Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989. Útlönd Útför fórnariambs Syrgjendur við kistu stúlkunnar sem lést i sprengjuárásinni i Soweto. Hún er talin vera fómarlamb hneykslisins i kringum Mandela. Símamynd Reuter Unglingar sungu frelsissöngva og slagorö gegn stjórninni í gær við útfor táningsstúlku sem varö fórnarlamb hneykslisins í kringum Winnie Mandela. Stúlkan lést í sprengjuárás á heimili hennar í Soweto í síðasta raánuði og hafa iífverðir Mandela verið bendlaðir við árásina. Eigandi hússins, sem stúlkan iést í, var kona sem talin var hafa verið viðriðin lát eins líf- varða Mandela og rannsakar nú lögregian hvort um hefnd hafi verið að ræða. Lögreglan viðhafði ekki sömu ráðstafanir við útfórina í gær og annars er venjan við póiitískar útfarir. Ekki hugmynd Bush Háttsettur embættismaður í Hvíta húsinu í Washington sagöi í gær að Bush forseti hefði ekki átt hugmyndina að því aö bjóða frægum kín- verskum embættismanni í kvöldveröarveislu í Peking áður en hann hélt þaðan. Embættismaðurinn gaf í skyn að bandaríska sendiráðið í Peking hefði átt hugmyndina. Þetta mátti lesa í New York Times í morgun. Kínverska lögreglan kom í veg fyrir að andófsmaðurinn Fang fiæri í veislu Bush og hefur þetta atvik sett blett á fór Bush til Asíu. Að sögn embættismannsins, sem var með í fórinni, hafði veriö sendur gestalisti frá sendiráðinu til Washington en nafni Fang hefði ekki verið flaggað þannig að ætla hefði mátt að boðið gæti leitt til vandræði. Haft er eftir embættismanni í bandaríska utanríkisráðuneytinu að kín- verskum leiðtogum hefði veriö kunnugt um boöiö nokkrum dögum áöur en Bush kom og borið fram kvartanir nokkrum sinnum. Bandarískir embættismenn hefðu verið í vafa þar til seint á sunnudaginn um hvort kínversku leiðtogarnir kæmu í veisluna. Þegar tiikynning barst um komu þeirra hefðu Bandaríkjamennimir talið að nærvera Fangs hefði verið samþykkt. Heimili eyðilögd Þessi Palestinumaður, sem rabbíínn er að heimsækja, missti fót í upp- reisninni á herteknu svæöunum. Simamynd Reuter ísraelski herinn tilkynnti í gær að hermenn hefðu eyöilagt heimili sjö Palestínumanna á vesturbakkanum sem grunaðir hefðu verið um að ráð- ast á ísraelska bila og araba sem taldir voru hafa hjálpaö ísraelskum yfirvöldum. Á Gazasvæðinu hélt yfirmaður hersins þar fund með fúlltrúum palest- ínskra kvenna og margítrekaði áætlunina um aö kalla heim einhvem hluta hermannanna til að draga úr spennu á svæðinu. Einnig var konun- um tilkynnt aö herinn myndi láta lausa mörg hundruð araba sem fangels- aöir hefðu verið í uppreisninni. TrehoH í frí Yfirmaður hersins í Noregi hefur í bréfi til fangelsisstjómarinnar sagt að Ame Treholt sé ekki lengur hættulegur öryggi landsins. Yfirmaöurinn er þeirrar skoðunar að þess vegna sé óhætt aö lofa Treholt að fara í frí á þessu ári. Sex ár er liðin síðan Ame Treholt lauk námi i skóla hersins. Hann er því ekki lengur talinn búa yfir upplýsingum sem geta skaðað norska rikið. Bréfiö frá yfirmanni hersins var sent um mánaðamótin október - nóv- ember í fyrra en fyrst nú hefur Treholt sjálfúm og Jögfræðingum hans verið greint frá innihaldi þess. Treholt er sagður mjög ánægður með afstöðu yfirmannsins. NTB Handtökur í Kosovo Embættismenn í Júgóslavíu sögðu í gærkvöldi að búast mætti við fleiri handtökum á albönskum leiðtogum í Kosovohéraði. Meðal þeirra sem handteknir voru í gær var fyrrum formaður kommúnistaflokksins í héraðinu, Azem Vlasi, sem verið hef- ur geysilega vinsæll meðal albanska þjóðarbrotsins. Líta Albanir á hann sem eina leiðtoga