Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989. íþróttir Enska knattspyrnufélaglö Newcastle United festi í gær kaup á danska landsliðsmanninum Bjöm, Kristensen. Björa leikur með Árósum og þurfti Newcastle að greiða 250 þúsund sterlings- pund fyrir ieikmanninn. Þetta er annar danski knattspyrnumaö- urinn sem Newcastle kaupir á skömmum túna. Frank Pingel er fyrir hjá félaginu. í reglum enska knattspyrausambandsins segir að aöeins megi tefla fram tveimur útiendingum hveiju sinni í leik. Þaö er því ljóst að Newcastle verður að selja Brasilíumanninn Mirandinha, en franska félagið hefúr lýst yfir áhuga að fá hann í sínar raðir. Jim Smith hreifst rnjög af Birai Kristensen í Evró- upuleik danska liðsins gegn Barcelona á miövikudaginn en Björa mun ekki byija að leika meö Newcastle fyrr en seinni leiknum í Evrópukeppninni er lokið. -JKS Handknattleikur; Átök í Fyrir nokkru var dregiö í 16 liða úrslitum i bikarkeppni karla í handknattleik. Þessi lið mætast: Selfoss/KR-KA Stjaman-Fram/Víkingur ÍBV b-ÍR Haukar-Ármann UMFN/FH-UBK Grótta-HK/ÍBV ÍBK-Valur Arraann b/Leiftri-Þróttur I átta liöa úrslitum í kvennaflokki drógust þessi lið saman: ÍBK-Fram FH-ÍBV Grótta-Stjaraan/Haukar Víkingur-Valur Ásgeir ekki lengur fyrirliði Stuttgart Siguxöur Bjömsson, DV, V-Þýakalandú Vestur-þýska knattspyrnu- tímaritið Kicker sagði frá þvi í gær aö Ásgeir Sigmvinsson hefði misst fyrirliðastöðu sína hjá Stuttgart. Viö stöðunni hefur tek- ið vestur-þýski landsliösmaöur- inn Guido Buchwald. Ásgeir sagði i viðtali við Kicker aö hann nyti ekki lengur trausts þjáifara liðsins. Því hefði hann ákveðið að láta fyrirliðastöðuna af hendi. Talið er að upp úr hafi soðiö í leik Stuttgart gegn Hannover um síðustu helgi, en þá var Ásgeir tekinn út af í hálf- leik eftir orðaskipti við þjálfar- aim að því talið er. í grein Kicker í gær kemur einnig fram að Stuttgart sé ákveðið í að kaupa útlending í staö Júrgen Klinsmann sem er á fórum til Ítalíu. Þá er talið líklegt að Ásgeir þurfi aö víkja. Kicker segir aö blómaskeiö Ás- geirs sem knattspyrumanns sé lfldega á enda. Ásgeir eldist eins og hver arrnar maður, segir i niö- urlagi greinarinnar. Þorbergur fór á kostum með Saab - gerði 7 mörk 1 sigri liðsins Þorbergur Aðalsteinsson fór hamförum með liði sínu, Saab, í sænsku úr- valsdeildinni um síðustu helgi. Hann skoraði 7 mörk og átti aö auki margar glæsilegar sendingar sem gáfu mörk. Saab vann þá Ystad á útivelli mjög óvænt, 20-25, en staðan í hálfleik var 7-16. Pólverjinn Leslaw Dziuba var markahæstur í liði Saab með 8 mörk en hann gerði 2 úr vítaköstum. IFK Malmö, lið Gunnars Gunnarssonar, tapaði á heimavelli fyrir Sávahof, 22-27, en staðan í hléi var 9-15. Staðan í sænsku úrvalsdeildinni er nú sú að Drott hefur forystu, er með 32 stig eftir 19 leiki en öfl félög hafa sama leikjafjölda að baki. Redbergshd kemur næst Drott með 31 stig. Savahof og Lugi kom þar á eftir, bæði með 28 stig, en þessi fjögur lið hafa nánast tryggt sér rétt til að leika í úrslita- keppni sænsku úrvalsdeildarinnar. Karlskrona er í botnsætinu með 6 stig en þar fyrir ofan koma Kroppskultur með 8 stig og IFK Malmö með 9. Saab siglir lygnan sjó um miðja deiid með 14 stig. JÖG Fáksmenn skeiða í ísnum: Sá ekki í hrossin fyrir snjósköflum - vindur stóð Fáksfélagar héldu fyrsta hestamót sitt á laugardaginn var. Þrátt fyrir slæmar aðstæður mættu um það bil 80 knapar með hross sín. Ekki hefur jafnmikill snjór sést á hestamótum til þessa og sáu áhorfendur ekki hest- ana á keppnisstað fyrir snjó. Knapar dúðuðu sig vel enda var frekar kalt. Keppt var í tveimur flokkum í tölt- keppninni, flokki fullorðinna og flokki bama, en auk þess kepptu 24 knapar í 