Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Síða 5
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989. 5 dv_____________________________________;__________________________________Fréttír Launþegahreyfíngin í vanda: Kröfurnar eru óljósar við upphaf samningaviðræðna veikleíkinn opinberaðist á fundi Kvennalistans á Hótel Borg Þaö er ljóst, eftir að forystumenn aUra helstu launþegasamtaka lands- ins sátu fyrir svörum á fundi Kvennalistans á Hótel Borg á mið- vikudaginn, að launþegahreyfingin í landinu er í vanda. Það er komið að kjarasamningaviðræðum en samt sem áður hafa engar ákveðnar kröf- ur verið lagðar fram. Menn tala um að ná kaupmættinum upp í það sem hann var snemma á síðasta ári. Eng- inn nefnir hvernig fara á að því. Segja má að þessi fundur hafi opin- berað veikleika launþegasamtak- anna um þessar mundir. Þó voru Fréttaljós Sigurdór Sigurdórsson spurningarnar, sem bornar voru fram á fundinum, frekar einhæfar og snérust mest um stöðu kvenna á vinnumarkaði. Eigi að síður komu fram spumingar sem forystumenn- irnir áttu í erfiðleikum með að svara nema með almennu orðahjali og slagorðum, sem var mismunandi út- færsla á hinni frægu setningu: „Sam- einaðir stöndum vér en sundraðir fóllum vér.“ Alþýðusambandið í póker Asmundur Stefánsson, forseti Al- þýðusambandsins, skýrði frá sam- þykkt formannafundar ASÍ á dögun- um um að félög innan þess ætluöu aö hafa samflot í komandi kjara- samningum. Hann lýsti því einnig yfir að óbreyttur kaupmáttur fyrsta ársfjórðungs þessa árs, út áriö, kæmi ekki til greina. Að öðru leyti skýrði hann ekki frá kröfum Alþýðusam- bandsins í komandi kjarasamning- um. Það mun enda sannast sagna að þær hafa ekki verið mótaðar enn. Því er haldið fram að þær verði ekki lagðar fram við upphaf kjarasamn- inga. Ásmundur, sem ætlar að stýra samningagerðinni í samfloti, viU hafa nokkuð fijálsar hendur þegar hann tekur til við að tefla við Ólaf Ragnar Grímsson fjármálaráöherra og ríkisstjórnina um aukningu kaup- máttar inn í einhverjum félagsmála- pakka. Vitað er að mjög stirt er á milli þeirra Ásmundar og Ólafs innan AI- þýðubandalagsins. Hefur Ásmundur enda notað hvert tækifæri á opin- berum vettvangi til að lýsa óánægju sinni með flest það sem ríkisstjórnin og alveg sérstaklega fjármálaráð- herra hefur sagt eða gert. Það er því hætt við að viðræður samílotsnefnd- ar ASÍ undir forystu Ásmundar og ríkisstjórnarinnar með þá Steingrím Hermannsson og Ólaf Ragnar í broddi fylkingar verði stirðar og gangi hægt. Ofan á allt saman bætist svo að engin vissa er fyrir því að samflotið innan ASÍ verði órofið. Forystumenn nokkurra félaga og sambanda eru ekki hrifnir af því og má þar nefna Alþýðusamband Vest- fjarða og Verkamannafélagið Dags-. brún í Reykjavík. BSRB best undirbúið í máli Ögmundar Jónassonar á fundinum kom fram að kröfugerð Bandalags starfsmanna ríkis og bæja er í þremur liðum. Þessar kröfur eru að hvert félag fyrir sig innan banda- lagsins fari í viðræður við ríki og sveitarfélög nú þegar um sín sérmál. Stjórn BSRB fari með þá samninga sem snúa að ríkinu og félagsmála- pakkanum og að kaupmáttur verði aukinn frá því sem nú er. Þetta er gott svo langt sem það nær en þarna kemur ekki fram hvernig á að ná auknum kaupmætti né hvað BSRB vill að verði í félagsmálapakkanum. Samt er ljóst að BSRB er best undir- búið fyrir þá samninga sem nú eru að hefjast. Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasambandsins, sagði að samninganefnd þess hefði hafnað því sem ríkiö bauð á fyrsta samninga- fundinum, en hún nefndi ekki hverj- ar væru kröfur kennarasambands- ins aðrar en aukinn kaupmáttur. Páll Halldórsson, formaður BHMR, sagði að hann teldi að ekki yrði hjá því komist að launþegahreyfingin gripi til þess eina vopns sem atvinnu- rekendur skildu, verkfallsvopnsins. Hann sagði að á næstunni yrðu at- kvæðagreiðslur hjá félögum innan BHMR um að boða til verkfalls. Ef það yrði ekki gert væri ljóst að ekk- ert gerðist í kjaramálunum fyrr en í haust í fyrsta lagi. Það var greinilegt að Páll var harðastur þeirra foringja í málflutningi. Verkamannafélögin í klemmu Hvort heldur það verður samn- inganefnd Alþýðusambandsins eða Verkamannasambandsins sem fara mun með samningagerð fyrir verka- mannafélögin í komandi kjarasamn- ingum er ljóst að þau eru í langerfið- ustu aöstöðunni. Úti um allt land er atvinnuleysi. Jafnvel nú á vetrarver- tíð er fólk atvinnulaust í sjávarpláss- unum. Ástandið á eftir að versna þegar nær degur sumri. Undir slík- um kringumstæðum er staða