Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989. 35 Afmæli Hreinn Halldórsson Hreinn Halldórs, fijálsíþróttamaöur og umsjónarmaöur íþróttamann- virkja á Egilsstöðum, Faxatröð 6, Egilsstööum, er fertugur í dag. Hreinn fæddist á Hólmavík og ólst upp í foreldrahúsum við almenn sveitastörf á Hrófbergi við Stein- grímsfjörð. Hann flutti til Reykja- víkur á unglingsárunum, vann fyrst í frystihúsi, starfaði síðan í bygg- ingavinnu en ók strætisvögnum frá 1971-82. Þá fluttí. hann austur á Eg- ilsstaði þar sem hann hefur búið síðan og verið umsjónarmaður íþróttamannvirkja þar. Hreinn hef- ur stundað ökukennslu með aðal- starfinu auk þess sem hann stundar nám í öldungadeild Menntaskólans áEgilsstöðum. Hreinn er landsþekktur íþrótta- maður en hann var um skeið einn fremsti kúluvarpari heims. Hann sló íslandsmet Guðmundar Her- mannssonar 1974 sem þá var 18,48 m og bætti það met nokkrum sinnum til ársins 1977 er hann kastaði 21,09 m. Hann tók þátt í ólympíuleikun- um í Montreal 1976, ólympíuleikun- um í Moskvu 1980, Evrópumóti ut- anhúss í Róm 1974 og í Prag 1978, og Evrópumóti innanhúss í Miinchen 1976 og í Bradislava 1977, en þar varð hann Evrópumeistari í kúluvarpi. Þá vann Hreinn DN Gala-mótið í Stokkhólmi og setti þar vallarmet. Hreinn keppti einnig á lyftinga- mótum hér heima en hann varð nokkrum sinnum íslandsmeistari í tvíþraut. Hann er formaður Félags opin- berra starfsmanna á Austurlandi. Hann situr í frjálsíþróttaráði UÍA og frjálsíþróttaráði Hattar á Egils- stöðum. Kona Hreins er Jóhanna Guðrún Þorsteinsdóttir, f. 28.7.1954, hús- móðir og launafulltrúi á Egilsstöð- um, dóttir Þorsteins Björnssonar, b. á Þemunesi við Reyðarfjörð, og Steinunnar Lovísu Einarsdóttur, en húnerlátin. Böm Hreins og Jóhönnu Guðrún- ar eru Sindri, f. 20.7.1977; Lovísa, f. 21.2.1980, Og Geisli, f. 8.3.1985. Hreinn á fjögur systkini. Þau em Pétur Hoffmann, f. 5.9.1946, jarðýtu- stjóri í Borgamesi, kvæntur Ásu Maríu Hauksdóttur húsmóður og eiga þau þrjú böm; Sigurbjörg Halldóra, f. 9.12.1947, húsmóðir og starfsmaður hjá Kaupfélaginu á Drangsnesi, gift Friðgeir Höskulds- syni skipstjóra og eiga þau tvö böm; Ragnheiður Hanna, f. 1.9.1954, hús- móðir og sjúkrahði á Hólmavík, gift Þorbirni Val Þórðarsyni, veghefils- stjóra hjá Vegagerð rikisins og eiga þau tvö börn; Jón Hallfreður, f. 8.12. 1955, vélamaður á Hrófbergi, en unnusta hans er Ingibjörg Rebekka Valdimardóttir frá Strandseljum í Ögurhreppi. Foreldrar Hreins em Halldór Sig- urbjörnHalldórsson, f. 23.6.1925, b. á Hrófbergi, og kona hans Svava Pétursdóttir húsfreyja, f. 12.10.1924. Halldór er sonur Halldórs Stein- þórs, b. í Vonarholti í Arnkötludal, Sigurðssonar, b. á Geirmundarstöð- um í Selárdal í Steingrímsfiröi, Gunnlaugssonar, b. þar Gunnlaugs- sonar. Móðir Halldórs í Vonarholti var Guðbjörg Ásgeirsdóttir, b. á Ytri-Ósi Snæbjömssonar, fmmbyggja Hólmavíkur. Móðir Halldórs á Hrófbergi var Sigurbjörg Bjamadóttir, b. á Bólstaö Bjamasonar, b. á Klúku Sigfússonar frá Skarði, Guðmundssonar. Móðir Sigurbjargar var Björg Sigurðar- dóttir, hálfsystir Guðjóns, foður Magnúsar á Innra-Ósi, foður Þórólfs flugmanns og Lofts, augnlæknis á Akureyri. Svava er dóttir Péturs Hoffmann, prests á Stað, Hannessonar, Hall- gríms Hoffmann, prests á Stað, Jónssonar, b. á Slitvindastöðum, Sveinssonar, prófasts á Staðastað, Níelssonar. Systir Jóns var Elísabet, kona Björns