Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1989, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989. Viðskipti Óli Anton Bieltvedt flytur til Þýskalands Óli Anton Bieltvedt, fyrrum for- stjóri Nesco Manufacturing hf. á ís- landi, flyst búferlum til Hamborgar í Þýskalandi innan skamms. „Viö hjónin ætlum að búa í Hamborg en auðvitað verður maður með annan fótinn áfram á íslandi," segir Óh. Það fór varla fram hjá neinum í íslensku viðskiptalífi á síðasta ári að Nesco Manufacturing hf. varð gjald- þrota. Það var eitt stærsta gjaldþrot á íslandi á gjaldþrotaárinu mikla 1988. Óli verður áfram stjómarformaður 1 fyrirtækjunum Nesco Kringlan, Nesco Laugavegur og Nesco Xenon Iðnfyrirtæki en þessi fyrirtæki tóku við rekstri Nesco Manufacturing og verða rekin áfram af fullum krafti. Breyting mun þó verða á stöðu Nesco Xenon Iðnfyrirtækis. Óli stofnaði í fyrra í samvinnu við erlenda aðila nýtt fyrirtæki sem heit- ir Scanel og stendur fyrir Scandina- vian Electronics Manufacturing. Það fyrirtæki verður með aðsetur í Ham- borg og hefur sams konar starfsemi með höndum og Nesco Manufactur- ing hafði á sínum tíma en það var framleiðsla á hljómflutningstækjum, sjónvörpum og myndbandstækjum, byggð á framleiðslusamningum við undirverktaka í Austurlöndum fjær. Scanel stofnaði í fyrrahaust sölu- fyrirtæki í Englandi í samvinnu við enska aðila og heitir það Scanel U.K. - stofnar fyrirtækið Scanel Óli Anton Bieltvedt. Hann er nú á förum til Þýskalands þar sem hann hefur ásamt erlendum aðilum stofnað fyrir- tækið Scanel. Sales Limited. Það hóf starfsemi sína - En hvemig getur eigandi gjald- irtæki erlendis? nú um mánaðamótin. þrota fyrirtækis á íslandi stofnað fyr- „Ég stofna þetta fyrirtæki með er- Reykvísk endurtrygging M. ekki að sameinast öðru félagi - segir Gísli Lárusson forstjóri Hús Reykviskrar endurtryggingar hf., Sóleyjargötu 1. Gísli Lárusson, forstjóri Reyk- vískrar endurtryggingar hf., segir þann orðróm alrangan að fyrirtækið sé að sameinast öðru tryggingafélagi eða að útlendingar séu að kaupa hluta í fyrirtækinu. „Þessar sögur hafa gengið, ég veit það, en þær eru einfaldlega rangar. Það hafa ekki komið fyrirspumir frá einum eða neinum um kaup á hluta í fyrirtækinu nema fyrir nokkuð löngu og því var ekki sinnt,“ segir Gísli. Gísli segir ennfremur að Reykvísk endurtrygging séu lítið og sérhæft tryggingafélag sem veiti persónulega þjónustu. „Með tilkomu tryggingarisanna tveggja á tryggingamarkaðnum að undanfömu er meiri þörf en áður fyrir lítil fyrirtæki sem veita per- sónulega þjónustu.“ Gísli Lámsson á ásamt fleiri ein- staklingum 49 prósent í Reykvískri endurtryggingu á móti 51 prósenti Tryggingamiðstöðvarinnar sem keypti sinn hluta í ágúst áriö 1986. Tryggingamiðstöðin á þvi meirihluta í fyrirtækinu núna. Sérhæfing Reykvískrar endur- tryggingar hf. felst í fiskeldistrygg- ingum. „Reykvisk endurtrygging hefur verið í forystuhlutverki hér- lendis í fiskeldistryggingum. Þama liggur okkar sérþekking og þess vegna ætlum við að leggja enn meiri áherslu á þessar tryggingar,“ segir Gísli. Fyrirtækið hyggst samt draga úr fiskeldistryggingum erlendis en leggja aukna áherslu á fiskeldis- tryggingar hérlendis. „Við munum þó bjóða erlendum fiskeldisstöðvum upp á faglega þjónustu og ráðgjöf áfram," segir Gísli Lámsson. -JGH Nyr eigandi Kostakaupa Þóröur Þórðarson, 45 ára Reykvík- ingur, hefur keypt matvömverslun- ina Kostakaup í Hafnarfirði. Kostakaup hafa verið nokkuð í sviðs- ljósinu vegna gjaldþrots síðasta árs og nokkurra eigendaskipta úr því. Hákon Sigurðsson kaupmaður stofnaöi og rak Kostakaup í áraraðir. Hann