verka- lýðsfélaganna á þessum stöðum ekki sterk. Það er mun auðveldara fyrir þá sem vinna hjá hinu opinbera, hvort heldur þeir tilheyra BSRB eða BHMR, að taka stórt upp í sig og hóta hörku. Fullyrða má að erfitt er að benda á þann verkalýðsforingja verkamannafélags sem er tilbúinn til að boða verkfall, náist ekki þetta eða hitt fram í komandi kjarasamning- um. En jafnvel þótt staða þessara félaga sé ekki sterk að þessu sinni sýnir það ákveðinn veikleika hjá verkalýðs- forystunni að hafa ekki undir þeim kringumstæðum fullmótað kröfur sínar, nú þegar komið er að samning- um. Það getur aldrei tahst sterkt í samningum að vita ekki hvað menn vilja. Eða ef menn nefna eitt atriði, eins og kaupmáttaraukningu, að geta ekki bent á leiðir að markinu. í þessu liggur veikleiki launþegahreyfingar- innar að þessu sinni. Sameining gegn ríkisvaldinu Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, lagði fram þá hugmynd á dög- unum að launaþegahreyfingin færi sameinuð í samninga við ríkisstjórn- ina um félagsmálapakka. Þessari hugmynd var vel tekið á formanna- fundi Alþýðusambandsins á dögun- um. Það á svo eftir að koma í ljós hvort hér eru á ferðinni orðin tóm eða hvort hugmynd Ögmundar verð- ur að veruleika. Fyrir verkalýðs- hreyfinguna skiptir shk samstaða afar miklu máh vegna veikrar stöðu hennar til átaka. Þótt samningaviðræður eigi að heita hafnar hjá BSRB og BHMR eru það varla nema þreifingar ennþá. Alþýðusambandið hefur óskað eítir samningaviðræðum viö Vinnuveit- endasambandið. Það er hins vegar vitað að Vinnuveitendasambandiö semur hvorki um eitt eða neitt fyrr en það veit hvert verður innihald þess félagsmálapakka sem allir aðil- ar eru sammála um að nú verði sam- ið um. Það má því gera ráð fyrir að kjarasamningar gangi hægt og drag- ist fram á vorið, jafnvel fram á sum- ar. Fari hins vegar svo að félög innan BHMR og jafnvel BSRB boði til verk- falla í byrjun apríl getur verið að það reki á efhr og að samningum verði lokið fyrir vorið. S.dór Svanhildur Kaaber, formaður kennarasambandsins, í ræðustói á fundi Kvennalistans á Hótel Borg. Við borðið sitja Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, Þórir Guðjónsson, formaður Fé- lags bókagerðarmanna, Hinrik Greipsson, formaður Félags bankamanna, og Páll Halldórsson, formaður BHMR. DV-mynd GVA Komandi kjarasamningar: „Ég sé ekki neina ástæðu til bjartsýni“ - segir formaður Verkalýðsfélagsins Einingar 1 Eyjafirði Fundur um verkalýðsmál: Útvarpið bannaði auglýsingu frá Kvennalistanum Kvennalistinn gekkst fyrir fundi um verkalýðsmál á Hótel Borg í gær undir yfirskrifhnni „Þorir verkalýðshreyfingin, get- ur hún, vih hún?“ Auglýsing undir þessum kjörorðum þóth of djörf og fékkst ekki lesin í Ríkis- útvarpinu í gær, að því er upplýst var á fundinum, sem var íjöl- mennur. Þama sátu tyrir svörum verka- lýðsleiötogarnir Svanhildur Kaa- ber formaður Kennarasambands íslands, Ásmundur Stefánsson, forseh ASÍ, Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, Þórir Guðjóns- 9on, formaður Félags bókagerð- armanna, Hinrik Greipsson, for- maöur Félags bankamanna, og Páll Hahdórsson, formaður BHMR. S.dór Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Eins og efnahagsástandið er hjá okkur í dag og miðað við það hvern- ig þróun atvinnumála hefur verið að undanfórnu, sé ég ekki neina ástæðu til bjartsýni varðandi þær kjara- samningaviðræður sem framundan eru,“ segir Sævar Frímannsson, for- maður Verkalýðsfélagsins Einingar í Eyjafirði. „Það er þó ljóst að það verður að koma hl móts við þá sem lægst hafa launin. Að öðru leyti tel ég að nú fyrst reyni alvarlega á ríkisstjórnina, hún verður að koma mun meira inn í þessar viðræður en áöur hefur hðk- ast og það verður með einhverjum ráðum að finna lausn á því érfiða máli sem framundan er. E.t.v. liggur lausnin fyrst og fremst í því sem menn vhja kaha félagsmálapakka og þar kemur ríkisstjórnin hl skjal- anna. Það er ekki síst vegna þess að þrí- hliða viðræður verkalýðsforustunn- ar, atvinnurekenda og ríkisstjórnar- innar eru nú fyrir höndum sem við hjá Einingu höfum allt frá áramótum lagt höfuðáherslu á að verkalýðs- hreyfmgin hafi heildarsamflot í þeim samningaviðræðum sem framundan eru, og ég fagna því að samstaða virð- ist nú ríkja um að svo verði. Næst hlýtur aö hggja fyrir að sú samráðsnefnd, sem verkalýðsforust- an skipar, komi saman, leggi heild- arlínumar og hlnefni menn hl að fara í viðræður við atvinnurekendur og ríkisstjórn," sagði Sævar Frí- mannsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.