150 metra skeiði. Sigurbjörn Bárðarson hóf keppni á þessu ári með sama sniði og hin síðari ár, með sigri. Hann sigraði í töltkeppni full- orðinna á Hjalta, Hreggviður Ey- vindsson var annar á Ör, Unn Krog- hen þriðja á Grámanni, Hinrik Bragason fjórði á Stjama og Sigríður Benediktsdóttir fimmta á Arvakri. í fang knapa Edda Rún Ragnarsdóttir sigraði í töltkeppni unglinga á Örvari, Gish Geir Gylfason var annar á Ófeigi, Daníel Jónsson þriðji á Glettu, Sig- urður Vignir Matthíasson fjórði á Bróður og Hjörný Snorradóttir fimmta á Sörla. Sigurður Mariníusson var sigur- vegari í skeiökeppninni á Sókratesi, rann skeiðið á 15,6 sekúndum. Sigur- björn Bárðarson var annar á Símoni á 16,6 sekúndum og Hörður Hákon- arson þriðji á Kolfinnu á 16,7 sekúnd- um. Þetta eru ótrúlega góöir tímar því aðstæður til skeiðkeppni voru mjög slæmar. Vindur stóð í fang knapa og eins var lítil spyrna í snjón- um. -EJ Sigurbjörn Bárðarson á Hjalta, sigurvegari í töltkeppni fullorðinna á vetrar- uppákomu hestamannafélagsins Fáks í Reykjavik. DV-mynd EJ íþróttir fatlaðra: Góður árangur fatlaðra í Málmey - aífek unnin á opna Málmeyjarmótinu Landslið íslands í flokki fatlaðra fór utan til Svíþjóðar á alþjóðlegt stigamót á dögunum. Mótið var hald- ið í Málmey og er það kennt við borg- ina. Voru íslensku keppendumir 40 talsins og komu þeir frá 5 félögum en þetta var í 3. sinri sem íslendingar senda lið utan. Lið íslands varð hlutskarpast í boc- cia eða kúlufimi á mótinu og í sundi og vann auk þess verðlaun fyrir sam- anlagðan árangur. Af árangri einstakra íslenskra íþróttamanna er vert að geta þess að Sigrún Huld Hrafnsdóttir úr Ösp, sem keppti í 4 greinum í sundi, vann þær allar. Þá varð 1. sveit ÍFR Malmö - Open meistari í kúlufimi (boccia), en sú sveit varð sú 3. stigahæsta á öllu mótinu. Þess má geta aö opna Málmeyjar- mótið hefur verið haldið allar götur síðan 1974. Sá háttur er haföur á að keppendur úr röðum fatlaðra eru boðnir til þátttöku víða að og voru þeir um 1000 í ár. Keppnisgreinar voru sund, kúlufimi, borðtennis, blak, „curting" og skotfimi með loft- rifflum. Það gengur gjarnan á ýmsu á knattspyrnuvellinum enda heillar það óvænl vildi einn úr síðasttalda hópnum taka ráðin í kappleik í Ástralíu en þar er nú horn að líta í leik Blacktown City og Apia-Leichhardt. Flaggaði hann spjöldum það rauða fór þrívegis i loftið. Á myndinni á einn áhorfandinn vantalað við 1 eitthvað vantalað við áhorfandann. Stúdenta fallnir um - töpuðu fyrir Þór í ga töpuðu KR, 83-84 KR-ingar sigruðu Hauka með 84 stigum gegn 83 í jöfnum og 9pennandi leik í Flugleiöadeild- inni í körfknattleik í gærkvöldi. Staöan í hálfleik var 44-43. Leikur liðanna hafði enga þýöingu þar sem KR-ingar höfðu tryggt sér sæti í úrslitakeppninni sem hefst innan tíðar. Haukar höföu frumkvæðið lengst af og með Jón Arnar Ing- varsson sem besta mann þá virt- ust þeir ætla aö leggja KR-inga að velli. Haukar vory yfir, 70-63, þegar sex mínútur voru eftir en þá tóku KR-ingar við sér og kom- ust yfir. Á lokamínútum var stig- inn mikill darraöardans en KR- ingum tókst að halda út og sigr- uöu með eins stig mun. Hjá Haukum var Jón Arnar Ingvarsson bestur og skoraði 34 stig. í KR-liöinu bar mest á Guðna Guðnassyni og Birgi Mikaelssyni. Dómarar leiksins voru Jón Bender Sigurður Valur Halldórs- son og dæmdu ágætlega. Stig Hauka: Jón Arnar Ingvarsson 34, ívar Ásgrímsson 14, Pálmar Sig- urösson 13, Eyþór Árnason 10, Haraldur Sæmundsson 8, Tryggvi Jónsson 4. Stig KR: Guðni Guönason 26, Birgir Mikaelsson_ 24, Olafur Guðmundsson 14, ívar Webster 10, Lárus Ámason 5, Böðvar Guð- jónsson 2, Matthias Einarsson 2.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.