Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1989, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1989, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989. 7 Sigurður Þorvaldsson og Elvar Árni. DV-mynd Þórhallur 100 ára aldursmunur Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróld: Sigurður Þorvaldsson frá Sleitu- stöðum í Skagafiröi, elsti núverandi íslendingurinn, varð 105 ára 23. jan- úar síðastliðinn. Þann sama dag varð hann Elvar Ami Þrastarson 5 ára. Þeir eru þarna saman og nákvæm- lega 100 ár á milli þeirra félaga. Kauphækkunaráform Alþýðusambandsins: Farið verði fram á 10 prósent hækkun Miðstjórn Alþýðusambands Is- lands hefur sett á blað hugmyndir að nýjum kjarasamningum og sent til aðddarfélaga sinna til umíjöllun- ar. í þessum hugmyndum Alþýðu- sambandsins er lagt til að farið verði fram á 10 prósent kauphækkun eða að kaupmáttur verði sá sami og hann var í maí 1988 en það er 9 til 10 pró- sent hæækun kaupmáttar frá því sem nú er. Lagt er til að aðildarfélög ASÍ hafi samflot í komandi kjarasamningum. Aö reynt verði að ná skammtíma- samningum, að atvinnurekendur greiði allt lífeyrissjóðsiðgjaldið, að öllum verði tryggð desemberuppbót og orlofsuppbót. Enn fremur er í hugmyndunum rætt um neikvæðan tekjuskatt og hækkun skattleysismarka, hækkun bamabóta ásamt tekjutengingu allra bamabóta. Þá er stungið upp á að annaðhvort verði gamla vísitölu- bindingin á laun tekin upp eða rauð strik með sjálfvirkri hækkun um- fram mörk eða launanefnd. Stungið er upp á að verðstöðvun verði áfram, lækkun raunvaxta og aðhaldi í gengisskráningu. Síðan er stungið upp á ýmsum hugmyndum um félagsleg atriði sem ræða beri við ríkisstjómina. Þar em nefnd atriði eins og aukinn réttur í veikinda og slysatilfellum, aukinn réttur vegna veikinda barna og maka, tryggð verði framlög til dagvistarmála og fleira. -S.dór Fjarmálaraðherra: Það er ærið verkefni að verja kaupmáttinn Þau ummæh Ólafs Ragnars Gríms- leið að veruleg kjaraskerðing myndi sonar fjármálaráðherra að stefnt sé að því að kaupmátturinn út áriö verði hinn sami og hann er nú á fyrsta ársfjórðungi ársins, hafa vakið upp hörð viðbrögð foringja í laun- þegahreyfingunni. Margir þeirra höfnuðu þessu í samtah við DV í gær og krefjast aukins kaupmáttar. Ólaf- ur Ragnar var inntur álits á þessum viðbrögðum. „Það'er nú út af fyrir sig ærið verk- efni að verja og halda þeim kaup- mætti sem nú er, miðaö við þau skil- yrði sem við lifum við um þessar mundir. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir þeim aðstæðum sem eru í þjóðfélaginu. Forsvarsmenn at- vinnurekenda, meðal annars form- lega Félag íslenskra iðnrekenda, hafa sett fram kröfur um 15 til 20 prósent gengisfellingu. Bæði Sjálf- stæðisflokkurinn og Kvennalistinn hafa sett fram, á Alþingi og annars staðar, sömu kröfur. Það gefur auga fylgja í kjölfarið. Við þessi skilyrði og þegar horft er á atvinnuástandið í öllum landshlutum og minnkun þjóðartekna, þá er það ekki vanda- laust að verja og varðveita þann kaupmátt sem nú er og koma í veg fyrir að fyrrnefndum öflum takist að skerða hann stórlega," sagði Ólafur Ragnar Grímsson. Hann sagðist vona að ríkisstjómin geti átt góða samvinnu við samtök launafólks um að verja þann kaup- máttinn. Hann sagði að það væri meðal annars með hhðsjón af þessu sem ríkisstjómin teldi að baráttan