ráðherra og móðir Sveins forseta. Bróðir Jóns var Hallgrímur biskup, faðir Friðriks dómkirkju- prests. Hálfsystir Jóns var Sigríður, móðir Haraldar Níelssonar prófess- Hreinn Halldórs. ors, fóður Jónasar Haralz, fv. bankastjóra. Móðir Hans á Stað var Elínborg, dóttir Hans Hoffmann á Búðum, Péturssonar Hoffmann. Systir Ehnborgar var Metta, móðir Ingunnar, konu Haraldar Böðvars- sonaráAkranesi. Móðir Péturs á Stað var Ragn- heiður Helga Magnúsdóttir frá Hrófbergi, systir Steinunnar, móður Steinunnar Finnbogadóttur. Móðir Svövu var Jónfríður Þórð- ardóttir, b. á Neðri-Hól í Staðar- sveit, Bjarnasonar, b. á Glaumbæ Þórðarsonar. Móðir Jónfríðar var Herdís Jónsdóttir, b. á Hólkoti, Þorgilssonar. Bróðir Herdísar var Jón, afi Alexanders Stefánssonar. Kristján Magnússon Kristján Magnússon sendibílstjóri, Kjarrvegi 13, Reykjavík, varð fimm- tugurígær. Kristján fæddist á Drangsnesi í Strandasýslu og ólst upp á Hólma- vík. Hann byrjaði ungur til sjós og stundaði sjómennsku á flskibátum til 1%5. Kristján tók vélstjórapróf 1958 og var vélstjóri frá 1959. Er hann kom í land 1965 hóf hann sendibílaakstur og hefur stundað hann síðan á eigin bh. Kristján er áhugamaður um skemmtisighngar en hann tók þátt í sjóralh Snarfara og DV1980, auk þess sem hann sat í stjórn Snarfara um skeið. Þá hefur hann starfað mikið að björgunarmálum en hann er nú formaður Sjóbjörgunarsveitar IngólfsíReykjavík. Kona Kristjáns er Elsa Stefáns- dóttir, húsmóðir og saumakona, f. 19.11.1938, dóttir Stefáns Guö- mundssonar, húsvarðar í Reykja- vík, og konu hans, Aldísar Krist- jánsdóttur. Kristján og Elsa eiga sex börn. Þau eru Magnús, f. 23.3.1961, sendibíl- stjóri í Reykjavík; Stefán Hahdór, f. 24.3.1963, plötusmiður í Færeyj- um; Kristján Árni, f. 24.3.1963, sendibílstjóri í Reykjavík; Aldís, f. 28.8.1968, sjúkraliði í Reykjavík; Hörður Snævar, f. 27.9.1969, plötu- smiður í Færeyjum; Davíð Freyr, f. 11.1.1982. Kristján átti flmm systkini og eru fjögur þeirra á lífi. Þau eru Anna Guðlaug, húsmóðir í Reykjavík; Aðalheiður, hárgreiðsludama í Reykjavík; Ingimundur, húsa- smíðameistari í Reykjavík, og Gunnar, sjómaður í Reykjavík. Foreldrar Kristjáns eru Magnús Jörundsson, fyrrv. sjómaður og út- gerðarmaður á Hólmavík, nú bú- settur í Reykjavík, og kona hans, Ámý Rósmundsdóttir. Foreldrar Magnúsar eru Jömnd- ur Gestsson, fyrrv. hreppstjóri á Hellu á Selsströnd, og Ánna Magn- úsdóttir sem nú er búsett á Sjá- landi. Foreldrar Jörundar voru Gestur Kristjánsson, b. á Hafnar- Hjálmar S. Thomsen Hjálmar Sigurður Thomsen múrari, Mánagötu 25, Grindavík, varð sjö- tugurígær. Hjálmar fæddist í Sumbæ á Suður- ey í Færeyjum og ólst þar upp. Hann byrjaði fjórtán ára til sjós og var þá á skútum frá Suðurey. Hann stund- aði síðan sjómennsku í fjölda ára og 1943 lauk hann prófum frá Stýri- mannaskólanum í Þórshöfn. Hjálm- ar kom til Reykjavíkur og vann þá fyrst við lagnir hitaveitunnar í byrj- un stríðsins en réð sig von bráðar á norskan bát og sigldi með honum öh stríðsárin. Hann starfaði síðan í byggingavinnu hér á landi og lauk sveinsprófi í múrverki. Kona Hjálmars er Margrét Ingj- aldsdóttir, dóttir Ingjalds Jónsson- ar, húsasmíðameistara í Reykjavík, frá Melshúsum á Leirum og Ing- veldar Guðrúnar Kristjönu. Syskini Hjálmars vom átta en fjögur þeirra eru nú á lífi. Þau eru Ernst Thomsen, skipstjóri í Færeyj- um; Andrea Danielsen, húsmóðir í