Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989. 7 Fréttir 1. Elfa Hrund Guttorms- 2. Guðmunda Sigurðar- 3. Helga Birna Jóhanns- dóttir, 17 ára. dóttir, 18 ára. dóttir, 18 ára. 4. Linda Ólafsdóttir, 18 5. Ragheiður Guðný 6. Súsanna Björg ára. Ragnarsdóttir, 19 ára. Fróðadóttir, 17 ára. 7. Una Kristin Stefáns- 8. Valdis Ásta Aðal- 9. Þórdís Árný Sigur- dóttir, 19 ára. steinsdóttir, 19 ára. jónsdóttir, 19 ára. Fegurðarsamkeppni Suðumesja 1989: Mikill áhugi á úrslitunum Úrslit í fegurðarsamkeppni Suður- nesja fara fram á skemmtistaðnum Glaumbergi á laugardagskvöld. Þar keppa níu stúlkur til úrslita og mun fegurðardrottning Suðurnesja frá í fyrra, Guðbjörg Fríða Guðmunds- dóttir, krýna sigurvegarann. Einnig verður valin fyrirsæta ársins og vin- sælasta stelpan í hópnum, sem stúlk- umar níu velja sjáifar. Glæsileg verðlaun eru í boði fyrir sigurvegarann; utanlandsferð, 60 þúsund króna peningaverðlaun, myndbandstökuvél og fleira. Fólk á Suðurnesjum er mjög spennt fyrir keppninni og seldust miðamir á úrslitin upp á 'skömmum tíma. Stúlkumar níu hafa haft mikið að gera við undirbúning keppninnar, eru í æfingum, ljósum, leikfimi og slíku. DV birtir hér myndir og nöfn kepp- enda svo lesendur geti glöggvað sig á kvenfegurðinni á Suðurnesjum. -hlh Heitsjávar- rækja á hálf- virði í Evrópu - norrænlr ráðherrar snúast til vamar Heitsjávarrækja, sem flutt er til Evrópu frá Kína, Taiwan, Indlandi og fleiri löndum A-Asíu, er seld á hálfvirði miðað viö kaldsjávar- rækju frá Noröurlöndunum. Þessi rækja frá Asíu er í sókn á markaðn- um vegna þess hve ódýr hún er. Viröast menn á Norðurlöndura vera famir að hafa áhyggjur af málinu. Sjávarútvegsráðherrar íslands, Noregs, Færeyja og Grænlands ræddu þetta vandamál á Norður- landaþingi á dögunum. Þeir á- kváöu að hefiast handa við undir- búning samvinnu á útflutningi á kaldsjávarrækju. Þeir hafa áhuga á aö hætta innbyrðissamkeppni í sölu á rækju í Evrópu en snúa þess í staö bökum saman í baráttu við heitsjávarrækjuna. I næsta mánuði munu sjávarút- vegsráðherrar þessara landa hitt- ast í Reykjavík þar sem málið verö- ur rætt frekar og hvemig útfærslan á þessari samvinnu verður. Heitsjávarrækja er ekki jafn- bragögóð og kaldsjávarrækja, auk þess sem hún lítur ekki eins vel út Þess vegna er hún seld á mun lægra verði um allan heim en kald- sjávarrækjan. Það er til að mynda helmingsmunur á verðinu í Japan. -S.dór Viðskiptabankamir mismuna skuldurum: Stærri fyrirtæki komast hjá greiðslu á stimpilgjöldum - ekkert eftirlit með innheimtu bankanna af hálíu ríkissjóðs Það gilda ekki sömu reglur um alla skuldara þegar viðskiptabankarnir innheimta stimpilgjald fyrir ríkis- sjóð af lánveitingum sínum. Stærri skuldarar hafa fengið að sleppa við greiðslu á stimpilgjaldi. Það er gert með því að veita lánin í öðru formi en skuldabréfum. í lögum um auka- tekjur ríkissjóðs er hins vegar skýrt tekið fram að stimpilgjald skuli inn- heimta af öllum lánveitingum. Sam- kvæmt lögunum gildir einu hvert formið er. „Það er náttúrulega reynt að hafa þetta löglegt en jafnframt þannig að þetta sé sem ódýrast fyrir lántakend- ur,“ segir Ingimar Þorkelsson, for- stöðumaður hagdeildar Landsbanka íslands. Ekkert eftirlit með innheimtunni Þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir að á þessu ári verði innheimtar meö stimpilgöldum um 1.700 milljónir króna er lítið eftirlit með því af hálfu ríkissjóðs hvernig bankarnir standa að þessari innheimtu. Þar til fyrir tveimur