fyrir því að varðveita kaupmáttinn sem nú er sé stórt verkefni og jafn- framt eigi að leitast við aö fá fram kjarajöfnun með margvíslegu móti. Nauðsynlegt sé að efla hag þeirra sem lægst hafa launin og nota þessa þröngu stöðu fyrst og fremst til kjarajöfnunar. Fréttir Hundrað manns á atvinnuleysisbótum á Sauðárkróki: Sveitafólk ávinnur sér rétt til bóta Þórhallur Asmundsson, DV, Sauöárkróki: í janúar var 100 manns úthlutað atvinnuleysisbótum á Sauðárkróki og em það talsvert fleiri bótaþegar en á sama tíma síðustu ár en svipaö- ur flöldi og á árunum 1981-1983. Hins vegar eru fáir úr fiskvinnslunni á atvinnuleyisbótum nú gagnstætt þvi sem þá var. Jón Karlsson, formaður verka- mannafélagsins Fram, sagði að at- vinnuleysið stafaði af almennum samdrætti, fyrirtæki hefðu verið að fækka fólki og eins væri mikið um að sveitafólk heföi áunnið sér rétt tii atvinnuleysisbóta. Þá væm 14starfs- menn á umsömdum atvinnuleysis- bótum sem stafaði af tímabundnum verkefnaskorti hjá tveimur sauma- stofum í bænum, Ylrúnu og Sauma- stofu Sigríðar. Dæmi væm um slíkar umsamdar bætur víðar af landinu. Meira í desember „í raun var atvinnuleysið meira í desember en janúar því þá var hrá- efnislaust í frystihúsunum og fólk verkefnalaust af þeim sökum. Fisk- vinnslufólkið hélt samt sínum dag- vinnulaunum vegna fastráðninga. Hins vegar kemur hráefnisskortur- inn við Atvinnuleysistryggingarsjóð þar sem umsamið er að í slíkum til- fehum greiði sjóðurinn visst hlutfall af launum starfsfólksins. Ég er samt ekki neitt sérlega svartsýnn og tel þetta ekki hættumerki. Vegna tog- arakaupanna ætti að vera meiri þörf fyrir fólk í frystihúsunum en maður reiknar samt með að komið verði fram á vor þegar tala atvinnulausra verður komin niður í það vanalega,“ sagöi Jón Karlsson. Sameinast Útgerðarfélag Skagfírðinga og Skjöldur? „Sé ýmislegt til hagræðis í sameiningu fyrirtækjanna“ ÞórhaBur Ásmundssan, DV, Sauöárkröki: „Það er meiri kraftur í þessari umræðu um sameiningu fiskvinnslu og útgerðar en nokkru sinni áður og aht bendir til þess að fjármögnunin standi og falli með þessu,“ sagði Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Skjaldar, þegar leitað var staðfest- ingar hans á því hvort sameining Útgerðarfélags Skagfirðinga og Skjaldar stæði fyrir dyrum. Fundur þessara aðila var haldinn um síðustu helgi og nú er verið að leita samþykkis smærri hluthafa í Skildi um sölu til útgerðarfélagsins. Frystihúsin við Skagaíjörð og Út- geröarfélag Skagfirðinga hafa sótt um fyrirgreiðslu frá Atvinnutrygg- ingarsjóði. Enn sem komið er hafa erindi þeirra ekki hlotið afgreiðslu en tahð er að sameining Skjaldar og ÚS muni liðka til fyrir því. „Það er ekkert um máhð að segja á þessu stigi. Skjaldarmenn eru aö skoða sín mál og við erum að ræða um sameiningu eins og tíðkast svo mjög í þjóðfélaginu nú,“ sagði Mar- teinn Friöriksson, stjórnarmaður ÚS. „Ég verð að játa að ég sé ýmislegt til hagræðis í sameiningu fyrirtækja hér og minnka þannig yfirbygging- una eftir að tölvufarganið kom. Þá býður þetta upp á að nýta þær fjár- festingar sem fyrir eru og veitir ekki af,“ sagði Ámi í Skhdi. BILfiSYNING LA.UGARDAG OG SUNNUDAG KL. 14-17. NISSAN MICRA NISSAN SUNNY ATH! VETRARDEKK FYLGJA MEÐ í KAUPUNUM Ingvar sýningarsalurinn, Rauðagerði (J) 91-3 35 60 -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.