Færeyjum; Maria Richard, húsmóð- ir í Færeyjum, og Herborg Pedersen, húsmóðir í Ástralíu. Foreldrar Hjálmars: Andras Thomsen, skipstjóri á Suðurey, og kona hans, Elisabet Soffia Thomsen, en þau em bæði frá Suðurey. Hjálmar og Margrét taka á móti gestum á heimili sínu að Mánagötu Jón K. Þórðarson Jón K. Þórðarson múrarameistari, I dóttir, ætla að taka á móti gestum Brekkubæ 26, Reykjavík, verður að Skipholti 70, laugardaginn 4.3. fimmtugur mánudaginn 6.3. nk. milli klukkan 16 og 19:00. Hann og kona hans, Úndína Gísla- | Kristján Magnússon. hólmi í Kaldrananeshreppi, og kona hans, Guðrún Ámadóttir. Systir Önnu er Lára, móðir Ragn- ars Bjarnasonar söngvara. Foreldr- ar Önnu vom Magnús Kristjánsson, b. aö Hafnarhólmi, og Guðrún Mika- elsdóttir. 85 ára 50 ára Berghildur Guðbrandsdóttir, Silfurbraut 27, Höfn í Homafiröi. Kristján Sigurjónsson, Kjartansgötu 10, Reykjavik. Sigurjón Sveinar Jónsson, Ingólfshvoli, Ölfushreppi. 75 ára Kristín Kristjánsdóttir, Grenihlíð 2, Sauðárkróki. 40 ára Sveinn Tiuni Arnórsson, Teigagrund 4, Ytri-Torfustaöa- hreppi. Hrafnhildur Þorgrímsdóttir, 70 ára Guðjón Bjarnfreðsson, Hverfisgötu 32B, ReyKjavík. Lækjarseli 2, Reykjavík. Eyrún Anna ívarsdóttir, Blöndubakka 8, Reykjavík. Bjarni Árnason, 60 ára Laugavegi 37, Siglufiröi. Páll Árnason, Selvogsgrunni 29, Reykjavik. Þórður Ingimarsson, Rekagranda 10, Reykjavík. Louisa Gunnarsdóttir, Stigahlíð 44, Reykjavík. Bragi Björnsson, Lambastekk 12, Reykjavík. Kristján Hálfdánarson, Öldugötu 1, Flateyrarhreppi. Guðmundur Svavarsson Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hvetur afmælisböm og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frænd- garð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir Hjálmar S. Thomsen. 25, Grindavík, á fóstudagskvöldið klukkan 20.00. Jón K. Þórðarson. Guðmundur Svavarsson, fram- kvæmdastjóri sölumála hjá Nesco, Brekkubæ 22, Reykjavík, er fertug- urídag. Guðmundur fæddist á Þórkötlu- stöðum í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík og ólst upp í Grindavík til sjö ára aldurs, en flutti þá til Keflavíkur. Hann lauk stúdents- prófi frá ML1969 og prófi í við- skiptafræði við HÍ1974. Guðmundur varð fulltrúi hjá Útflutningsmiðstöð iðnaðarins 1974, skrifstofustjóriþar frá 1978 og markaðsstjóri hjá Nesco Manufacturing hf. frá 1982. Kona Guðmundar er Sigríður Victoria Árnadóttir, f. 25.7.1951, dóttir Áma Sigurðssonar, sýningar- stjóra í Keflavík, og Vilborgar Strange, verslunarmanns þar. Dóttir Guðmundar og Sigríðar Victoriu er Hulda Karen, f. '4.10. 1983. ' Guðmundur á tvö hálfsystkin. Þau eruMargrétÁgústsdóttir, f. 19.6. 1956, framkvæmdastjóri Aðalstöðv- arinnar í Keflavík, gíft Árna Ás- mundssyni, starfsmanni Flugleiða á Keflavíkurflugvelli og eiga þau einn son; Skúli Ágústsson, f. 6.9.1957, framkvæmdastjóri Blikksmiðju Ágústs Guðjónssonar í Keflavík, kvæntur Stellu Maríu Thorarensen Guðmundur Svavarsson. röngentækni og eiga þau tvö börn. Foreldrar Guðmundar: Svavar Þórarinsson, rafvirki í Vestmanna- eyjum, f. 3.6.1916, d. 14.4.1951, og Hulda Guðmundsdóttir, húsmóðir í Keflavík, f. 17.10.1927. Stjúpfaðir Guðmundar er Ágúst Guðjónsson, blikksmíðameistari í Keflavík, f. 1.8. 1929. Móðurforeldrar Guðmundar: Guðmundur Benónýsson, fiskmats- maður og vitavörður á Þórkötlu- stöðum og Sigríður'Ólafsdóttir, hús- móðirþar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.