Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Síða 15
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989. 15 Það hefur of lengi vantað í landi voru boölegan varaflugvöll fyrir stóran flugvélar og verið áhyggju- efni flugstjórum og öðrum er skilja hvað hér hggur við og hvað í húfi getur verið. Oryggisflugvöllur þarf að vera á veðursvæði andhverfu því sem ríkjandi er á hverjum tíma á SV-landi og í verulegri íjarlægð frá Miðnesheiði og Reykjavík. Eg- ilsstaðir, á öðrum enda landsins og miðpunktur samgangna í stórum landshluta, uppfyha þessi skilyrði. Skylda og nauðsyn íslendingar hafa um skeið verið mesta flugþjóð veraldar og stjórna fiugumferð yfir stóru hnattsvæði, en þeir hafa ekki náð nægilegum þroska er til öryggismála tekur. Það er því bæði skylda og nauðsyn vegna flugs yfir íslandi og Norður- Atlantshafi aö öryggismál hljóti forgang og vegur þar þyngst bygg- ing varaflugvallar á Austurlandi. Að öhu skoðuðu, er til ákvörðun- ar stefnir um endanlegt val á legu shks vallar, sýnist flestum að Egils- staðir komi helst tU álita. Aðstæöur eru þar um flest ágætar: Nægt land er undir flugbrautir og tilheyrandi byggingar, aðflugsskUyrði eru góð og snjóalög eru viðráðanleg og svæðið sjaldan í þess konar ham að ekki sé þar lendandi. í raun er verkið hafið með lagn- ingu brautar í námunda við malar- völlinn sem lengi hefur verið mið- stöð flugs á Austurlandi. Þessi nýja flugbraut er upphaf að miklum framkvæmdum sem í fylUngu tímans munu skila okkur stórri og vel búinni flughöfn á Egilsstöðum. Á þeirri stundu hefur orðið ger- bylting og mikil framför varðandi öryggiskröfur vegna fiugumferðar í okkar heimshluta. Málið sé rætt Sé það svo að nokkrar þjóðir okk- Egilsflugvöllur KjaUaiinn Emil Als læknir saman um þess konar málamiðlun að alUr haldi virðingu sinni. Fari svo að við berum þennan mikla kostnað ein munum við að lokum sitja uppi með minni flugvöll en ella en aUgóðan þó. Óumdeilanlegt gagn Margt orkar tvímæUs sem fram- kvæmt hefur verið í nafni opin- berrar byggðahjálpar og sumt ver- ið skaðlegt. Öflugt framlag ríkis- sjóðs til eflingar flughöfn á Egils- stöðum er þó varla háð miklum efasemdum. Skyldan og þörfin kljúfa aUar umræður og vangavelt- ur um stríð og frið. Hver og einn sér fyrir sér óumdeilanlegt gagn sem af slíkri framkvæmd mun verða og hvílík farsæld henni mun fylgja fyrir Austfiröingafjórðung og landiö allt. Oruggar samgöngur eru lífsblóð byggðanna og sívakandi flughöfn á Egilsstöðum mun hleypa fjöri í öll nálæg byggðarlög og tengja fjórð- unginn nánar við SV-landið og aðr- ar byggðir á íslandi. Það ríkir oft yndisleg kyrrð á Héraði og mörgum er eftirsjá að þeim friði en eigi mannlíf og efna- hagur að taka framforum er mann- fjölgun nauðsynleg. Auknum at- höfnum á Egilsstöðum mun fylgja nokkur kliður en einnig meiri og betri þjónusta við fjölda byggða. Stór og vel búin flughöfn á Hér- aði mun vekja þakklæti og virðingu í hugum flugmanna á Islandi og um heim allan. Aukið öryggi í flugi yfir íslandi og yfir norðanverðu Atlantshafi mun valda því. Emil Als „Stór og vel búin flughöfn á Héraði mun vekja þakklæti og virðingu í hug- um flugmanna á íslandi og um heim allan.“ ur vinveittar og vígðar svipuðum hugmyndum og við um mannhelgi og þingræði telji sér nauðsyn á því að flugöryggi verði bætt á íslandi er varla neitt því til fyrirstöðu að máhð sé rætt við þessar þjóðir og þær látnar bera einhvern hlut í kostnaði við sameiginlegt öryggi. Sjálfir ráða íslendingar því hvar flughafnir rísa í landi þeirra og sjálfir skilgreina þeir hlutverk þeirra. Andstæðingar friðargæsluhug- mynda Atlantshafsþjóða reyna nú af kappi að fleyga mál þetta og flækja með orðaleikjum. Þetta mun þó ekki takast því flestir skilja að á stríðstímum eru allir flugvehir svo og önnur sámgöngumannvirki umsvifalaust tekin í þágu land- varna íslands og bandamanna þess. Allar framkvæmdir eru að þessu leyti tvíbentar og háðar þeim tvískinnungi sem ríkir um flest sem gert er. Alþýðu-, Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokkur eiga