Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1989, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1989, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989. 33 oraði sex mörk og fiskaði fimm vítaköst. Á myndinni sést Jakob í hraðaupphlaupi DV-mynd Brynjar Gauti gsframtak fumuninn 25-24. íslenska liöiö ekki sannfærandi breytast fram að B-keppninni. Við get- um aðeins vonað það besta, sé tekið mið af frammistöðunni í gærkvöldi. Norskur handknattleikur er greini- lega í framfor og getur landslið Norð- manna hæglega komið á óvart í B- keppninni. Áður en norska liðið kom hingað til lands lék það þrjá leiki við Dani á þremur dögum. Samt sem áður var ekki nein þreytumerki að sjá á leik- mönnum. Norski markvörðurinn Espen Karlsen varði oft frábærlega vel í leikn- um og var besti maður liðsins. Leikur norska liðsins minnir nokkuð á sænsk- an handknattleik. • Dómarar leiksins komu frá Dan- mörku og dæmdu sæmilega. • Mörk íslands: Kristján Arason 8/4, Jakob Sigurðsson 6, Júlíus Jónasson 3, Bjarki Sigurðsson 3, Sigurður Sveins- son 3/1, Héðinn Giisson 1, Þorgils Óttar 1. • Mörk Norðmanna: Rune Erland 8/4, Öystein Havang 3, Roger Kjendalen 3, Dag Vidar Hanstad 3, Kjetil Larsen 3, Kaare Rannekleiv 1, Öle Gustav Gjek- stad 1, Knut Arne Iversen 1, Bent Svele. -JKS - skiptir 1 KR og síðan til Svíþjóðar Norska knattspymufélagið Moss virðist ekki reiðubúiö til að láta ís- lenska landsliðsmanninn Gunnar Gíslason hljóðalaust af hendi. Gunnar gerði samning við sænska 1. deildar félagia Hácken þegar keppnistímabil- inu í Noregi lauk í vetur en samkvæmt heimildum DV krefst Moss þess nú að fá 1,2 milljónir norskra króna frá sænska félaginu fyrir Gunnar. Sú upphæð samsvarar rúmum 8 milfjómun íslenskra króna. Til að kom- ast hjá þessu hefúr fundist sú leið að Gunnar hafi félagaskipti frá Moss yfir í íslenskt félag, KR, og þaðan til Hacken. Samkvæmt heimildum DV getur Moss þá engar fjárkröfur gert og Gunnar verður firjáls ferða sinna. -VS ________________________________________íþróttir Frétt um Guðna Bergsson í norsku blaði: Spurs gert að greiða 8,9 milHónir - „Slúður af verstu gerð,“ segir Guðni Bergsson Norska blaðið „Tippebladet" birti nú í vikunni frétt þess efnis að Knatt- spymusamband Evrópu, UEFA, heíði úrskurðað að Tottenham Hotspur yrði að greiða Val 100 þús- und pimd eða um 8,9 milljónir króna fyrir Guðna Bergsson. „Þetta voru óvænt tíðindi fyrir Terry Venables, framkvæmdastjóra Tottenham, þar, sem hann hafði reiknað með að fá íslendinginn ókeypis vegna þess að hann var áhugamaður," segir ennfremur í fréttinni. Þessi tíðindi stangast mjög á við þær öruggu heimildir sem DV hefur fyrir því að Tottenham hafi greitt tæpar 30 milljónir eða 350 þúsund pund fyrir Guðna. Slúður af verstu gerð „Þessi frétt norska blaðsins er al- gerlega úr lausu lofti gripin og maður veltir því fyrir sér hvaðan úr ósköp- unum hún geti veriö komin. Hér er um að ræða slúður af verstu gerð,“ sagði Guðni í samtali við DV í gær. „Það var í upphafi gert samkomu- lag um að kaupverð mitt yrði hvergi gefið upp og við það hefur veriö stað- ið af báðum aðilum. Upphæðin sem fram kemur í fréttinni er einfaldlega vitlaus. Það væri líka í meira lagi skrýtið ef UEFA hefði farið aö skipta sér af mínum samningum, án þess að ég hefði heyrt um það frá Totten- ham eða Val,“ sagði Guðni. Síminn þagnar ekki „Síminn hjá