varð gjaldþrota síöastliðið haust. Þá kom það mjög á óvart að ungur Kópavogsbúi, Friðrik Gísla- son, eigandi Vídeómeistarans, keypti verslunina af huldumanni sem skömmu áður hafði keypt Kostakaup af skiptaráðanda þrotabúsins. Friörik átti Kostakaup stutt. Og raunar lét hann sér ekki duga að kaupa Kostakaup heldur keypti hann líka aðra gjaldþrota verslun, Kjötmiðstöðina í Garðabæ. í desemb- er keypti Hreinn Hjartarson, sem kunnur er fyrir að eiga bílasöluna Bílakaup í Borgartúni, Kostakaup af Friðriki. Hann seldi Þórði verslunina í fyrradag. „Þetta verður mikil vinna. Að reka verslun er ekkert nema vinna,“ segir Þórður um kaup sín á Kostakaupum. Þórður hefur um skeið rekið sölu- tuma. Og um tíma átti hann Tomma- borgara í Fitjanesti í Njarðvík. -JGH lendum aðilum. Ég er auðvitað að- þrengdur fjárhagslega en ég hef þekkingu, reynslu og sambönd víða erlendis á sviði starfsemi sem þessar- ar sem ekki verður frá mér tekin. Erlendir aðilar gera sér líka flestir grein fyrir því að fall Nesco Manufac- turing stafaði fyrst og fremst af ófull- nægjandi starfsumhverfi hér, meðal annars af skorti á möguleikum til að tryggja erlendar myntir hverja gagn- vart annarri í íslenska bankakerfmu. Það var gengistap sem fór með Nesco Manufacturing," segir Óli Anton. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 5,5-9 Sp Sparireikningar 3jamán.uppsögn 5,5-10 Vb.Sp 6mán. uppsögn 5,5-11 Vb.Sp 12mán. uppsögn 5,5-9,5 Ab 18mán.uppsögn 13 Ib Tékkareikningar.alm. 1-4 Ib.Sp Séríékkareikningar 3-9 Ib.Ab,- Innlán verðtryggö Sp Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Vb 6mán. uppsögn 2-3,5 Sp.Ab,- Innlánmeðsérkjörum 3,5-16 Vb.Bb Úb Innlán gengistryggð Bandarikjadalir 8-8,5 Ab.Sb Sterlingspund 11,75- Ab Vestur-þýsk mörk 12,25 4,25-5 Ab Danskar krónur 6,75-8 Vb.Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 12-18 Lb Viöskiptavíxlar(forv-) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 12-18 Lb Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir >flaupareikningar(yfirdr.) 15,5-21 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf 7,75-8,75 Lb Útlántilframleiðslu Isl.krónur 13-18 Lb SDR 9,5 Allir Bandaríkjadalir 11 Allir Sterlingspund 14,75 Allir Vestur-þýsk mörk 7-7,25 Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 21,6 MEÐALVEXTIR överðtr.jan.89 12,2 Verðtr. jan. 89 8,1 VÍSITÖLUR Lánskjaravlsitalajan. 2279 stig Byggingavísitalajan. 399,5 stig r Byggingavísitalajan. 125,4stig Húsaleiguvísitala Engin hækkun Verö- stöðvun VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóöa Einingabréf 1 3,506 Éiningabréf 2 1,974 Einingabréf 3 2,285 Fjölþjóðabréf 1.268 Gengisbréf 1,586 Kjarabréf 3,498 Lífeyrisbréf 1.762 Skammtímabréf 1.218 Markbréf 1,854 Skyndibréf 1,069 Sjóðsbréf 1 1,687 Sjóðsbréf 2 1,420 Sjóðsbréf 3 1,198 Tekjubréf 1,583 HLUTABREF Söluverð aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 130 kr. Eimskip 380 kr. Flugleiðir 288 kr. Hampiöjan 155 kr. Hlutabréfasjóður 151 kr. lönaðarbankinn 177 kr. Skagstrendingur hf. 200 kr. Útvegsbankinn hf. 134 kr. Verslunarbankinn 146 kr. Tollvörugeymslan hf. 126 kr. (1) Viö kaup á viöskiptavlxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aöila, er miðaö viö sérstakt kaupgengi, kge. Búnaöarbanki og Samvinnubanki kaupa viðskiptavlxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýöubankinn, Bb= Búnaöarbankinn, lb = lönaöar- bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvégsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóö- irnir. Nánarl upplýsingar um penlngamarkaö- Inn blrtast I DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.