að koma sér „...sýnist flestum að Egilsstaðir komi helst til álita,“ segir greinarhöfundur m.a. -Flugdagur á Egilstaðaflugvelli. Fiskframleiðendur og fiskvinnslufólk: Er flæðilína þrælalína? Ég hafði það fljótlega á tilfmning- unni að eitthvað annarlegt væri á ferðinni þegar rætt var um dá- semdir flæðihnukerfis í fisk- vinnslu. Fyrstur til að sannfæra mig um að þessi kenning mín væri rétt var framkvæmdastjóri fiskvinnslu- húss á Húsavík sem rætt var við í sjónvarpsfréttum fyrr í vetur. Hann talaði um að flæðilínukerfið væri bylting og það ætti eftir að skila góðum árangri fyrir iUa stadda útflutningsgrein. Forstjór- inn talaði um að flæðUínan kæmi tU með að auka afköst um 30% án þess að til fólksfjölgunar kæmi í greininni en samt ætti launakostn- aður að lækka, þ.e. aukin afköst fyrir lægri laun. Ekki á kostnað starfsfólks Það var því ekkert skrítið að Sturlaugur, framleiðslustjóri H.B. og Co. á Akranesi, brosti út í bæði þegar hann upplýsti alþjóð um það í sjónvarpskastljósi á dögunum að flæðUínukerflö kæmi til með að borga sig sjálft upp á ca 1-2 árum. Ég fuUyrði hins vegar að flæði- Unukerfið fer að skila hagnaöi fyrir fyrirtækið hans á mun skemmri tíma, t.d. innan 3ja mánaða. Það þarf ekki háskólamenntaðan fræð- ing tU þess að gera sér ljóst að 30% verðmætaaukning út úr fisk- vinnsluhúsinu, sem borga þarf lægri laun fyrir, skUar fljótlega gróða. Það er svo sannarlega kominn tími til að fiskvinnsluhúsin fari að Kjallarinn Sigrún Jónsdóttir Halliwell fiskvinnslumaður, Akranesi skömmu fóru tæplega 34 tonn af karfa um hendur starfsfólks H.B. og Co. Nýting varð aUgóð en hraði sagður lélegur. Uppskera í hóp- bónus varð 87 kr. á tímann á mann. TU þess að starfsfólkið gæti náð 170 kr. á tímann, sem það gat og gerði fyrir innleiðslu flæðiUnukerfis, hefði magnið þurft að vera u.þ.b. 60 tonn yfir daginn. En á því var hvorki tækrdlegur né fræðUegur möguleiki því flökunarvélar húss- ins hefðu aidrei getað annað því magni. Þótt mannskepnan sé sveigjanleg þá er vélin stöðluð. Réttlát hlutaskipti án ... Ég hef hingað til verið tilbúin að standa við hhð fískframleiðenda og barist fyrir bættum rekstrargrund- velU fiskvinnslufyrirtækja, t.d. „Flæðilínukerfið býður að mínu mati upp á skjótfenginn en illa fenginn gróða fyrir fiskvinnslufyrirtækin. ‘ ‘ skila hagnaði en að mínu mati á það alls ekki að vera á kostnað starfsfólksins. FlæðiUnukerfið get- ur svo sannarlega rýrt tekjur flsk- vinnslufólksins, sérstaklega þar sem aðaluppistaðan af hráefninu er karfl. Dæmi: Einn daginn fyrir með því að styðja kröfu þeirra um gengisfellingu og lækkun fjár- magnskostnaðar. En hingað og ekki lengra. Flæðilínukerfi getur lækkað laun góðs starfsmanns í fuUu starfl um ca 100.000 kr. á einu ári, þ.e.a.s. ef þú heldur starfmu, sbr. Grandi hf. „Kominn tími til að fiskvinnsluhúsin fari að skila hagnaði en alls ekki á kostnað starfsfólksins," segir m.a. í greininni. í Reykjavík. Og þegar fram líða stundir getum við einnig átt á hættu að íslending- ar tapi mörkuðum vegna illa unn- innar vöru. Áður en flæðilínukerf- iö var tekið í notkun var hver starfsmaður ábyrgur fyrir gæðum eigin framleiðslu en í flæðiUnu- kerfi er enginn gerður ábyrgur. FlæðiUnukerfið býður að mínu mati upp á skjótfenginn en Ula fenginn gróða fyrir fiskvinnslufyr- irtækin. Sá gæðastímpfll, sem íslensk fisk- framleiðsla hefur á sér vegna strangs gæðaeftisUts, kemur tíl með að hverfa, því nú er það magn- ið sem skiptir máU en ekki gæðin. Hvernig væri nú, fiskframleið- endur góðir, að þið settust niður og rædduð máUn í einlægni við ykkar fólk. Það væri kannski hægt að bjóða starfsfólkinu upp á réttlát hlutaskipti án þess að Víglundur Þorsteinsson, Þórarinn Vaff eða Ásmundur Stefánsson kæmu þar nálægt, enda ekki þeirra hagsmun- ir. íslenskir fiskframleiðendur og íslenskt fiskvinnslufólk á samleið og getur reyndar ekki hvað án ann- ars verið. Saman vitum við að ásamt sjómönnum getur þjóðin ekki án okkar verið. Sigrún Jónsdóttir Halliwell.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.