Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989.
Fréttir
Ný vatnsveita fyrir Keflavík og Njarðvík:
Herinn verður látinn
borga 300 milljónir
Stofnuð hefur verið sameiginleg
vatnsveita fyrir Keflavík og Njarð-
vík. Henni er ætlað það hlutverk að
koma upp nýrri vatnsveitu og hefja
vatnstöku á nýjum stað. Að sögn
Guðfinns Sigurvinssonar, bæjar-
stjóra Keflavíkur, er ste&it að því að
taka hina nýju vatnsveitu í notkun
næsta haust.
Eins og kunnugt er lak oha úr
geymum hersins á Miðnesheiði
haustið 1987 og er óttast að sú olía
eigi eftir að menga núverandi vatns-
ból þegar fram hða stundir. Þá hafa
komið í ljós ýmis önnur hættuleg
efni að undanfomu og jafnvel lífræn
leysiefni eins og tetraklóríð.
„Það er skýlaus krafa okkar að
Bandaríkjamenn borgi allan kostnað
við þessa nýju vatnsveitu. Okkur
hefur skihst á allri umræðu um þetta
mál að þessi kostnaður verði greidd-
ur,“ sagði Guðfinnur en gert er ráð
fyrir að það kosti um 300 mihjónir
króna að taka þessi nýju vatnstöku-
svæði í notkun.
Ekki hefur verið tekin nein endan-
leg ákvörðun um það hjá hernum
hvort þessi upphæð verður greidd.
Að sögn upplýsingafuhtrúa hersins
hefur verið samþykkt að taka ný
svæði í notkun en upphæðin sem
herinn mun borga er enn á samn-
ingsstiginu. Einhver ágreiningur
mun vera um þau jarðfræðilegu gögn
sem íslendingar hafa lagt fram í
málinu og hafa Bandaríkjamenn
ekki enn tekið afstöðu til þeirra.
Guðfmnur sagði að utanríkisráð-
herra, Jón Baldvin Hannibalsson,
hefði rætt þessi mál við bandaríska
utanríkisráðherrann þegar hann
hafði viðkomu hér um daginn. Sagð-
ist hann því vonast eftir niðurstöðu
fljótlega.
-SMJ
Akureyri:
Minni notkun Ijósa
og öryggisbelta
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri;
Niðurstöður könnunar, sem lög-
reglan á Akureyri framkvæmdi í
umferðinni nú í vikunni, benda tU
þess að færri ökumenn noti ökuljós
og öryggisbelti en áður.
Lögreglan stöðvaði 200 bifreiðar og
kannaði ástandið. í þeim tilfeUum
voru 13 sem ekki óku með ljósum,
og af þessum 200 ökumönnum voru
64 sem ekki voru með öryggisbeltið
spennt. Farþegar í framsætum þess-
ara 200 bifreiða voru aUs 48 talsins
og 16 þeirra voru ekki með beltið
spennt, eða þriðjungur.
Aukaflárveitingar:
w
m m
LIN ekki a lista
- segir öármálaráðherra
„Það hefur ekki veriö rætt um um 5% í september.
neina aukafjárveitingu til Lána- Því hefur veriö haldiö fram af
sjóðs íslenskra námsmamia," sagði formanni sijómar LÍN, Sigurbimi
Olafur Ragnar Grímsson fjármála- Magnússyni, að þessi hækkun þýöi
ráðherra þegar hann var spurður 137 milljóna króna útgjaldaauka
að því hvort breyting á framfærslu- fyrir LÍN á þessu ári. Þá telur Sig-
grunni námsmanna, sem mennta- urbjöm aö það þurfi 50 til 60 miUj-
málaráðherra hefur ákveöiö aö ón króna aukafjárveitingu frá rík-
hækka, kostaöi aukafjárveitingu tíl isvaldinu til sjóðsins síðar á árinu.
LÍN á árinu. Námslán hækkuðu -SMJ
um 7,5% í mars og eiga að hækka
Verður hætt að setja
bjór í Fríhöfninni?