sinn. Vegna þrýstings frá-Serbum sagði Vlasi af sér sem flokksformaður í nóvember síðasliðnum og í kjölfar afsagnar hans flykktust Albanir út á götur og torg til að mótmæla. í febrú- ar var Vlasi rekinn úr miðnefnd flokksins og varð brottreksturinn til- efni til verkfallsaðgerða af hálfu Al- bana. í upphafi ferfis síns gagnrýndi Vlasi óeirðir Albana en þegar hann varð flokksformaður 1986 sökuðu Serbar hann um að vernda þá ékki nægilega. Þrátt fyrir handtökuna á Vlasi og fleirum, sem sakaðir hafa verið um að vera forsprakkar verkfallsmanna í Kosovo, var þar allt með kyrrum kjörum í gærkvöldi. Skýringar manna á því hversu allt væri rólegt þrátt fyrir handtökurnar voru þær að almenningur væri hræddur. Her- menn eru á veröi víðs vegar í hérað- inu. Hins vegar spáðu menn mót- mælaaðgerðum við háskólann. Einnig var búist viö aö til tíðinda drægi þann 15. mars þegar þingið í Kosovo kemur saman til að undirrita stjórnarskrárbreytingar í Serbíu sem fela í sér að Kosovo missir sjálf- stæði sitt að hluta til. Vlasi var handtekinn ásamt Ekrem Arifi, sem átt hefur sæti í stjórn- málaráöinu, og tveimur yfirmönnum í Trepca-sinknámunum þar sem var allsherjarverkfall í síöustu viku. Þetta eru fyrstu meiri háttar hreins- animar síðan Tító lét framkvæma Azem Vlasi, fyrrum formaóur kommúnistaflokksins í Kosovo, var meðal þeirra sem handteknir voru í gær fyrir að efna til uppþota. hreinsanir snemma á átiunda ára- tugnum. Yfirvöld í Júgóslavíu sögðu á miðvikudaginn að þau hefðu sann- anir fyrir því að allsherjarverkfalliö hefði veriö fyrsti hðurinn í áætlun albanskra þjóðernissinna um vopn- Simamynd Reuter aða uppreisn. Stjórnmálaráðið í Kosovo hefur hafnað afsögnum þeim sem fylgdu í kjölfar verkfallsins. Segja yfirvöld að embættismennirnir hafi verið neyddir til að segja af sér. Reuter Samsæri gegn Najibullah Upp komst um fyrirhugað valda- rán gegn Najibullah, forseta Afgan- istan, tveimur dögum áður en síð- ustu sovésku hermennirnir héldu frá landinu um miöjan síðasta mánuö. Þetta er haft eftir skæru- liöaforingja Mujahedin samtak- anna. Sagði foringinn að rúmlega fimm hundruö manns heföu verið viðriönir samsærið. Einnig er haft efdr skærúhðafor- ingjanum að yfirvöld í Moskvu hafi skiliö eftir tíu þúsund her- menn, sem mæla persneska mál- lýsku, th að aöstoöa stjóm Naji- bullah í áframhaldandi baráttu gegn Mujahedin. Foringinn sagði að skæruhðar ráögerðu ekki töku Kabúl með alls- herjar árás sem gæti haft í fór með sér að fjöldi óbreyttra borgara léti lífið. Reuter Mótmæli við þingsetningu Þegar þingsetning var í Vestur- Berhn í gær efndu um tvö hundruð manns til mótmælaaðgerða gegn Lýðveldisflokknum sem er öfga- flokkur th hægri. Flokkurinn komst inn á þing í kosningunum 29. janúar. Lögregla var kvödd á vettvang tO að halda mannfiöldanum í skefjum en enginn var handtekinn. Saufján þingmenn græningja gengu úr þingsal þegar leiðtogi flokksins, Bernhard Andres, ávarp- aði þingheim. Hrópuð voru slagorð gegn nasistum á meðan á ræðu hans stóö og Internasjónalinn, byltingar- söngur sósíahsta, var einnig sung- inn. Formaður Lýðveldisflokksins er fyrrum foringi í SS-sveitum Hitlers. Hann hefur neitaö því að flokkur hans sé öfgaflokkur. Á stefnuskrá flokksins er brott- rekstur erlendra verkamanna úr V- Berhn. Reuter Bernhard Andres, leiðtogi Lýðveldisflokksins, til vinstri, og Frank Degen klappa við setningu þingsins i V-Berlín í gær. Flokkurinn, sem sagður er vera nasistaflokkur, náði 11 þingsætum i kosningunum í janúar. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.