Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Page 5
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989.
5
dv_____________________________________;__________________________________Fréttír
Launþegahreyfíngin í vanda:
Kröfurnar eru óljósar við
upphaf samningaviðræðna
veikleíkinn opinberaðist á fundi Kvennalistans á Hótel Borg
Þaö er ljóst, eftir að forystumenn
aUra helstu launþegasamtaka lands-
ins sátu fyrir svörum á fundi
Kvennalistans á Hótel Borg á mið-
vikudaginn, að launþegahreyfingin í
landinu er í vanda. Það er komið að
kjarasamningaviðræðum en samt
sem áður hafa engar ákveðnar kröf-
ur verið lagðar fram. Menn tala um
að ná kaupmættinum upp í það sem
hann var snemma á síðasta ári. Eng-
inn nefnir hvernig fara á að því.
Segja má að þessi fundur hafi opin-
berað veikleika launþegasamtak-
anna um þessar mundir. Þó voru
Fréttaljós
Sigurdór Sigurdórsson
spurningarnar, sem bornar voru
fram á fundinum, frekar einhæfar
og snérust mest um stöðu kvenna á
vinnumarkaði. Eigi að síður komu
fram spumingar sem forystumenn-
irnir áttu í erfiðleikum með að svara
nema með almennu orðahjali og
slagorðum, sem var mismunandi út-
færsla á hinni frægu setningu: „Sam-
einaðir stöndum vér en sundraðir
fóllum vér.“
Alþýðusambandið í póker
Asmundur Stefánsson, forseti Al-
þýðusambandsins, skýrði frá sam-
þykkt formannafundar ASÍ á dögun-
um um að félög innan þess ætluöu
aö hafa samflot í komandi kjara-
samningum. Hann lýsti því einnig
yfir að óbreyttur kaupmáttur fyrsta
ársfjórðungs þessa árs, út áriö, kæmi
ekki til greina. Að öðru leyti skýrði
hann ekki frá kröfum Alþýðusam-
bandsins í komandi kjarasamning-
um. Það mun enda sannast sagna að
þær hafa ekki verið mótaðar enn. Því
er haldið fram að þær verði ekki
lagðar fram við upphaf kjarasamn-
inga. Ásmundur, sem ætlar að stýra
samningagerðinni í samfloti, viU
hafa nokkuð fijálsar hendur þegar
hann tekur til við að tefla við Ólaf
Ragnar Grímsson fjármálaráöherra
og ríkisstjórnina um aukningu kaup-
máttar inn í einhverjum félagsmála-
pakka.
Vitað er að mjög stirt er á milli
þeirra Ásmundar og Ólafs innan AI-
þýðubandalagsins. Hefur Ásmundur
enda notað hvert tækifæri á opin-
berum vettvangi til að lýsa óánægju
sinni með flest það sem ríkisstjórnin
og alveg sérstaklega fjármálaráð-
herra hefur sagt eða gert. Það er því
hætt við að viðræður samílotsnefnd-
ar ASÍ undir forystu Ásmundar og
ríkisstjórnarinnar með þá Steingrím
Hermannsson og Ólaf Ragnar í
broddi fylkingar verði stirðar og
gangi hægt. Ofan á allt saman bætist
svo að engin vissa er fyrir því að
samflotið innan ASÍ verði órofið.
Forystumenn nokkurra félaga og
sambanda eru ekki hrifnir af því og
má þar nefna Alþýðusamband Vest-
fjarða og Verkamannafélagið Dags-.
brún í Reykjavík.
BSRB best undirbúið
í máli Ögmundar Jónassonar á
fundinum kom fram að kröfugerð
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
er í þremur liðum. Þessar kröfur eru
að hvert félag fyrir sig innan banda-
lagsins fari í viðræður við ríki og
sveitarfélög nú þegar um sín sérmál.
Stjórn BSRB fari með þá samninga
sem snúa að ríkinu og félagsmála-
pakkanum og að kaupmáttur verði
aukinn frá því sem nú er. Þetta er
gott svo langt sem það nær en þarna
kemur ekki fram hvernig á að ná
auknum kaupmætti né hvað BSRB
vill að verði í félagsmálapakkanum.
Samt er ljóst að BSRB er best undir-
búið fyrir þá samninga sem nú eru
að hefjast.
Svanhildur Kaaber, formaður
Kennarasambandsins, sagði að
samninganefnd þess hefði hafnað því
sem ríkiö bauð á fyrsta samninga-
fundinum, en hún nefndi ekki hverj-
ar væru kröfur kennarasambands-
ins aðrar en aukinn kaupmáttur.
Páll Halldórsson, formaður BHMR,
sagði að hann teldi að ekki yrði hjá
því komist að launþegahreyfingin
gripi til þess eina vopns sem atvinnu-
rekendur skildu, verkfallsvopnsins.
Hann sagði að á næstunni yrðu at-
kvæðagreiðslur hjá félögum innan
BHMR um að boða til verkfalls. Ef
það yrði ekki gert væri ljóst að ekk-
ert gerðist í kjaramálunum fyrr en í
haust í fyrsta lagi. Það var greinilegt
að Páll var harðastur þeirra foringja
í málflutningi.
Verkamannafélögin í klemmu
Hvort heldur það verður samn-
inganefnd Alþýðusambandsins eða
Verkamannasambandsins sem fara
mun með samningagerð fyrir verka-
mannafélögin í komandi kjarasamn-
ingum er ljóst að þau eru í langerfið-
ustu aöstöðunni. Úti um allt land er
atvinnuleysi. Jafnvel nú á vetrarver-
tíð er fólk atvinnulaust í sjávarpláss-
unum. Ástandið á eftir að versna
þegar nær degur sumri. Undir slík-
um kringumstæðum er staða verka-
lýðsfélaganna á þessum stöðum ekki
sterk. Það er mun auðveldara fyrir
þá sem vinna hjá hinu opinbera,
hvort heldur þeir tilheyra BSRB eða
BHMR, að taka stórt upp í sig og
hóta hörku. Fullyrða má að erfitt er
að benda á þann verkalýðsforingja
verkamannafélags sem er tilbúinn til
að boða verkfall, náist ekki þetta eða
hitt fram í komandi kjarasamning-
um.