„Það hafa átt sér stað viðræður
miUi okkar og ráðuneytanna þar sem
sú hugmynd að hætta bjórsölu í Frí-
höfninni hér á KeflavíkurflugvelU
hefur borið á góma. Það hefur engin
ákvörðun verið tekin ennþá en þetta
er hægt að gera með tvennum hætti:
Með reglugerðarbreytingu frá fjár-
málaráðuneytinu þar sem bannað
verður að flytja bjór inni í landið eða
selja hér, eða með því að hætta að
selja bjór en leyfa farþegum að hafa
hann með sér. I seinna tilfeUinu yrði
um ákvörðun utanríkisráðuneytis-
ins að ræða,“ sagði Guðmundur Karl
Jónsson, framkvæmdastjóri Frí-
hafnarinnar á KeflavíkurflugveUi, í
samtaU við DV.
Hugmynd um að hætta bjórsölu í
Fríhöfninni er tU komin þar sem
menn hafa óttast að bjórsalan þar
kæmi niður á bjórsölu ÁTVR.
Ákvörðunar um bjórsölu í Fríhöfn-
inni er ekki að vænta strax enda á
eftir að koma í ljós hvort sá bjór verð-
ur aukaneysla eða taki viðskipti af
ÁTVR.
33 sentiUtrar af innlendum bjór
kosta um 30 krónur í Fríhöfninni
meðan sama magn af þeim útlenda
kostar um 50 krónur. Þannig er
verðmismunur miðað við áfengisút-
sölumar allt að þrefaldur. Bjór í Frí-
höfninni er seldur í hálfshtra um-
búðum.
-hlh
Sólarferð
Gylfi Kristjánasan, DV, Akureyii
Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi
Akureyrar á leikritinu Sólarferð eftir
Guðmund Steinsson og er stefnt að
frumsýningu eftir rúman mánuð.
Allir helstu leikarar LA taka þátt
í sýningunni, s.s. Theódór Júlíusson,
Sunna Borg, Þráinn Karlsson, Mar-
inó Þorsteinsson og Margrét Péturs-
á Akureyri
dóttir. Þá leikur Sigurveig Jónsdóttir
með LA að nýju en hún á 40 ára leik-
afmæh um þessar mundir. Einnig
leika Anna Einarsdóttir og Ingólfur
Bjöm Sigurðsson en þau hafa bæði
leikið með LA áður.
Leikstjóri er Hlín Agnarsdóttir,
Gylfi Gíslason og Freyja Gylfadóttir
sjá um leikmynd og Ingvar Bjöms-
son um lýsingu.
Forstöðukona heimilisins, Hrefna Sigurðardóttir, ásamt nokkrum börnum á
barnaheimilinu. DV-myndir Valgeir Ingi
Klrkjubæjarklaustur:
Barnaheimili reist
á þrem mánuðum
Valgeir L Ólafeson, DV, Kirkjubæjarldaustri:
Bamaheimihð Kæribær hér á
Kirkjubæjarklaustri var formlega
tekið í notkun laugardaginn 18. febr-
úar sl. en starfsemi hefur verið í
húsinu frá því í haust.
BamaheimiU hefur veriö rekið á
Klaustri síðastUðin 18 ár en ekki
haft neinn fastan samastað fyrr en
nú. ÖU árin hafa verið þetta milU 10
og 20 böm á aldrinum frá 0 til 6 ára
á bamaheimilinu. í opnunarræðu
sinni sagði oddviti Kirkjubæjar-
hrepps, Hanna Hjartardóttir, m.a. frá
því að í þau 18 ár, sem þessi starfsemi
hefði verið, hefði aldrei þurft að neita
barni um pláss og mun slíkt vera nær
einsdæmi á landinu. Byggingarfrani-
kvæmdir tóku mjög stuttan tíma þvi
ekki var byijað á byggingunni fyrr
en í júU sl. og fyrstu bömin tekin inn
þann 1. október í þetta glæsilega 130
fermetra húsnæði.
Að vísu er lóð ekki fullfrágengin
en hugmyndin er að byija á henni í
vor. Byggingar- og framkvæmdaá-
ætlun hússins stóðst með mikUU
prýði en kostnaðaráætlun hljóðaði
upp á 6,5 miUjónir en nú hafa rúmar
6 mUljónir kr. farið í bygginguna.