mér hefur varla þagn- að að undanfomu því að enskir blaðamenn hafa sífellt verið að hringja til að forvitnast um kaup- verðið á Guðna. Þessi frétt í norska blaðinu er hreint bull og ég hef ekki hugmynd um hvaðan hún er komin Kristján Arason var frískur í sókn og lék vel í vörninni. Sérstaklega er leið á leikinn. Hér er hann í færi og knötturinn lá í markinu skömmu síðar. DV-mynd Brynjar Gauti Kristján sem klettur - varöi tvö skot og fiskaöi einn bolta Varnarleikur Islendinga var oft gioppóttur í gær, sérstaklega þegar vörnin tók framarlega við sóknar- mönnum Norðmanna. Hún skánaði hins vegar er leiö á leikinn og var á tíðum frískleg í síðari hálfleik. Fram- ganga einstakra manna í vörn var sem hér segir: Bjarki Sigurðsson: 1 bolti varinn, 2 mörk á sig, tvenn slæm mistök önnur sem kostuðu markfæri. Kristján Arason: Varið skot í tví- gang, 1 knöttur fiskaður, 1 mark á sig, tvenn önnur slæm mistök sem kostuðu markfæri. Héðinn Gilsson: 4 mörk á sig. Júlíus: 1 bolti fiskaður, gerði þrenn slæm mistök sem kostuöu markfæri. Þorgils Óttar Mathiesen: Skot varin í tvígang, fékk 1 mark á sig. Geir Sveinsson: 3 skot varin, bolti fiskaður í tvígang, 3 mörk á sig. en auðvitað stafar þetta allt af þeirri leynd sem forráðamenn Tottenham vilja hafa í málinu," sagði Eggert Magnússon, formaður knattspyrnu- deildar Vals. „Við höldum þann trúnað við for- ráðamenn Tottenham að gefa ekkert upp um verðið, aiiar upplýsingar um slíkt verða að koma frá þeim. Það er greinilegt að þeim er tregt aö viður- kenna að þeir hafi greitt hátt verð fyrir áhugamann. Hins vegar eru þeir skyldugir til að tilkynna stjóm ensku deOdakeppninnar um kaup- verðið en hún má ekki greina frá því gegn vilja Tottenham," sagöi Eggert. -VS Jakob Sigurðsson: 1 skot varið, knöttur fiskaður í tvígang. Það sem hér er skoðað sem mark á ákveðinn einstakling er þegar markið má rekja með beinum hætti til mistaka leikmannsins í vöm. Vömin leikur sem heild og því kem- ur fyrir að tveir eða fleiri em um sökina. Þeirra tilfella er ekki getið hér aö ofan. -herm Badminton: íslands- mótið um helgina íslandsmótið í badminton fer fram í Laugardalshöllinni um helgina, laugardag og sunnudag. Búast má við jafhri og skemmti- legri keppni, enda er í slenskt bad- mintonfólk í góðri æfmgu um þessar mundir eins og þaö sýndi í b-keppninni í Ungveijalandi í síðasta mánuöi. Tveir af bestu meistaraílokks- mönnum karla, þeir Ármann Þorvaldsson og Árni Þór Hall- grímsson, sem era íslandsmeist- arar í tvíliöaleik, keppa nú á sínu fyrsta móti hér heima í vetur en þeir hafa dvalið í Noregi og leikið með Kristiansand Badmintonc- lub. Þeir verða án efa f sviðsljós- inu í karlaflokki ásamt íslands- meistaranum Brodda Kristjáns- syni og Þorsteini Páli Hængssyni sem hefur staðið sig einna best í vetur. í kvennaflokki hefur Þór- dís Edwald verið í nokkmm sér- flokki og er likleg til að vinna fleiri en einn titil. Mótiö hefst kl. 10 á laugardag og þá verður leikið fram að und- anúrslitum. Þau era síðan á dag- skrá kl. 10 á sunnudag en úrslitln hefiast kl. 14. -VS ísland - Noregur íslendingar og Norðmenn eig- ast við öðm sinni í kvöl í Laugar- dalshöll. Leikurinn hefst kl. 20. Knattspyrnuþjálfari óskast Fyrstu deildar lið í Færeyjum með mjög góða aðstöðu óskar eftir þjálfara. Allar nánari upplýsingar í sima 96-24951.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.