En jafnvel þótt staða þessara félaga
sé ekki sterk að þessu sinni sýnir það
ákveðinn veikleika hjá verkalýðs-
forystunni að hafa ekki undir þeim
kringumstæðum fullmótað kröfur
sínar, nú þegar komið er að samning-
um. Það getur aldrei tahst sterkt í
samningum að vita ekki hvað menn
vilja. Eða ef menn nefna eitt atriði,
eins og kaupmáttaraukningu, að geta
ekki bent á leiðir að markinu. í þessu
liggur veikleiki launþegahreyfingar-
innar að þessu sinni.
Sameining gegn ríkisvaldinu
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, lagði fram þá hugmynd á dög-
unum að launaþegahreyfingin færi
sameinuð í samninga við ríkisstjórn-
ina um félagsmálapakka. Þessari
hugmynd var vel tekið á formanna-
fundi Alþýðusambandsins á dögun-
um. Það á svo eftir að koma í ljós
hvort hér eru á ferðinni orðin tóm
eða hvort hugmynd Ögmundar verð-
ur að veruleika. Fyrir verkalýðs-
hreyfinguna skiptir shk samstaða
afar miklu máh vegna veikrar stöðu
hennar til átaka.
Þótt samningaviðræður eigi að
heita hafnar hjá BSRB og BHMR eru
það varla nema þreifingar ennþá.
Alþýðusambandið hefur óskað eítir
samningaviðræðum viö Vinnuveit-
endasambandið. Það er hins vegar
vitað að Vinnuveitendasambandiö
semur hvorki um eitt eða neitt fyrr
en það veit hvert verður innihald
þess félagsmálapakka sem allir aðil-
ar eru sammála um að nú verði sam-
ið um. Það má því gera ráð fyrir að
kjarasamningar gangi hægt og drag-
ist fram á vorið, jafnvel fram á sum-
ar. Fari hins vegar svo að félög innan
BHMR og jafnvel BSRB boði til verk-
falla í byrjun apríl getur verið að það
reki á efhr og að samningum verði
lokið fyrir vorið.
S.dór
Svanhildur Kaaber, formaður kennarasambandsins, í ræðustói á fundi Kvennalistans á Hótel Borg. Við borðið
sitja Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, Þórir Guðjónsson, formaður Fé-
lags bókagerðarmanna, Hinrik Greipsson, formaður Félags bankamanna, og Páll Halldórsson, formaður BHMR.
DV-mynd GVA
Komandi kjarasamningar:
„Ég sé ekki neina
ástæðu til bjartsýni“
- segir formaður Verkalýðsfélagsins Einingar 1 Eyjafirði
Fundur um verkalýðsmál:
Útvarpið bannaði
auglýsingu frá
Kvennalistanum
Kvennalistinn gekkst fyrir
fundi um verkalýðsmál á Hótel
Borg í gær undir yfirskrifhnni
„Þorir verkalýðshreyfingin, get-
ur hún, vih hún?“ Auglýsing
undir þessum kjörorðum þóth of
djörf og fékkst ekki lesin í Ríkis-
útvarpinu í gær, að því er upplýst
var á fundinum, sem var íjöl-
mennur.
Þama sátu tyrir svörum verka-
lýðsleiötogarnir Svanhildur Kaa-
ber formaður Kennarasambands
íslands, Ásmundur Stefánsson,
forseh ASÍ, Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB, Þórir Guðjóns-
9on, formaður Félags bókagerð-
armanna, Hinrik Greipsson, for-
maöur Félags bankamanna, og
Páll Hahdórsson, formaður
BHMR. S.dór
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Eins og efnahagsástandið er hjá
okkur í dag og miðað við það hvern-
ig þróun atvinnumála hefur verið að
undanfórnu, sé ég ekki neina ástæðu
til bjartsýni varðandi þær kjara-
samningaviðræður sem framundan
eru,“ segir Sævar Frímannsson, for-
maður Verkalýðsfélagsins Einingar
í Eyjafirði.
„Það er þó ljóst að það verður að
koma hl móts við þá sem lægst hafa
launin. Að öðru leyti tel ég að nú
fyrst reyni alvarlega á ríkisstjórnina,
hún verður að koma mun meira inn
í þessar viðræður en áöur hefur hðk-
ast og það verður með einhverjum
ráðum að finna lausn á því érfiða
máli sem framundan er. E.t.v. liggur
lausnin fyrst og fremst í því sem
menn vhja kaha félagsmálapakka og
þar kemur ríkisstjórnin hl skjal-
anna.
Það er ekki síst vegna þess að þrí-
hliða viðræður verkalýðsforustunn-
ar, atvinnurekenda og ríkisstjórnar-
innar eru nú fyrir höndum sem við
hjá Einingu höfum allt frá áramótum
lagt höfuðáherslu á að verkalýðs-
hreyfmgin hafi heildarsamflot í þeim
samningaviðræðum sem framundan
eru, og ég fagna því að samstaða virð-
ist nú ríkja um að svo verði.
Næst hlýtur aö hggja fyrir að sú
samráðsnefnd, sem verkalýðsforust-
an skipar, komi saman, leggi heild-
arlínumar og hlnefni menn hl að
fara í viðræður við atvinnurekendur
og ríkisstjórn," sagði Sævar Frí-
mannsson.