur í 2. deild,
hefur faMist á að greiða rúmlega 800 þúsund pund fyrir Beasant sem
hefur verið valinn í enska landsliðshópinn á þessu keppnistíraabiM. Talið
er víst að af kaupunum verði en þeir CampbeU og Beasant eiga aðeins
eftir að komast að samkomulagi um nokkur smáatriði.
-SK
Anders DaM ósáttur við Islandsferðina:
„Örvæntingarferðin“
hafði enga þýðingu
- en þá væntanlega tapleikurinn gegn íslandi í gær?
Danir hafa átt erfitt uppdráttar síð-
ustu vikurnar en sjálfsagt tekið gleði
sína í kjölfar sigursins á Búlgörum í
Eyrarsundsmótinu sem var afar
sannfærandi.
Á undan höfðu Danir tapað í tví-
gang fyrir íslendingum - milli jóla
og nýárs - og síðan fyrir tékkneska
meistaraMðinu Dukla Prag.
í samtali við danska blaðið Politi-
ken á dögunum segir landsliðsþjálf-
arinn Anders Dahl-Nielsen að hann
hafi engin not af leikjunum tveimúr
gegn íslendingum. Segir hann í sam-
talinu að í lið sitt hafi þá skort fjölda
fastamanna og hann sjálfan vantað
ofan í kaupið.
Þá segir Anders að leikurinn gegn
tékkneska liðinu hafi ekki heldur
neina þýðingu þar sem hann hafi
verið spilaður í kjölfar viðureign-
anna tveggja gegn íslendingum.
Kveður Nielsen leikmenn sína hafa
einfaldlega verið útkeyrða þegar þar
var komið við sögu.
- Á þessu augnabliki vissi meiri-
hlutinn af leikmönnum mínum ekki
hvernig rúm leit út, segir Anders í
samtalinu við Politiken.
Með hliðsjón af þessum orðum
landsliðsþjálfarans danska má ætla
að leikur íslendinga og Dana í gær-
kvöldi komi honum að góðum not-
um. í hverju fahi tefldu danskir þá
fram sínu allra sterkasta Mði og á
bekknum sat enginn annar en And-
ers sjálfur. Þótt „örvæntingarferð-
in“, eins og danska blaðið PoMtiken
nefnir íslandsforina, hafi mistekist
með öllu þá er óhætt að ætla að Dan-
ir gleðjist yfir því gildi sem leikurinn
í gærkvöldi halði fyrir þá þótt úrslit-
in hljóti hins vegar að orka tvímælis.
JÖG
Uxarnir
stóðu í
ÍR-ingum
Þórhallui Ásmundas., DV, Sauðárkróki:
Molduxar, félagsskapur „eldri“
körfuknattleiksmanna hér á
Króknum, stóðu sig með prýði
gegn ÍR-ingum í 16 liöa úrslitum
bikarkeppninnar í gærkvöldi.
Þeir höfðu yfirhöndina fyrstu 7
mínútumar í allskemmtilegum
leik en uröu síðan að gefa eftir.
Luku leiknum samt með sæmd,
voru 35-44 undir í hléi og lokatöl-
ur urðu 64-79, Reykjavíkurliðinu
í hag.
Alfreð Guðmundsson var at-
kvæðamestur Molduxanna með
17 stig. Jón Jósefsson skoraði 15,
Guðmundur Sveinsson 12 og
HaMdór Halldórsson, knatt-
spymumarkvörður FH-inga,
gerði 10 stig. Hjá ÍR skoraði
Sturla Örlygsson 22, Jón örn
Guðmundsson 12 og þeir Gunnar
Örn og Bragi Reynisson 11 hvor.
Síðari leikur Mðanna fer fram í
Seljaskólanum eftir viku.
Leikir í kvöld
í kvöld eru á dagskrá þrír leikir
í 16 liða úrshtum bikarkeppninn-
ar í körfuknattleik. Grindavík og
Haukar mætast í Grindavík og
Tindastóll og ÍS á Sauðárkróki.
Báðir þessir leUúr hefjast kl. 20
en kl. 21.30 leika B-lið ÍS og Léttir
í íþróttahúsi Kennaraháskólans.
Þetta eru fyrri viðureignir félag-
anna.
Þá verða leiknir þrír leikir í 1.
deUd kvenna sem aUir hefjast kl.
20. KR og ÍBK leika í Hagaskóla,
ÍS og Grindvikingar í íþróttahúsi
Kennaraháskólans og ÍR og
Njarðvíkingar í Seljaskóla.
Haukar
efstir
Haukar náðu í gærkvöldi for-
ystunni í 2. deild karla í hand-
knattleik þegar þeir sóttu Selfyss-
inga heitn og sigruðu, 26-24. Þeir
standa þó verr að vigi en næstu
lið, ÍR og HK, því þeir hafa leikið
tveimur leikjum meira.
í fyrrakvöld vann Aflurelding
yfirburðasigur á ÍH, 35-20, í þýð-
ingarmiklum fahbaráttuleik að
Varmá. Staðan í 2. deild er þessi:
ÍR. 1’ .10 8 1 1 265-192 17
HK .10 8 1 1 267-202 17
Ármann.. .10 6 1 3 231-231 13
Selfoss .11 5 0 6 279-275 10
Njarðvík. .10 4 1 5 249-239 9
Keflavík.. .10 3 0 7 219-240 6
Aftureld.. .11 3 0 8 254-283 6
Þór .11 3 0 8 217-282 6
ÍH .11 2 0 9 208-301 4
-VS
Knattspyma:
Marteinn
fertil
Tindastóls
Knattspyrnumaöurinn Mar-
teinn Guðgeirsson, sem var í Mði
Fram á síöasta sumri, hefur nú
ákveðið að ganga til liðs viö 2.
deUdar lið Tindastóls.
Marteinn, sem einnig er lið-
tækur blakmaður og var raunar
kosinn blakmaður ársins 1987,
lék með Þrótti frá Neskaupstað
allt þar til hann fór yfir tU ís-
landsmeistara Fram í fyrravetur.
-JÖG/VS