Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1989, Blaðsíða 5
au ffíí'íí i MMMÖtFSSÖS
FÖSTUDAGUR 3. FEBRUAR 1989.
5
Fréttir
fslendingur í Bretlandi:
„Get selt hundruð
tonna af kindakjöti“
- reynt að fá undanþágu frá Eöiahagsbandalaginu
íslenskur veitingamaður í Suður-
Englandi segist geta tryggt sölu á
nokkur hundruð tonnum af íslensku
kindakjöti. Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðarráðherra vinnur að því
að fá undanþágu frá Efnahagsbanda-
lagi Evrópu til að koma kjöti til veit-
ingamannsins.
Magnús Steinþórsson rekur veit-
ingastað í Torque og er með íslenskt
lambakjöt á boðstólum. „íslenska
kjötinu var tekið afburðavel hérna
og mér býðst að opna veitingastað í
London út á kjötið,“ segir Magnús
og bætir við að kjötkaupmenn falist
einnig eftir íslenska lambinu. „Ég get
selt allt það kjöt sem innflutnings-
leyfi fæst fyrir og á mun hærra verði
en við fáum annars staðar."
Fyrir nokkru var tekið fyrir inn-
flutnine á íslensku kiöti til landa
Magnús Steinþórsson: vill fá ís-
lenskt lambakjöt til Bretlands.
Efnahagsbandalagsins. Guðmundur
Sigþórsson, skrifstofustjóri land-
búnaðarráðurieytisins, segir rök
bandalagsins vera þau að íslensk
sláturhús uppfylli ekki hreinlætis-
skilyrði.
Steingrímur J. Sigfússon segist
ætla að beita sér fyrir því að undan-
þága fáist til að Magnús geti að
minnsta kosti rekið sitt veitingahús.
„Mér finnst sjálfsagt að reyna að
komast inn á þennan markað og fer
þess á leit við fulltrúa okkar í Bruss-
el að hann taki upp máhð við Efna-
hagsbandalagið," segir Steingrímur.
í ár er gert ráð fyrir að selja um
2000 tonn af lambakjöti úr landi.
Búvörudeild sambandsins flytur
mestallt kjötið út til Norðurlanda.
-pv
Einn prófdómari
öllu Norðurlandi
Gylfi Knstjárwsson, DV, Akureyri:
Einn maður sér nú um að prófa
alla þá sem vfija taka ökupróf á
Norðurlandi og eru búsettir í
Húnavatnssýslum, Skagafirði,
Siglufiröi, Eyjaíjarðarsýslu og
Þingeyjarsýslum, eða á svæðinu
frá Hrútafiröi austur á Þórshöfh.
„Þetta verður án efa strembið en
ætti þó að takast með góðu sam-
starfi allra aðila,“ segir Siguröur
Indriðason, en hann er prófdómar-
inn sem hér um ræðir og er búsett-
ui’ á AkureyrL
„Þaö er ekki endanlega ákveðið
hvernig þessu verður háttað,“ segir
Sigurður. „I vetur mun ég fara á
staðina utan Akureyrar eftir þörf-
um hverju sinni, en það verðiu-
prófað á Húsavík, Sauðárkróki og
Blönduósi auk Akureyrar. Það
verður síðan ákveðið í vor hvaða
fyrirkomulag verður viðhaft i sum-
ar."
Sigurður segir að þetta fyrir-
komulag hafi ekki mælst illa fyrir
hjá þeim sem hann hefur rætt við.
„Ég hef sagt þeim að aht verði
reynt til að eiga við þá gott sam-
starf og þá á þetta að takast út þetta
ár en síðan á að endurskoða þetta
kerfi," sagði Sigurður.
' 20-80%
wsLÁTnm
SNYRTIVORUR
• SKARTGRIPIR
• SKÓR
• GALLABUXUR
SÆNGURVER • SÆNGUR
• TÍSKUFATNAÐUR
fyrir dömur og herra
BARNA- OG
UNGLINGAFATNAÐUR
SPORTVÖRUR
• KULDA
ÚLPUR
OG MARGT FLEIRA
VERSLUNARMIÐSTÖÐ VESTURBÆJAR,
HRINGBRAUT 119-121
Stórkostlegt
vöruúrval frá
mörgum fyrirtækjum:
Vinnufatabúðin
Axel Ó.
Pældu í því
Braga Sport
Gimm skartgripir
J.J. Túrbó
Viktoría
ísl. verslunarþjónustan
Endur og hendur
o.m.fl.
Opið frá 12-18.30. Laugardaga frá 10-16
Sími á markaðinum 11981.
A.^ SöltuM
•M£t> SVKRI !
Þr\$> G6RIR OtCKPlR.
SALTKJÖTfMU.
okK
Al tftollfai
£6t»$tcrr l
ðfc SMtffÆKlSY
KJOTMIÐSTOÐIN
Laugalæk 2, Sfmi 686511.