Ríkið veitti á fjárlögum síðasta árs 1
milljón tU framkvæmdanna en á fjár-
lögum þessa árs eru áætlaðar 2 millj-
ónir tU þessara framkvæmda. Marg-
ir, bæði einstaklingar og fyrirtæki,
hafa lagt hönd á plóginn til að þetta
húsnæði gæti risið og nema framlög
þeirra samanlagt mUli 500 og 600
þúsundum. Byggingaframkvæmdir
vom í höndum Hags hf. hér á Kirkju-
bæjarklaustri en teikningar hússins
vom unnar af Ásmundi Harðarsyni
arkitekt.
Við opnunarhátíðina tóku krakk-
arnir í Kærabæ lagið og sungu fyrir
gesti en að því loknu var öllum boðið -
til kafíidrykkju í tilefni dagsins.
Forstööukona heimilisins er
Hrefna Sigurðardóttir fóstra.
Kæribær, nýja barnaheimiliö á Kirkjubæjarklaustri.
DV
Hitaveita Sauðárkróks:
Gjaldskráin
hækkuð
Þðrballur Asmundsson, DV, Sauðár kr.:
Nýlega var ákveðin 6% hækk-
un á gjaldskrá Hitaveitu Sauðár-
króks og kom hún tU fram-
kvæmda 1. mars. Þessi hækkun
er gerð i samræmi við aörar verð-
lagshækkanir sem oröiö hafa hér
á landi á síðustu mánuðum.
Á sama fundi og hækkunin var
ákveöin kom fram að verulegur
ágóði varð á hitaveitunni á sið-
asta ári en þess má geta að bæjar-
sjóður hefur gegnum árin notið
góðs af velgengni í rckstri hita-
veitunnar og er í nokkurri skuld
við hana. Ekki voru allir ánægðir
með hækkunina en vcgna ótta við
lögsetningu verðjöfnunargjalds
hafa forráðamenn bæjarins
kappkostað að hækka gjaldskrá í
takt við verðlag. Hiö opinbera
mundi hirða hærra hlutfall af
verði heita vatnsins ef til verð-
jöfnunargjalds kemur.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innián óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 8-10 Bb.Sb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 8-11 Vb.Sb
6mán. uppsögn 8-13 Vb.Sp
12 mán. uppsögn 8-9,5 Ab
18mán. uppsögn 20 Ib
Tékkareikningar.alm. 2-4 Ib.Sp,- Vb.Lb
. Sértékkareikningar 3-10 Bb.Sb
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6mán. uppsögn 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb
Innlánmeðsérkjörum 18 Sb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 8,25-8,5 Bb,Vb,- Sb.Ab
Sterlingspund 11.5-12,25 Ab
Vestur-þýskmörk 5-5,B Bb.lb,- Vb.Sb,- Sp
Danskarkrónur 6,75-8 Vb.Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 14-20 Lb
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 14,5-20,5 Lb
Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 17,5-25 Lb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7,75-9,25 Lb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 14,5-20,5 Lb-
SDR 10 Allir
Bandaríkjadalir 11,25 Allir
Sterlingspund 14,5 Allir
Vestur-þýsk mörk 8-8,25 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 24
MEÐALVEXTIR
óverðtr. feb. 89 13,2
Verðtr. feb. 89 8,1
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala mars 2346 stig
Byggingavísitalafeb. 424 stig
Byggingavísitalafeb. 132,5stig
Húsaleiguvísitala Hækkar i aprí
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,586
Einingabréf 2 2,013
Einingabréf 3 2,345
Skammtímabréf 1,243
Lífeyrisbréf 1,803
Gengisbréf 1,641
Kjarabréf 3,538
Markbréf 1,876
Tekjubréf 1,597
Skyndibréf 1,080
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 1,703
Sjóðsbréf 2 1,435
Sjóðsbréf 3 1,211
Sjóðsbréf 4 1,009
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 274 kr.
Eimskip 380 kr.
Flugleiðir 292 kr.
Hampiðjan 157 kr.
Hlutabréfasjóður 151 kr.
Iðnaðarbankinn 177 kr.
Skagstrendingur hf. 205 kr.
Útvegsbankinn hf. 137 kr.
Verslunarbankinn 148 kr.
Tollvörugeymslan hf. 128 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%. -
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.