Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Side 24
32
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989.
Sviðsljós
írskir rælar og tregafullir söngvar í bland hjá Dubliners i fjórða sinn á ís-
landi. Barney McKenna, John Sheahan og Ronnie Drew hafa leikið saman
og sungið í rúm 25 ár. Fjær á myndinni eru Sean Cannon og Eamon Camp-
bell en hann er hér á landi í fyrsta sinn.
aufúsugestir og er þetta í íjórða sinn
sem þeir koma hingað til lands.
Hljómsveitin, sem hóf sinn feril fyrir
rúmum 25 árum á ölkrá í Dublin,
hefur hins vegar aldrei fyrr leikið
fynr ölglaða íslendinga.
Á opnunarkvöldinu á miðvikudag
var fullt hús aðdáenda sem biöu
óþreyjufullir eftir innkomu hljóm-
sveitarinnar. Gestirnir hituðu sig
upp með gð syngja glefsur úr vinsæl-
um lögum og öðru hveiju heyrðist
hátt kveðið. Þegar hljómsveitin gekk
inn komst heldur betur hreyfing á
mannskapinn, menn reru sér og
kiöppuðu í takt. írarnir íluttu helstu
lögin eins og Irish Rover, Rose of
Allendale og Now Im Easy. Stemmn-
ingin magnaðist í salnum og þegar
leið á kvöldið var landinn farinn að
dansa írska ræla og syngja með, jafn-
vel þegar takturinn hjá banjóleikar-
anum Bamey McKenna var orðinn
ofsahraður. Sumir héldu því fram að
íslendingar væru örugglega af írsk-
um ættum, annað væri óhugsandi.
Dagskráin stóð yíir á þriðja tíma og
eftir kröftugt uppklapp luku þeir
henni með laginu Goodnight Irene.
í kvöld verða síðustu tónleikar
Dubliners að þessu sinni í Ölveri.
Þeir sem telja sig hafa misst af ímn-
um geta huggað sig við að þeir eru
ekki að leggja upp laupana og munu
örugglega koma aftur í íslenskt öl-
teiti.
Banjóleikarinn Barney McKenna
leikur af list á hljóðfæri sitt og hefur
einnig gaman af að syngja einsöng
með sinni hrjúfu rödd.
írsk
ölteiti
í tilefni af bjórdegi kom írska þjóð-
' lagahljómsveitin The Dubliners til
íslands aö samfagna bjóráhuga-
mönnum í Ölveri. írarnir eru miklir
Gestirnir í Glæsibæ reru sér og klöppuðu í takt við írsku tónlistina.
Krárnar fylltust af gestum í hádeginu strax eftir að bjórbannið féll úr gildi og runnu ófáir öllitrar niður um þyrstar
kverkar. Þessir þrír; Haraldur Blöndal og Barði Friðriksson hæstaréttarlögmenn og Atli Freyr Guðmundsson, skrif-
stofustjóri í viðskiptaráðuneytinu, léku á als oddi á Fógetanum og skáluðu fyrir Ijósmyndarann. Stemningin var
skemmtiieg og voru sagðar ófáar sögur yfir ölkrúsunum. DV-mynd GVA
Símon Sigurjónsson:
Símon Sigurjónsson framreiðslumaður, sem öll sín starfsár hingað til hefur
afgreitt eitthvað sterkara en öl ofan í gesti sína, klippir þarna á borða á
ölkrönum Ölvers í Glæsibæ. , DV-mynd GVA
„Ég er mjög sáttur við að skenkja
öh í glösin hjá gestum mínum eftir
öll þessi ár í sterkari drykkjum. Það
er afskaplega gaman að sjá hvaö fólk-
ið er þægilega glatt. Það verður bara
að passa sig á að þamba ekki of mik-
ið,“ sagði Símon Sigurjónsson fram-
reiðslumaður, sem lengst af hefur
verið þekktur sem Símon í Naustinu,
í samtali við DV.
Símon klippti á borða á ölkrönum
Ölvers í Glæsibæ seinnipartinn á
bórdaginn 1. mars. Þar með hófst nýr
kafli á löngum starfsferli hans sem
framreiðslumanns þar sem sterkari
drykkir hafa haft yfirhöndina -
þangað til í fyrradag.
„Ég er mjög ánægður með þennan
dag og öhð svo framarlega sem þjóð-
in kann að meta það.“ -hlh
Bjarni Marteinsson, eigandi Ölkjallarans, t.v., og Guðborg Kristjánsdóttir,
kona hans, skála við Magnús L. Sveinsson, forseta borgarstjórnar, við
opnun ölkjallarans á hádegi B-dagsins. Þar var mikill fjöldi boðsgesta
mættur og virtist ölið renna Ijúflega niður í mannskapinn. DV-mynd GVA
„Skál,“ sögðu þessir hressu menn úr hurða-, glugga- og rammaiðnaðinum
sem sátu á Hard Rock Café og dreyptu á öli eftir matinn. Þeir hittast reglu-
lega í hádeginu og voru mjög hressir með tilkomu ölsins. DV-mynd GVA
Á annað hundrað manns biðu við dyrnar þegar áfengisútsalan i Kringl-
unni opnaði klukkan tiu á bjórdaginn, 1. mars. Lá stöðugur straumur við-
skiptavina i bjórhugleiðingum inn i verslunina allan daginn. Þessir ungu
menn biðu í einni biðraðanna þegar DV var á staðnum laust eftir hádegi
í fyrradag. DV-mynd GVA