árum .sá ríkisendurskoðun um þetta eftirlit en það er nú í hönd- um ríkisféhirðis. „Þeir renna þessu í gegnum stimp- ilvélar og það er lesið af þeim. Þeir eiga að hafa reglurnar viö höndina og eiga að vinna eftir þeim. Þeim er treyst fyrir því. Eðh bankanna er þannig að þeim er treyst. Starfsemi þeirra byggist á því. Þeir hafa enga hagsmuni aðra en gera þetta rétt,“ sagði Sigurður Þorkelsson ríkisfé- hirðir. Ríkisendurskoðun gerði athugasemdir Á árum áöur þegar ríkisendur- skoðun sá um þetta eftirlit voru gerð- ar stikkprufur reglulega. Samkvæmt heimildum DV kom þá oft fyrir að athugasemdir voru gerðar vegna slælegrar innheimtu á stimpilgjöld- um. Eftir að ríkisféhirðir tók við eft- irlitinu hefur þessum stikkprufum verið hætt. Stimpilgjöld eru 0,25 prósent af upphæð víxla en 1,5 prósent af skuldabréfum. Auk þess á sam- kvæmt lögunum að innheimta stimp- Stærstu skuldarar hjá viðskiptabönkunum komast hjá því að greiða stimpil- gjöld eins og aðrir viðskiptamenn bankanna eru krafðir um. Á myndinni má sjá stimpilvél i Landsbankanum. DV-mynd KAE ilgjöld af skjölum eða samningum sem í eðh sínu eru skuldabréf. Stærri fyrirtæki komast hjá stimpilgjöldum Þannig eru stimpilgjöld innheimt af afuröalánasamningum en einung- is einu sinni á ári. Sá sem tekur af- urðalán, sem iöulegg eru til skemmri tíma en tólf mánaða, kemst þannig hjá að borga stimpilgjald af ahri þeirri upphæð sem hann veltir í gegnum samninginn. í stað þess greiðir hann stimpilgjald einungis af þeirri upphæð sem stendur á samn- ingnum. Samningar um rekstrarlán eru einnig gerðir með svipuðum hætti og afurðalánasamningar. Auk þessa geta stærri fyrirtæki tekið lán hjá viðskiptabönkunum án þess að stimpilgjöld séu innheimt af lánsupphæðinni. Þeir pappírar sem tilgreina lánsupphæð og -skilyrði eru þá einfaldlega ekki stimplaðir. Sam- kvæmt heimildum DV kemst þannig Sambandiö hjá þvi að greiða stimph- gjöld af hluta af lánum sínum í Landsbankanum. -gse Flateyri: Verslanir nær iómar eftir ófærðina Reynir Traustason, DV, Flateyri: Mjög mikillar óánægju gætir nú meðal fólks á Flateyri með snjó- mokstur á Breiðadalsheiði. Svo virð- ist sem þeir hjá vegagerðinni haldi sig nær eingöngu við þá daga sem fyrirfram eru ákveðnir og moki ekki aðra daga þó vel viðri. Þeir heimamenn, sem DV ræddi við, voru á einu máli um að þetta ástand væri óviðunandi þar sem öll aðföng, svo sem mjólk og matvara, bærust um Breiðadalsheiöi og versl- anir eru þar af leiðandi nánast tóm- ar. Mjólkurvörur fást ekki nema endrum og eins. 1. mars var Breiða- dalsheiöin lokuð í glampandi sól- skini og blíðviðri og hafði þá verið lokuð í níu daga. Kristinn Jón Jónsson, rekstrar- stjóri vegagerðarinnar, sagði í sam- tali við DV að það væri tækjakóstur sem réði því að heiðin væri lokuð. Annar tveggja snjóblásara vegagerð- arinnar væri bilaður og hinn upptek- inn inni í ísafjarðardjúpi. Kristinn sagðist ekki reikna með að heiðin yrði opnuð fyrr en um helgi í fyrsta lagi. Það breyttist hins vegar í gær. Þá var byrjað að ryðja heiðina. Hann benti á að Djúpbáturinn væri vara- skeifa til að sjá um flutninga milli þessara staða. En hvað sem því liður þá er það undarleg tilfmning fyrir Flateyringa, sem heyrðu þann boðskap frá sam- göngumálaráðuneyti aö snjómokst- ur skyldi nú aukinn til muna, að sitja fastir milh heiða í blíðviðri. Ekki eru allir óánægðir með snjóinn á Flateyri. Tveir strákar á stórum skafli. DV-mynd Reynir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.